Fréttablaðið - 31.10.2003, Side 38

Fréttablaðið - 31.10.2003, Side 38
38 31. október 2003 FÖSTUDAGUR 450 konur ráfuðu um naktar áaðallestarstöðinni í New York um helgina. Ástæðan er sú að ljós- myndarinn Spencer Tunick aug- lýsti eftir konum til þess að láta mynda sig naktar í fallegustu byggingu borgarinnar. Fyrirsæt- urnar létu ekki á sér standa frekar en fyrri daginn. Konurnar mættu klukkan þrjú um nóttina, tóku af sér fötin og stilltu sér upp á gólfið eftir skip- unum. Þeim var raðað þannig upp a gólfið að naktir líkamar þeirra mynduðu götur, skýjakljúfa og aðrar þekktar byggingar. „Ég elska listaverkin hans og mér finnst hann vera að gera stór- kostlega, nýja, öðruvísi og spenn- andi hluti,“ sagði Anna Springer, 30 ára fasteignasali sem beraði sig fyrir ljósmyndarann. Tunick er orðinn heimsfrægur fyrir að ná að lokka til sín hundr- uð naktra fyrirsætra fyrir myndatökur við þekkt kennileiti víðs vegar um heim. Eftir að Tun- ick öðlaðist frægð er það orðið eftirsóknarvert að komast að í tökur hjá honum, og komast færri að en vilja. „Í gegnum tíðina hafa yfirvöld í New York talið líkamann vera ólöglegan, eða klámfenginn,“ sagði Tunick. „Ég vonast til þess að núverandi borgarstjórn sjái hversu viðkvæmur líkaminn er.“ Myndatakan á lestarstöðinni er hluti af Naked World-seríunni, en Tunick vonast til að ljósmynda 35 þúsund manneskjur naktar áður en henni lýkur. ■ SPENCER TUNICK Myndin var tekin á aðallestarstöðinni í New York um helgina. Skrýtnafréttin 450 ALLSBERAR KONUR ■ Ljósmyndarinn Spencer Tunick fékk um 450 allsberar konur til þess að fækka fötum fyrir myndatöku á aðallestarstöð- inni í New York. Allsberar konur Kári Sturluson umboðsmaðurhljómsveitanna Vínyls og Quarashi, fór til New York í síð- ustu viku til að fylgja tónleikum hljómsveitanna eftir á CMJ-há- tíðinni. Þegar hann mætti á hótel- ið Hudson, sem hljómsveitirnar dvöldu á, gekk hann í flasið á upptökuliði sjónvarpsþáttarins, Sex and the City: „Það var verið að taka upp atriði fyrir næstu seríu þáttarins og einhverra hluta vegna datt ég inn í eitthvað atriði. Ég var bara eitthvað að þvælast í afgreiðslunni og skyndilega héldu allir að ég væri einn af statistunum,“ segir Kári, sem slysaðist þannig til að vera statisti í Sex and the City. „Því miður voru aðalleikkonurnar hvergi sjáanlegar og líklega var bara verið að taka upp eitthvað lítið atriði.“ Hljómsveitirnar Leaves og Singapore Sling voru á sama tíma að spila í New York: „Ferðin var fín og það var mjög góð mæting á tónleikana með Vínyl og Quar- ashi og góður rómur gerður að þeim. Það eru nokkrir aðilar bún- ir að sýna báðum böndunum áhuga í kjölfarið og ég er að vinna úr því núna,“ segir Kári, sem komst því miður ekki til að sjá Leaves en náði tónleikum með Singapore Sling. Kári býst ekki endilega við að sjá sig á sjónvarpsskjánum í Sex and the City: „Tökuliðið gekk á milli og lét fólk skrifa undir eitt- hvað en ég laumaði mér í burtu svo það er mjög líklegt að ég verði klipptur út úr atriðinu.