Fréttablaðið - 23.12.2003, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 23.12.2003, Blaðsíða 4
4 23. desember 2003 ÞRIÐJUDAGUR Myndir þú hika við að leita réttar þíns gegn opinberri stofnun eða öðrum valdhafa? Spurning dagsins í dag: Ætlarðu að borða skötu á Þorláksmessu? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 53% 21% Nei 26%Fer eftir aðstæðum Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Asía BANKAR Verði af viðskiptum SPRON og Kaupþings Búnaðar- banka verður til sex milljarða sjóður með eign í Kaupþingi Bún- aðarbanka. Núverandi fulltrúaráð stofnfjáreigenda mun í samræmi við lög um sparisjóði fara með stjórn sjóðsins og er honum ætlað að sinna líknar- og menningarmál- um. Stjórnin mun þar með fara með atkvæðarétt í samræmi við eignarhlut sinn í Kaupþingi Bún- aðarbanka. Fulltrúaráðsmenn munu sitja í stjórn sjóðsins til dauðadags. Ekki færri en þrjátíu skulu sitja í stjórn sjóðsins og skulu núverandi stofnfjáreigend- ur kjósa í stað þeirra sem falla frá. Pétur Blöndal, formaður efna- hags- og viðskiptanefndar og stjórnarmaður í SPRON, hefur barist gegn því sem hann kallar fé án hirðis. Aðspurður um hvort sjóðurinn væri ekki dæmi um slíkt fé kvað Pétur svo vera. „Ég var andvígur frumvarpinu á þingi, en lögin eru svona og við fylgjum þeim.“ Pétur var fulltrúi uppreisn- arafla í stjórn SPRON. Hann seg- ist sáttur við niðurstöðuna og fagna henni. Pétur segir meginmuninn á viðskiptunum nú og þegar hann ásamt fimmmenningunum gerði tilboð þann að hlutur stofnfjár- eigenda hafi aukist örlítið, en sjóðurinn hafi hins vegar stækk- að verulega. ■ VIÐSKIPTI Stjórn SPRON hefur und- irritað viljayfirlýsingu við Kaup- þing Búnaðarbanka um hlutafjár- skipti eftir að SPRON hefur verið breytt í hlutafélag. Stjórn SPRON mun leggja til við stofnfjáreigend- ur að sparisjóðnum verði breytt í hlutafélag. Samkvæmt viljayfirlýsingunni mun Kaupþing Búnaðarbanki gefa gengið 5,55 fyrir nafnverð stofn- fjár sparisjóðsins, eða þrjá millj- arða króna. Kaupverðið í heild er um níu milljarðar króna og fara um sex milljarðar króna í sérstak- an sjóð sem lýtur eigin stjórn. Ein- ungis er heimilt að ráðstafa sjóðn- um til samfélagsverkefna. Skipt verður á hlutabréfum stofnfjáreig- enda og bréfa bankans og mun bankinn sölutryggja hlutaféð inn- an tiltekins tímabils. Fyrirvarar kaupa Kaupþings Búnaðarbanka á SPRON eru sam- þykki Fjármálaeftirlits, stofnfjár- eigenda SPRON og hluthafafundar Kaupþings Búnaðarbanka um aukningu hlutafjár, auk hefðbund- innar áreiðanleikakönnunar á rekstri SPRON. Gert er ráð fyrir að niðurstaða geti fengist fyrir febrúarlok. Jón G. Tómasson, formaður stjórna SPRON, sagði einhug hafa ríkt um þessa niðurstöðu í stjórn- inni. Vinnuhópi sem í sátu Pétur Blöndal stjórnarmaður, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, varamaður í stjórn SPRON, og Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri var falið að leita leiða til þess að stofnfjáreigendur gætu fengið hærra verð fyrir eign sína. Þetta var gert eftir að fyrir lá álit Fjármálaeftirlitsins um að heimilt væri að greiða yfirverð fyr- ir stofnfjárhlut og í samræmi við lög um sparisjóði sem samþykkt voru á Alþingi í fyrra. Jón G. Tómasson segir meg- inmuninn á kaupunum nú og þegar fimm stofnfjáreigendur, meðal annarra Pétur Blöndal, gerðu til- boð í SPRON fyrir hönd Búnaðar- bankans, að sjálfstæði SPRON væri tryggt nú. Stefnt er að því að SPRON verði áfram rekinn sem sjálfstæð ein- ing. „Það þrennt var haft að leiðar- ljósi í þessum viðskiptum að hagur starfsmanna, viðskiptavina og stofnfjáreigenda væri tryggður,“ segir Jón G. Tómasson. Um þetta hefði öll stjórnin verið sammála og niðurstaðan gæfi tilefni til bjart- sýni um framtíð SPRON. haflidi@frettabladid.is KEYPTU BÍLAVERKSMIÐJU Kín- verska ríkisfyrirtækið Blue Star, sem rekur eina stærstu efnaverk- smiðju landsins, hefur keypt Ssangyong-bílaverksmiðjuna í Suður-Kóreu, sem er sú fjórða stærsta þar í landi. Ssangyong hefur rambað á barmi gjaldþrots síðan 1999. ÁSTANDIÐ HEFUR VERSNAÐ Mannréttindasamtökin Amnesty