Tíminn - 06.10.1971, Page 8

Tíminn - 06.10.1971, Page 8
TIMINN MIÐVIKUDAGUR 6. október 1971 Senn er komið að ferðarlok- um. Nokkra bjarta yndislega daga, sem Strandasumrin eru oft svo rík af, höfum við dval- ið heima á Kaldrananesi, syðsta bæ í Ejarnarfirði og yzta bæ sunnan fjarðarins, og þegið þar notalega gestrisni og marg háttaða fyrirgreiðslu hjá Ingi- mar Jóntsyni bónda og Öldu Sigurðardóttur konu hans. Þau haf' ?kki orsakað mikl- ar áhyggjur, dagshlaup litla drengsins hér á þessum slóð- um. Þegar hann er búinn að klæða sig á morgnana og þá spuður um áform dagsins er svarið þetta: „Elta Ingimar, leika mér við Reyni og fara ofan í fjöru með pabba“. Þar með er þeim degi ráð- stafað. Ef til vill er eitthvað skipt um verkefni næsta dag. Farið á berjamó ellegar út á strönd með afa. Hér unir saklaust náttúru- barn vel lífi sínu meðan glaum ur villtrar veraldar hefur ekki ennþá truflað hug þess. Eins og fyrr er sagt bjuggu á Kaldrananesi í fjóra áratugi Matthias Helgason og Margrét Þorsteinsdóttir, einnig um skeið dóttir þeirra, Svanborg og maður hennar Stefán E. Jónsson. En jörðin hefur framan úr öldum verið þrjú býli og þau hvert um sig talin kosta jarð- næði. Kjartan Ólafsson og Ingi björg Lárusdóttir kona hans, bjuggu þar elngi gagnsömu búi. Á þeim jarðarhluta bjó síðar dóttir þeirra Ólafía ásamt manni sínum Kristvin Guðbrandssyni. Á þriðja jarðarhlutanum var ábúð lausari og nokkuð oft ábúendaskipti. Síðast bjó þar ÁskeU Jónsson, en áður for- eldrar hans, Jón Áskelsson og Kristín Ingimarsdóttir. Um skeið bjó Kristín þar ekkja með sonum sínum þremur .Nú er svo komið, að einn þeirra bræðra, Ingimar, situr heima- jörðina á Kaldrananesi, því að þau Kristvin og Ólafía, ásamt börnum sínum þremur, hafa flutzt til Keflavíkur. Sjálfsagt finnst mörgum, að Á mörkum hins byggilega heims ■ Ingimar bóndi i Kaldrananesi, fjölskylda hans, og nokkrir gestir. byggð. cr lúta verður þeim ör- lögum sem Bjarnarfirði virð- ast búin, ef svo heldur fram sem nú horfir, geti naumast boðið upp á mikla búsældar- möguleika, því að ólíklegt verð ur að telja, að fólkið flytji hóp um saman frá góðum lífsskil- yrðum. Ég hef í fyrri þáttum gert nokkra grein fyrir legu Bjarn- arfjarðar og landsháttum og hverja kosti náttúran býður þar til lands og sjávar. Held ég að þar sé I engu ofmælt. „En það er ekki jörðinni að kenna, hvemig menn. umgang- ast hana“, sagði ein af merkis- húsfreyjum Strandabyggða. Það er ekki sök landshátta í Bjarnarfirði, þótt sveitin þyrfti lengur en flestar aðrar, þótt afskekktar séu, að bíða eftir ýmsum þeim framkvæmd- um, sem nútíminn kallar að I fjörunni með pabba. geri lífið bærilegt. Líklega er að teljá, áð 'þVí hafi svo 'farið, að þar hafi menn lengur en víða annars staðar unað glað- ir við sitt. Stórvirkar vélar til jarð- yrkju voru seinna á ferð þang- að norður en I flestar aðrar sveitir, því ollu síðbúnar vega- framkvæmdir. En ekki verður annað sagt, en að vel hafi ver- 3. GREIN ið að verki staðið síðan Bjarn- firðingar áttu þeirra kost. Á flestum jörðum hefur verið mikið unnið og þó sérstaklega á vegum Landnámsins hvað snertir þurrkun og landbrot á Kaldrananesi. Hinir miklu kuldar, sem or- sakað hafa kalskemmdir und- anfarin ár, gerðu þessar fram- kvæmdir nytjaminni en vonir stóðu til. En þar um á Bjam arfjörður enga sérstæða sögu. Héruð þau, sem I mæltu máli kallast góðsveitir, voru engu betur farin. Ég held t.d. að sum ir stórbændur suður I Grafn- ingi telji sig hafa