Tíminn - 05.12.1971, Síða 10
TÍMINN
TAHíTI
Borðpantanir í síma 22321 eða 22322.
Atvinna
Ungur, röskur og samvizkusamur maður óskast
nú þegar til afgreiðslu og lagerstarfa í útibú okk-
ar í Hveragerði. Þarf helzt að vera vanur kjöt-
sögun. Nánari upplýsingar gefur útibússtjóri.
Kaupfélag Árnesinga.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í sorphreinsun fyrir Voga, Vatns-
leysustrandarhreppi. Miðað er við að verktaki
taki við hreinsuninni 1. janúar 1972. Skulu til-
boð vera komin til undirritaðs fyrir 20. des n.k.
og gefur hann nánari upplýsingar um starfið.
Oddvitinn í Vatnsleysustrandarhreppi.
Sími 92-6541 og 6512.
Húsmæðraskólar
Fr..mhaid ai b- 2
— Við höfum hins vegar nýtt
kennslukraftana með því að taka
að okkur kennslu á matreiðslu í
fjórða bekk héraðsskólans, og
einnig hafa verið hér nokkur nám
skeið í vefnaði og saumaskap fyr-
ir konur úr sýslunni, sagði Jón-
ína. Þar að auki höfum við tek-
ið að okkur orlofsviku fyrir kven-
félagasamtökin hér. — Mjög marg
ar konur hafa sótt námskeiðin hjá
okkur það sem af er vetri, en nú
er hlé í bili, eða fram yfir jól.
— Fjórir fastráðnir kennarar
eru við skólann, og auk þess hafa
verið stundakennarar, t.d. sund-
kennapi, íslenzkukennari og svo
söngkénnari, en í vetur er engin
söngkennsla í skólanum.
— Kostnaður hefur að meðal-
tali verið 30 til 32 þúsund krón-
ur fyrir hverja stúlku, og kennslu-
tíminn er 8i/2 mánuður.
Jónína sagði að lokum, að hús-
mæðrafræðslan þyrfti endurskoð-
unar við. Ilúsmæðraskólarnir
kæmu hvorki inn á svið skyldu-
námsins, né veittu þeir nemend-
um nokkur ákveðin réttindi. Þeir
væru sennilega að verða of marg-
ir fyrir þær stúlkur, sem vildu
sækja húsmæðraskóla, og þá dragi
að sjálfsögðu fyrst úr aðsókn að
þeim skólum, sem fjærst væru
og afskekktastir.
Nú stendur yfir stækkun og
ýmsar lagfæringar í Húsmæðra-
skólanum að Hallormsstað. Skóla
stýran, Guðbjörg Kolka, sagði, að
meðan á þessu stæði, væri ekki
hægt að fullsetja í skólann, en
eftir breyti'ngarnar myndi hann
taka 24 stúlkur. Nú eru þar hins
vegar 14, en £ neyð gætu þær
verið 18. Hallormsstaðaskólinn hef
ur verið tveggja vetra skóli og
þá tekið 24 — 35 stúlkur, með
breyttu fyrirkomulagi.
Fæstar stúlknanna, sem í vet-
ur nema við Hallormsstaðaskól-
ann, eru af Austurlandi og sagði
Guðbjörg, að það væri ofur eðli
legt, þar sem stúlkur vildu gjarn
an fara lengra fyrst þær færu
að heiman á annað borð.
Þessa stundina er verið að
skipta u meldhús í skólanum og
næsta ár verður lokið við marg
víslegar endurbætur á skólahús
inu, sem Guðbjörg sagði, að orðið
hefði verið mjög lélegt. í fyrra-
vetur kostaði 30 —35 þús. fyrir
hverja stúlku, að læra til húsmóð
ur á Hallormsstað.
í Húsmæðrakóla Suðurlands á
Laugarvatni er 61 stúlka, og skól-
inn fullskipaður. Það hefur hann
verið allt frá árinu 1952, að sögn
skólastýrunnar Jensínu Halldórs-
dóttur, sem fer nú í 20. sinn með
stjórn skólans. Jensína sagði, að
þar til í fyrra hefðu kennarar
aðeins verið þrír, en nú væru
fastráðnir kennarar sex. Auk þess
kernna stundakennarar íslenzku,
sund, leikfimi, föndur og söng.
Kostnaður við skóladvölina að
Laugarvatni, en skólinn starfar í
8 mánuði, er frá 30 í 34 þúsund
krónur að meðaltali. Stúlkurnar fá
mjög frjálsar hendur um val á
efnum og verkefnum, hver í sam
ræmi við smekk og áhugamál. Á
Laugarvatni er ekki kenndur vefn
aður, sagði Jensína, en að öðru
leyti er kennslan með svipuðum
hætti og í hinum húsmæðraskól-
unum.
Flestir nemendurnir í Hús-
mæðraskóla Suðurlands eru úr
Árnes- og Rangárvallasýslu, en
auk þess eru stúlkur frá Reykja-
vík og Suðurnesjum all margar,
en einnig stúlkur úr öðrum lands
hlutum.
