Fréttablaðið - 23.12.2003, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 23.12.2003, Blaðsíða 2
2 23. desember 2003 ÞRIÐJUDAGUR „Nei. Hann hefur alltaf stutt við bakið á mér og gerir það nú eins og áður.“ Markakóngurinn Björgólfur Takefusa ákvað í gær að ganga til liðs við Fylki en hann hafði einnig átt í viðræðum við KR. Björgólfur Guðmundsson, nafni hans og afi, er einn harðasti KR-ingur landsins. Spurningdagsins Björgólfur, verður afi nokkuð brjálaður? ■ Norðurlönd Rúmir 1,6 millj- arðar til öryrkja Tryggingastofnun endurgreiddi 3.815 öryrkjum í gær í samræmi við dóm Hæstaréttar frá 16. október. Meðalgreiðslan nam 422 þúsund krónum. Dráttarvextir vegna dómsins gætu leitt til skerðingar bóta þessa árs. ÖRYRKJADÓMUR Dráttarvextir vegna svokallaðs öryrkjadóms munu í ein- hverjum tilvikum skerða bótarétt örorkulífeyrisþega á þessu ári og leiða til lækkunar bóta við uppgjör í ágúst á næsta ári. Tryggingastofnun ríkisins endurgreiddi í gær leiðrétta tekju- tryggingu til örorku- og endurhæf- ingarlífeyrisþega í samræmi við dóm Hæstaréttar í svokölluðu síð- ara öryrkjamáli, sem féll 16. októ- ber síðastliðinn. Greidd var tekjutrygging, auk orlofs- og desemberuppbóta fyrir tímabilið frá 1. janúar 1999 til 31. janúar 2001, ásamt dráttarvöxtum. Greiðslur þessar eru skattskyld- ar og er staðgreiðsla skatta því dregin af þeim, en staðgreiðslan er nú 38,55% af tekjutryggingu og or- lofs- og desemberuppbótum en 10% af dráttarvöxtum. Heildarfjárhæð endurgreiðslna nam alls 1.609 milljónum. Þar af voru tekju- trygging, orlofs- og desemberuppbætur tæpar 850 milljónir og dráttarvextir rúmar 760 milljónir. Tekjuskattur og fjár- magnstekjuskattur nema tæplega 380 milljónum og komu því rúmar 1.230 milljónir til útborg- unar. Alls fengu 3.815 einstaklingar endur- greiðslu, 3.013 konur og 802 karlar. Að meðaltali fékk hver um sig tæpar 422 þúsund krónur eða tæpar 323 þús- undr kónur eftir staðgreiðslu skat- ta. Hæsta greiðsla nam ríflega 1,5 milljónum en alls fengu 385 einstak- lingar endurgreidda milljón eða meira. 1.290 einstaklingar fengu endur- geidda hálfa milljón eða meira. Fjármagnstekjur, þeirra á meðal dráttarvextir, teljast til tekna í skilningi laga um almannatrygging- ar og hafa því áhrif á útreikning bótafjárhæða. Því má gera ráð fyrir að þeir dráttarvextir sem greiddir voru vegna öryrkjadómsins muni hafa áhrif á endanlegan bótarétt viðkomandi lífeyrisþega fyrir þetta ár. Það gæti leitt til þess að í upp- gjöri bótagreiðslna, sem fer fram um mánaðamótin ágúst-september 2004, hafi einhverjir fengið of háar bótagreiðslur á árinu 2003. the@frettabladid.is Framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins: Dráttarvextirnir ekki venjulegar fjármagnstekjur ÖRYRKJADÓMUR „Í okkar huga leik- ur vafi á því hvort hægt sé að meðhöndla dráttarvexti með sama hætti og venjulegar fjár- magnstekjur. Dráttarvextirnir eru í raun skaðabætur sem greiddar eru vegna vanefnda og eru, að minnsta kosti í tilvikum öryrkja, hugsaðar til þess að staða þeirra verði jöfn við það sem hún annars hefði verið, hefðu þeir fengið greitt sam- kvæmt því sem lög sögðu til um. Það á því ekki að skattleggja dráttarvextina eins og aðrar fjár- magnstekjur. Þá ber það ekki vott um góða stjórnsýslu að senda fólki bréf þar sem lýst er yfir hugsanlegri lækkun lífeyris- greiðslna. Starfsmenn Trygg- ingastofnunar ríkisins hefðu átt að ganga úr skugga um lagalega hlið þessa máls áður en bréfið var samið og á það var þeim bent,“ sagði Arnþór Helgason, framkvæmdastjóri Öryrkja- bandalags Íslands. Tryggingastofnun hefur lýst því yfir að dráttarvextir, sem lögðust ofan á þær endurgreiðsl- ur sem inntar voru af hendi sam- kvæmt dómi Hæstaréttar, kunni að hafa áhrif á endanlegan bóta- rétt lífeyrisþega, þegar uppgjör vegna þessa árs fer fram í ágúst á næsta ári. „Ég tel víst að einhverjir ein- staklingar hafi hug á að láta á það reyna hvernig þessar tekjur verði meðhöndlaðar. Það er leitt að hugsa til þess að ekki sé að skapast friður um málefni ör- yrkja hér á landi. En það er sjálf- sagt að öryrkjar sæki rétt sinn ef þeim þykir brotið á sér,“ sagði Arnþór Helgason. ■ ABDUL RAHMAN Framsali hans til Indónesíu var frestað af óþekktum ástæðum. Grunaður