Tíminn - 17.09.1971, Page 2
TIMINN
FÖSTUDAGUR 17. september ÍWI
Athugasemd við
ritstjórnargrein
í ritstjórnargerin Tímans,
um breytingu á verðlagningu
búvoru, fimmtudaginn 9. sept.
þ.á., er svo komizt að orði:
„Höfuðatriði núgildandi verð
lagningarákvæða er það að sex
mannanefnd, skipuð fulltrúum
framleiðenda og neytenda,
semja um verðið, en nái hún
ekki samkomulagi, skeri gérð-
ardómur úr. Þetta fyrirkomu-
lag gafst vel um talsvert skeið,
en hefur verið í reynd óvirkt
síðustu árin, því samtöl; þau,
sem áttu að tilnefna fulltrúa
neytenda, hafa skorizt undan
3ð gera það, að ríkisstjórnin
pví tilnefnt fulltrúa í stað
þeirra".
Lesendur gætu haldið að
allir þrír fulltrúar neytenda
væru tilnefndir af ríkisstjórn-
inni. Svo er þó ekki. Samkv.
gildandi lögum hafa eftirtalin
samtök rétt til þess að tilnefna
einn mann hvert: Alþýðusam-
band íslands, Landssamband
iðnaðarmanna og Sjómannafé-
lag Reykjavíkur, tvö síðar-
nefndu samtökin hafa alla tíð
tilnefnt fulltrúa. Aftur á móti
tilkynnti miðstjórn Alþýðusam
bands íslands, með bréfi þ. 26.
ágúst 1965, að það hefði falið
fulltrúa sínum í nefndinni að
hætta þar störfum.
Samkvæmt lögum skyldi fé-
'^Ssmálaráðherra tilnefna
mann í stað fulltrúa Alþýðu-
sambandsins, og tilnefndur var
Torfi Ásgeirsson, er verið hafði
ritari nefndarinnar um langt
árabil, en ritarastöðu tók
Sveinn Tryggvason, framkv.stj.
Framleiðsluráðs landbúnaðar-
ins.
Þetta fýrirkomulag hefur
staðið síðan, þ.e. einn af full-
trúum neytenda er tilnefndur
af ríkisstjórn, tveir af samtök-
um.
Sexmannanefnd samþykkir
að fela ritara að koma þessari
athugasemd á framfæri við dag
blaðið Tímann.
Reykjavík, 10.9. 1971
í sexmannanefnd,
Gunnar Guðbjartsson, Einar
Ólafsson, Otto Schopka, Sæm-
undur E. Ólafsson, Torfi Ás-
geirsson, Vilhjálmur Hjálmars
son.“
LANDVARI
OPNAR
SKRIFSTOFU
Samtökin Landvari, Lands-
félag vörubifreiðaeigenda á
flutningaleiðum, voru stofnuð
á s.l. vetri með hartnær 70
aðilum, er stunda landflutn-
inga með bifreiðum. f lands-
félagi þessu eru m.a. félags-
menn í Vöruflutningamiðstöð-
inni h.f., Landflutningum h.f.
og Vöruleiðum h.f., auk margra
kaupfélaga víðsvegar um land-
ið, svo og einstakra bifreiða-
eigenda, er annast mjólkur-
flutninga á áætlunarleiðum.
Vonast félagsstjórnin til þess
að Landvari nái sem allra fyrst
því marki, er stofnfundur
setti:
að sameina í félagsskap alla
þá er eiga og reka bifreiðir
til vörudreifingar um land-
íð.
að vinna að sameiginlegum
bagsmunum félagsmanna á
hverjum tíma.
að beita sér fyrir umbótum i
Framhald á bls. 10
Fundir sjómanna á Norður- og Austurlandi:
Skora á stjórnina að hvika
ekki / landhelgismálinu
Að undanförnu hafa vcrið haldnir fundir norðanlands og austan á
vcgum Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Öldunnar og Vélstjórafélags
íslands. Auk kjaramála voru fjölmörg önnur mál á dagskrá fundanna,
þar á meðal slysatryggingamál sjómanna, öryggismál skipa og áhafna
og landhelgismál.
Varðandi kjaramál sjómanna var
samþykkt að krefjast verulegrar
hækkunar á kauptryggingu ásamt
fríu fæði fyrir bátasjómenn.
Einnig var samþykkt að krefj-
ast stórfelldrar hækkunnar á slysa-
tryggingu og þess, að þegar verði
hafizt handa um raunhæfar aðgerð-
ir til að draga úr hinum tíðu slys-
um um borð í fiskiskipum, og
verða þær samþykktir sendar við-
komandi aðilum.
Eins og fyrr var getið, urðu mikl-
ar umræður um öryggisbúnað
skipa og komu margar mjög at-
hyglisverðar ábendingar fram, t.d.
varðandi umbúnað og frágang
gúmbjörgunarbáta, frágang á lest-
aropum og frágang og staðsetn-
ingu slökkvi- og lensidæla, sem nú
er skylt að hafa í hverju fiski-
skipi.
Einnig kom það fram að á all-
mörgum smærri bátum við Eyja-
fjörð hefur kælivatn frá vél verið
notað til að hindra ísingu, með
mjög góðum árangri.
