Fréttablaðið - 29.11.2003, Qupperneq 52
54 29. nóvember 2003 LAUGARDAGUR
Á FLUGI
Þjóðverjinn Max Rauffer á brunæfingu fyrir
heimsbikarmótið í Lake Louise í Kanada.
Skíði
Enska 1. deildin:
Íslendingalið mætast
FÓTBOLTI Fjögur Íslendingalið
mætast í innbyrðis viðureignum í
1. deildinni ensku í dag. Topplið
West Bromwich Albion heimsæk-
ir Nottingham Forest og Reading
tekur á móti Watford.
Heiðar Helguson verður tæp-
lega í leikmannahópi Watford þó
að hann sé að verða leikfær að
nýju eftir langvarandi meiðsli.
Heiðar átti að leika með varaliði
Watford gegn Charlton í vikunni
en leiknum var frestað vegna
mikillar úrkomu. Félagið reynir
nú að koma á æfingaleik fyrir
Heiðar og Gavin Mahon til að
koma þeim í leikæfingu sem
fyrst. Ívar Ingimarsson verður
eflaust í byrjunarliði Reading
enda hefur hann leikið alla sjö
leiki félagsins frá því hann gekk
til liðs við það fyrir fimm vik-
um.
Brynjar Björn Gunnarsson
hefur verið í byrjunarliði í síðustu
tveimur leikjum Nottingham For-
est. Samkeppni um stöður á miðj-
unni hjá Forest minnkaði í vik-
unni þegar lánsmaðurinn Stephen
McPhail fór aftur til Leeds.
Stoke leikur gegn Gillingham
á útivelli í dag. Gillingham tapaði
síðasta heimaleik sínum fyrir
botnliði Wimbledon en Stoke hef-
ur tapað síðustu sjö útileikjum
sínum. ■
Tekst Leeds að
komast af botninum?
Sex leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leeds heimsækir Charlton og vona Leedsarar
að sagan frá því í vor endurtaki sig.
FÓTBOLTI Sex leikir fara fram í
ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í dag. Leeds getur komist af
botni deildarinnar en liðið sækir
Charlton heim. Leeds hefur gengið
hörmulega það sem af er tímabili,
bæði innan vallar og utan, og hefur
tapað síðustu sex leikjum sínum í
deildinni. Eddie Gray, sem tók við
liðinu fyrir skömmu af Peter Reid,
er ekki öfundsverður af hlutskipti
sínu en honum til huggunar má þó
benda á að Leeds bar sigurorð af
Charlton, 6-1, í apríl síðastliðnum í
öðrum leik Peters Reids sem knatt-
spyrnustjóra liðsins. Þá hafði Reid,
líkt og Gray gerði um síðustu helgi,
tapað sínum fyrsta leik við stjórn-
völinn hjá félaginu en komið síðan
sterkur til baka. Að vísu verður að
taka það með í reikninginn að
Charlton hefur gengið frábærlega
það sem af er tímabilinu og er sem
stendur í fjórða sæti deildarinnar.
Ekkert bendir til annars en að Her-
mann Hreiðarsson verði á sínum
stað í vörn Charlton.
Bolton og Everton mætast á
Reebok-leikvanginum. Bæði lið
eru í botnbaráttunni og Sam Allar-
dyce, knattspyrnustjóri Bolton,
var með skýringuna á reiðum
höndum. „Hvorugt þessara liða
hefur náð að nýta færi sín nógu
vel í vetur. Hjá okkur hefur þetta
verið viðvarandi vandamál í mörg
ár en Everton er að upplifa þetta í
fyrsta sinn eftir frábært tímabil í
fyrra. Ég tel bæði liðin hafa burði
til að vera mun ofar í deildinni,“
sagði Allardyce.
Blackburn hefur valdið miklum
vonbrigðum það sem af er þessu
tímabili og þó andstæðingar liðsins
í dag, Tottenham, hafi ekki beint
verið að gera frábæra hluti hafa
þeir þó verið skömminni skárri.
