Tíminn - 17.09.1971, Page 3
FÖSTUDAGUK 17. september 1971
NARFI H.F.
- ný báta-
smíðastöð
á Akureyri
SB—Rej’kjavík, fimmtudag.
Ný bátasmíðastöð er nú að rísa á
Akureyri og mun hún væntanlega
taka til starfa um áramótin. Stöð-
in heitir Narfi h.f. og eru hluthaf-
ar nokkrir skipasmiðir á Akureyri.
Stjórnarformaður Narfa er Hall-
grímur Skaptason, skipasmiður.
í viðtali við Tímann í dag, sagði
Hallgrímur, að Narfa hefði verið
úthlutað 45x50 metra lóð við Ós-
eyri, sem þegar yrði fullnýtt. Nú
væri unnið að byggingu stöðvar-
innar og yrði smíðaskálinn 14x35
metrar að stærð með 6 metra loft-
hæð. Þarna yrði aðstaða til smíða
35 _ 40 lesta trébáta og væri ekki
ætlunin að fara út í smíði stærri
báta síðar meir.
Að endingu sagði Hallgrímur, að
samningar hefðu staðið yfir und-
anfarið um smíði fyrsta bátsins,
sem yrði um 25 lestir, en enn væri
ekki búið að ganga frá þeim.
Auk Hallgríms eru í stjórn Narfa
skipasmiðimir Áskell Egilsson og
Jón Steinbergsson.
Harður árekstur -
annar ökumaðurinn
ölvaður
ÞÓ-Reykjavík, fimmtudag.
Harður árekstur varð á mótum
Skúlagötu og Klapparstígs um
miðnættið í nótt. Skullu þar sam-
an bíll, scm kom á mikilli ferð
niður Klapparstíginn og bifreið,
sem ók austur Skúlagötuna. Tvær
stúlkur, sem voru í bílnum, sem
ók austur Skúlagötu, skárust eitt-
hvað, og ökumaður bflsins sem
kom niður Klapparstíginn, skrám
aðist eitthvað, en að auki hafði
hann látið „stút aka fyrir sig“.
Þetta byrjaði með því, að lög-
reglunni var tilkynnt um ofsa-
feriginn akstur bifreiðar fyrr um
kvöldið. Lögreglan varð svo vör
við bílinn upp í Þingholtum, en
bílstjóranum tókst þá að hrista
lögregluna af sér. Hefur hann þá
ekið niður á Hverfisgötu og beygt
niður Klapparstíg — á móti ein-
stefnuumferð — síðan hefur hann
ætlað að beygja á mikilli ferð
út á Skúlagötuna, en þar var þá
fyrir bifreið, þó svo að bílstjóri
þeirrar bifreiðar reyndi allt hvað
hann gat til að forða árekstri,
varð hann ekki umflúinn og lentu
bflarnir saman sem fyrr segir.
Ökumaður bifreiðarinnar, sem
kom niður Klapparstíginn, var
illa ölvaður.
Bflarnir eru mjög illa farnir,
eftir áreksturinn.
BELTIN
UMFE.RDARRAD
TIMINN
Þessa mynd tók Gunnar, Ijósmyndari Tímans, af hluta af papphópnum, sem kom frá London í gær, Myndin
er tekin við Hótel Holt, skömmu eftir komu hópsins þangaS. Eins og sjá má á myndinni á þessi föngulegi hópur
margvíslega persónuleika.
ENSKIR POPPARAR UM
ALLTÁ HÓTEL HOLTI
EB—Reykjavík, fimmtudag.
Poppheimur íslands fékk nú um miðjan dag, fimmtudag, 22 veg-
lega gesti frá London í heimsókn svo og um 3 tonn af hljóðfærum, en
með þeim verður líklega framleidd sú „geggj'ðasta“ hljómlist, sem
heyrzt hefur í Laugardalshöll, þótt ýmislegt hafi gengið á áður í höll-
inni, þegar popphljómsveitir hafa sýnt listir sínar þar. — Gestirnir, sem
hér um ræðir, eru meðlimir þriggja enskra popphljómsveita, Badfinger,
Man og Writing on the Wall og aðstoðarmenn þeirra, ásamt umboðs-
manni, en sem kunnugt er stendur Ingiþergur Þorkelsson, umboðsmað-
ur skemmtikrafta, fyrir þessari heimsókn ensku hljómsveitanna, er
spila í Laugardalshöll nú á laugardaginn.
Poppmennirnir frá London,
komu á Keflavíkurflugvöll um
miðjan dag, með þotu Flugfélags
íslands, og þaðan héldu þeir til
Reykjavíkur og rakleitt til Hótel
Holts þar sem þeir munu dvelja
fram til sunnudagsmorguns er þeir
halda aftur utan.
Hljómleikarnir, sem haldnir
verða í Laugardalshöll með þess-
um þremur hljómsveitum, hefst
kl. 6 eftir hádegi og verða til mið-
nættis ef allt gengur samkvæmt
áætlun. Á milli framkomu ensku
hljómsveitanna verður diskótek,
svo og koma fram popphljómsveit-
in Dýpt og lagasmiðurinn, söngvar
inn og Ijóðskáldið Einar Vilberg.