Á öllum fundunum voru sam-
þykktar ályktanir í landhclgismál-
inu og voru stjórnvöld eindrcgið
hvött til að hvika ekki frá ákvörð-
un um útfærslu landhelginnar f
50 sjómílur.
Á fundinuim kom eindregið fram
nauðsyn á endurnýjum fiskiskipa-
flotans.
Almenn ánægja ríkti með fisk-
verðshækkun þá, sem orðið hef-
ur að undanfömu og töldu menn
að aðgerðir sjávarútvegsráðherra
n
væri spor í rétta átt, þó enn hafi ■
ekki verið réttur hlutur þeirra H
manna sem erlendis landa.
Ók út af undir "
annarlegum áhrifum "
ÞÓ—Reykjavík, fimmtudag.
Seinnipartinn í dag handtók lög-
reglan á Selfossi bílstjóra, sem ek- ®
ið hafði út af á veginum á milli ■
Hveragerðis og Selfoss. Stuttu áður ■
en bílstjórinn hafnaði fyrir utan B
veg, var hann rétt búinn að aka á H
tvo bíla en bílstjórarnir gátu með
snarræði sínu forðað frá árekstri. ®
■
Að sögn lögreglunnar á Selfossi, —
var fyrst haldið að maðurinn væri
ölvaður, en svo reyndist þó ekki ®
vera, en undir annarlegum áhrif- ■
um var hann. Bfll ökumannsins er ■
lítið skemmdur. m
NU ER HÆGT AÐ KVARTA TIL
BORGARARÉTTINDANEFNDAR
Að tilstuðlan Neytendasamtak-
anna hefur verið komið á fót
Borgararéttindanefnd, sem starf-
ar í nánum tengslum við Neyt-
Hlutverk nefndar þessarar er
eftirfarandi:
1. Að leggja mat á það, hvort
borgarar hafa verið skertir borg-
aralegum réttindum sinum.
1. Að leggja mat á það, hvort
borgarar hafa verið beittir órétti
af opinberum aðilum.
2. Að leggja mat á það, hvort
borgarar hafa verið skertir borg-
aralegum réttindum sínum.
3. Að leggja mat á framkomu
einstakra opinberra embætta, eða
einstaklinga, sem gegna störfum
í þágu hins opinbera.
4. Að stuðla að því með yfir-
lýsingum í fjölmiðlum. að ein-
staklingar, sem órétti hafa verið
beittir, eða níðst hefur verið á,
náj rétti sínum.
í Borgararéttindanefndinni sitja:
Benedikt Blöndal hrl.
Guðrún Erlendsdóttir hrl.
Guðrún Friðgeirsdóttir B.A.
Séra Jón Bjarman.
Sigurgeir Sigurjónsson, hrl.
Skrifstofurekstur Borgararétt-
indanefndarinnar annast Neyt-
endasamtökin, Stórholti 1, Reykja
vík.
Yfirleitt verður tekið á móti
kvörtunum á laugardögum frá
kl. 1—5 á skrifstofu Neytenda-
samtakanna, en laugardaginn 11.9.
1971 verður móttökutíminn frá kl.
3—7 s.d.
Þing Fjórðungssambands Norðlendinga
SB—Reykjavík, miðvikudag.
Fjórðungssamband Norðlend-
inga hélt fjórðungsþing sitt í
Ólafsfirði dagana 9. og 10. sept-
ember sl. Hófst það í Barnaskól-
anum þar kl. 2 á fimmtudag með
ávarpi stjórnarformannsins, Jóns
ísberg, sýslumanns á Blönduósi.
Þingforsetar voru kjörnir þeir
Jón ísberg og Ásgrímur Hart-
mannsson, bæjarstjóri í Ólafsfirði.
Lögð voru fram nefndarálit frá
samgöngumélanefnd, atvinnumála-
nefnd og landbúnaðarnefnd, enn-
fremur tillögur frá fjórðungsráði.
Fyrri daginn fluttu skýrslur, fram-
kvæmdastjóri fjórðungssambands-
ins, Áskell Einarsson, og Björn
Friðfinnsson, bæjarstjóri á Ilúsa-
vík, um verkaskiptingu sveitar-
félaga og ríkis og dreifingu ríkis-
stofnana um landið.
í hófi, sem bæjarstjóri Ólafs-
fjarðar hélt fyrir þingfulltrúa um
kvöldið, flutti Bjarni Bragi Jónss.,
forstj. Efnahagsstofnunarinn-
ar, ræðu um samgönguáætlun
Norðurlands.
Fundur hófst síðan að nýju kl.
14.00 á föstudag. Þar ávarpaði
élagsmáláráðherra, Hannibal Valdi
marsson þingið síðan hófust um-
ræður og afgreiðsla nefndarálita.
í stjórn Fjórðungsráðsins voru
í fundarlok kjörnir. Ásgrímur
Hartmannsson, bæjarstjóri, Ólafs-
firði, form., Brynjólfur Sveinbergs
son, oddviti, Hvammstanga, Jón
ísberg sýslumaður, Blönduósi.
