Fréttablaðið - 29.11.2003, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 58
Leikhús 58
Myndlist 58
Íþróttir 54
Sjónvarp 60
LAUGARDAGUR
JÓLABAROKK Barokkhópurinn held-
ur tónleika í Salnum í Kópavogi klukkan
18 í dag. Spilað verður á upprunaleg
barokkhljóðfæri og Arngeir Heiðar Hauks-
son verður sérstakur gestur. Barokkið
hljómar en einnig sumt sem minnir á
spænska flamengótónlist og 18. aldar
skemmtitónlist.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐA SNJÓKOMA EÐA ÉL Þó síst í
höfuðborginni. Það er hálf napurt enda
hreyfir lítið vind. Hlýnar seint á mánudags-
kvöld. Sjá síðu 6
29. nóvember 2003 – 297. tölublað – 3. árgangur
jol.is ● glöggið úti
Engill í
miðbænum
jólin koma
Brynhildur Björnsdóttir:
▲
SÍÐUR 44-45
ENGIN TENGSL
Utanríkisráðherra
hefur ekki upplýsing-
ar um frekari upp-
sagnir hjá varnarlið-
inu en segir að upp-
sagnir sem þegar
hafa verið kynntar
séu ekki í neinu sam-
hengi við viðræður vegna varnarsamnings
Bandaríkjanna og Íslands. Sjá síðu 6
SAMRÁÐ EFTIR LANDSSVÆÐUM
Seinni frumskýrsla Samkeppnisstofnunar
um samráð olíufélaganna, sem kynnt verð-
ur félögunum í næstu viku, fjallar meðal
annars um samráð á einstökum landsvæð-
um og Olíudreifingu. Sjá síðu 2
ÖLLUM SAGT UPP Starfsmönnum
rækjuverksmiðju Póla var sagt upp í gær.
21 starfsmaður fékk uppsagnarbréf en for-
ysta verkalýðsfélagsins telur að lög um
hópuppsagnir hafi verið brotin. Sjá síðu 4
BANDARÍKJAMENN MEÐ
Bandaríkin standa að nýjum vopnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna sem kveður á um að
ríkisstjórnir beri ábyrgð á því að fjarlægja
eða eyða öllum hergögnum á yfirráðasvæði
sínu að stríði loknu. Þetta er fyrsti afvopn-
unarsamningurinn sem stjórn Bush sam-
þykktir. Sjá síðu 2
Rás 2 tvítug:
Glímt við Jón Arason
Ólafur Gunnarsson ræðst ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur í nýrri bók
sinni um Jón biskup Arason.
SÍÐA 30
▲
Bækur:
Var alveg sama
DECODE Davíð Þór Björgvinsson, pró-
fessor í lögfræði við Háskólann í
Reykjavík, telur að breyta þurfi lög-
um um gagnagrunn til þess að hægt
sé að hefja vinnu við samsetningu
hans ef halda eigi áfram í samræmi
við þær hugmyndir sem liggja til
grundvallar lögum um gagnagrunn
á heilbrigðissviði.
Breyta þarf lögunum þannig að
þau kveði nánar á um meðferð og
úrvinnslu gagnanna, en í dómi
Hæstaréttar á fimmtudag var kom-
ist að þeirri niðurstöðu að markmið
laganna um persónuvernd væru
ekki nægilega vel tryggð í lögunum.
Davíð Þór telur að dómur Hæsta-
réttar vegi ekki að hugmyndinni um
gerð miðlægs gagnagrunns á heil-
brigðissviði. „Ég tel að í honum sé
Hæstiréttur búinn að gefa grænt
ljós á að ef það eru gerðar nauðsyn-
legar breytingar á lögunum í sam-
ræmi við þær athugasemdir sem
gerðar eru þá sé hægt að halda
áfram með verkefnið á þeirri for-
sendu sem lagt var upp með; það er
að það sé hægt að safna upplýsing-
um án upplýsts samþykkis hvers og
eins,“ segir Davíð Þór. ■
spilar á laugardagskvöldum
Gunnar Þórðarson:
▲
SÍÐA 62
Alltaf gaman
39 ára í dag
Didda:
▲
SÍÐA 20
Skiptir á
afmælisdegi
3.990
10 lítrar
Meðallestur 25-49
Höfuðborgarsvæðið
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í okt. ‘03
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
75%
56%
Móðir Ruthar Reginalds:
Sakar Ruth
um lygi
BÓKAÚTGÁFA Ríkey Ingimundar-
dóttir, móðir Ruthar Reginalds,
skrifar harðort opið bréf til dóttur
sinnar og sakar Ruth og höfund
bókar um hana um hálfsannleik, í
besta falli lygi.
Ríkey íhugar
nú málsókn á
hendur Ruth og
Forlaginu en hún
vill meina að í
bókinni komi
fram skelfilegar
ásakanir. Ríkey
hafnar því alfarið
að hún hafi arð-
rænt dóttur sína,
hún neitar því að
vera alkóhólisti
og spyr hver til-
gangurinn með
bók af þessu tagi sé. Hún segir
alkunna að langvarandi neysla
vímuefna geti heft andlegan
þroska og valdið veruleikafirr-
ingu.
