Tíminn - 05.12.1971, Qupperneq 12
SkgábM
Rætt við skólastjóra húsmæöraskólanna um
breytingar á fyrirkomulagi húsmæðrafræðslu
FB—SB'—Rvik, föstudag.
Húsmaeðraskólar hafa lönguim
notið mikilla vinsælda, og stúlk
ur gjarnan farið einn vetur í
slíkan skóla, til þess að læra
sitthvað, sem þeirn gæti komið
vel í framtíðinni bæði innan
heimilis og utan. Margir hafa tal
ið, að húsmæðraskólarnir fylgd
ust ekki nægilega vel með breyt
ingum og breyttum tímum, en
trúlega er þar talað af vanþekk
ingu, því að skólastarfið hlýtur að
breytast með breyttum efniviði,
sem úr er unnið, eins og ein skóla
stýran komst að orði í viðtali
við blaðið.
Nú eru starfandi á landinu 11
húsmæðraskólar, í Reykjavík,
Varmalandi, Staðarfelli, ísafirði,
Blönduósi, Löngumýri, Akureyri,
Laugalandi, Laugum, Hallorms-
stað og á Laugarvatni og að auki
Ilúsmæðrakennaraskóli í Reykja
vík.
í þessum 11 húsmæðraskólum
er rúm fyrir 395 nemanda, en
í vetur eru þar aðeins 313 neín-
endur. Þeir skólar, sem nemend
um hefur fækkaði í bili, hafa
fært starfsemi sína yfir á annað
svið, tekið upp fjölbreytt nám
skeið fyrir konur í nágrannasveit
um og bæjum og einnig hafa
þeir tekið að sér matreiðslu-
kennslu fyrir nærliggjandi gagn-
fræðaskóla, svo sízt er hægt að
segja að þeir séu verkefnalausir.
Ekki er hægt að segja neitt ákveð
en væru í vetur. Auk þeirra
stúlkna, sem eru í skólanum all-
an veturinn, hefur skólinn dag
námskeið, sem eru mjög eftir-
sótt. Rúmlega 60 stúlkur munu
vera á biðlista eftir að komast á
þau. Fram að jólum verða 20
á dagnámskeiðinu, en eftir ára-
mótin verða dagnámskeiðsnemend
umir 24 taldsins.
Meðaltalskostnaður í Hús-
mæðraskóla Reykjavikur í fyrra
vetur var um 30—32 þúsund krón
ur, miðað við 9 mánuði ,en fyrir
5 mánaða dagnámskeið hefur
kostnaðurinn orðið 13 til 15 þús
und krónur. Sjö fastráðnir kenn
arar eru við skólann, að skóla-
stjóranum meðtöldum, en auk þess
kenna við skólann nokkrir stunda
kennarar.
Á Varmalandi eru í vetur 42
stúlkur, og er skólinn fullskip
aður, og hefur verið það undan
farin ár. Skólastjóri er Steinunn
Ingimundardóttir, sem er for-
maður nefndar þeirrar, sem erid
nrskoða á löggjöfina um
hésmæðrafræðslu landsins.
Steinunn sagði að nemendurn
ir væru víða af að landinir,' ” 17
væru komnar norðan yfir Holta
vörðuheiði og aðrar úr hinum
ýmsu sveitum fyrir sunnan 'og
austan og úr Reykjavík. Náms-
tíminn á Varmalandi er 9 mán-
að þær fari í þennan skóla.
— Fyrir tveimur árum voru
voru teknar í notkun nýjar íbúðir
fyrir kennaralið skólans. Þá tók
ég 36 stúlkur inn í skólann, þar
sem ég hélt, að það .gæti gengið,
en þá nægði engan veginn kennslu
rýmið, því ekki var hægt að gera
nægilegar breytingar á því, þótt
svefnrými ykist fyrir nemendurna.
Hef ég því ekki tekið fleiri en 24
eins og áður var, og verður ekki
með góðu móti tekið við fleiri
nemendum fyrr en kennslurýmið
eykst.
