Tíminn - 04.11.1971, Síða 16

Tíminn - 04.11.1971, Síða 16
Fimmtudagur 4. nóvember 1971 Önnur ávísun úr stolna heftinu komin fram OÓ—Reykjavík, miðvikudag. Stúlka, sem reyndi að selja 26 þúsund króna ávísun úr stolnu tékkhefti í Sparisióði Hafnarfjarðar í fyrradag, situr enn í gæzluvarðhaldi. Bendir það til að hún hafi enn ekki leyst frá skjóðunni og sagt rannsóknarlögreglunni hvern.g hún komst yfir eyðublaðið, en í heftinu, sem stolið var, voru 25 óútfyllt, ávísunareyðublöð. Lögreglunni barst í dag ann- að blað úr sama tékkhefti. Var það selt í gær í verzluninni Flórída við Hverfisgötu. Upp- hæðin var 750 kr. Það var ung ur maður, sem seldi þessa ávís un í verzluninni. Eins og geta má nærri er hans nú leitað. Borgarfull- trúar fái allar fundargerðir EB—Reykjavík, miðvikudag. Á fundi borgarstjórnar á fimmtudag, flytur Alfreð Þor- steinsson (F) eftirfarandi til- lögu: v „Borgarstjórn felur borgar- ráði að sjá svo um, að fram- vegis fái borgarfulltrúar send- ar fundargerðir allra fastra nefnda (meðtalin ráð og stjórn ir) á vegum Keykjavíkurborg- ar.“ . Að sögn Alfre^s Þorstems- sonar er þessi tillaga borin fram vegna þess, að borgar- fulltrúar hafa hingað til ekki fengið í hendur fundargerðir allra fastra nefnda, sem starfa á vegum Reyk j avíkurborgar, þ. á m. frá stjórn SVR, Æsku- lýðsráði, íþróttaráði og fleiri aðilum. Fyrir bragðið hefðu borgarfulltrúar ekki eins góð tök á að fylgjast með Því hvað væri að gerast í þessum nefnd um og gæti sprottið af því margs konar misskilningur, sbr. SVR-málið, sem kom fyrir á síðasta borgarstjórnarfundi. Nýja síldar- verðið komið ÞÓ—Reykjavík, miðvikudag. Á fundi yfirnefndar Verðlags ráðs sjávarútvegsins í dag, var ákveðið eftirfarandi lágmarks- verð á síld veiddri sunnan- og véstanlands til söltunar frá 20. okt. til 31. des. 1971. Þá var og ákveðið verð á síld til fryst ingar í beitu frá 22. okt. til 31 des. 1971. Heimilt er að segja lágmarks Framrald á bis. 14. Öldruð flóttakona kemur að indversku landamærunum við Petrapole Vestur-Bengal. Fyrirspurh frá Kristjáni Benediktssyni í borgarstjórn um FRAMKVÆMDIR OG FJÁRVEITINGAR TIL í ÞRÚTT AMANNVIRKJA EB—Reykjavík, miðvikudag. Á fundi í borgarstjórn á morg- un flytur Kristján Benediktsson (F) eftirfarandi fyrirspurn: „f fjárhagsáætlun borgarsjóðs fyrir yfirstandandi ár eru á cigna breytingum áætlaðar 27.6 millj. kr. til framkvæmda við íþrótta- mannvirki. — Fyrir þetta fé átti m.a. að reisa búningsklefa við Sundlaug Vesturbæjar, koma upp skíðaiyftu, byggja íþróttavöll í Ár bæjarhverfi og koma upp vél- frystu skautasvelli í Laugardaln- um. Spurt er: 1. Hvcrsu mikið er búið að nota af þessu fjármagni það sem af er árinu? 2. Til hvaða framkvæmda hef- ur þeim peningum verið varið? Framhald á bls. 14 UA KAUPIR FRANSK AN SKUTTOGARA Fé safnað í matvöru- verzlunum til hjálpar sveltandi flottafolki OÓ—Reykjavík, miðvikudag. Hjálparstofnun kirkjunnar gengst fyrir fjársöfnun til hjálp- ar flóttamönnum frá Austur-Pak- istan sem leitað hafa hælis í Ind- landi. Hafa safnazt um 2.5 millj. kr. á þreim vikum án þess að sérstök söfnun fari fram, nema að auglýst hefur verið að tekið sé á móti fjárframlögum. Á morg- un, fimmtudag, og á föstudag verð ur komið fyrir söfnunarbaukum í 100 matvöruverzlunum í Reykja- vík, Kópavogi, Garðahreppi og Hafnarfirðí. Geta þeir sem vilja lagt framlög sín til hjálpar svelt- andi, húsnæðislausum, klæðalitl- um og sjúkum flóttamönnum í söfn unarbaukana. Sömu daga og baukarnir verða í verzlunum munu sjálfboðalið- ar sækja framlög til þeirra er þess óska. Geta viðkomandi hringt í síma 13284 