Tíminn - 16.11.1971, Síða 10
22
TIMINN
ÞRIÐJUDAGUR 16. nóvember 19U
LOKAÐ
Skrifstofan verður lokuð frá kl. 1 e.h. þriðjudag-
inn 16. þ.m. vegna jarðarfarar.
Tollstjórinn í Reykjavík.
VINNINGSNÚMER
í happdrætti Félags slökkviliðsmanna í Keflavík
verður birt í næsta tölublaði Suðurnesjatíðinda,
sem kemur út föstudaginn 19. nóvember.
AÐEINS VANDAÐIR OFNAR
/'fOFNASMIÐJAN
EINHOLTI lO —
SlMI 21220
Úfför eiginkonu minnar, móöur okkar og dóftirr
Jensínu F^nneyjar Karlsdóttur,
fer fram frá Dómkirkjunni, þriSjudaginn 16. nóvember ki. 15.
Hilrnar SigurSsson,
Kari Kr. Júlíusson, RagnheiSur Gissurardóttir,
Hulda Gissurardóttir,
Heida Pálsdóttir, KaH Ó. Jónsson.
Innjiegar þakklr IHI alira er auSsýndu okkur samúS og vinarhug,
við andlát og jarSarfSr eiginmanns míns, föSur okkar, tengda-
föSur og afa
Vilhjálms Guðmundssonar,
ViSlhvamml 10, Kópavogl.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna
ÁsgerSur Pétursdóttir.
| EiginmaSur minn
Ari Þorgilsson
forstjóri, SkaftahlíS 25,
j andaðist í Borgarspítalanum laugardaginn 13. þ. m.
Helga Jónsdóttir.
j Hjartans þakkir til ailra, sem sýnt hafa okkur samúS og vinarhug,
viS andlát og útför elginmanns míns, föður okkar, tengdaföSur og
afa,
Jóns Guðjónssonar,
Grettisgötu 18 A.
GuSrlSur Magnúsdóttir,
Magnús Jónsson, Jón G. Jónsson,
MátfríSur Jónsdóttir, Haukur Bjarnason,
SlgriSur ónsdóttir, SigurSur Danieisson,
GuSjón Jónsson, SigríSur SigurSardóftlr,
Ingibjörg Jónsdóttir, Ólafur Sviensson,
og barnabörn.
MóSir mín, tengdamóSir og amma
Jónína Margrét Jónsdóttir,
Framnesi, Ásahreppi,
verður jarðsungin laugardaginn 20. nóv. Athöfnin hefst meS bœn
að heimili hennar ki. 1. Jarðað verSur í Ási. Bílferð frá Umferðar-
miðstöðinni ki. 11. Blóm og kransar afbeðnir. Þeir, sem vildu
minnast hennar, er bent á liknarstofnanir og sérstaklega á minn-
ingarsjóð Ólafs Björnssonar, fyrrv. héraðslæknis að Hellu.
Guðbjörn Jónsson, Margrét Loftsdóttir,
Jóna Guðbjörnsdóttir, Þórunn Guðbjörnsdóttir.
Útför systur minnar
Steinunnar Skúladóttur,
frá Ytra-Vatni, Skagafirði,
fer fram frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 17. nóv. kl. 10.30.
Björn Skúlason.
u,-^ i llliliilIftliillMIÉI''———————
ÍSD
WÓÐLEIKHÚSIÐ
HÖFUÐSMAÐURINN
FRÁ KÖPENICK
sýning í kvöld kl. 20
UPPSELT.
sýning miðvikudag M. 20.
ALLT I GARDINUM
sýning fimmtudag kl. 20
Aðgöngumiðasalan opin frá kl.
13,15 til 20. Sími 1-12€0.
Plógurlnn í kvöld.
Hjálp miðvikudag kl. 20,30,
bönnuð bömum innan 16 ára.
Hitabylgja fiimmtudag, auka-
sýning vegna mikiliar aðsókn-
ar. 70. sýning, síðasta sinn.
