Fréttablaðið - 31.10.2003, Page 46
Hrósið 46 31. október 2003 FÖSTUDAGUR
■ Eina ósk
Sundhöllinni verður breytt íkaffihús,“ segir Bergþóra
Þórhallsdóttir, sviðsstjóri
fræðslu- og símenntunar hjá
Vestmannaeyjabæ, sem skipu-
leggur Landsmót saumaklúbba
sem haldið verður í Eyjum um
miðjan nóvember. „Við verðum
með kertaljós á laugarbakkan-
um, tískusýningar og alls konar
kynningarbása með varningi
sem konurnar kynnu að hafa
áhuga á. Svo verður að sjálf-
sögðu ball.“
Bergþóra gerir ráð fyrir að
um 30 saumaklúbbar streymi til
Eyja í tilefni af Landsmótinu og
verða saumaklúbbskonurnar
ekki færri en 200: „Við reyndum
þetta innanbæjar í fyrra og það
tókst svo vel að við vildum end-
urtaka leikinn á landsvísu. Auk
þess að skemmta okkur í Sund-
höllinni verður boðið upp á alls
kyns örnámskeið sem spanna
allt frá fræðsluerindum yfir í
danskennslu,“ segir Bergþóra og
tekur fram að eiginmennirnir
séu velkomnir með til Eyja. Þeir
fái hins vegar ekki að taka þátt í
dagskráratriðum og verði því að
dunda sér við eitthvað annað.
Bæjarstjórnin í Vestmanna-
eyjum hefur þegar styrkt Lands-
mót saumaklúbba um álitlega
fjárupphæð og verður reynt að
gera þetta að árlegum viðburði í
framtíðinni. Er ekki að efa að
Landsmót saumaklúbba á eftir
að lífga upp á bæjarlífið í Eyjum
og varpa ljósi á nýtilkomið
skammdegi. ■
Landsmót
BERGÞÓRA ÞORHALLSDÓTTIR
■ Sviðstjóri fræðslu- og símenntunar hjá
Vestmannaeyjabæ skipuleggur landsmót
saumaklúbba sem haldið verður í Eyjum
eftir tvær vikur.
...fær Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra fyrir vefsíðu sína
sem kjörin var besta einstak-
lingsvefsíðan 2003 af íslensku
vefakademíunni -
http://www.bjorn.is
Saumaklúbbar í sundlaug
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að tveggja
manna tal er ekki þriggja manna hjal.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Stefán Jón Hafstein og Mar-
grét Frímannsdóttir um emb-
ætti formanns framkvæmda-
stjórnar.
Alvís.
Iain Duncan Smith.
1
7
8
9 10
12 13
15 16
14
17
2 3 4 5
11
6
LÁRÉTT: 1álfinn,7smiðja,8mjór, 9
alautt,11ær, 12sigur, 15ei,16ól,17
brella.LÓÐRÉTT: 1ásta,2lm,3fimari,
4iðju,5njóttu,6nartar, 10læsir, 13gól,
14ull,15eb.
Að fátæktinni í heiminum yrðiútrýmt. Gamall frændi minn
kallaði það fátæktardjöfulinn,“
segir Steingrímur J. Sigfússon al-
þingismaður um óskina sína einu.
„Hvað sjálfan mig varðar vantar
mig meiri tíma til að koma því í
verk sem ég þarf að gera og vera
meira með fjölskyldunni.“ ■
SAUMAKLÚBBUR Í
HEITUM POTTI
Palóma, Bergþóra,
Erna og Valgerður.
Listamaðurinn Tolli er aðpakka saman penslum sínum
og litum á vinnustofu sinni í
Berlín og flytja yfir til Kaup-
mannahafnar. Þar hyggur hann á
frekari landvinninga í málara-
listinni:
„Ég er að ganga frá samning-
um um leigu á vinnustofu við
Grábræðratorg og ef af verður
flyt ég næsta vor,“ segir Tolli,
sem sér ýmsa möguleika á Norð-
urlöndum. „Það er bara orðið
praktískara að vera í Kaup-
mannahöfn en í Berlín. Ekki síst
eftir að Iceland Express fór að
fljúga. Nú er hægt að skjótast
yfir hafið,“ segir Tolli, sem verið
hefur með vinnustofu og annan
fótinn í Berlín í nokkur ár.
„Grábræðratorgið er 101
Kaupmannahafnar og rúmlega
það. Þarna eru húsin frá fjórt-
ándu öld og mannlíf mikið,“ seg-
ir Tolli, sem vill þó ekki gefa upp
hvað hann borgar fyrir vinnu-
stofu á þessum eftirsótta stað:
„Þetta kostar sitt eins og konan
sagði.“
Tolli var að opna málverka-
sýningu í Arndean-galleríinu í
Cork Street í London fyrir
nokkrum dögum. Þar hefur ver-
ið gestkvæmt og „...reytingur
selst, slatti,“ segir Tolli. ■
TOLLI
Var að opna sýningu í London – næst er það Kaupmannahöfn.
Tolli til Kaup-
mannahafnar
Myndlist
TOLLI
■ Hefur leigt sér vinnustofu við Grá-
bræðratorg í Kaupmannahöfn og hyggst
flytja sig frá Berlín þar sem hann hefur
unnið um árabil.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
LÁRÉTT: 1 huldumanninn, 7 verkstæði,
8 grannur, 9 alveg autt, 11 kindur, 12
vinningur, 15 ekki, 16 belti, 17 hrekkur.
LÓÐRÉTT: 1 konunafn, 2 í röð, 3 leiknari,
4 starfi, 5 hafðu nautn af, 6 kroppar,
10 lokar, 13 öskur, 14 hlýtt efni,
15 skammstöfun.
LAUSN: