Fréttablaðið - 29.11.2003, Qupperneq 53
55LAUGARDAGUR 29. nóvember 2003
hvað?hvar?hvenær?
26 27 28 29 30 1 2
NÓVEMBER
Laugardagur
Á leið
á Broadway
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 267. TBL. – 93. ÁRG. – [ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 ] VERÐ KR. 250
Formenn stjórnar-
flokkanna beygja
heilbrigðisráðherra Bls. 6.
Hommar
breyta pipar-
sveinaíbúð Bls. 34.
Gísli Örn Garðarsson,
leikari og leikstjóri, gerir
það gott í London. Stóru
leikhúsin vilja fá hann til
samstarfs um Rómeó og
Júlíu, auk þess sem hann
íhugar tilboð frá Broadway í
New York og kvikmynda-
fyrirtækið Miramax vonast
til að fá hann til starfa í
náinni framtíð.
■ ■ LEIKIR
10.00 Keppni í 1. deild karla á Ís-
landsmótinu í innanhússfótbolta hefst
í Laugardalshöll.
13.00 Keppni í 1. deild kvenna á
Íslandsmótinu í innanhússfótbolta
hefst í Austurbergi.
14.00 Þróttur V. mætir Íslands- og
bikarmeisturum Keflavíkur í Vogum á
Vatnsleysuströnd í Bikarkeppni KKÍ&Lýs-
ingar í körfubolta karla.
14.00 Keflavík leikur við ÍS í Kefla-
vík í Hópbílabikar kvenna í körfubolta.
14.00 Víkingur mætir Gróttu/KR í
Víkinni í RE/MAX-deild kvenna í hand-
bolta.
14.00 ÍBV og Breiðablik keppa í
Eyjum í suðurriðli RE/MAX-deildar karla
í handbolta.
14.00 Grundarfjörður/Reynir H.
leikur við Smára V. í Grundarfirði í Bikar-
keppni KKÍ&Lýsingar í körfubolta karla.
15.00 UMFG keppir við Breiðablik
í Grindavík í Bikarkeppni KKÍ&Lýsingar í
körfubolta karla.
16.00 Stjarnan og KA/Þór keppa í
Ásgarði í RE/MAX-deild kvenna í hand-
bolta.
16.00 Fylkir/ÍR keppir við FH í
Fylkishöllinni í RE/MAX-deild kvenna í
handbolta.
16.00 Þór A. leikur gegn Fram í
Höllinni á Akureyri í norðurriðli RE/MAX-
deildar karla í handbolta.
16.00 Keflavík B mætir HK í Kefla-
vík í Bikarkeppni KKÍ&Lýsingar í körfu-
bolta karla.
16.30 Valur og Grótta/KR leika í
Valsheimilinu í norðurriðli RE/MAX-
deildar karla í handbolta.
16.30 Reynir S. leikur við Val í
Sandgerði í Bikarkeppni KKÍ&Lýsingar í
körfubolta karla.
17.00 UMFN og KR keppa í Njarð-
vík í Bikarkeppni KKÍ&Lýsingar í körfu-
bolta karla.
17.00 Haukar tekur á móti Fram á
Ásvöllum í RE/MAX-deild kvenna í
handbolta.
17.00 ÍG mætir Haukum í Grinda-
vík í Bikarkeppni KKÍ&Lýsingar í körfu-
bolta karla.
18.00 SA og SR keppa á Akureyri á
Íslandsmóti karla í íshokkí.
21.00 SA og Björninn keppa á Ak-
ureyri á Íslandsmóti kvenna í íshokkí.
■ ■ SJÓNVARP
12.15 Enski boltinn á Sýn. Bein út-
sending frá leik Úlfanna og Newcastle.
14.25 Þýski fótboltinn á RÚV. Bein
útsending frá leik Bochum og Stuttgart
í úrvalsdeildinni.
14.40 Enski boltinn á Stöð 2. Bein
útsending frá leik Charlton og Leeds.
16.20 Íslandsmótið í handbolta á
RÚV. Bein útsending frá leik Vals og
Gróttu/KR í karlaflokki.
FÓTBOLTI Hamborg fær nágranna
sína í Norður-Þýskalandi, Werder
Bremen, í heimsókn í dag í 14.
umferð þýsku Búndeslígunnar.
Werder er í næstefsta sæti deild-
arinnar eftir sigur á Bochum um
síðustu helgi. Werder hefur skor-
að 37 mörk í Búndeslígunni í vet-
ur, fleiri en önnur félög. Ailton er
markahæstur með þrettán mörk,
aðeins tveimur færri en allir leik-
menn Hamborgar samanlagt.
Króatinn Ivan Klasnic og Frakk-
inn Johan Micoud hafa skorað sex
mörk hvor. Hamborgarliðið er í tí-
unda sæti og er ósigrað í síðustu
fjórum heimaleikjum.
Topplið Stuttgart heimsækir
Bochum í dag. Stuttgart hefur
verið í góðum meðbyr í haust og
náði stórum áfanga í Meistara-
deildinni á miðvikudag. Bochum
er erfitt heim að sækja. Félagið er
taplaust á Ruhrstadion og hefur
meðal annars unnið Bayer
Leverkusen og Borussia Dort-
mund á heimavelli í haust.
Bayern München komst á skrið
að nýju eftir 4-1 sigur á Dortmund
fyrir tveimur vikum og fylgdi því
eftir með 1-0 sigri á nágrönnum
sínum í 1860 München um síðustu
helgi. Bayern mætir botnliði
Kölnar í München í dag en Bæjar-
ar unnu 8-0 í bikarleik félaganna í
vor.
Bayer Leverkusen féll niður í
þriðja sætið eftir jafntefli í Dort-
mund fyrir viku. Leverkusen er
ósigrað síðan í águst og leikur í
dag heima gegn 1860 München.
Á morgun leika tvö félög sem
eru í sárum eftir útreið í UEFA-
bikarnum á fimmtudag. Schalke
sækir Herthu Berlín heim og Bor-
ussia Dortmund á útileik gegn
Hansa Rostock. ■
LEIKIR 14. UMFERÐAR
Laugardagur 29. nóvember
Bayern München - Köln
Hamburg - Werder Bremen
Bochum - Stuttgart
Bayer Leverkusen - 1860 München
Hannover - Freiburg
Eintracht Frankfurt - Wolfsburg
Bor. Mönchengladbach - Kaiserslautern
Sunnudagur 30. nóvember
Hertha Berlín - Schalke
Hansa Rostock - Borussia Dortmund
Þýska Búndeslígan:
Nágrannaslagur í norðri
WERDER BREMEN
Ailton (til hægri á myndinni) og Valerien
Ismael fagna einu marka Werder gegn
Bochum um síðustu helgi. Leikmenn Werder
Bremen skora mest í þýsku Búndeslígunni
og Ailton er markahæstur með þrettán mörk.