Fréttablaðið - 29.11.2003, Qupperneq 2
2 29. nóvember 2003 LAUGARDAGUR
„Fyrr skal ég hundur heita.“
Andri Óttarsson situr í Útvarpsráði. Kolbrún Hall-
dórsdóttir, Vinstri grænum, segir að þar sitji varð-
hundar ríkisstjórnarinnar.
Spurningdagsins
Andri, ertu varðhundur?
■ Lögreglufréttir
Tekið á markaðs-
skiptingu olíufélaga
Seinni frumskýrsla Samkeppnisstofnunar verður kynnt olíufélögunum í
næstu viku. Hún fjallar meðal annars um verðsamráð á frostlegi og
rúðuvökva. Einnig er tekið á fyrirtækinu Olíudreifingu.
OLÍUFÉLÖGIN Í seinni frumskýrslu
Samkeppnisstofnunar um meint
samráð olíufélaganna er fjallað
um markaðsskiptingu félaganna,
samráð þeirra á einstökum lands-
svæðum og fyrirtækið Olíudreif-
ingu.
Í skýrslunni, sem verður afhent
olíufélögunum í næstu viku, er ein-
nig fjallað um al-
mennt verðsam-
ráð þeirra á elds-
neyti, smurolíu,
gasi og jafnvel
frostlegi og rúðu-
vökva. Í skýrsl-
unni er enn frem-
ur fjallað um það hvernig þau reyn-
du markvisst að ná ekki til sín við-
skiptavinum frá hverju öðru.
Guðmundur Sigurðsson, for-
stöðumaður samkeppnissviðs Sam-
keppnisstofnunar, vildi ekkert tjá
sig efnislega um seinni skýrsluna,
þar sem trúnaður ríki um innihald
hennar. Eftir að olíufélögin fá
skýrsluna í hendur fá þau tvo mán-
uði til að skila inn skriflegum and-
mælum og athugasemdum. Skýrsl-
an verður því ekki gerð opinber
fyrr en í fyrsta lagi eftir rúma tvo
mánuði.
Gestur Jónsson, stjórnarformað-
ur Skeljungs, gagnrýndi í Ríkisút-
varpinu í gær Samkeppnisstofnun
fyrir að hafa gert samkomulag við
Olíufélagið um að halda Olíudreif-
ingu fyrir utan rannsóknina. Olíu-
dreifing sér meðal annars um dreif-
ingu og birgðahald fyrir Esso og
Olís, sem eiga fyrirtækið í samein-
ingu. Guðmundur segir þetta al-
rangt.
„Hann ályktar þetta út frá ein-
hverjum orðrómi og mér finnst
það svolítið djarft af honum,“ seg-
ir Guðmundur. „Olíudreifingu er
ekki haldið utan við þetta.“
Guðmundur segir að fjallað sé
um Olíudreifingu í þeim tilfellum
þar sem fyrirtækið tengist hugs-
anlegu samráði milli Esso og Olís.
Gestur sagði einnig að það
gengi ekki upp að málið væri
rannsakað á tveimur stöðum.
Hann sagði nöturlegt að horfa upp
á átök milli lögreglu- og sam-
keppnisyfirvalda í málinu.
Guðmundur vildi ekkert tjá sig
um þetta atriði.
„Það er búin að vera nógu mik-
il umfjöllun um samskipti emb-
ættanna.“ trausti@frettabladid.is
Fjárhagsstaðan væri verri ef spítalarnir hefðu ekki sameinast:
Sameiningin sjálf kostaði peninga
HEILBRIGÐISMÁL Kostnaðarlega hefur
sameining spítalanna engu skilað,
samkvæmt skýrslu Ríkisendur-
skoðunar um sameininguna. Magn-
ús Pétursson, forstjóri Landspítala-
háskólasjúkrahúss, segist vilja hafa
fyrirvara á því hvort þetta sé rétt
staðhæfing.
