Fréttablaðið - 23.12.2003, Page 24
23. desember 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Frjálsíþróttamenn ársins:
Sigursælir Svíar
GOLF Svíarnir Carolina Klüft og
Christian Olsson voru valdir frjáls-
íþróttamenn ársins af Evrópska
frjálsíþróttasambandinu. Svíinn
Annika Sörenstam var fyrst kven-
na valin kylfingur ársins í Evrópu.
Carolina Klüft var ósigrandi á
árinu í sjöþraut. Hún sigraði í
fimmtarþraut á heimsmeistara-
mótinu sem fram fór í Birmingham
í vor og í sjöþraut á heimsmeistara-
mótinu sem fram fór í París síð-
sumars. Klüft fékk 7.001 stig í
keppninni en engin hafði náð 7.000
stiga markinu síðan Bandaríkja-
manninum Jackie Joyner-Kersee
tókst það ári 1992.
Breski hlauparinn Paula
Radcliffe varð önnur í kjörinu og
franski langstökkvarinn og sjö-
þrautarkeppandinn Eunice Barber
þriðja.
Þrístökkvarinn Christian Olsson
varð eins og Klüft bæði heims-
meistari innanhúss og utan og
sýndi ótrúlega mikinn stöðugleika í
keppnum ársins. Hann tók þátt í 64
mótum og stökk 52 sinnum yfir
sautján metra. Frá júnímánuði
2001 hefur Olsson stokkið yfir
sautján metra á 51 móti utanhúss
af 53.
Pólski göngugarpurinn Robert
Korzeniowski varð annar í kjörinu
og ítalski stangarstökkvarinn
Giuseppe Gibilisco þriðji. ■
Gríðarlegt
tekjutap
Rio Ferdinand gæti misst alla helstu
styrktaraðila sína í kjölfar bannsins sem
hann var dæmdur í á föstudaginn.
FÓTBOLTI Það er líklegt að dómur-
inn yfir Rio Ferdinand á föstudag-
inn þar sem hann var dæmdur í
átta mánaða keppnisbann fyrir að
gleyma að taka lyfjapróf muni
hafa áhrif út fyrir knattspyrnu-
völlinn. Það er í það minnsta
skoðun Mel Goldberg, eins
fremsta íþróttalögfræðings Eng-
lands, en hann tjáði sig um málið
um helgina. Ferdinand er með
samninga við íþróttavörufram-
leiðandann Nike og fataframleið-
andann Ben Sherman og segir
Goldberg að Ferdinand eigi það á
hættu að missa þessa samninga
vegna bannsins. „Flestir samning-
ar af þessari gerð eru með ákvæði
þar sem fyrirtækin ákilja sér rétt
til þess að segja upp samningnum
ef hinn samningsbundi verður
uppvís að hegðun sem á einhvern
hátt getur skaðað fyrirtækið. Ef
bannið stendur er ljóst að Ferdin-
and verður ekki til mikils gagns
fyrir styrktaraðila hans næstu
átta mánuðina og því munu fyrir-
tækin væntanlega skoða samn-
inga sína við hann vandlega,“
sagði Goldberg. Nike hefur þegar
tilkynnt að fyrirtækið muni
standa þétt við bakið á Ferdinand
en Goldberg segist vera viss um
að fyrirtækið muni endurskoða þá
afstöðu. Ef fyrirtækin tvö segja
upp samningi sínum við Ferdin-
and er ljóst að tekjumissir hans
verður gífurlegur. Síðan kemur til
hvort sala á treyjum merktum
Ferdinand muni minnka á meðan
hann er í banni. Líklegt er að
stuðningsmenn Manchester
United, sem standa þétt við bakið
á sínum manni, muni kaupa treyj-
ur kappans af janfvel meiri krafti
en áður en hinn almenni knatt-
spyrnuáhugamaður mun væntan-
lega hugsa sig tvisvar um áðru en
hann kaupir treyju merkta manni
sem hefur verið dæmdur í átta
mánaða bann fyrir að mæta ekki í
lyfjapróf. Það verður þó að hafa í
huga að skoðanir manna í
Englandi á banninu eru misjafnar;
sumir telja það allt of strangt á
meðan aðrir segja að hann hafi
sloppið vel. Þeir sem tilheyra
fyrri hópnum halda væntanlega
áfram eins og ekkert hafi í skorist
en hinir munu væntanlega snið-
ganga allt sem kemur Ferdinand
við. ■
RIO FERDINAND
Rio Ferdinand á það á hættu að missa alla helstu styrktaraðila sína vegna átta mánaða
bannsins.