International segja að lítið fari fyrir efndum hvað varðar loforð herforingjastjórnarinnar í Mjanmar um aukið lýðræði í landinu. Sendinefnd Amnesty, sem nýkomin er úr sautján daga heimsókn til landsins, segir að ástandið hafi versnað. SKÆRULIÐI DÆMDUR Indónesísk- ur liðsmaður múslímskra öfga- samtaka hefur verið dæmdur í átján ára fangelsi fyrir aðild að sprengjuárás á McDonald’s-veit- ingastað í borginni Makassar í Indónesíu á síðasta ári. Hann er ákærður fyrir að hafa flutt og geymt sprengiefnið en skipu- leggjanda árásarinnar er enn leit- að. Meintur barnaníðingur á Patreksfirði: Játar sumt LÖGREGLUMÁL Meintur barnaníð- ingur á Patreksfirði hefur, sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins, játað að hluta þau brot sem hann var kærður fyrir. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur maður- inn játað kynferðisbrot gegn þremur ungum drengjum á Pat- reksfirði. Þá hefur blaðið heimild- ir fyrir því að ofbeldi gagnvart einum drengjanna hafi staðið í rúm tvö ár. Maðurinn var handtekinn á heimili sínu 5. desember síðastlið- inn eftir að forráðamenn fjögurra ungra drengja lögðu fram kærur á hendur manninum. Fljótlega bættist fimmta kæran við. Maðurinn sat í gæsluvarðhaldi til 15. desember en var sleppt úr haldi eftir að Hæstiréttur hafnaði kröfu um frekara gæsluvarðhald. Maðurinn var kærður fyrir kynferðisbrot gegn drengjunum og vörslu barnakláms. Sýslumaðurinn á Patreksfirði fer með rannsókn málsins. ■ STJÓRNMÁL Ögmundur Jónasson, fulltrúi Vinstri grænna í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, segir að lagasetning Alþingis í kjölfar átakanna um Sparisjóð Reykjavík- ur á síðasta ári hafi klikkað. „Það átti aldrei að heimila að sparisjóðir yrðu gerðir að hlutafé- lögum. Það er á þeirri forsendu sem á að fara í gegnum þessar breytingar,“ segir Ögmundur um fyrirhuguð kaup Kaupþings Bún- aðarbanka á SPRON. Hann hefur óskað eftir fundi í efnahags- og viðskiptanefnd um málið. „Það stefnir í aukna fákeppni og sam- þjöppun. Ætla menn bara að góna á þetta eins og dofnir áhorfendur eða ætla menn að taka á þessu af alvöru?“ spyr Ögmundur. „Það voru fest í lög ákvæði um að ekki mætti heimila kaup á eign- arhluta nema að uppfylltum til- teknum skilyrðum, annars vegar að þau séu liður í nauðsynlegri endurskipulagningu eða hins veg- ar að þau séu liður í að efla sam- vinnu sparisjóðanna í landinu,“ segir Ögmundur en telur sölu SPRON geta grafið undan spari- sjóðakerfinu og samstarfi þeirra á milli. ■ ÖGMUNDUR JÓNASSON „Vandinn er sá að ef SPRON hverfur út af samstarfi sparisjóðanna er hættan að starfsemi þeirra veikist.“ Fulltrúi Vinstri grænna óskar eftir fundi efnahags- og viðskiptanefndar: Lagasetningin hefur klikkað PÉTUR BLÖNDAL Segir sex milljarða sjóð sem lúti stjórn fulltrúaráðs SPRON vera dæmi um fé án hirðis. Hann var andvígur lögum um sparisjóði, en beygir sig undir þau. Stjórn sex milljarða sjóðs: Þar til dauðinn aðskilur SPRON-eigendur fá þrjá milljarða Kaupþing Búnaðarbanki stefnir að því að kaupa SPRON fyrir níu milljarða. Þar af fara þrír milljarðar til stofnfjáreigenda. Algeng eign einstaklinga er 20 stofnbréf sem gefa rúmar fjórar milljónir. SÁTT STJÓRN Jón G. Tómasson, formaður stjórnar SPRON, og Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri. Stjórn sparisjóðsins er skipuð fulltrúum beggja fylkinga sem tókust á innan sparisjóðsins og var hún einhuga um þá niðurstöðu að ganga til samninga við Kaupþing Búnaðarbanka um sölu á SPRON. NÝJAR ELDFLAUGAR Rússar hafa tekið í notkun nýjar eldflaugar til að bera kjarnorkuvopn. Sergei Ivanov varnarmálaráðherra sagði eldflaugarnar þær fullkomnustu í heimi. „Aðeins slík vopn geta tryggt sjálfstæði okkar og ör- yggi.“ SONURINN Í FRAMBOÐ Yngsti sonur Lech Walesa, fyrrum for- seta Póllands og þar áður leið- toga andspyrnuafla gegn komm- únistastjórninni, hyggst hasla sér völl í stjórnmálum. Hinn 27 ára gamli Jaroslaw Walesa ætlar í framboð til borgarstjórnar Gdansk og hugsanlega til þings síðar meir. ■ Evrópa ■ Evrópa FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.