Magnús segir menn verða að
átta sig á því að sameiningin ein og
sér hafi kostað peninga. Þeir fjár-
munir séu inni í útreikningum Rík-
isendurskoðunar, en ómögulegt sé
hins vegar að segja hversu mikið
sameiningin hafi kostað. Hann seg-
ist enn fremur sannfærður um það
að ef spítalarnir hefðu ekki sam-
einast væri fjárhagsstaða þeirra
samanlagt verri en hún sé nú. Að
teknu tilliti til þessa hafi samein-
ingin vissulega skilað einhverju
fjárhagslega.
Magnús tekur undir þá gagnrýni
sem kemur fram í skýrslunni að
framtíðarstefnumótun skorti fyrir
spítalann. Hann segir þetta gamalt
vandamál sem hann hafi oft bent á.
Almennt segist Magnús mjög
ánægður með skýrslu Ríkisendur-
skoðunar.
„Það kemur mjög skýrt fram að
borið saman við sjúkrahúsin í Bret-
landi er þjónustan sem við erum að
veita mjög góð. Í skýrslunni eru
margar góðar ábendingar sem ég
mun taka til athugunar.“ ■
Heilbrigðisráðherra:
Skýrslan
gagnleg
HEILBRIGÐISMÁL Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra er mjög sáttur
við niðurstöðu skýrslu Ríkisendur-
skoðunar um sameiningu sjúkra-
húsanna.
„Ég tel að skýrslan sé mjög gagn-
leg. Í henni eru ýmsir þættir sem eru
jákvæðir fyrir sameininguna en
jafnframt bent á þætti sem mættu
betur fara. Það er ljóst að helsti
ávinningurinn er sá að stofnunin er
sterkari eftir sameininguna og það
er gríðarlega mikilvægt. Hins vegar
hefur hún ekki skilað eins miklu
fjárhagslega en það gæti breyst þeg-
ar meiri reynsla hlýst af sameining-
unni.“ ■
Thule-málið:
Fá ekki að
snúa heim
DANMÖRK Inúítar sem fluttir voru
nauðugir frá Dundas-skaga á Græn-
landi þegar Bandaríkjamenn reistu
Thule-herstöðina fá ekki að snúa
aftur.
Hæstiréttur í Danmörku stað-
festi dóm héraðsdóms í málinu og
vísaði frá kröfum um að bætur til
handa fólkinu yrðu hækkaðar. Hér-
aðsdómur hafði dæmt inúítunum
sem svarar um 20 milljónum ís-
lenskra króna samtals en þeir fóru
fram á yfir 2,7 milljarða. Í dómnum
kemur fram að fyrrum íbúar
Dundas-skaga séu ekki sjálfstæð
þjóð og því hafi þeir ekki þau rétt-
indi sem því fylgir.
Inúítarnir höfðu lýst því yfir að
ef þeir töpuðu málinu ætluðu þeir
að leita réttar síns fyrir Mannrétt-
indadómstól Evrópu. ■
Akureyri:
Þjófar á ferð
LÖGREGLUMÁL Nokkrir þjófnaðir
hafa verið tilkynntir lögreglunni á
Akureyri á síðustu dögum. Í gær
var tilkynnt að um 200 kílóum af
rækju hefði verið stolið af at-
hafnasvæði Samherja. Talið er að
ránið hafi átt sér stað aðfaranótt
fimmtudags.
Þá var 32 tommu sjónvarps-
tæki, heimabíói, DVD-spilara og
myndbandstæki stolið úr félags-
heimili unglinga við Hafnar-
stræti. Ef fólk telur sig hafa upp-
lýsingar um þessi mál er það beð-
ið að hafa samband við lögregluna
á Akureyri í síma 464-7700. ■
AMFETAMÍN Á FRUMSTIGI
Ýmis efni, tæki og tól fundust í vesturbæ
Kópavogs í húsleitinni.
Amfetamínframleiðslan:
Efnin í
rannsókn
RANNSÓKN „Við erum að flokka efnin
og munina sem hafa verið handlagð-
ir,“ segir Ásgeir Karlsson, yfirmað-
ur fíkniefnadeildarinnar.
