Fréttablaðið - 23.12.2003, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 23.12.2003, Blaðsíða 11
■ Lögreglufréttir ■ Asía 11ÞRIÐJUDAGUR 23. desember 2003 GLÆPAFORINGI LÍFLÁTINN Kín- verjinn Liu Yong, sem sakaður var um að vera foringi glæpa- gengis sem tengdist meiriháttar spillingu í Kína, hefur verið líf- látinn. Yong hafði áður verið dæmdur til tveggja ára fangelsis- vistar í héraðsdómi en dómnum síðan breytt í dauðadóm í hæsta- rétti. KÍNVERJAR SETJA METAMET Kín- verjar eru mikið fyrir það að setja met og hafa sett nýtt heims- met í því á þessu ári með alls nítján ný heimsmet skráð af heimsmetabók Guinness. Þar á meðal er minnsti tepottur í heimi, sem tekur aðeins 6,8 millilítra, lengsta ættartréð, sem nær yfir 2.500 ár, og fjölmennasti dreka- dansinn, sem 3.200 manns tóku þátt í. ÓTTAST UM FERJU Óttast er að ferja með meira en sjötíu manns innanborð hafi farist úti fyrir ströndum Filippseyja um helgina. Ferjan, sem er 63 tonn að stærð, fór frá smáeyju í Sulu-hafi á laugardaginn og hefur ekkert spurst til hennar síðan á sunnu- dag. SNJÓFLÓÐ FÉLL Snjóflóð féll í Kirkjubólshlíð skammt frá Bás- um í Skutulsfirði rétt fyrir klukk- an tvö í fyrrinótt. Hvorki fólk né mannvirki urðu fyrir flóðinu en það lokaði veginum. STAÐINN AÐ VERKI Húfuklæddur maður var handtekinn þar sem hann var að reyna að brjótast inn með kúbeini í íbúðarhús á Lauga- vegi í fyrrinótt. Íbúi í húsinu gerði lögreglu viðvart. LENTI ÚTI Í HRAUNI Ökumaður missti stjórn á bíl sínum og lenti utan vegar, í fljúgandi hálku, í Norðurárdal rétt sunnan við Bif- röst. Engin slys urðu á fólki. Undirvagn bílsins var nokkuð skemmdur auk þess sem hjól- barðar fóru af tveimur felgum. vatns og einnig þarf mikið af 4 gráðu köldu, mjög hreinu vatni. Samningar um orku til handa fyrirtækinu og allt það vatn sem til þarf, bæði heitt og kalt, liggja fyrir við Orkuveitu Húsavíkur. Samningurinn og aðrar að- stæður á Húsavík munu lækka framleiðslukostnaðinn miðað við eldri framleiðsluaðferð um 15- 20%. Glucomed ehf. er í eigu Glucomed AS í Haugasundi í Noregi. Hluthafar eru á annað hundrað, þeir stærstu og kjöl- festufjárfestar eru meðal ann- ars Öyvind Brekke og aðilar tengdir honum, Hydro Organics, lyfjafyrirtækið Weifa AS í Nor- egi og þýska fyrirtækið Kreeber Ghbh Hamburg, sem framleiðir ýmis efni til lyfjagerðar. „Erlendu fjárfestarnir vilja gjarnan fá innlendan kjölfestu- fjárfesti með í verkefnið og við erum að leita að þeim fjárfesti hér,“ sagði Tryggvi Finnsson. Heildarkostnaður við kítín- verksmiðju og lyfjaverksmiðj- una sjálfa er áætlaður 500 til 600 milljónir króna. Ætlunin er að röskur helmingur verði hlutafé, afgangurinn verður tekinn að láni. Glucomed AS er skráð á verð- bréfamarkað í Noregi. Í mars eða apríl á næsta ári er gert ráð fyrir hlutafjárútboði hjá Glucomed AS til að fjármagna áframhaldandi uppbyggingu á Húsavík. the@frettabladid.is Kaupþing Búnaðarbanki: Styrkir viðskipti við einstaklinga VIÐSKIPTI Aðdragandi þess að viljayfirlýsing um kaup Kaup- þings Búnaðarbanka á SPRON var undirrituð tók rétta viku. Stjórn SPRON setti sig í sam- band við viðskiptabankana þrjá og bað þá um að leggja fram hugmyndir að aðkomu sinni að sparisjóðnum. Frestur til að skila hugmyndunum rann út klukkan sex á föstudag. Á sunnudag var svo gengið frá samningi við Kaupþing Búnað- arbanka. Hreiðar Már Sigurðsson seg- ir Kaupþing Búnaðarbanka hafa séð tækifæri í SPRON. „Við erum minnsti bankinn þegar lit- ið er til viðskipta við einstak- linga. Með samstarfi við SPRON náum við að auka þá hlutdeild okkar.“ Hann segir SPRON munu njóta stærðar bankans með aðgangi að ódýrara lánsfé. Hreiðar Már segir þá skoðun hafa verið uppi um skeið innan Kaupþings Búnaðarbanka að frekari sameiningar og hagræð- ingar á fjármálamarkaði lægju í samstarfi við sparisjóðina. „Við höfum talið ólíklegt að af sam- einingum stóru bankanna þriggja gæti orðið vegna sam- keppnissjónarmiða.“ Hann segir stefnt að því að SPRON verði rekinn sem sjálf- stæð eining með áherslu á aukna þjónustu við einstaklinga. Nýj- ungar á því sviði verði kynntar innan skamms. ■ HREIÐAR MÁR SIGURÐSSON Stefnt er að því að nýta styrk SPRON í þjónustu við einstaklinga og kynna nýja þjónustu við þá innan skamms.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.