Auk Jensínu hefur annar kenn-
ari við skólann starfað þar í 20
ár, er það Gerður Jóhannsdóttir.
Blekking
Framhald af bls. 14
landi vegna áfengisneyzlu þjóð-
arinnar.
Fjöldi manns er andlega
veiklaður eða skemmdur, svo
að það lagast aldrei til fulls.
Sennilega er nú svo komið,
að flestum ofbýður, a.m.k.
I þegar litið er á vissa þætti
áfengismálanna. Þó horfa marg
ir á með rósemi þess sljóleika,
sem venjan skapar, og er það
þó undarlegt með þjóð, sem
annars stundar margskonar
líknarstarfsemi og slysavarnir
með myndarbrag. Á sama tíma
og kalla má að þjpðin hafi sigr-
azt að fullu á lúsum og berkla-
veiki, hefur þetta þjóðarböl
stóraukizt. Þar hefur áreiðan-
lega ekki verið farið rétt að.
Mistökin liggja í Því, að
margir trúa því, að það skipti
verulega máli í þessu sam-
bandi, hvaða áfengistegundir
menn drekki og hvar áfengi sé
drukkið. Þó er það fullsanr ð
að sama áfengismagn er jafn
hættulegt eitur hvernig sem
það er blandað, og áfengi hef-
ur sömu áhrif, hvort sem það
er drukkið utan húss eða inn-
an, af flöskustút e®a úr fínu
glasi.
Hér verður ekki reynt að
reikna þetta dæmi, en vegna
þessa tekjustofns ríkisins vant
ar nú fangageymslur til lengri
og skemmri tíma, hæli fyrir
geðsjúka menn og ýmislega
niðurbrotna, uppeldisstofnanír
og skóla fyrir börn og ungl-
inga, sem ekki lánastf að hafa
í almennum skólum og ekki
eiga nein heimili, sem að not-
uin koma. lJarna á og þarf rík-
issjóður að koma til, en ein-
SUNNUDAGUR 5. desember 1971
LAUQARA8
Sími 32075
Þrír lögreglumenn í Texas
Afar spennandi ný amerísk mynd í litum, með
íslenzkum tezta, um mannaveiðar lögreglunnar
í Texas.
Sýnd kl. 5, 7 og 9. — Bönnuð börnum innan 12 ára
HEIÐA
Hin vinsæla barnamynd í litum, með ísl. texta.
Barnasýning kl. 3
GAMLA BÍÓ 1
Siml 1U75
PERCY
Bráðskemmtileg ný ensk gamanmynd í litum..
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 5. 7 og 9 — Bönnuð innan 14 ára.
TARZAN í INDLANDI
Barnasýning kl. 3:
/
hvernveginn er þetta allt ógert,
þrátt fyrir tekjustofninn.
En jafnvel þó að allt þetta
yrði gert, verður þó engan veg-
inn hægt að bæta úr því tjóni
og eyða þeim sársauka, sem
orðinn er.
„Þó rösklega sé Rollants
hefnt,
þeir Rollant sjálfan vekja
trautt,
og nær til funda stóla er
stefnt
og stríðs er efnt,
er rúmið Rollants autt.“
Það eina sem dugar, til að
brjóta áfengisbölið á bak aft-
ur, er öflug bindindishreyfing.
Með Því einu að efla bindind-
issemi, og þá fyrst og fremst
bindindissemi ungu kynslóðar-
innar, verður sigrazt á þessu
mannfélagsböli. Það verður
ekki gert með neinni hálf-
velgju.
Alþingi samþykkti í fyrra-
vetur tillögu um varnir gegn
sígarettureykingum. Henni venð
ur sjálfsagt fylgt eftir með
virkari aðgerðu'm. fjárframlög-
um og vinnu, svo sem þar
var gert ráð fyrir. Vonandi
leggur ríkisvaldið þá fyrir sitt
leyti líka vaxandi áherzlu á
varnir gegn áfengisneyzlu. Það
er áreiðanlega mikið hægt að
gera ef vilji væri fyrir hendi
og reynt væri áð létta undir
með áhugamönnum á hessu
sviði. Er ekki ástandið orðið
nógu vont til þess, að því
verði mætt af fullri alvöru?
H. Kr.
^jp
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
LITLI KLÁUS OG
STÓRI KLÁUS
Sýning í dag kl. 16.
Næst síðasta sinn.
ALLT I GARÐINUM
sýning f kvöld kl. 20.
HÖFUÐSMAÐURINN
1 FRÁ KÖPENICK
Sýning miðvikudag kl. 20.
Aðgöngumiðasalan opin frá kl.
13,16 til 230. Sími 1-1200
Krisfnihald í kvöld, 114. sýning
Spanskflugan þriðjudag,
örfáar sýningar eftir.
Hjálp, miðvikudag kl. 20,30
Kristnihald fimmtudag
Plógur og stjörnur föstudag.
Aðgöngumiðasalan í Iðnó er
opin frá kl. 14. Sími 13191.
ÍTÖLSK RÚMTEPPl
2,20x2,50 m. nýkomin
LITLI-SK Ó6UR
á horni Hverfisgötn
og Snorrabrautar.