Tíminn - 17.09.1971, Blaðsíða 10
10
TIMINN
FÖSTUDAGUR 17. september 1971
FEROAMENN
LÍTIÐ INN í NONNA
Æðardúnsængur
Svanadúnsængur
Gæsadúnsængur
Andadúnsængur
Vöggusængur
ÆSardúnn
Gæsadúnn
Fiður — Hálfdúnn
Andahálfdúnn
Koddar — Sængurver
Drengjajakkar frá
Ungverjalandi.
Verð frá kr. 875—1350,
no. 6—14.
Drengjabuxur
Buxna terelene, blátt,
svart, grænt, rautt.
Patons ullargarniS 6 gróf-
leikar, 100 litir. Heims-
þekkt gæðavara, —
kr. 50,00, 50 gr.
Hringprjónar
5 prjónar — 2 prjónar
— Póstsendum —
Gubjón StyrkArsson
HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR
AUSTURSTRÆTI G SÍMI /«354
Falk og Örn Kinsky, og ÞjóSveriarnir tveir frá Kofrasta viS nýju Kaffi.
hreinsunarvélina
(Tímamynd GE)
JP , ‘
Í0Æ Í'|
|$ i§ S
p| %. | Ijm A
IMISr .... . BBÉ
Kaffi fyrir
þá sem ekki
þoia kaffi!
SJ—Rcykjavík, fimmtudag.
Nú gcta kaffimenn, sem hafa
orðið að neita sér um þcnnan
lífdrykk sinn af heilsufarsástæð
um, tekið gleði sína á ný. Fyr-
irtækið Arnarkaffi, Byggarði á
Seltjarnarnesi, liefur nú fengið
nýja kaffilireinsunarvél frá
Þýzkalandi, en hún eyðir skað-
legum eiturefnum úr kaffinu,
sem myndast þegar kaffibaun-
irnar eru brenndar. Fólk, sem
hefur maga-, gall- eða lifrar-
sjúkdóma, og þolir ekki venju-
legt kaffi, kennir sér einskis
mcins ef það drekkur kaffi,
sem hrcinsað er á þennan hátt,
að því er sagt er. Og brjóst-
sviði og andvökur vegna kaffi-
drykku eru alvcg úr sögunni,
haldi menn sér við þessa kaffi-
tegund.
Þessi tegund af kaffi er seld
víða um heim und,ir vörumerk-
inu Kofrosta, en k'iiffi þetta fær
kolsýrumeðliöndlun og er kælt
niður í 70 gráður á Celsíus.
Forstöðumenn Arnarkaffis
eru bræðurnir örn og Falk
Kinsky, sem settust að hér á
landi 1945, hafa lengi starf-
að við kaffivinnslu. Arnar
kaffi hefur starfað í eitt ár
og framleitt venjulegt kaffi til
þessa.
Blaðamönnum gafst í dag
tækifæri til að skoða nýju vél-
ina, sem getur hreinsað 2 tn
af kaffi á 6—8 klst., og ræða
við talsmcnn þýzka fyrirtækis-
ins, sem framleiðir vélina og
hefur einkarétt á þessari kaffi-
tegund.
Kofrosta kaffi er á svo-
nefndum grænum lista yfir
neyzluvörur í Þýzkalandi, þ.e.
að segja í hópi þeirra vöruteg-
unda, sem talið er óliæftt aö
fólk, scm gæta vcrður sérstakr
ar varúðar í mataræði, leggi
sér til munns.
Benda margir þýzkir læknar
sjúklingum sínum á kaffi þetta.
Þýzka fyrirtækið setur mjög
strangar kröfur um kaffifram-
leiðsluna, og mun það hafa eft
irlit með framleiðslunni hér,
sem verður undir sameiginlegu
vörumerki.
Aðeins eru notaðar úrvals-
kaffitegundir til framleiðslunn-
ar og er Ríó kaffi ekki talið
nógu gott. Kofrostakaffi það
sem hér verður framleitt, verð
ur búið til úr 13 tcgundum,
m.a. Guatemala-, Costa Rica-,
Kólumbía-, Kenía- og Honduras
kaffi.
Kofrostakeffið verður dýr-
ara en kaffi er almennt í verzl-
unum liér. Forstöðumenn Arn-
arkaffis sögðust ihvorki geta
sagt til um verðið eða það
hvenær það kæmi á markað að
svo komnu máli, en lagt yrði
allt kapp á að það yrði sem
fyrst.
