Tíminn - 17.09.1971, Page 9
FÖSTUDAGUR 17. september 1971
TIMINN
ffivað segja spámennirnir?
Þeir 10 beztu af spámönnum Tímans í sambandi viö getraunirnar
spá um hvaða Bið verður íslandsmeistari og hvaða lið falli í 2. deild
Klp—Reykjavík. Eins og ef-
laust flestir íþróttaunnendur
vita fer úrslitaleikurinn í ís-
landsmótinu fram á sunnudag-
inn. Þá mætast Vestmannaey-
ingar og Keflvíkingar á Laug-
ardalsvellinum, og er þetta
hreinn úrslitaleikur. Ef jafn-
tefli er í leikslok verður hann
framlengdur um 2x15 mín.,
og ef þá fást ekki úrslit verð-
ur nýr leikur um aðra helgi.
Á laugardaginn fer einnig
fram mikilvægur leikur á Laug
ardalsvellinum, en þar mæt-
ast KR og Fram. Hefur sá leik-
ur mikið að segja um hver
falli í 2. deild. Þar verða KR-
ingar að sigra til að halda sæti
sínu í 1. deild, en þá falla Akur
eyringar. Ef KR tapar fyrir
Fram er KR þar með fallið,
en ef leiknum líkur með jafn-
tefli fer fram aukaleikur um
fallið milli KR og Akureyrar.
Eins og ætíð er mikið um
það rætt meðal íþróttaunnenda,
hver fari með sigur af hólmi í
svo mikilvægum leikjum
sem þessum. Eru þar að sjálf-
sögðu skiptar skoðanir og ætl-
um við að gefa lescndum smá
sýnishorn af því.
mæwœmmmim
Til þess að spá um úrslitin
höfum við fengið þá 10 menn,
sem getspakastir hafa orðið í
sambandi við úrslit Ieikja á
íslenzka getraunaseðlinum. En
eins og lesendum er eflaust
kunnugt fær íþróttasíðan einn
mann til að spá um úrslit
leikja á getraunaseðlinum í
hverri viku. Hafa sumir þess-
ara manna náð þar allt að 10
leikjum réttum og a.m.k. tvisv-
ar 12 réttum á sínum seðlum,
og ættu þeir því ekki að vera
í vandræðum með að spá um
tvo leiki hér heima.
En lítum nánar á hvernig
þeir svara spurningunni: HVER
VERÐUR ÍSLANDSMEISTARI
f KNATTSPYRNU í ÁR, OG
HVAÐA LIÐ FELLUR f 2.
DEILD?
Róbert Ágústsson: „Ég spái því
að Akureyri falli í 2. deild, eftir
aukaleik við KR, þar sem leikur
KR og Fram á laugárdag endar
með jafntefli. Vestmanneyingar
verða svo íslandsmeistarar með
því að vinna Keflavíkinga 4:2 á
sunnudaginn."
Sigmundur O. Steinarsson
(SOS): ,,Ég spáði því strax í sum-
ar að Keflvíkingar yrðu íslands-
meistarar og ég stend við það.
Úr því sem komið er spái ég Ak-
ureyri falli, því að KR vinnur leik
inn gegn Fram 2:1. Lokatölumar
3:1
Geir Kristjánsson: „Keflavik
verður meistari og KR dettur í
2. deild með pomp og pragt. Kefl-
víkingar vinna leikinn gegn Eyja-
mönnum, þótt þeir hafi verið sér
til skammar í leiknum gegn Tott-
enham, 4:0, og Fram tekur KR
léttiiega 4:0.“
Mí MHAIMM í'u,u 'fii
Olfert Nábye: „Vestmanneyingar
verða íslandsmcistarar og Akur-
eyri fellur í 2. deild. Keflvík-
ingar endast ekki í leikinn gegn
ÍBV því leikurinn við Tottenham
var það erfiður fyrir þá, og gamla
:KR seigla'st á móti Fram og
heldur sér upþi' á þeim leik.“
Karl Harry Sigurðsson: „Eg
segi að Keflvíkingar verði ís-
landsmeistarar, þeir vinna leik-
inn gegn Vestmannaeyingum með
einu marki 1:0 eða 2:1. KR vinn-
ur Fram á laugardaginn 3:1 og
það verður því Akureyri, sem
fellur.“
Helgi Þorvaldsson: Það er ör-
uggt að Vestmanneyingar verða
íslandsmeistarar, og Akureyri fell
ur. KR og Fram gera jafntefli og
svo vinnur KR aukaleikinn við
Akureyri, og Eyjaskeggjar vinna
leikinn gegn Keflvíkingum 2:1.“
Gunnar Lúðvíksson: „Vestmanna
eyingar verða íslandsmeistarar,
þeir vinna Keflvíkinga 2:1. KR
og Fram gera jafntefli og KR vinn
ur svo Akureyri í aukaleik um
fallið.“
Gylfi Friðriksson: „Ekkert vafa-
mál að það verður Keflavík, sem
verður íslandsmeistari, og því síð-
ur að það verður Akureyri sem
fellur í 2. deild. Keflavík vinnur
Vestmannaeyjar 3:2 á sunnudag-
inn og KR vinnur Fram 2:1.“
Kristján Bernburg: „Ég hef trú
á að Vestmanneyingar verði ís-
landsmeistarar, eftir mjög jafnan
leik við Keflvíkinga á sunnudag-
inn. Og að Akureyringar falli í
2. deild, því KR vinnur Fram.“
Axel Sigurðsson: „Það verða
Vestmanneyingar sem verða ís-
landsmeistarar í ár, og það verða
Akureyringar sem falla. Ég hef
trú á að Vestmanneyingar sigri
í leiknum gegn Keflvíkingum með
2 mörkum gegn 1. Og að KR-ing-
ar sigri Framarana mína 1:0.