Kristnihald föstudag 110 sýn.
Máfurtnn laugardag, síðasta
sýning.
Aðgöngumiðasalan í Iðnó er
opin frá kl. 2. Sími 13191.
Morfín
Framhald af bls. 2?
og stolið úr þeim morfíni. Einnig
hafði parið brotizt inn í fyrirtæki
í bænum og stolið peningum.
Kærustuparið, sem er 18 ára
piltur í Eyjum og 17 ára aðkomu-
stúlka, er dvalið hefur þar um
tíma, játuðu við yfirheyrslur að
hafa brotizt inn í alla bátana og
stolið þaðan morfínsprautum, og
einnig játuðu þau á sig innbrotin
í fyrirtækin, þar sem þau höfðu
sprengt upp tvo peningaskápa með
rofjárni og stolið tugum þúsunda
í seðlum. Morfínið sögðust þau
hafa notað til að sprauta sjálf sig.
Rannsókn málsins stendur yfir.
f s.l. viku handtók lögreglan
í Vestmannaeyjum ölvaðan, rétt-
indalausan mann, sem ók stolinni
bifreið. Var maðurinn búinn að
aka á aðra bifreið og steinvegg,
er hann náðist, en hann reyndi
að stinga af frá öilu saman. Mað-
urinn er gamall kunningi lögregl-
unnar og hefur hlotið dóm, en
verið náðaður.
Þá tók Vestmannaeyjalögreglan
ölvaðan og réttindalausan öku-
mann aðfaranótt laugardags, er
hann var, ásamt félögum sínum,
sem einnig voru ölvaðir, að reyna
að ýta bifreiðinni í gang, eftir
að hafa ekið út af veginum.
Kjaramálin
Framhald af bls. 24
vitað svo, að þau félög, sem þarna
stæðu að, gætu haft talsvert mis-
munandi viðhorf í þessum efnum.
Þess vegna væri ekki óeðlilegt,
að það gæti tekið nokkurn tíma
að samræma þessi sjónarmið.
— En mér er óhætt að segja,
að það er unnið að Þessum mál-
um nú, og ég hcld, að ég mcgi
segja, með fullum velvilja af aðil-
unum, að reyna að komast að
niðurstöðu. Og auðvitað óska allir
eftir því, að það geti átt sér
stað sem fyrst. En þá er lika
mikils um vert, að það séu ekki
gerðar tilraunir til þess að reyna
að skapa lortryggni og koma illu
til lciðar í þessu samningastarfi,
sagði forsætisráðherra m.a.
Forsætisráðherra sagði, að gert
hefði verið nokkurt veður út af
því, að það bæri eitthvað á milli
þess, sem hann hefði sagt, þegar
han: hefði talað um 20% kaup-
máttaraukningu og þeirra krafna.
sem launþegasamtökin gerðu, þar
sem þeirra aðalkrafa væri 20%,
kauphækkun. En 20% kaupmáttar
aukning væri vel :.ð merkja sett
LÍNA LANGSOKKUk
í SUÐURHÖFUM
Sprenghlægileg og mjög spennandi, ný. sænsk
kvikmynd í litum, byggð á hinni afar vinsælu
sögu eftir Astrid Lindgren.
Aðalhlutverk:
INGER NILSSON,
MARIA PERSSON,
PÁR SUNDBERG.
Þetta er einhver vinsælasta fjölskyldumynd seinni
ára og hefur alls staðar verið sýnd við geysimikla
aðsókn. — íslenzkur texti. —
Sýnd kl. 5.
Veljið yður í hag - Úrsmíði er okkar fag
Nivada
OMEGA
©mm
JUphmL
PitRPoni
Magnús E. Baldvinsson
Laugavegi 12 - Sími 22804
þannig fram í málefnasamningi
ríkisstjórnarinnar, að hún ætti að
eiga sér stað í áföngum á tveimur
árum.