Samkvæmt upplýsingum Ingi-
bergs Þorkelssonar, verða þessir
hljómleikar árangur margra mán-
aða vinnu. Fór Ingibergur til Lond
on í júní s.l. til þess að fá hljóm-
sveitir þar til þessa hljórrileika-
halds og mun hann alls hafa átt
beint eða óbeint samband við 300
— 400 hljómsveitir Þar ytra.
Af þessum þremur ensku popp-
hljómsveitum, sem hingað eru
komnar nú, er Badfinger þekktust
meðal íslenzkra poppunnenda, enda
hafa lög hljómsveitarinnar notið
töluverðra vinsælda hér á landi.
— Badfinger eru nýkomnir frá
New York þar sem hljómsveitin
tók þátt í hljómleikum með fyrr-
verandi meðlimum The Beatles,
George Harrison og Ringo Starr
og meðal annarra hljómlistar-
manna, er fram komu á þeim hljóm
leikum var sá þekkti Bob Dylan.
Lét 10 ára stúlku
„handserða“ sig fyrir
100 krónur
ÞÓ—Reykjavík, fimmtudag.
A þriðjudaginn, var maður hand-
tekinn og kærður fyrir að tæla 10
ára gamla stúlku með fégjöfum.
Hafði maðurinn borgað stúlkunni
100 krónur gegn því, að hún þukl-
aði á kynfærum sínum.
Við yfirheyrslur kom í ljós að
maðurinn er ekki heill á geðsmun-
um. Samt hafði hann gert sér grein
fyrir því að hér var um lögbrot að
ræða, en fannst lögin vitlaus.
Það var móðir stúlkunnar, sem
komst á snoðir um þetta athæfi
mannsins og er nú komið í ljós að
þetta er ekki fyrsta afbrot hans af
Þessu tagi. Maður þessi er rúm-
lega fertugur.
3
Var Alþ.fl. hand-
bendi USA?
Kristján Bersi Ólafsson fyrr-
verandi ritstjóri Alþýðublaðsins
skrifar pistil í Alþýðublaðið í
gær, sem er einhver harðasta
gagnrýni á Emil Jónsson, fyrr-
verandi utanríkisráðherra og
formann Alþýðuflokksins, sem
birtzt hefur í íslenzku dagblaði.
Gefur Kristján Bersi þar í skyn
að ráðherrann hafi verið vilja-
laust vcrkfæri í höndum Banda-
ríkjastjórnar og algcrt hand-
bendi Bandaríkjanna þegar
þcim bar svo við að horfa. í
þessum pistli segir m.a.::
„Nú hcfur ríkisstjórnin á-
kveðið að láta ísland styðja
með atkvæði sínu aðild Peking-
stjórnarinnar að Sameinuðu
þjóðunum. Það er sannarlega
kominn tími til. Um langt ára-
bil hefur atkvæðagreiðslan um
Kínamálið á Allsherjarþinginu
verið árvisst hneyksli, hvað af-
stöðu íslands snertir. Eitt Norð-
urlanda hcfur ísland fram til
þessa lagzt gegn því, að stjórnin
í Peking fengi í sínar hendnr
umboð lands síns hjá Samein-
uðu þjóðunum, fyrst mcð því
að greiða lireinlega atkvæði
gegn þeirri ráðstöfun, en hin
síðari ár með hjásetu.
Ár eftir ár hefur Það gerzt
að utanríkisráðherrar Norður-
landa hafa komið saman til
fundar og meðal annars sam-
þykkt að ríki þeirra skyldu
styðja aðild Pekingstjórnarinn-
ar að S.Þ., og ég minnist þess
ckki að hafa nokkurn tíma
séð tekið fram í tilkynningu
um slíka fundi, að ísland hefði
þar neina sérstöðu. En þegar
til New York var komið
greiddi ísland ævinlega at-
kvæði á þann veg sem Banda-
ríkjunum var þóknanlcgri. Og
fram að þessu hafa Bandarik-
in haft forystu um það, að
halda gangandi þeim skrípa-
leik að láta líta svo út sem rík-
isstjórnin á Formósu sé ennþá
ríkisstjórn Kína, aldarfjórð-
ungi eftir að hún var hrakin
úr landi.
Ég skal engum getum að
því leiða, hvað hefur valdið
þessari afstöðu; hvort ráða-
menn hafi í þessu máli raun-
verulega farið eftir sannfær-
ingu sinni eða hvort annað
hafi ráðið. Það virðist þó erf-
itt að komast hjá grun um, að
þama hafi nærgætni við af-
stöðu Bandaríkjanna haft mik-
ið að segja. Yfirleitt hafa ís-
lendingar gert lítið af því á al-
Þjóðavettvangi að taka afstöðu
sem gengur í berhögg við
stefnu Bandaríkjastjórnar
(nema lielzt í landhclgismál-
um); við liöfum getað verið
harðir gegn Bretum og Frökk-
um í sumum málum, en þegar
betur er að gáð kemur í ljós
að þar hefur jafnan verið um
mál að ræða, þar sem Banda
rflrin veittu þessum bandalags
þjóðum sínum aðeins takmark
aðan stuðning. Dæmi um slík
mál er Alsírstríðið á sínum
tíma og innrásin í Suez.“
Kinnroði Krata
og hinna
Síðan gerir Kristján Bersi
Framhald á bls. 10.