Fréttablaðið - 23.12.2003, Blaðsíða 32
Bakþankar
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Manísk jólakona hefur verið ífremur litlu jólaskapi þessa að-
ventu og það er óvanalegt að horfa
upp á hana hengslast um og hafa
passlegan áhuga á öllu stússinu. Jóla-
dónarnir eiga sennilega stærstan hlut
að máli og þá er ekki átt við þessa
sem afgreiddu sjálftökufrumvarp við
Austurvöll í liðinni viku. Nei, hér er
um að ræða Grýlusyni. Lítil mann-
eskja hefur verið skelfingu lostin
yfir því að eiga von á þrettán skeggj-
uðum og subbulegum körlum sem
paufast við gluggann hennar á meðan
hún sefur. Henni finnst þetta svo
óhugnanleg tilhugsun að hún hefur
staðið í stífum samningaviðræðum
við foreldra sína og systur um stað-
setningu á litlum, bleikum spariskó.
MARGAR TILLÖGUR hafa verið
lagðar fram, svo sem eins og að láta
þennan spariskó standa úti við götu,
en sú tillaga var felld af fjárhags-
ástæðum. Foreldrar stubbu hafa boð-
ist til að hafa samband við jóladónana
og biðja þá um að sleppa hennar húsi,
en aðrir í húsinu, sem kæra sig koll-
ótta um hverjir snuðra við gluggana
þeirra á nóttunni, hafa mótmælt harð-
lega. Stubbu finnst enda erfitt að
detta með öllu út af gjafalista svein-
anna svo bleiki spariskórinn hefur
ferðast á milli glugga heima hjá henni
á aðventu. Sjálf ferðast hún, eins og
skórinn, og kúrir hjá kjarkmeira jóla-
fólki – en sofnar með djúpa áhyggju-
hrukku á enninu á kvöldin.
FRUMVARP um gervijólatré, sem
lagt var fram í fjölskyldunni
snemma á aðventu, hefur fengið mun
ýtarlegri umræðu en eftirlaunafrum-
varpið. Einhverjir óttast að jólaskap-
ið fjúki út í veður og vind með plast-
fæti og pólýester, en aðrir eru orðnir
þreyttir á mislukkuðum leiðöngrum í
leit að sæmilegustu hríslunni. Þeir
sömu dæsa yfir hálfdauðum, síð-
botna grenigreyjum með sköllóttum
toppum sem feykjast svo dauð um
götur fram í febrúar. Þá finnst þeim
skárra að vera með ekta gervi, út-
spekúlerað og reglulegt pólýester
sem kemur upp úr pappakassa.
SKRÝTIN þessi lúxusvandamál, en
víða eru skítblankir jólasveinar sem
prísa sig sæla að skóvesenið er senn
að baki. Að minnsta kosti ef marka
má fréttir af vel á annað þúsund
manns sem þurfa hjálp við jólahaldið
– í bakgarðinum hjá einni af ríkustu
þjóðum veraldar. ■
Jóladónar og
pólýester
www.gunnimagg . i s
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma