Fréttablaðið - 29.11.2003, Síða 38
40 29. nóvember 2003 LAUGARDAGUR
Ólafur Páll Gunnarsson er einnhelsti tónlistarspekingur Rás-
ar 2 og miðlar meðal annars af
visku sinni í þættinum Rokklandi.
Hann var 14 ára þegar Rás 2 var
stofnuð fyrir 20 árum en fannst
þessi tímamót í íslenskri útvarps-
sögu ekkert sérstaklega merkileg.
„Mér var skítsama. Allir krakk-
arnir í bekknum mínum á Akra-
nesi hópuðust út í Félagsheimili
til þess að hlusta en þar var FM
útvarp og ég held að ég hafi ekki
einu sinni verið með í hópnum,“
segir Óli Palli. „Ég hlustaði mikið
á útvarp þegar ég var krakki og
sofnaði út frá útvarpinu og vakn-
aði svo við það morguninn eftir.
En ég var aðallega að hlusta á Út-
varpssöguna, Jón Múla og leikrit-
in á fimmtudögum. Ég veit ekki
alveg út af hverju en mér var
bara einhvern veginn alveg sama
þó það væri að koma einhver önn-
ur útvarpsstöð. Mér fannst þetta
ekkert spennandi þá. Ég man að
ég kom hérna í starfskynningu
þegar ég var 16 eða 17 ára og var
að læra rafeindavirkjun í Fjöl-
brautaskólanum á Akranesi og þá
var Goggi tæknimaður (Georg
Magnússon) eini maðurinn á Rás 2
sem ég þekkti með nafni. Hann
var náttúrlega stjarnan hérna
áður fyrr. Hann reddaði öllu og sá
um að allt væri í lagi og er hérna
enn.“
Vinsældalisti götunnar
Óli Palli segist alltaf hafa haft
mikinn áhuga á tónlist en hafi þó
aldrei ætlað sér að tala um hana í
útvarpið. „Ég var í tónlistarskóla
á Akranesi og var búinn að hafa
ofboðslegan áhuga á tónlist alla
tíð, svo var ég í hljómsveit og
músík var bara mitt líf og yndi.
Ég sótti um vinnu hérna sem
tæknimaður þegar ég kláraði raf-
eindavirkjanámið og svo bara
leiddi eitt af öðru. Ég fékk gríðar-
legan áhuga á þessu öllu saman og
hef elskað Ríkisútvarpið síðan.
Fyrsti þáttur hérna á Rás 2 var
Vinsældalisti götunnar. Hann var
á laugardagskvöldum og ég fór
bara eitthvert út í bæ og bauð
fólki að velja sér óskalag. Þetta
var mjög skemmtilegt prógramm.
Ég held ég hafi ekki verið búinn
að vinna hérna nema í hálft á þeg-
ar ég byrjaði með hann. Ég tók við
honum af Lísu Páls en hann var
einhvern veginn svona inni í
hennar helgarprógrammi. Ég var
með þáttinn í nokkur ár og svo
1995 þá byrjaði þátturinn Rokk-
land.“
Nýjasta tækni og vísindi
Óli Palli segir að Rokkland hafi
byrjað fyrir tilviljun eins og svo
margt annað í lífinu. „Það eru að
verða komin átta ár og ég hef
fjallað um fleiri þúsund hljóm-
sveitir. Það er afskaplega gaman
að því að hafa verið fyrstur hérna
að kveikja á fullt af hljómsveit-
um; Travis, Coldplay, Muse,
nefndu það bara. Ég er í svo góð-
um tengslum við Radio One hjá
BBC og fæ mikið efni í þáttinn
þar og það þýðir að maður er með
hlutina á hreinu alveg um leið og
þeir gerast í Bretlandi. Og það er
bara gaman að því.“
Óli Palli sér einnig um Popp-
land ásamt Guðna Má Hennings-
syni og Frey Eyjólfssyni. „Við
skiptum Popplandi bróðurlega á
milli okkar og erum meira að spila
lögin við vinnuna þar. Poppland
var upphaflega þátturinn minn og
var 3 klukkutímar á morgnanna
og ég sá um hann einn. Ef við
segjum að vinnutitilinn á Popp-
landi sé „lögin við vinnuna“ þá má
segja að Rokkland sé svolítið
svona eins og „nýjasta tækni og
vísindi“ í rokkinu, eða bara dæg-
urtónlist almennt. Það er verið að
segja frá alls konar hlutum og
kynna nýtt efni, viðtöl við erlenda
tónlistarmenn og live upptökur
eru spilaðar, bæði efni sem er tek-
ið upp hér á Rás 2 og úti. Ég fæ
mikið af efni frá John Peel á
Radio One en hann er mikill frum-
kvöðull í Bretlandi og var til
dæmis fyrstur til að spila Sykur-
molana og Joy Division í útvarpi í
Bretlandi. Hann er búinn að vera í
þessu í 30 ár og er enn ferskur og
alltaf á tánum. Hann er svona
Andrea Jóns þeirra Breta.“
Versta skeið tónlistarsög-
unnar
Óli Palli fullyrðir að níundi ára-
tugurinn sé versta skeið í sögu
tónlistarinnar og þá eru miðald-
irnar meðtaldar. „Ég var svo
óheppinn að vera unglingur á
þessum tíma og þegar Duran Dur-
an og Wham komu fram á mínum
mestu mótunarárum þá fórnaði ég
höndum til himins og spurði „af-
hverju þarf ég að lenda í þessu!“
Mér fannst þetta alveg hundleið-
inlegt en hlustaði á U2, Simple
Minds og Big Country þó ég væri
ekkert að kaupa plötur með þeim.
