Fréttablaðið - 23.12.2003, Blaðsíða 19
19ÞRIÐJUDAGUR 23. desember 2003
Two Oceans eruaðgengileg og
fersk vín frá Suður-
Afríku á mjög góðu
verði. Best er að
njóta þeirra á með-
an þau eru ung en
óhætt er að geyma
þau í nokkur ár. Vín-
línan dregur nafn
sitt af stóru höfun-
um tveimur, Ind-
landshafi og Atl-
antshafi, en þau mætast fyrir
sunnan Höfðaborg. Í það heila eru
níu vín í Two Oceans-línunni, fjög-
ur rauð, fjögur hvít og eitt rósa-
vín. Þrúgurnar sem notaðar eru í
Two Oceans-vínin koma frá vín-
ekrunum við strandlengju Góðr-
arvonarhöfða en þar er loftslag
ekki ósvipað og þekkist við Mið-
jarðarhafið. Strandlengjan er
blessuð með svölum vindi yfir
daginn og köldum nóttum þannig
að þrúgurnar ná að halda fersk-
leika sínum. Góður jarðvegur í
Stellenbosch og
lega víngarðanna
hjálpa einnig til að
gæðin séu eins og
best verður á kosið.
Two Oceans-vínin
eru með miðlungs
fyllingu, fersk og
aðgengileg og henta
þar af leiðandi mjög
vel í móttökur en
einnig með léttari
fisk- og kjötréttum.
Fjölmörg vín frá Two Oceans
fást í Vínbúðum. Vert er að
vekja athygli á að hægt er að fá
vínin allt frá því í litlum 20 cl
flöskum upp í 3 lítra kassa og að
sjálfsögðu í hefðbundinni 75 cl
stærð. ■
Þorláksmessa er mesti veisludag-ur ársins hjá mér. Í hádeginu fer
ég í gríðarlega skötuveislu til Vest-
firðings sem bæði er með skötu-
stöppu og skötu með tilheyrandi
hnoðmör og mörfloti. Eftir friðar-
gönguna fer ég heim og sýð mikið af
hangikjöti og pokabaunum. Svo
mæti ég í stórt boð hjá vinkonu sem
er með margskyns góðmeti á borð-
um en sauðahangikjöt skipar heið-
urssess. Eftir það kaupi ég síðustu
jólagjafirnar og fer svo heim að hita
upp pokabaunirnar því margir
koma við hjá mér í mat eftir búðar-
rápið í bænum. Að springa? Nei,
vestfirska skatan er svo góð fyrir
meltingarfærin að eftirleikurinn
verður auðveldur fyrir þau.“ ■
Two Oceans tilvalin í móttökur Hallgerður Gísladóttir safnvörður:Þrjár veislur á Þorlák
HALLGERÐUR GÍSLADÓTTIR
Efnir sjálf til miðnæturáts á hangikjöti
og pokabaunum.
Leikur að elda:
Eldar lamb
með súkku-
laði
Á nýjum margmiðlunardiskiLandsliðsins í matreiðslu,
Leikur að elda, er boðið til lamba-
kjötsveislu. Ein af uppskriftunum
er eftir Ásgeir Sandholt konditori-
meistara, sem er ekki síður lið-
tækur í matargerðinni en köku-
skreytingunum. Ásgeir notar
frumlegt hráefni í steikina, eins
og til dæmis súkkulaði og kirsu-
berjagljáa.
Innbakað lambalæri með gráðosti,
sveppum og bakaðri kartöflu. Framreitt
með súkkulaði og kirsuberjagljáa.
Gráðostafylling
salt og pipar
5 msk brauðraspur
150-200 g gullgráðostur
30 g dökkt súkkulaði guanaja 70%
1 egg
Aðferð:
Bætið soði við og sjóðið stutt. Bætið
brauðraspi í og kælið. Blandið ostinum
og súkkulaðinu saman við þegar blandan
er köld.
Innbakað lambalæri (smjördeig er
hægt að fá útflatt hjá betri bakaríum)
1 lambainnlæri (ca. 4-500 g)
1 búnt blóðberg
salt og pipar
250 g smjördeig
Aðferð:
Marinerið lambið í 24 tíma með krydd-
inu. Lokið kjötinu á mjög heitri pönnu og
kælið. Fletjið smjördeigið út (um 2 mm)
frekar þunnt en þykkt. Smyrjið um 2 cm
þykku lagi af ostafyllingunni á deigið og
leggið lambið ofan á. Lokið deiginu og
snúið þannið að samskeytin séu niður og
penslið deigið með eggjarauðu. Gott er
að loka deiginu með vatni. Bakið í 20-25
mínútur við 200˚C.
Súkkulaðigljái (gaman er að prófa að
gera eigin soð en hægt er að nota kraft)
300 ml kröftugt kálfa eða lambasoð
1 skalotlaukur
200 ml rauðvín
salt og pipar
50 ml kirsuberjaedik (hvítvínsedik og
frosin kirsuber)
40 g fínt saxað dökkt súkkulaði, guanaja
Valhrona 70%
smjör
Aðferð:
Sjóðið soðið niður um helming. Skrælið
laukinn og saxið fínt, steikið í ólífuolíu.
Bætið rauðvíni í þegar laukurinn er orð-
inn glær og sjóðið vínið alveg niður. Bæt-
ið svo sama magni af rauðvíni í og helm-
ingi minna magni af kirsuberjaediki. Sjóð-
ið alveg niður. Bætið soðinu út í og sjóð-
ið niður um helming. Sigtið soðið og lát-
ið sósuna sjóða mjög langt niður undir
vægum hita, þar til sósan fer að þykkna.
INNBAKAÐ LAMBALÆRI ÁSGEIRS
Lærið er borið fram með súkkulaði og
kirsuberjagljáa.
Bætið súkkulaði við (50- 70 g á 1 l soð)
og bragðbætið með salti og pipar. Þeytið
kalt smjörið í súkkulaðigljáann rétt áður
en rétturinn er borinn fram. Þegar smjör-
ið er komið í má sósan ekki sjóða.
Sultuð kirsuber með blóðbergi (gott er
að kaupa tilbúið í krukku en þessi
klikkar ekki)
250 g vatn
250 g sykur
5-6 strá blóðberg
250 g kirsuber frosin
Aðferð:
Sjóðið vatn, sykur og blóðberg niður um
helming og bætið þiðnuðum kirsuberj-
unum við. Geymist á kæli. Einnig hægt
að kaupa tilbúinn kirsuber í krukku, sigtið
vökvann frá og hitið með blóðbergi
bætið kirsuberjum við og kælið.
Fontant kartöflur
4 bökunarkartöflur
50 g smjör
20 ml lambasoð eða vatn
sjávarsalt og pipar frá Ducros í millu
McCormick-múskatduft
vatn og kraftur
Aðferð:
Skrælið nýjar stórar kartöflur, skerið til
helminga og snyrtið til. Steikið á pönnu
þar til þær eru gulbrúnar. Bragðbætið
með salti, pipar og múskat. Bakið í ofn-
skúffu með botnfylli af kálfa- eða lamba-
soði við 200˚C í 45 mín. Baðið kartöflurn-
ar í soðinu nokkrum sinnum á meðan á
bakstrinum stendur.