Kennarar við Staðarfellskólann
eru f jórir, en auk þess hefur venju
lega komið söngkennari frá Akra-
nesi og kennt söng í 10 daga á
vetri. Staðarfellsskólinn starfar í
átta mánuði á ári, og í fyrra var
kostnaður 34 til 36 þúsund krón-
ur fyrir liverja stúlku, Er þá með-
talinn kostnaður við fæði, bækur
handvinnu, vefnað og bílakostn-
aður, þegar stúlkurnar fara eitt-
hvað í burtu, saman á skemmtan-
ir eða því um líkt.
— Ég tel alveg lífsnauðsynlegt,
að húsmæðrafræðslunni verði
breytt þannig, að nemendur úr
húsmæðraskólum fái einhver rétt-
indi. á því sviði, og því væri æski-
legt að hægt væri t.d. að sérhæfa
sig t.d. í matreiðslu, vefnaði eða
saumum. Þá gætu stúlkur, sem
sjálfu sér með breyttum efniviði
og þeim breytingum, sem eiga
sér stað í þjóðfélaginu, hverju
sinni. Annars sagðist hún telja,
að slíkir skólar ættu ekki að ganga
á undan með neitt bruðl, og sjálf
legði hún mikið upp úr því, að
gera skólahaldið sem líkast venju-
legu heimili.
í Kvennaskólanum á Blöndu-
ósi eru 10 nemendur í vetur, en
skólinn getur hins vegar tekið á
móti 36 nemendum. Miklar breyt-
ingar hafa orðið á nemendafjöld-
anum. í fyrra voru nemendur 25,
en' í hitteðfyrra var skólinn full-
skipaður. Til þess að nýta skól-
ann sem bezt, þrátt fyrir það, að
fastir nemendur séu ekki margir
hafa verið haldin vefnaðar, sauma-
og föndurnámskeið í skólanum, og
matreiðslukennsla unglinga úr
unglingaskólanum fer fram í
Kvennaskólanum, að sögn Aðal-
bjargar Ingvarsdóttur skólastýru.
Hún er nú við skólann áttunda
árið, en þetta er fimmta árið sem
hún er skólastýra.
Aðalbjörg sagði, að 20 nem-
endur hefðu verið á vefnaðarnám-
•skeiðunum, 21 á sauma- og fönd-
urnámskeiðinu og unglingarnir í
matreiðslunni væru 52 talsins.
Ákveðið er að halda áfram stutt-
um námskeiðum eftir áramótin,
þar sem þau hafa hlotið miklar
ur ekki starfað sem slíkur undan-
farin ár, en í vetur hefur kennsla
verið tekin þar upp að nýju. Skóla
stjóri var ráðin Margrét Kristins-
dóttir. Hún sagði, að fram að
þessu hefðu verið haldin námskeið
í skólanum ,námskeið fyrir hús-
mæður og svo tveggja mánaða
námskeið fyrir matsveina í fiski-
og flutningaskipum. Eftir áramót-
in tekur svo til starfa hinn raun-
verulegi húsmæðraskóli, og starf-
ar hann í fimm mánuði.
í skólanum eftir áramótin verð-
ur sérstök hússtjórnardeild. Þar
verður megináherzla lögð á mat-
reiðslu, þvott og ræstingu og svo
bóklegu fögin, sem kennd eru
almennt í húsmæðraskólum, og
er ætlunin, að nemendur fái jafn-
mikla fræðslu á þessum sviðum,
eins og hefðu þeir verið allan
veturinn, en kennslan verður í
5 mánuði. Verða sextán stúlkur
í þessari deild. Þá verða einnig
starfræktar tvær aðrar deildir
saumadeild og vefnaðardeild, og
í hvorri þeirra verða 16 stúlkur,
svo alls verða í skólanum eftir
áramótinu 48 stúlkur, og getur
skólinn ekki rúmað fleiri nem-
endur.