— Út af þessu vil ég segja það,
að ég hef um þessi mál ekkert
sagt annað en það, sem stendur
í málefnasamningi ríkisstjórnar-
innar. Hann hefur verið birtur og
hver og einn getur gengið úr
skugga um, hvað í honum stend-
ur. Hins vegar er það auðvitað
svo, að málefnasamningur ríkis-
stjórnarinnar og ákvæði í honum.
sem varða þessi mál, bindur ekki
aðila vinnumarkaðsins á neinn
hátt — og bindur ekki launþega-
samtökin, þegar þau „era sínar
kröfur. Þess vegna er auðvitað
engin rökbundin nauðsyn þess,
að það sé fullt samræmi á milli
þeirra krafna, sem verkalýðsfélög
in gera og þess sem ríkisstjórnin
hefur lýst yfir, að hún teldi, að
stefna ætti að, sagði forsætisráð-
herra.
Lárus Jónsson (S) spurðist m.a.
fyrir um það, hvaða upplýsingar
ríkisstjórnin hefði haft um
greiðslugetu atvinnuveganna, áður
en hún setti ákvæði í málefna-
samning sinn um kaupgjaldsmál.
Ólafur Jóhannesson, forsætis-
ráðherra, sagði að ríkisstjórnin
’.iefði að sjálfsögðu verið búin að
kynna sér þau gögn, sem lágu
fyrir og þær upplýsingar, sem
hún fékk í hendur frá ýmsum að-
ilum, áður en hún hefði gefið yfir-
lýsingu sína út. Þetta hefði ver-
ið hennar mat á þeim gögnum,
sem fyrir hefðu legið, að þannig
væri hægt að standa að málum til
þess að ná því markmiði, sem
sett væri fram í málefnasamn-
ingnum. Vitaskuld hefði það mark
mið líka "'erið sett með hlið-
sjón af því, sem átt hefði sér
stað í kjaramálum, m.a. þeim
samningum sem gerðir hefðu ver
ið við opinbera starfsmenn, þar
sem opinberir starfsmenn hefðu
fengið mjög verulegar kauphækk-
anir. Auðvitað hefði öllum verið
Ijóst, að þeir samningar myndu
síðan verða notaðir til viðmiðun-
ar og auðvitað þyrfti engum að
vera það undrunarefni, að t.d.
verzlunar- og skrifstofufólk bæri
sig saman við opinbera starfs-
menn. Það lægi í augum uppi, að
í mörgum tilfellum hlyti slíkt að
teljast eðlilegt.
Guðlaugur Gíslason (S) spurði
um það, hvort þeir sem að stjórn-
armyndun stóðu hefðu ekki gert
sér grein fyrir því, hversu mikið
vinnutímastytting myndi vega eða
þýða.
Ólafur Jóhannesson, forsætis-
ráðherra, sagði að auðvitað hefðu
menn gert sér grein fyrir því. —
Ég hygg, sagði forsætisráðherra,
að það hafi farið fram útreikning
ar á þessu nú og þingmaðurinn
eigi greiðan aðgang að því, að fá
upplýsingar um það, hvað t.d.
atvinnurekendur telja þetta gilda
mikið.
Þá kom fram í svari forsætis-
ráðherra við fyrirspurn frá Lár-
usi Jónssyni (S), að væntanlega
komi á daginn innan skamms
hvað ríkisstjórnin ætlar að gera
í sambandi við lengingu vissra
stofnlána og lækkun vaxta þeirra,
en þau mál hafa verið í athugun.
Umræður um kjaramálin urðu
talsvert lengri utan dagskrár í
neðri deild í dag, en auk áður-
nefndra. tóku til máls Lúðvík Jós-
epsson, viðskiptamálaráðherra,
Sverrir Ilermannsson (S), Hanni-
bal Valdimarsson, félagsmálaráð-
herra, Karvel Pálmason (SFV)
og Jóhann Ilafstein (S).