Tíminn - 04.11.1971, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 4. nóvember 1971
TÍMINN
8
Rut Ingólfsdóttir
einleikari með
Sinfóníuhljóm-
sveit Islands
SB—Reykjavík, miðvikudag.
Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari,
verður einleikari með Sinfóniu
hljómsveitinni á þriðju tónleikun
um annað kvöld í Háskólabíói.
Leikur hún fiðlukonsert nr. 1 eft-
lr Béla Bartok. Þá verður „Lilja“
Jóns Ásgeirssonar frumflutt.
Stjómandi er George Cleve. Á
myndinni eru þau Rut og Jón Ás-
geirsson.
Fiðlukonsert Bartoks, svo og La
Mer, eftir Debussy, sem einnig er
á dagskránni, eru flutt í fyrsta
sinn hér á landL
Á fundi með fréttamönnum í
dag sagði Rut Ingólfsdóttir, að
hún hefði valið þennan konsert til
flutnings, í samráði við kennara
sinn. Þetta væri ákaflega róman-
tískt verk, sem ætti sér sérstæða
sögn.
Rut er 26 ára gömul og hefur
spilað á fiðlu síðan hún var 5
ára, er hún hóf nám hjá Rut Her-
rnanns. Síðan nam hún við Tón-
Estarskólann í Malmö, Briissel,
Búdapest og Salzburg. Rut hefur
oft komið fram á tónleikum bæði
hér og erlendis.
Þá má geta þess, að Sinfóníu-
Mjómsveitin heldur tónleika í
Borg í Grímsnesi á fimmtudaginn
11. nóvember. Einleikari þá verð-
trr Jónas Ingimundarson.
áVlÐA
««
FjárlagagerSin
Söngskemmtun í
Vestmannaeyjum
Ung söngkona, Solveig M. Björ-
ling mezzosopran heldur hljóm-
leika í hinu nýja félagsheimili
Vestmannaeyja, Bæjarleikhúsinu,
sunnudaginn 7. nóvember, kl. 5
síðdegis.
Á fyrri hluta efnisskrárinnar
verða flutt lög eftir íslenzka og
sænska höfunda, en á síðari hlut-
anum verða lög eftir J. Brahms,
H. Wolf, R. W. Williams og Gluck.
Við hljóðfærið verður Gústaf
Jóhannesson.
............................ | ... !§■
Karl Kvaran á sýningu sinni í Bogasal
(Tímamynd Gunnar)
KARL KVARAN SYN-
IR1BOGASALNUM
SJ—Reykjavík, miðvikudag.
„Ég botna ekkert í þessum
myndum, ég hef bara málað þær“,
svaraði Karl Kvaran listmálari,
þegar við hittum hann að máli í
Bogasal Þjóðminjasafnsins í gær,
þar sem hann var að hengja upp
myndir á sýningu ákamt syni sín-
um, og spurðum hann hvað hann
vildi um Þær segja. Þetta er átt-
unda einkasýning Karls, sfðast
sýndi hann fyrir tveim árum einn-
ig í Bogasal. Á sýningunni eru 26
guache myndir. Þær eru til sölu
og kosta 17. — 30.000 kr. Karl
hefur gefið myndunum nöfn, svo
sem Gróður og Haust en fyrst og
fremst til aðgreiningar. Myndirn-
ar eru málaðar á síðustu tveim
árum og eru allar nonfígúratífar
eða hartnær svo.
Óhætt er að mæla með að fólk
fari og líti á sýningu Karls, sem
okkur fannst skemmtileg. En hún
verður opnuð annað kvöld, fimm-
tudag, kl. 20, og stendur í tiu daga
eða svo.
JT
„Eg hef aldrei heyrt
annan eins hljóm"
segir Björn Ólafsson um Hei mssinfóníuhljómsveitina
SJ—Reykjavík, mánudag.
,,Ég hef aldrei heyrt annan eins
hljóm og í strengjunum á tónleik-
um Heimssinfóníuhljómsveitarinn-
ar.“ sagði Björn Ólafsson fiðlul. á
fundi með blaðamönnum í dag.
Björn var fulltrúi íslands í Al-
heimssinfóníuhljómsveitinni, sem
hélt tónleika-á-þrem stöðum í
Bandaríkjunum, 22., 23. og 25;
október. Éinkum sagði Björn að
letitu» hljéatsueitarinjiajf #4)efði
notið- sín uel.L.köflum úr. óperu
Wagners, Tristan og Isolde, sem
voru meðal verkanna á efnis-
skránni.
Yfir 140 hljóðfæraleikarar frá
yfir 60 löndum skipuðu hljóm-
sveitina og sagði Björn að hann
hefði aldrei áður leikið með eða
hlýtt á stærri liljómsveit. Allar
þjóðir, sem boðin var þátttaka,
þágu boðið nema Rússar, en ekki
taldi Björn, að synjun þeirra hefði
stafað af andúð á þessu nýstár-
lega fyrirtæki.
Artúr Fiedler stjórnaði hljóm-
sveitinni á öllum tónleikunum.
Efnisskráin var söm á þeim öll-
um, verk eftir Cópland, Sjosta-
kóvitsj, Wagner, Respighi, Gina-
stera og Offenbach. Hún var bæði
alvarlegs eðlis og einnig voru
þar verk af léttara tagi, „með til-
liti til stjórnmálamannanna." Tón
leikárnir voru haldnir í tengsl-
um við 25 ára afmæli Sameinuðu
þjóðanna, opnun skemmtisvæðis-
ins Walt Disney World £ Flórída
og vígslu listamiðstöðvar, sem
helguð er John F. Kennedy í
j Washington. Sameinuðu þjóðirnar
Og samtökin People to People stóðu
fyrir hljómleikum þessum með
tilstyrk ýmissa annarra aðila.