Graeme Souness, knattspyrnu-
stjóri Blackburn, hefur húð-
skammað framherja sína að undan-
förnu og sagt að þeir lifi á fornri
frægð. Ef þeir fara að svara kallinu
á Blackburn-liðið eftir að rísa fljót-
lega upp en Tottenham hefur verið
að braggast undanfarið. Þar á bæ
eru menn komnir með sjálfstraust
og David Pleat, knattspyrnustjóri
liðsins, segir sína menn vera reiðu-
búna til að komast í efri hluta
deildarinnar. ■
Barnsley:
Úr greiðslu-
stöðvun?
FÓTBOLTI „Við höfum skrifað öllum
skuldunautum Barnsley og þeir
hafa frest til 5. desember til að
taka tilboði okkar,“ sagði Matt
Dunham, sem hefur farið með
málefni félagsins meðan það er í
greiðslustöðvun.
„Í stuttu máli erum við vongóð-
ir um að félagið losni úr greiðslu-
stöðvun fyrir jól.“
Barnsley leikur við Stockport í
20. umferð ensku 2. deildarinni í
dag. Barnsley hefur gengið vonum
framar í haust og er í þriðja sæti,
þremur stigum á eftir toppliði
QPR, en Stockport er sem stendur
í fimmta neðsta sæti. ■
Evrópukeppni félagsliða:
Dregið eftir
tvær vikur
FÓTBOLTI Dregið verður í 3. um-
ferð UEFA-bikarkeppninnar og
sextán liða úrslit Meistaradeild-
arinnar föstudaginn 12. desem-
ber. Daginn áður verður síðasti
leikur 2. umferðar leikinn.
Maccabi Haifa frá Ísrael og
spænska félagið Valencia keppa
á hlutlausum velli.
Riðlakeppni Meistaradeildar-
inn lýkur miðvikudaginn 10. des-
ember. Tvö efstu félög hvers rið-
ils keppa í sextán liða úrslitum en
félögin sem lenda í þriðja sæti
hefja keppni í UEFA-bikarnum.
Fyrri leikir sextán liða úrslita
Meistaradeildarinnar fara fram
24. og 25. febrúar og seinni leik-
irnir tveimur vikum síðar. Leikir
3. umferðar UEFA-bikarsins
verða háðir 26. febrúar og 3.
mars. ■
HEIÐAR HELGUSON
Er að verða leikfær að nýju eftir
langvarandi meiðsli.
EDDIE GRAY
Eddie Gray stjórnaði Leeds í fyrsta sinn um
síðustu helgi og mátt horfa upp á lið sitt
tapa fyrir Bolton, 2-0, á Elland Road.
LEIKIR Í DAG
Wolves - Newcastle 12.30
Aston Villa - Southampton 15.00
Blackburn - Tottenham 15.00
Bolton - Everton 15.00
Charlton - Leeds 15.00
Portsmouth - Leicester 15.00
LEIKIR Á MORGUN
Arsenal - Fulham 14.00
Chelsea - Man. United 16.05
Liverpool - Birmingham 15.00
Man. City - Middlesbrough 15.00
STAÐAN
Arsenal 13 10 3 0 28:10 33
Chelsea 13 10 2 1 27:9 32
Man. United 13 10 1 2 25:8 31
Charlton 13 6 4 3 20:16 22
Fulham 13 6 3 4 24:18 21
Birmingham 13 5 5 3 11:11 20
Newcastle 13 5 4 4 19:18 19
Man. City 13 5 3 5 22:18 18
Liverpool 13 5 3 5 18:14 18
Southampton 13 4 5 4 10:8 17
Portsmouth 13 4 3 6 17:18 15
Tottenham 13 4 3 6 13:17 15
Middlesbrough 13 4 3 6 11:15 15
Bolton 13 3 6 4 11:19 15
Everton 13 3 4 6 15:17 13
Leicester 13 3 3 7 20:22 12
Blackburn 13 3 2 8 18:24 11
Aston Villa 13 2 5 6 10:17 11
Wolves 13 2 4 7 8:26 10
Leeds 13 2 2 9 11:33 8