Ásgeir segir efnin sem fundust í
húsi í Kópavogi hafa verið send á
rannsóknarstofu Háskólans. Þar
verður fundið út hvaða efni er um
að ræða og hvaðan þau koma.
Meðal þess sem var haldlagt eru
þrjár tölvur, handþeytarar, smásjá
og vatnsbað auk ýmissa tækja og
tóla sem gjarnan má finna á rann-
sóknarstofum.
Ásgeir segir mörg efnanna vera
stórhættuleg, sprengjuhættan fari
mikið eftir magninu og að mjög var-
lega þurfi að fara í kringum þessa
hluti. „Ef menn hafa ekki góða
þekkingu er voðinn vís.“ ■
FANNST LÁTINN Maður á sextugs-
aldri, sem lögreglan á Selfossi
hafði svipast um eftir frá því
snemma á fimmtudag, fannst lát-
inn skammt frá bifreið sinni í
Grafningi.
Lögreglan í Reykjavík:
Fimm voru
handteknir
HANDTEKNIR Mikið af munum fannst í
heimahúsi í austurborginni sem
talið er vera þýfi. Að sögn Harðar
Jóhannessonar, yfirlögregluþjóns í
Reykjavík, voru fimm menn hand-
teknir vegna þessa og seinnipartinn
í gær voru þeir enn í haldi lögreglu.
Ekki var vitað í gær hvaðan þýf-
ið er komið. Málið er í rannsókn lög-
reglu. ■
Sameinuðu þjóðirnar samþykkja nýjan vopnasáttmála:
Hergögn fjarlægð að loknu stríði
GENF, AP Aðildarríki Sameinuðu
þjóðanna hafa komist að samkomu-
lagi um nýjan sáttmála sem kveður
á um að löndin verði að fjarlægja
virkar sprengjur og önnur hergögn
á átakasvæðum að loknu stríði.
Samningurinn nýtur stuðnings allra
aðildarríkjanna.
Þetta er fyrsti afvopnunarsamn-
ingurinn sem stjórn George W.
Bush Bandaríkjaforseta samþykkir.
Sáttmálinn verður sendur Kofi Ann-
an, framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, áður en hann verður und-
irritaður af stjórnum aðildarríkj-
anna. Samkvæmt samningnum bera
ríkisstjórnir allra landanna ábyrgð
á því að fjarlægja eða eyða öllum
hergögnum á yfirráðasvæðum sín-
um þegar stríði lýkur.
Engar tölulegar upplýsingar
liggja fyrir um það hversu mikið
magn hergagna hefur verið skilið
eftir á vígvöllum heimsins en Sam-
einuðu þjóðirnar áætla að bara í
Írak megi finna hátt í eina milljón
tonna af virkum sprengjum. Banda-
ríkin hafa hafist handa við að
hreinsa svæðið en talið er að það
geti tekið allt að áratug. Í Evrópu og
Kína má enn finna þúsundir virkra
sprengja úr heimsstyrjöldunum
tveimur og í Víetnam og nágranna-
ríkjunum í Suðaustur-Asíu kosta
hergögn úr Víetnamstríðinu tugi
manna lífið á ári hverju. ■
MAGNÚS PÉTURSSON
Magnús tekur undir þá gagnrýni sem kem-
ur fram í skýrslunni að framtíðarstefnu-
mótun skorti fyrir spítalann.
GÖMUL SPRENGJA
Ítalskur sprengjusérfræðingur stendur við hliðina á 500 kílógramma sprengju úr síðari
heimsstyrjöldinni sem fannst í miðborg Mílanó.
OLÍUDREIFING
Esso á 60% í Olíudreifingu en Olís 40%. Fyrirtækið kemur við sögu í seinni frumskýrslu
Samkeppnisstofnunar.
„Olíudreif-
ingu er ekki
haldið utan
við þetta.