hryðjuverka- foringi: Framsali frestað MALASÍA Stjórnvöld í Malasíu hafa frestað því að framselja Mo- hamad Iqbal Abdul Rahman til Indónesíu en hann er grunaður um að vera einn helsti foringi Jemaah Islamiah-samtakanna, sem talin eru hafa staðið að Balí- árásinni í október í fyrra. Rahman, sem kenndi við ís- lamska trúarbragðaskóla í Malasíu í mörg ár, var handtekinn árið 2001 og hefur síðan verið í varðhaldi án þess að nokkuð sann- aðist á hann. Búist var við að Rahman, sem er fæddur og uppalinn í Indónesíu, yrði framseldur þang- að á sunnudaginn en skyndilega var því frestað af óþekktum ástæðum. Talsmaður indónesískra stjórn- valda sagði að ef ekkert sannaðist á Rahman þar í landi yrði að slep- pa honum lausum. ■ TUGÞÚSUNDIR ÁN RAFMAGNS Nær 50.000 Svíar buggu við raf- magnsleysi í gær eftir að óveður gekk yfir landið á sunnudag og mánudag. Fresta þurfti flugi frá Arlanda-flugvelli í Stokkhólmi um klukkustund og lestarferðum var aflýst eða þeim seinkað. QUEEN MARY 2 Skipið í höfn í Saint Nazaire í Frakklandi þar sem það var smíðað. Queen Mary 2 afhent: Á leið til heimahafnar BRETLAND, AP Queen Mary 2, stærsta og dýrasta farþegaskip heims, sem verið hefur í smíðum í Saint Nazaire í Frakklandi, var í gær afhent eigendum sínum og siglt áleiðis til heimahafnar í Southampton. Elísabet Englandsdrottning mun gefa skipinu nafn 8. janúar og þann tólfta heldur það í jóm- frúarsiglinguna til Fort Lauder- dale í Bandaríkjunum. Uppselt er í siglinguna fyrir löngu en alls ber skipið 2.620 farþega auk þess sem 1.253 eru á áhöfn. Skipið komst í fréttir í síðasta mánuði þegar bráðabirgðaland- gangur brotnaði niður með þeim afleiðingum að fimmtán manns létu lífið. ■ ÍSRAEL, AP Ahmed Maher, utanríkis- ráðherra Egyptalands, sem kom í opinbera heimsókn til Ísraels í gær- morgun, var fluttur á sjúkrahús í gærdag eftir að hafa orðið fyrir að- kasti æstra palestínskra múslíma þegar hann kom til bæna í al-Aqsa- moskunni á Musterishæðinni í Jer- úsalem. Lífverðir Mahers komu honum strax til hjálpar og slógu um hann skjaldborg og sögðu nær- staddir að honum hefði verið mjög brugðið og átt erfitt með öndun. Hann hefði heyrst stynja: „Ég er að kafa, ég er að kafna,“ Sjónarvottar sögðu að sumir hefðu hent skónum sínum að Maher bæði utan og innan moskunnar, án þess þó að hann hafi hlotið áverka. Maher, sem er í sinni fyrstu heimsókn til Ísraels í meira en tvö ár, heimsótti moskuna eftir að hafa fundað með ísraelskum ráðamönn- um, þar á meðal Ariel Sharon, for- sætisráðherra Ísraels og Silvan Shalom utanríkisráðherra. Maher sagði eftir fundinn með Sharon að Ísraelar hefðu lofað því að koma að samningaborðinu eins fljótt og mögulegt væri og hrósaði þeim fyrir samstarfsvilja. ■ ARNÞÓR HELGASON Framkvæmdastjóri Öryrkjabandlags Íslands segir dráttarvexti sem lögðust á endur- greiðslur samkvæmt öryrkjadómi ekki venjulegar fjármagnstekjur heldur skaða- bætur. Því beri að meðhöndla dráttarvext- ina sem slíka. MAHER FLUTTUR Á BROTT Ahmed Maher, utanríkisráðherra Egyptalands, varð fyrir aðkasti í Jerúsalem og kvartaði yfir öndunarörðugleikum. ENDURGREIÐSLUR TR VEGNA ÖRYRKJADÓMS Tekjutrygging, orlofs- og desemberuppbætur 847.532.587 (52,65%) Dráttarvextir 762.044.909 (47,35%) Samtals 1.609.577.496 Staðgreiðsla skatta - 378.331.699 Til útborgunar 1.231.245.797 Greitt til 3.815 einstaklinga - 3.013 konur - 802 karlar Meðaltalsgreiðsla 421. 908 krónur fyrir skatta Meðaltalsgreiðsla 322.738 krónur eftir skatta ALDURSSKIPTING OG FJÖLDI Aldur Fjöldi 20-29 68 30-39 380 40-49 774 50-59 1.030 60 og yfir 1.563 3.815 ENN VÆRINGAR ÞRÁTT FYRIR ENDURGREIÐSLUR Forsvarsmenn Öryrkjabandalags Íslands og stjórnvöld takast enn á þrátt fyrir að Tryggingastofnun hafi nú innt af hendi greiðslur í samræmi við dóm Hæstaréttar frá í október. Nú er deilt um hvort eða hvernig beri að skattleggja dráttarvexti sem féllu á leiðrétta tekjutryggingu öryrkja. Fréttablaðið: Útgáfan um jólin ÚTGÁFA Fréttablaðið mun koma út á morgun, aðfangadag jóla. Fréttablaðið mun hins vegar ekki koma út á jóladag og annan í jólum. Næsta blað á eftir aðfanga- dagsblaðinu mun því koma út laugardaginn 27. desember. ■ Maher varð fyrir aðkasti: Fluttur á sjúkrahús

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.