og 12236 og verða þá framlögin sótt. Flóttamannastraumurinn frá Austur-Pakistan er gegndarlaus. Er talið að 20 til 40 þúsund flótta menn komi til Indlands á degi hverjum. og láta mun nærri að fjöldi flóttamannanna sé nú um 9,5 milljónir. — Það er ekki hægt að lýsa hörmungum og neyð þess fólks með orðum, sagði séra Elias Berge, framkvæmdastj óri Hj álparstofnun ar norsku kirkjunnar, í dag, en hann er nú staddur hér á landi. Séra Berge er nýkominn frá Ind- landi, þar sem hann dvaldi meðal flótt.amannanna og kynnti sér málefni þeirra. Sagði hann, að flóttafólkið, sem komið hefði til Indlands síðustu mán- uði og vikur væri mun verr á sig komið en þeir, sem fyrr flúðu. Þeir sem fyrst komu bjuggu í námunda við landamærin og kom ust yfir til Indlands áður en ástand ið í Austur-Pakistan varð eins hörmulegt og síðar varð. Því það eru ekki eingöngu þeir A.-Pak- istanar, sem flúið hafa, sem eiga við bág kjör að búa, heldur er fólkið að flýja neyðina sem ríkir í þeirra eigin landi í þeirri von að eitthvað rætist úr fyrir því er Framhald á bls. 14 SUF boðar til fundar á ísafirði n.k. mánudag um Sameiningarmálið Samband ungra framsóknarmanna boðar til fundar í Sjálf- stæðishúsinu á fsafirði n.k. mánudag, 7. nóveniber og hefst fundurinn kl. 21.00. Fundarefni er: Samciningarmálið. Fram- söguræður flytur Ólafur Ragnar Grímsson, lektor og Theodór Nordquist bæjarfulltrúi. Gestir fundarins, sem einnig flytja ávörp, verða Jón Baldvin Hannibalsson, skólameistari og Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vestfjarða. Fundarstjóri verður Eiríkur Sigurðsson. Fundurinn er öllum opinn og er allt ábugafólk um sameiningu vinstri manna sérstaklega hvatt til að koma á hann. Ólafur R. Grimsson Theodór Nordquist r SB—Reykjavík, miðvikudag. Útgerðarfélag Akureyringa hf. liefur ákveðið að kaupa- franskan skuttogara, sem mun koma til landsins og hefja veiðar í janúar n.k. Verð togarans er um 73 millj ónir króna, samkvæmt núvcrandi gengi frankans. Það voru tveir framkvæmdastjór ar ÚA, þeir Gísli Konráðsson og Vilhelm Þorsteinsson, sem fói'u utan í fyrra mánuði til að líta á togara. Með þeim í förinni var Jón Hafsteinsson, skipaverkfræð- ingur. Fengu þeir leyfi til að senda Áka Stefánsson, skinstjóra hjá ÚA í veiðiferð með franska togaranum og-var ákvörðunin um kaupin tekin, er Áki kom heim aftur. Gísli Konráðsson sagði Tíman- um í dag, að hann vildi ekki gefa upp tonnatölu skipsins, þar sem hun gæfi ekki rétta hugmynd um stærðina, heldur sagði hann, að togarinn væri 54 metrar að lengd og að lestarrými einnig svipaður gömlu togurunum. Mun þetta vera nokkru stærra skip en Hólmatind- ur og Barði, til dæmis. Þá sagði Tísli, að enn væri ekki fengið loforð um fyrirgreiðslu við kaupin af iinKu hins opinbera „A hverfanda hveli“ sýnd hér enn einu sinni SB—Reykjavík, miðvikudag. Hin gamla, góða bíómynd „Á 'verfanda hveli“, er flestir full- or'ðnir munu kánnast við, er vænt- anleg til landsins í mánúðimim og verður tekin til sýninga í Gamla bíói. Mynd þessi hef"r alltaf verið. í gangi einhvers staðar í heimin- um allt síðan um 1940, og mun flestir hafa séð. Hér á landi var hún fyrst sýna 1942 og síðan aftur 1949 og 1959. í aðalhlutverkum eru þau Clark Gable og Maureen O’Sullivan (móðir Miu Farrow). : Nýtt hljóð hefur verið sett í mynd- ina, sem annars er óbreytt. Sýri- ingartíminn er 31/, klukkusturid. Uyndin verður væntanlega sýnd fyrir áramötln, en enn er ckki ákveðið hvort hún verður jóla- Framhald á bls. 14 vera sú af öllum biómyndum, sem I mynd Gamla bíós. /

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.