Marteinn Friðriksson bæjarfull-
trúi, Sauðaárkróki, Jóhann Sal-
berg, sýslumaður, Sauðárkróki,
Stefán Friðbjamarson, bæjarstjóri
Siglufirði, Ófeigur Eiríksson, sýslu
maður, Ákureyri, Bjarni Einars-
son, bæjarstjóri, Akureyri, Bjöm
Friðfinnsson, bæjarstjóri, Húsvík,
Jóhann Skaptason, sýslumaður,
Húsavík og Sigtryggur Þorláks-
son bóndi Svalbarði.
I
flíl
uu
D
uu
li
Kirkjudagur
Óháða
safnaðarins
Kirkjudagur óháða safnaðar-
ins er á sunnudaginn kemur og
hefst með guðsþjónustu kl. 2.
Kirkjukórinn syngur undir
itjórn organistans Snorra Bjama
sonar og Vilborg Áraadóttir
syngur stólvers.
Að lokinni messu, eða frá kl.
3 — 7, hafa konur úr Kvenfé-
lagi kirkjunnar kaffiveitingar
með heimabökuðum kökum og
smurðu brauði í safnaðarheim-
ilinu Kirkjubæ og eiga von á
mörgum góðum gestum að
vanda.
Frá kl. 4.30 til 5.30 verður
jafnframt barnasamkoma í
kirkjunni og er böraum jafnt
og fullorðnum heimill ókeypis
aðgangur að henni. Sýndar
verða litkvikmyndir og Ómar
Ragnarsson heimsækir börnin.
öllum fjárhagslegum ágóða
af kirkjudögum safnaðarins
hafa konurnar frá upphafi ým-
ist varið til kirkju sinnar eða
líknarstarfsemi.
a Merkjasala
: kvenna
■
H A morgun laugardaginn 18.
september er hinn árlegi söfn-
1 unardagur sjóðnum til styrkt-
■ ar. Kvenréttindafélag íslands
■ mun þá eins og mörg undanfar-
g In ár gangast fyrir mcrkjasölu,
m og verða merkin afgreidd í öll
■ um barnaskólum Reykjavíkur
_ frá kl. 1, á laugardaginn.
Hlutverk sjóðsins er, eins og
* kunnugt er, að styrkja konur til
■ ýmiskonar framhaldsnáms bæði
hér á landi og erlendis.
Nú eru liðin 25 ár síðan
fyrsta sinn voru veittir styrkir
úr sjóðnum, en það var árið
1946. Þá hlutu styrk 5 konur.
Upphæðin, sem mátti, sam-
kvæmt skipulagsskrá sjóðsins,
verja til styrkveitinga, var Þá
aðeins 8000 kr.
Síðast liðið ár voru veittir úr
sjóðnum 18 styrkir, og hefur
það verið svipað allmörg undan-
farin ár. Nú í sumar voru
gerðar nokkrar breytingar á
skipulagsskrá sjóðsins, og má
þá nefna tvennt, sem vérulegu
máli skiptir. Umsóknarfrestur
um styrk úr sjóðnum, sem áð-
ur miðaðist við miðjan júlí,
miðast nú við 15. nóvember, og
samkvæmt nýju skipulags-
skránni má verja aflmiklu
meiru af árlegum tekjum sjóðs-
ns til styrkveitinga.
Yfir 800 laxar á stöngina
í Laxá á Ásum
Laxveiðitímanum er nú að ljúka,
eða 20. september að venju, og
eiga hlutaðeigandi aðilar nú ann-
ríkt við að taka á móti veiðibók-
um frá ánum og taka saman upp-
lýsingar úr þeim. — Eftir þcim
upplýsingum að dæma um lax-
veiðitöluna. sem við höfum feng-
ið, mun Langá á Mýrum vera
sú stangaveiðiá, þar sem flestir
laxar veiddust eða 2400—2500
eins og Tíminn skýrði frá s.l. mið
vikudag. 8 stangir voru leyfðar á
dag í sumar í þeirri á, þannig að
rúmlega 300 laxar hafa veiðzt að
meðaltali á hverja stöng. Hins
vegar mun Laxá í Ásum vera sú
á, þar sem flestir laxar veiddust
á Stöng i sumar. Þar veiddust
yfir 1600 laxar í sumar á 2 stang-
ir, en aðeins 2 stangir voru leyfð
ar yfir daginn í ánni.
Þar sem nú er verið að vinna
úr veiðibókum frá mörgum lax-
veiðiám, er ekki tímabært nú að
nefna fleiri ár í þessu sambandi.
Nú er veitt í fjórum ám
Stangaveiðifél. Reykjavíkur
Þær ár, sem Stangaveiðifélag
Reykjavíkur hefur á leigu og enn
er veitt í, eða fram til 20. sept.,
eru Leirvogsá, þar sem mun vera
búið að veiða 460 laxa í sumar,
Elliðaárnar, þar sem búið var að
veiða 1150 nú á þriðjudaginn, —
Gljúfurá, sem mun vera með nær
400 veidda laxa, og Stóra-Laxá,
þar sem mun vera búið að veiða
um 270—280 laxa. — EB