Ég gramsaði mest í Safnarabúð-
inni á Frakkastíg og keypti allt
með Bowie, Zeppelindótið, Bob
Dylan og Clash. Það var bara allt
slæmt á þessum árum, tískan og
meira að segja Neil Young og Ro-
bert Plant. Það voru bara allir að
gera vonda hluti á þessum árum.
Þetta var ágætt framan af, svona í
kringum 83 til 84, en varð áber-
andi verst 1987. Það þýðir auðvit-
að samt ekki að alhæfa svona og
það var hellingur að gerast en ég
átti frekar lítinn pening og fylgd-
ist voða lítið með þessu. Það er
kannski þess vegna sem mér var
alveg sama um Rás 2 á sínum tíma
þar sem tónlistin sem hún spilaði
höfðaði ekki til mín. Ég var bara í
mínum eigin heimi.“
Of breitt kynslóðabil
Óli Palli ætlar að vera á dans-
skónum ásamt félögum sínum á
Rás 2 um helgina en Laugardags-
kvöld Gísla Marteins í sjónvarp-
inu i kvöld verðu tileinkaður 20
ára afmæli Rásarinnar. „Það
koma nokkrar vinsælustu hljóm-
sveitir þessa tveggja áratuga að
spila, meðal annars Stuðmenn og
Sálin en svo verða nýrri bönd,
eins og Brain Police, í bland. Það
eru nefnilega ákveðnir fordómar
ríkjandi í garð Rásar 2 og ég veit
það að tvær kynslóðir hafa aldrei
hlustað á stöðina.“
Óli Palli segir að þetta sé af-
leitt þar sem Rás 2 spili allt það
ferskasta sem sé að gerast í tón-
listinni. „Þau myndu hlusta á Rás
2 ef þau vissu þetta. Við vorum til
dæmis að spila efni frá Hró-
arskeldu um daginn. Hverjir
vissu af því? Ég vissi það, en vissu
þau þúsund manns sem voru á
Hróarskeldu af þessu? Ég held
ekki.“
thorarinn@frettabladid.is
Model IS 26
- 3 sæta sófi
og tveir stólar
Verð áður kr.
249.000 stgr.
Sprengi-
tilboð
aðeins
179.000
stgr.
Einnig fáanlegt:
3ja sæta,
2ja sæta og stóll
gæða húsgögn
Bæjarhrauni 12, Hf.,
sími 565-1234
Opið virka daga 10-18
laugardaga 11-16
og sunnudaga 13-16
Glæsileg ítölsk leðursófasett
Sprengitilboð 70.000 kr. afsláttur
Óli Palli hefur haldið Rokklandi úti á Rás 2 í átta ár. Stöðin er 20 ára á mánudaginn og hóf útsendingar á versta skeiði í sögu tónlistarinnar
að mati forseta Rokklands. Hann var 14 ára þegar þessi tímamót urðu í útvarpssögunni og lét sér fátt um finnast.
Var alveg sama um Rás 2
ÓLAFUR PÁLL GUNNARSSON
Er búinn að gefa út tvöfaldan geisladisk með efni úr Rokklandi. „Ég vona að þetta sé orðin árviss útgáfa. Þetta er ákveðin framlenging á
þættinum og ég hef bara gaman að því að standa í þessu með hjálp RÚV og Skífunnar.“
Ég hlustaði mikið
á útvarp þegar ég
var krakki og sofn-
aði út frá útvarpinu og
vaknaði svo við það morg-
uninn eftir. En ég var aðal-
lega að hlusta á Útvarps-
söguna, Jón Múla og leikrit-
in á fimmtudögum.
,,
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I