Sjá nánar á blaðsíðu 22.
HEILBRIGÐISMÁL Eitt meginmarkmið
sameiningar sjúkrahúsanna í
Reykjavík árið 2000 var að draga
úr kostnaði, en skýrsla Ríkisendur-
skoðunar um mat á árangri samein-
ingarinnar leiðir í ljós að það mark-
mið hefur ekki náðst.
„Sameiningin hefur hvorki leitt
til aukinna afkasta né sparnaðar
eins og að var stefnt,“ segir í skýrsl-
unni. „Þó að biðlistar hafi styst í
sumum sérgreinum hafa þeir lengst
í öðrum. Þá hefur sameining deilda,
fækkun starfsfólks og minni yfir-
vinna ekki orðið til að draga úr
kostnaði,“ segir í skýrslunni. „Hann
hefur þvert á móti hækkað svo mik-
ið að nú fæst minni þjónusta fyrir
hverja krónu en áður var.“
Í skýrslunni segir að rekja
megi aukinn kostnað meðal annars
til mikilla launahækkana og auk-
ins kostnaðar vegna tækninýjunga
og lyfja.
Faglega séð telur Ríkisendur-
skoðun að sameining spítalanna
hafi skilað árangri. Stofnunin ber
ýmsa þætti í starfsemi Land-
spítala-háskólasjúkrahúss saman
við bresk háskólasjúkrahús.
Meðallegutími sjúklinga er mjög
svipaður. Þegar horft er til tíu al-
gengustu sjúkdómsflokka kemur í
ljós að í sjö tilvikum er legutími á
Landspítalanum styttri en í Bret-
landi. Niðurstöður athugunar á
kostnaði vegna 28 algengustu
sjúkdómsflokka á Landspítalanum
eru einnig viðunandi.
Það er neikvætt að starfsfólk
spítalans skilar minni afköstum en
starfsfólk spítalanna í Bretlandi.
Að meðaltali þarf Landspítalinn
42% fleiri starfsmenn til að skila
jafn mörgum sjúkdómsverkum og
bresku sjúkrahúsin. Í skýrslunni er
skýrt tekið fram að ólík samsetning
verkefna geti haft áhrif á þennan
samanburð.
Ríkisendurskoðun gagnrýnir að
ekki sé nægilega ljóst hvernig
Landspítalanum sé ætlað að vera í
framtíðinni. Það dragi úr möguleik-
um stjórnenda á markvissri upp-
byggingu og stjórnun. Gagnrýnt er
að fjárheimildir hafi ekki aukist að
sama marki og útgjöld.
„Það hefur sömuleiðis sett sam-
einingunni ákveðin takmörk að
meginstarfsemin fer fram á tveim-
ur stöðum,“ segir í skýrslunni.
trausti@frettabladid.is
sjá síðu 2
UNNIÐ AÐ RANNSÓKNUM
Davíð Þór telur ekki að dómur Hæstaréttar
vegi að grundvelli gagnagrunns á heil-
brigðissviði.
RUTH
REGINALDS
Bók hennar
veldur verulegum
usla innan
fjölskyldunnar.
Rás 2 er tvítug. Rokklandsstjórinn
Óli Palli lét sér fátt um finnast þegar
stöðin var stofnuð og segist hafa
verið alveg sama.
▲
SÍÐA 40
Sigurður Björnsson:
Verður aftur
yfirlæknir
HEILBRIGÐISMÁL Deilunni um
starfslok Sigurðar Björnssonar
sem yfirlæknis lyflækninga við
Landspítala-háskólasjúkrahús
lauk í gær með því að ákveðið var
að Sigurður tæki aftur við stöðu
yfirlæknis. Hann lýsti því yfir að
hann hefði dregið til baka stjórn-
sýslukæru sína til heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytis vegna brott-
vísunar sinnar úr starfi yfirlækn-
is og að hann myndi ekki að
óbreyttu sinna sjúklingum á
læknastofu sinni.
Sigurður var færður úr starfi
yfirlæknis í stöðu sérfræðings
eftir að hann lýsti sig óbundinn af
samkomulagi sem hann gerði við
stjórn Landspítalans um að
stunda ekki stofurekstur sam-
hliða starfi sínu hjá spítalanum. ■
Gagnagrunnsdómur kallar á endurskoðun:
Breyta þarf lögum
Kostnaður jókst
eftir sameiningu
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sameiningu spítalanna leiðir í ljós að
kostnaðarlega hefur sameiningin engu skilað. Þvert á móti hefur kostn-
aður hækkað. Ríkisendurskoðun gagnrýnir stefnuleysi stjórnvalda.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
SKÝRSLAN SKOÐUÐ
Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi og Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala-háskólasjúkrahúss, báru saman bækur sínar áður en
ný skýrsla um sameiningu spítalanna var kynnt.