Á AÐRA MILLJÓN ÁHORFENDA AÐ 50 LEIKJUM
f fyrrakvöld voru leiknir flestir
leikirnir í Evrópukeppni deildar-
og bikarmeistara, svo og leikir í
„UEFA CUP“. Voru þctta um 50
leikir í allt, og var reiknað með
að áhorfendur að þeim hafi verið
eitthvað á aðra milljón.
Óvæntustu úrslitin í tveim aðal
keppnunum, deildar- og bikar-
keppninni, var sigur danska liðs-
ins B-1903 yfir Celtic frá Skot-
landi, en þeim leik lauk með sigri
Danana 2:1. Annars var fátt um
óvænt úrslit í þessari fyrstu um-
terð, en hér eru þau, sem okkur
tókst að ná í í gær, úr tveim
þeim stærstu. Úrslit í „UEFA
CUP“ verða að bíða um stund,
enda mikill ruglingur á úrslitum
baðan í ícétiaskevtunum:
Evrópukeppni deildarmeistara:
Standard Liege, Belgíu
— Linfield, N-írland 2:0
B 1903, Danmörku
— Celtic, Skotlandi 2:1
D^namo Bucar., Rúmeníu
— Spartak Tranva, Tékk. 0:0
Ujpest Daza, Ungv.l.
— Malmö FF, Svíþióð 4:0
Cork Hibernians, frlaud
— Borussia Moncgl. V-Þ. 0:5
Marseilles, Frakkl.
— Gornik, Pólland 2:1
Wacker Innsbruck, Austurr.
— Benfica, Portúgal 0:4
Ajax, Hollandi
— Dynamo Dresden A-Þ. 2:0
CSKA, Búlgaríu
— Partisan Tiran. Alb. 3:0
Valencia, Spáni
— Hajduk Split, Júgósl. 0:0
Strömgodset,. Noregi
— Arsenal, Englandi 1:3
Raipas Lahtis, Finnlandi
— Grasshoppers, Sviss 1:1
Inter Milan, Ítalíu
— AEK, Grikklandi 4:1
Evrópukcppni bikarmeistara:
Servetta, Sviss — Liverpool 2:1
Dynamo Berlín, A-Þýzkal.
— Cardiff, Wales 1:1
Jeuness, Luxemborg
— Chelsea, England 0:8
Limerick, írland
— Torino, Ítalíu 0:1
Sporting, Portúgal
— Lvu Noreai 4:0
Skoda Pilsen, Tékkósl.
— Bayern, Munchen, V-Þ. 0:1
Red Star, Júgóslavíu
— Komloi Banyasz, Ungv.l. 7:2
Rennes, Frakklandi
— Glasg. Rangers 1:1
Zaglebie Sosbow, Póllandi
— Atvitaberg, Svíþjóð 3:4
Mikkeli, Finnlandi
— Eskisehirasport, Tyrkl. 0:0
Hibernian, Möltu
— Steaua, Rúmeríu 0:0
Ricky Bruck sparkað!
Evrópumethafinn í kringlukasti
og Norðurlandamethafinn í kúlu-
varpi, Svíinn Ricky Bruck, var í
fyrradag rekinn úr félagi sínu
MAI í Malmö.
Er þetta í fyrsta sinn í 63
ára sögu félagsins að einhverj-
um er vísað úr félaginu, en flest-
ir hiuHfíust við að Bruck vrði
fyrstur til að hljóta þann vafa-
sama hefur, því að hann hefur ver
ið félaginu allt annað en þægur
og undirgefinn, frá því hann fór
að geta eitthvað.
Bruck segist muni keppa fyrlr
Heleneholm, sem einnig er fra
Malmö en hvorth ann fær inn-
göngu þar verður ákveðið á stjórn-
arfundi hiá félaainu ,í kvöld.