Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.10.2003, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 31.10.2003, Qupperneq 36
31. október 2003 FÖSTUDAGUR FÓTBOLTI Aganefnd enska knatt- spyrnusambandsins dæmdi Arsenal í 175.000 punda sekt vegna framkomu nokkurra leik- manna félagsins í leik gegn Manchester United í síðasta mán- uði. Fimm leikmenn voru sektaðir og fjórir þeirra dæmdir í leikbann að auki. Ashley Cole var sektaður um 10.000 pund en slapp við leikbann. Patrick Vieira og Ray Parlour voru dæmdir í eins leiks bann og var Vieira var einnig sektaður um 20.000 pund en Parlour um 10.000 pund. Martin Keown fékk þriggja leikja bann vegna framkomu sinn- ar gagnvart Ruud van Nistelrooy og 20.000 punda sekt að auki. Lauren fékk þyngsta dóminn, fjögurra leikja bann og 40.000 punda sekt. Hann var sakfelldur fyrir framkomu sína gagnvart van Nistelrooy og fyrir að sparka til Quinton Fortune. Næstu fjórir leikir Arsenal eft- ir að dómurinn tekur gildi, 17. nóvember, eru gegn Birmingham og Úlfunum á heimavelli og Ful- ham og Leicester á útivelli. Leik- urinn gegn Úlfunum verður í deildabikarnum en hinir þrír í úr- valsdeildinni. ■ Aukum breiddina hægt og bítandi HANDBOLTI Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Pólverjum um helgina í þremur æfingaleikjum. Fyrsti leikurinn verður í kvöld í Kaplakrika, annar leikurinn á morgun í Ólafsvík og sá þriðji í Laugardalshöll á sunnudag. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur haft í nógu að snúast síðustu daga enda langt síðan liðið kom síðast saman. „Við erum að koma saman í fyrsta sinn síðan í mars þegar við mættum Þjóðverjum í Berlín og erum að fara yfir okkar mál. Þetta er töluvert breytt lið þar sem nokkrir leikmenn eru meiddir,“ segir Guðmundur. Sigfús Sigurðs- son getur ekki leikið með þar sem hann er meiddur á auga, Aron Kristjánsson er meiddur á hné, Patrekur Jóhannesson er að jafna sig eftir aðgerð og Roland Eradze sleit krossbönd fyrir skömmu. Landsliðsþjálfarinn segir ljóst að nýir menn verði í lykilstöðum gegn Pólverjum. Ragnar Óskars- son og Snorri Steinn Guðjónsson munu til að mynda leika á miðj- unni og nafnarnir Róbert Gunn- arsson og Sighvatsson verða á lín- unni. Auk þeirra eru Ásgeir Örn Hallgrímsson, Björgvin Gústafs- son og Brynjar Þór Hreinsson í landsliðshópnum. „Það er gott að fá ungu strák- ana inn. Þeir fá að kynnast vinnu- brögðum landsliðsins og komast inn í aðferðafræðina. Landsliðið er góður skóli en það er spurning hvað þeir fá mörg tækifæri gegn Pólverjum,“ segir Guðmundur. „Þetta er jákvætt því svona getum við aukið breiddina hægt og bít- andi.“ Að sögn Guðmundar hefur und- irbúningurinn gengið vel. „Það eru flestir í góðu standi en Jaliesky Garcia hefur verið að glíma við ökklameiðsli. Það er góður andi í hópnum og það er heilmargt að gera á stuttum tíma.“ Leikirnir gegn Pólverjum eru liður í undirbúningi landsliðsins fyrir Evrópumótið í Slóveníu á næsta ári og býst Guðmundur við hörkuleikjum enda gestirnir með sitt sterkasta lið í áraraðir. „Við stefnum á að gera eins vel og við getum og vinna alla leiki sem við spilum. En við þurfum fyrst og fremst að sjá hvar við stöndum, sjá hvað er gott og hvað þarf að laga.“ ■ Föstudagur: 31. okt. kl. 20:00 - Kaplakriki Laugardagur: 01. nóv. kl. 16:30 - Ólafsvík Sunnudagur: 02. nóv. kl. 19:40 - Laugardalshöll ÍSLAND - PÓLLAND Mætum öll og styðjum strákana okkar til sigurs Íslenska landsliðið í handbolta mætir Pólverjum í þremur æfingal-eikj- um. Nýir leikmenn í lykilstöðum. Nokkrir leikmenn meiddir. Getum aukið breiddina, segir landsliðsþjálfarinn. Í LANDSLEIK GEGN SLÓVENÍU Landsliðið hefur æft stíft síðustu daga en landsliðsþjálfarinn hefur ekki útilokað að fleiri leikmenn bætist í hópinn. Þar á meðal eru Birkir Ívar Guðmundsson, Markús Máni Mikaelsson, Bjarni Fritzson, Arnór Atlason, Vilhjálmur Halldórsson og Logi Geirsson. GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON Guðmundur segist ekki vera farinn að setja sér markmið fyrir mótið og hyggst ekki gera það fyrr en í byrjun árs. Arsenal: Sektir og bönn LAUREN Etame-Mayer Lauren (til hægri á mynd- inni) fékk fjögurra leikja bann fyrir fram- göngu sína í leik Arsenal og Manchester United í september. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.