Talsmenn þýzka fyrirtækis-
ins sögðust sannfærðir um, að
Kofrostakaffið yrði ekki síður
vinsælt meðal íslendinga, sem
væru ein mesta kaffiþjóða
heims, heldur en í hcimalandi
sínu og víða annars staðar.
Landvari
Framhald af bls 2.
vegamálum og bættum sam
göngum á landi, og
að koma fram sem oddviti
þessa atvinnuvegar á fs-
landi, m.a. gagnvart Alþingi
og ríkisstjórn, einkum um
allt, er lýtur að löggjöf og
opinberum tilskipunum, er
varðað geta afkomu og hag
atvinnuvegarins.
Til þess að vinna að settu
marki hefur féiagsstjórnin út-
vegað landsfélaginu samastað
að Bergstaðastræti 14 í Reykja
vík, og þar mun skrifstofa fé-
lagsins eftirleiðis opin frá kl.
3—5 e.h. alla virka daga. —
Sími skrifstofunnar er 17860
og skrifstofuhald mun fram-
kvæmdastjóri T,nndvara, Stcfán
Pálsson, annast.
Leigubílstjórar
vilja losna
undan grun
KJ—Reykjavík, fimmtudag.
Bifreiðastjórafélagið Frami, sem
eru samtök leigubifreiðastjóra hef-
nr ritað rannsóknarlögreglunni í
Reykjavík hréf, þar sem gerð er
sú krafa að haldið verði áfram rann
sókn í máli, sem sagt var frá í
Alþýðublaðinu.
Fréttin var um að leigubílstjóri
hefði viljað fá farið borgað í blíðu,
og hafi hann gert tilraun til að
nauðga kvenfarþega sínum á Vatns-
enda, en farþeginn komizt undan,
með naumindum blá og marin. Seg-
ir í bréfinu til rannsóknarlögregl-
unnar að öll leigubílstjórastéttin
liggi undir grun í máli þessu, með-
an hið sanna hafi ekki verið leitt
í ljós. Jafnframt bjóða bílstjórar
fram alla aðstoð sína í máli þessu.
Iðnþing
Framhald af bls. 1
Þá minntist Vigfús á tillögur
þær, sem komnar eru fram um
aukningu og betri framleiðslu-
hætti á húsgagna- og trjávöru-
ið aðinum.
Þegar Vigfús hafði sagt 33.
Iðnþing sett, tók iðnaðarmála-
ráðherra, Magnús Kjartansson, til
máls. Magnús sagði m.a.:
„Ríkisstjórnin leggur mjög
þunga áherzlu á iðnþróunina í
málefnasamningi sínum; 'mn ger-
ir sér Ijóst að iðnaðurinn er vaxt
arbroddurinn í atvinnuþróun ís-
lendinga; við verðum að iðnvæð-
ast ef við ætlum að haldá til
jafns við aðra og tryggja hér
hliðstæða hagþróun og tíðkast í
nágrannalöndum okkar. Sú aðferð
sem ríkisstjórnin boðar í þessu
efni er áætlunargerð undir for-
ustu ríkisvaldsins. Það má undar
legt heita að hér á landi er enn
reynt að gera áætlunarvinnubrögð
að pólitísku ágreiningsefni, enda
þótt áætlunarstjórn sé hvarvetna
ríkjandi starfsaðferð í iðnaðar-
þjóðfélögunum umhverfis okkur.
