Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.12.2003, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 23.12.2003, Qupperneq 31
Samkvæmt opininberum listumer Bettý eftir Arnald Indriða- son söluhæsta bókin um þessar mundir. Þegar haft var samband við bóksala víðs vegar um landið kom í ljós að hún er í flestum til- fellum söluhæst í bókaverslunum en ekki í stórverslunum. Það gæti endurspeglast í því að verslunar- hættir landsmanna í bókakaupum eru mismunandi eftir því við hvaða verslanir er skipt. Einnig gæti það verið til marks um hvaða bækur hafi verið á tilboði í þeim verslunum. Þegar litið er til bóka- og rit- fangaverslana seldist Bettý best í flestum þeim verslunum sem haft var samband við. Fast á hæla hennar kom Öxin og jörðin eftir Ólaf Gunnarsson og Stormur eftir Einar Kárason í verslun Máls og Menningar á Laugavegi. Hr. Jóli var vinsælasta bókin í Pennanum- Eymundssyni í Austurstræti og Öxin og jörðin næstsöluhæst. Bettý var þar einungis í þriðja sæti. Á milli þessara verslana er lítill landfræðilegur munur en þó er sýnilegur munur á vinsælum titlum. Meiri munur var á bókakaup- um landsmanna í stórverslunum. Harry Potter og Fönixreglan var vinsælasta bókin í Bónus, Smára- torgi og í Nettó í Mjódd; Útkall, Árás á Goðafoss er sú bók sem hefur selst best í Nettó á Akur- eyri; og Grænn kostur er sölu- hæsta bók Hagkaupa á Eiðistorgi. Það er því ekki einungis munur á milli bókaverslana og stórmark- aða, heldur er einnig stór munur á því á milli búða hvaða bók selst best. ■ Bækur ■ Sama bókin er ekki alls staðar vinsælust. Stór munur er á því á milli búða hvaða bók selst best. ÞRIÐJUDAGUR 23. desember 2003 SUNGIÐ Á JÓLUNUM Það var kátt á hjalla hjá gestum og gangandi í Mjódd í gær og jólalögin sungin af mikilli innlifun. Silfurrefur íslenskrar þjóð-málaumræðu, Egill Helga- son, tók virkan þátt í dægur- þrasinu á Netinu fyrir nokkrum misserum á meðan vegur Strik.is var sem mestur. Egill dró sig í hlé á þessum vettvangi eftir að hann varð pabbi en er nú mættur til leiks á Strik.is á ný. Egill lofar engu um fram- haldið en segir á vefnum að hann ætli „að reyna að uppfæra vefinn nokkrum sinnum í viku“ og biður lesendur að leggja sér lið „með því að senda inn bréf sem ég birti með glöðu geði – líkt og forðum...“ Egill lætur þess einnig getið að lengi hafi staðið til að færa aftur líf í vef- inn „því þótt hann hafi hangið uppi hreyfingarlaus nokkur misseri, þá var aldrei ætlunin að loka honum alveg. Það atvik- aðist bara svona“. Fréttiraf fólki VERSLUN Stór munur er á því á milli búða hvaða bók selst best. Ólíkur smekkur eftir því hvar verslað er

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.