“ ■ Upp á síðkastið hefur veriðmjög í tísku bæði hjá rokk- og poppurum að taka lagið með sin- fóníuhljómsveitum. Quarashi og Botnleðja spiluðu með Sinfóníu- hljómsveit Íslands og rokkhund- arnir í Metallica tóku upp heila plötu með sinfóníusveit á bak við sig, svo eitthvað sé nefnt. Ég hef ekkert á móti samspili dægurtónlistar og sinfóníusveita. Hljómsveitir þurfa ítrekað að prófa nýja hluti til að staðna ekki og því ekki að djamma með sin- fóníunni eins og hvað annað? Sálin ákveður að stíga þetta skref á plötunni Vatnið og kann- ski ekki skrítið. Sveitin hefur í of mörg ár staðið í sömu sporunum og þessi tilbreyting því eflaust kærkomin. Sálin kemst ágætlega frá þessu vandasama verkefni og vinnur platan mjög á við hverja hlustun, enda tekur tíma að venj- ast þessu nýja samstarfi. Í flest- um tilfellum er sinfónían notuð sem krydd í lögunum í stað þess að yfirgnæfa þau, eins og mikil hætta er á. Sambræðingur popps- ins og sinfóníunnar tekst yfirhöf- uð vel upp og eflaust eiga Sálar- menn þar mikið að þakka Þor- valdi Bjarna Þorvaldssyni. Titillagið Vatnið (skemmtileg- ur texti), Allt eins og það á að vera, Aðeins eitt og Síðasta tæki- færið voru fremst í flokki af lög- unum níu. Freyr Bjarnason Umfjölluntónlist SÁLIN & SINFÓ: Vatnið Vandasamt verkefni KÁRI STURLUSON Umboðsmaður Vínyls og Quarashi fylgdi hljómsveitunum til New York og góður rómur var gerður að tónleikum þeirra. Heppni KÁRI STURLUSON ■ Gekk í flasið á upptökuliði þáttarins Sex and the City á hóteli í New York og var fyrir misskilning talinn vera einn af statistunum. Íslendingur í Sex and the City FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FÓLK Bítilinn Paul McCartney og eiginkona hans Heather eignuðust stúlkubarn í gærmorgun. Mikil leynd hvíldi yfir kyni barnsins í fyrstu og hlupu nokkrir fjölmiðlar á sig og tilkynntu að þau hefðu eignast strák. McCartney-hjónin höfðu þegar ákveðið nafn á stúlk- una áður en hún leit dagsins ljós og heitir hún Beatrice. Stúlkan fæddist tveimur vik- um fyrir tímann og var tekin með keisaraskurði. Öllum heilsast vel. Heather McCartney er 35 ára gömul og er þetta hennar fyrsta barn. Hún giftist Paul í júní árið 2001. ■ McCartney eignaðis stúlku PAUL OG HEATHER Eru líklegast í skýjunum þessa dagana með nýju stúlkuna sína. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 MEST SELDU SKÁLDVERKIN Í VERSL- UNUM PENNANS-EYMUNDSSONAR PRO EVOLUTION SOCCER 3 PS2 JAK 2 RENEGADE PS2 C&C GENERALS ZERO HOUR PC HOMEWORLD 2 PC TIGER WOODS PGA 2004 Allar tölvur SIMS DOUBLE DELUXE PC JEDI KNIGHT : JEDI ACAD... PC FREEDOM FIGHTERS Allar tölvur WARCRAFT 3 FROZEN THR... PC DAY OF DEFEAT PC Topp 10tölvuleikir Fréttiraf fólki Nú hefur því verið uppljóstraðað breska söngkonan Annie Lennox kemur til með að syngja lokalag þriðju og síðustu Lord of the Rings-myndarinnar. Lagið heitir Into the West og verður að finna á geislaplötunni sem fylgir útgáfu myndarinnar The Return of the King. Myndin fer í al- menna sýningu hér á landi annan í jólum, 26. des- ember. Fréttiraf fólki Leikkonan og fyrirsætan Eliza-beth Hurley var niðurlægð á miðvikudaginn þegar kvöldmáltíð með henni var hluti af góðgerðar- uppboði fyrir brunalið New York borgar. Henni til mikillar skelf- ingar bauð enginn peninga fyrir það að fara út að borða með henni. Hún hafði séð þetta sem leið til þess að láta gott af sér leiða, en hún þótti því miður ekki eftirsóknar- verðari matargest- ur en þetta.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.