Engir eru til dæmis nákvæmari
og afdráttarlausari í áætlunar-
vinnubrögðum sínum en hinir
miklu auðhringar. Þessi nútíma-
legu vinnubrögð verðum við óhjá
kvæmilega að tileinka okkur, og
það því fremur sem við erum svo
smáir að allur þjóðarbúskapur
okkar jafngildir aðeins meðalfyrir
tæki hjá stórþjóð. Við vcrðum að
læra að raða verkefnum og ein-
beita okkur, forðast margverknað
og glundroða, sem oft hefur ein-
kennt atvinnulíf okkar allt of
mikið. Þetta á við um atvinnulíf
okkar í heild og einnig einstakar
starfsgreinar. Að unr/nförnu hafa
erlendir sérfræðingar til dæmis
verið að kanna ýmsa þætti ís-
lenzks iðnaðar, og gegnum niður-
stöður þeirra gengur eins og rauð
ur þráður krafan um einbeitingu
og áætlunarvinnubrögð, um sam-
vinnu og samciningu sem forsendu
þess að við getum náð svipaðri
framleiðni og tíðkast í löndunum
umhverfis okkur. Ég hygg að
þessi vinnubrögð í stjórnun séu
forsenda þess að okkur takist að
ná því marki að koma hér upp
nútímalegu iðnaðarþjóðfélagi, og
ég vil vænta þess að forustumenn
í iðnaði geri sér þessa staðreynd
æ betur ljósa bg taki sér sjálfir
sem mcst frumkvæði á þessu
sviði.“
Forseti iðnþingsins var kjör-
inn Sigurbjörn Guðjónsson, húsa-
sm.meistari Reykjavík og vara-
forsetar Eggert Ólafsson, skipa-
smíðameistari Vestm.eyjum og
Ásgrímur P. Lúðvíksson, húsg.
bólstrarmeistari Rvík.
Helztu málaflokkar, sem fjall-
að er um á þessu Iðnþingi eru
fræðslumál iðnaðarmanna, kjara-
mál iðnmeistara, framtíðarskipun
félagssamtaka byggingariðnaðar-
ins og staða þjónustuiðnaðarins
í landinu.
Leifur Halldórsson, frummóta-
smíðameistari mælti fyrir áliti
miilliþinganefndar um dvalarheim
ili fyrir aldraða iðnaðarmenn, og
Eyþór Þórðarson, vélstjóri hafði
framsögu fyrir tillögu um breyt-
ingu á reglugerð fyrir alm. lífeyr-
issjóð iðnaðarmanna.
Áætlað erað þinginu muni ljúka
á laugardaginn.
Um 150 fulltrúar frá um það
bil 50 meistarafélögum og iðnað-
armannafélögum af öllu landinu
sitja þingið.
Heyverkun
Framhald af bls. 1
ember var að meðaltali 91,0%
þurrefni í heyinu, minnst 86,3
mest 93,5%.
Heymagn sem þurrkað hefur
verið í hvert skipti hefur numið
frá 4—10 hestburðum úr þurrk-
un og þurrkunin hefur tekið 16—
24 tíma.
Einnig hefur hey verið verkað
í húsinu með hveragufu og hefur
þurrkunin tekið mun styttri tíma
en með olíuhitun.
Viðtal við Örn
Framhald af bls. 6.
um á þá staði, þar sem þörfin
er mest.
Allir þurfa aft leggja
sitt af mörkurr.
— Hvað segirðu mér um
vandamál niðursuðuiðnaðarins,
og störf hinnar nýskipuðu
nefndar og þín sem starfs-
manns hennar, að lausn
þeirra?
— Nefndin er rétt að byrja
störf og því er ekki unnt að
segja mikið sem stendur. Ég
get þó fullyrt að geysimikið
verkefni er framundan, sem,
ef góður og varanlegur árang-
ur á að nást, verður að skipu-
leggja vel, allt frá öflun hrá-
efna til sölu og dreifingar
á erlendum mörkuðum. Þetta
verkefni þarfnast sameiginlegs
átaks allra þeirra, sem að sjáv
arútvegi og hliðargreinum
hans starfa, skilnings þeirra,
stuðnings og reynslu. Og náist
góður árangur verður það
áreiðanlega geysilega mikil
lyftistöng fyrir íslenzkt efna-
hagslíf.
S.J.
4 víðavangi
Framhald af bls. 3.
grein fyrir þeim afsökunum,
sem uppi hafa vcrið hafðar fyr-
ir þessari lítilmótlegu afstöðu
íslands og sannar, hve fjarstæðu
kenndar þær hafa verið. Pistil
sinn cndar hann svo á þessum
orðum:: : : :
„En nú þurfa íslendingar
sem sé ckki lengur að bera
kinnroða fyrir afstöðu lands
síns í Kínamálinu, og vonandi
ekki heldur að lilusta á fjar-
stæðurökscmdir eins og þær,
sem getið var hér að framan.
Hins vegar er því ekki að
leyna að dálítið hart er fyrir
sósialdemókrata að þurfa að
upplifa það, að ekki skuli fyrr
tekin upp sjálfsögð og skyn-
samlcg stcfnn í málinu". — TK