Nixon Bandaríkjaforseti birti
ávarp í tilefni tónleikanna, í því
sagjði m.a.:
• ,ySá gagnkvæmi skilningur, sem
er að finna meðal hinna virðu-
‘legu tónlistarmanna, sem mynda
Alheimssinfóníuhlj ómsveitina, gef
ur þeim ástæðu til bjartsýni, sem
telja vaxandi samskipti þjóða og
einstaklinga mikilvæg. Hann er
mikil uppörvun öllum þeim, sem
vinna að sönnum og varanlegum
friði.“
Þessum tónleikum var ekki að-
eins ætlað að sýna hvað unnt er
að gera með sameiginlegu átaki
tónlistarmanna, heldur einnig
hverju menningarsvæði fá áorkað
í sameiningu til góðs fyrir allt
mannkyn.
Björn Ólafsson sagði, að það
hefði vakið athygli, að tónleikar
sem þessir drægju að múg og
margmenni meðan fulltrúar á
þingi Sameinuðu þjóðanna töluðu.
fyrir tómum bekkjum. „Sé það
nokkuð sem sameinar heiminn,
eru það listamennirnir,“ bætti
Björn við. Tónleikarnir þóttu tak-
ast mjög vel og var rætt um að
halda hliðstæðri starfsemi áfram
en þá á víðari grundvelli.
TÆKIFÆRISKAUP
Loftleiðir munu næstu daga selja flugvélasæti úr RR 400 flugvélum, en cins og kunnugt er,
hafa Loftleiðir frá og með byrjun nóvembérmánaðar eingöngu þotur til farþegaflutninga.
Flugvélasæti þessi eru hentug fyrir langferðabifreiðar, sumarbústaði, skála o.fl. og seljast á
hagstæðu verði.
Þau verða til sýnis og sölu í skemmu II við Flugvallarveg, en það er braggi sunnan við Flug-
vallarveg, næst Slökkvistöðinni. Sætin seljast í núverandi ástandi.
Opið kl. 2 — 6 e.h. virka daga þessa viku og í byrjun næstu viku.
Frekari upplýsingar veitir innkaupadeild Loftleiða hf.
WFTWIR.
f Austra, málgagni Fram-
sóknarmanna á Austurlandi,
er í síðasta tölublaði fjallað
um fjárlögin fyrir árið 1972.
Þar segir m.a.:
„Eins og venjan hefur verið
nú lengi er fjárlagafrumvarpið
fyrsta þingskjalið, sem lagt er
fyrir Alþingi.
Frumvarp til fjárlaga fyrir
íslenzka ríkið er mikill bálk-
ur, fjárhæðir hlaupa á millj-
örðum og viðfangsefnin eru
ákaflega mörg.
Fjárlagafrumvarpið er unnið
á löngum tíma í mörgum ráðu-
neytum og með „aðstoð“ fjöí-
margra stofnana, en yfirverk-
stjórn er í höndum fjármála-
ráðuneytisins.
Þegar ný ríkisstjórn kom til
valda um miðian júlí í sumar,
hafði þcgar mikið verið unuið
að gerð fjárlagafrumvarpsins
og einstaka þættir þess voru þá
nær fulígerðir.
Augljóst var, að þcgar þing
kæmi saman 11. október, hefði
nálega engu eða engu verið
breytt af þeim lögum, sem fjár
lög byggjast á hverju sinni.
Lög um tekjustofnana og
fjölmörg lagaákvæði varðandi
einstaka gjaldaliði stæðu, með
örfáum undantekningum,
óbreytt frá þ.víisem verið hafði.
Ríkisstjórnin hafði boðað
fjölmörg nýmæli, sem hljóta
að snerta afgreiðslu fjárlaga
jafnskjótt og þau koma til
framkvæmda að meira eða
minna leyti.
Mjög mörg þessara mála
þurfa mikinn og ítarlegan und-
irbúning, sem óhugsandi var
að Ijúka fyrir þingbyrjun.
Þess vegna cr það, að enda
þótt ríkisstjórnin hafi að sjálf-
sögðu vikið til ýmsum póstum
í fjárlagafrumvarpinu, t.d. tvö-
faldað framlag til hjúkrunar
kvennaskólans, þá ber frv.
fyrst og fremst svip af stjórn-
arstefnu viðreisnartímabilsins.
Endurskoðun
tekjustofna
Fjármálaráðherra hefur
greint frá að unnið sé að end-
urskoðun tekjustofnanna með
það fyrir augum uð brrytingar
geti orðið ákveðnar fyrir ára-
mót.
Undir þeim kringumstæðum
var fráleitt að setja inn í fjár-
lagafrumvarpið handahéfs-
kenndar breytingar . þei« efn-
um.
Sama gildir raunar um ýms-
ar þær breytingar, sem stjórn-
in áformar varðandi framlög
ríkisins á mörgurn sviðum.
Flestar eru í deiglunr' og
munu ýmist koma til ákvörð-
unar og aðgerða nú eða síðar,
enda hefur víst engum komið
til hugar að yfirgripsmikill
sáttmáli ríkisstjórnarinnar yrði
framkvæmdur samdægurs eða
svo.
Enda þótt fjárlagafrumvarp-
ið goti af eðlilegum ástæðum
ekki gefið nema takmark^ðar
bendingar um áform ríkis-
stjórnarinnar varðandi tekjur
og gjöld ríkissjóðs, þá gefur
það þeim mun gleggri innsýn
Framhald á bls. 14
StH