Fréttablaðið - 29.11.2003, Side 55
LAUGARDAGUR 29. nóvember 2003
N
O
N
N
I
O
G
M
AN
N
I I
YD
D
A
•
10
54
9
•
si
a.
is
y f i r h a f n i r • l e › u r • t e i n ó t t • f l a u e l • j a k k a f ö t • s t a k i r j a k k a r • s k y r t u r
Flauelsföt: 18.900
Stuttfrakkar: 14.900
Stakar buxur: 3.900
Mikið úrval
af jakkafötum!
TENNIS „Þetta var erfitt,“ sagði
Lleyton Hewitt eftir sigur sinn á
Juan Carlos Ferrero í fyrstu
viðureigninni í úrslitaleik Ástrala
og Spánverja í Davis-bikarnum.
„Ferrero er einn af þeim bestu í
heiminum. Ég gaf allt sem ég
átti.“
Carlos Moya jafnaði viðureign-
ina fyrir Spánverja með sigri á
Mark Philippoussis. Moya gengur
best á leirvöllum og hefur ekki
leikið á grasvelli síðan á
Wimbledon-mótinu árið 2000.
Hann var fljótur að laga sig að að-
stæðum í Melbourne og sigraði í
þremur settum en Philippoussis
sigraði aðeins í einu.
Ástralar hafa sigrað 26 sinnum
í Davis-bikarnum en Spánverjar
leika til úrslita í fjórða sinn. Þeir
hafa alltaf mætt Áströlum í úrslit-
um, töpuðu árin 1965 og 1967 en
sigruðu árið 2000. ■
SKÍÐI Skíðadeild Breiðabliks varð í
gær fyrst deilda á höfuðborgar-
svæðinu til að hljóta viðurkenn-
ingu gæðaverkefnisins Fyrir-
myndarfélag/deild ÍSÍ. Ellert B.
Schram, forseti ÍSÍ, afhenti Hildi
Ástþórsdóttur, formanni skíða-
deildar Breiðabliks, viðurkenn-
inguna.
Sjö deildir og félög í Reykja-
nesbæ hafa hlotið viðurkenning-
una en fram kemur á vef ÍSÍ að
flestar deildir innan Breiðabliks
vinni að því að fá þessa viður-
kenningu og búast megi við því að
fleiri deildir fái viðurkenninguna
innan skamms.
Í handbók sem ÍSÍ hefur sam-
þykkt eru leiðbeiningar fyrir
íþróttafélög sem vilja fá gæðavið-
urkenningu. Félag, eða deild inn-
an þess, fær gæðaviðurkenningu
að undangenginni úttekt á starf-
semi þeirra. ■
FYRIRMYNDARFÉLAG
Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, Hildur Ástþórs-
dóttir, formaður skíðadeildar Breiðabliks,
og Sigríður Jónsdóttir, varaforseti ÍSÍ.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands:
Blikar til fyrirmyndar
LLEYTON HEWITT
Ástralinn Lleyton Hewitt fagnar eftir sigur á
Spánverjanum Juan Carlos Ferrero í úrslita-
leik Davis-bikarsins.
Davis-bikarinn:
Jafnt eftir fyrsta daginn
Upplýsingar um áskriftarpakka og allar aðrar upplýsingar er að finna á heimasíðu okkar.
Í tilefni af sölu okkar á
FIMMHUNDRAÐASTA
móttökubúnaðinum fyrir Sky
bjóðum við viðskiptavinum einstakt
tilboð sem felur í sér upphafspakka
fyrir Sky Digital.
Hann inniheldur:
• Fullkominn Panasonic Digibox TU-DSB40
sem er besti móttakarinn á markaðinum í dag.
• Disk sem er 1 metri.
• Móttökunema fyrir disk (LNB).
• Veggfestingu.
Sími 421-3333
GSM 893-6861
Tilboðsverð
aðeins
59.900
www.skydigital.is