orðið þar illa úti. Nú stendur þetta til bóta og þar ætla ég, að Ingimar bóndi á Kaldrananesi kalli ekki að völlur hans hafi graslaus verið á þvi sumri, sem nú er að líða. Lengi hefur það verið eitt helzta baráttumál Bjamfirð- inga að reisa menntasetur við heitu uppspretturnar á Klúku. Á þessu hefur verið mikíll seinagangur og oft verið þung- ur róðurinn. Mótvindur jafnvel blásið úr þeim áttum, sem sízt var von. Nú er þessu máli heilu I höfn komið og þarna risin frá gmnni myndarlegur og vel gerður skóli, sem án efa verð- ur þjóðinni að gagnj, jafnvel þótt byggð strjálist í Bjamar- firði. Rafvæðing er talin eitt mesta hagsmunamál sveitanna, og þær eru flestar nú þegar tengdar einhverju orkuveri. Fyrst í sumar var verið að leggja raflínu frá Sandnesi við Steingrímsfjörð norður yfir til skólans I Bjamarfirði, og einn ig mælt fyrir línu á sveitabæ- ina. Það virðist því ljóst, að í þessu efni verður hlutur byggð arinnar ekki lengur fyrir borð borinn. Ekki er langt síðan að á Húnaflóa vom einhver veiði- sælustu fiskimið við strendur landsins, og síld fékkst þar meiri e n annars staðar. Þá vora reistar verksmiðjumar á Djúpuvík, Ingólfsfirði og I Höfðakaupstað. Á síðustu ár- um hafa mið þessi að mestu eða öllu brugðizt. Þess í stað hafa fundizt rækjumið og eftir að farið var að hagnýta grá- sleppuna hefur hún veiðzt ágætlega, og ætla ég að óvíða þar, sem sá veiðiskapur er stundaður sá afrakstur hans meiri en á miðunum meðfram Bölum og út af Bjamarfirði. Ég held því, að eins og nú er háttað högum byggjenda Bjam arfjarðar, sé það tæpast fé- leysi. sem flæmir þá suðun á malbikið við Faxaflóa. Hvers vegna eyðist þá byggð in? Um það er sjálfsagt erfitt að gefa gildandi svar, viðhorf einstaklinganna em oft svo ólík. En frá mínum sjónarhóli em helztu ástæðurnar þessan Þegar umsvif aðvífandi ein- staklinga skiluðu ekki nægi- legum hagnaði til þess að þar væri fram haldið og allt hmndi í rúst eða var flutt burt, skqrti félagshyggju og samtaka mátti heima fyrir til þess að byggja upp aftur eða brjóta nýjar leiðir. Framkvæmdir stöðvuð- ust eða urðu hægfara á flest- um sviðum. Samanburðurinn við önnur hémð var óhagstæð- ur í augum unga fólksins, bú- hokur við framstæð skilyrði var því ekki að skapi og það smátíndist burt. Sumt til að afla sér menntunar, aðrir I at- vinnuleit og svo þriðji hópur- inn vegna þeirra lífsþæginda sem aðrar byggðir buðu um- fram heimahéraðið. Þegar æsk an hafði yfirgefið sveitina og vildi ekki aftur snúa, áttu hin- ir öldruðu naumast annars kost en fara á eftir. Þar með voru brotin skörð I byggðina ög'bæjarleiðimar lengdust. Fleiri þóttust þá eygja ör-, lög sín og fóra fyrr en svo var komið. Á meðan þessu fór fram, héldu hinir, sem fast hugðust sitja, áfram áróðrinum fyrir bættu vegakerfi, byggingu skóla og rafvæðingu. Ræktun er mikil og býlin vel upp byggð. Nú, á árinu 1971, virðist allt benda til að fólkið heima I Bjaraarfirði eigi kost flestra þeirra þæginda, sem unnt er að veita dreifðri byggð á ís- landi. En þá er svipmynd sveit arinnar þannig að á 11 jörð- um er ekki búið lengur. Flest- ar munu þær þó að mestu nytj aðar ennþá, en hve lengi verð- ur það? Vafalaust með sama fyrirkomulagi, aðeins meðan það er reikningslegur ávinn- ingur þeirra sem hafa umráð yfir býlunum. Heyrt hef ég á orði haft, að fólki fyndist erfitt að full- nægja sinni félagsþörf úti í Framrald á bls. 14. Nýja íbúðarhúsið á Kaldrananesi.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.