Margrét sagði, að nemendum-
ir myndu búa úti í bæ, þar sem
ekki væri heimavist við skólann.
Margar væru frá Akureyri, jáfn-
313 nemendur í húsmæðraskólun-
um sem rúma 395 í heímavistum
ið um, hverju fækkun nemenda L
skólunum sætir, en margt bend
ir til, að einn skóli verði vinsælli
en annar og þannig færist aðsókn
in til, þótt hin ófylltu rúm, bendi
ef til vill einnig til þess að skól
arnir séu orðnir of margir. Skóla
stýrurnar telja þó, að breytingar
gætu orðið á með breyttu fyrir
komulagi, t.d. með því að skipta
námstímanum, stytta hann og
breyta námsefni og þar fram eft-
'\r götunum.
Menntamálaráðuneytið hefur
na skipað nefnd til þess að
etauiskoða gildandi löggjöf um
húsm^ðrafræðslu og löggjöfina
um Húsmæðrakennaraskóla fs-
lano^-
í nenndina hafa verið skipuð
frú Sigiíður Haraldsdóttir, kenn-
ari, samkvæmt tilnefningu Kven-
félagasambands íslands, Björn
Halldórsson skrifstofustjóri, sam
kvæmt tönefningu Sambands ís-
lenzkra srveitarfélaga, Vigdís Jóns
dóttir, sU^Öastjóri Húsmæðrakenn
araskóla íslands, Halldóra Egg
ertsdóttir, samkvæmt tilnefningu
Kennarafélagsins Hússtjórnar, og
Steinunn Ingimundardóttir skóla
stjóri, samkvæmt tilnefningu skóla
stjóra húsmæðraskólanna, en
ráðuneytið hefur jafnframt skip
að Steinunni formann nefndar-
innar.
f tilefni af þessari nefndarskip-
un ræddum við við skólastýrur
11 skóla, og fara upplýsingar
þeirra hér á eftir:
Aðsókn að Húsmæðraskóla
Reykjavíkur er góð, að sögn
skólastýrunnar, Katrfnar Helga-
dóttur. í vetur verða í skólan
um 30 stúlkur, en skólinn rúmari
40, ef hann væri fullskipaður.
Sagði Katrín, að 1 fyrra liefðu
verið nokkru fleiri nemendur
uðir, og í fyrra varð kostnaður
frá 33 í 36 þúsund krónur. Fer
mismunur hér eins og annars
staðar eftir því, hve mikið stúlk
umar gera í handavinnunni, því
efni í hana leggur skólinn til.
Kennarar eru fjórir, fastráðnir
auk tveggja stundakennara —
íþróttakennara og íslenzkukenn-
ara.
— Það er bráðnauðsynlegt, að
koma skólunum í nánara sam-
band við fræðslukerfið heldur en
nú er, sagði Steinunni. — Nú
veita þeir engin sérstök réttindi
og því verður nauðsynlega að
breyta. Við reynum að sjálfsögðu
að fylgjast eins með tímanum og
mögulegt er, og gerum það án
efa mun betur, heldur en margir
telja. En það er nauðsynlegt að
breyta fleiru, taka fyrir hagfræði
og félagsfræði í meira mæli, svo
nokkuð sé nefnt. Steinunn er að
byrja 11. vetur sinri, sem skóla
stýra á Vanmalandi.
Tuttugu og fjórar stúlkur eru
við nám í Húsmæðraskólanum að
Staðarfelli. Þar af eru 12 úr nær
liggjandi sveitum, og mun það
heldur óvanalegt, því venjulega
sækja stúlkur fremur til skóla
fjærri heimilum sínum.
— Fólk hér við Breiðafjörð er
skólanum einstaklega vinsamlegt,
og heldur við hann mikla tryggð,
sagði Ingigerður Guðjónsdóttir
skólastýra. — Það er rétt, að
stúlkur sækja oft í burtu til ann
arra skóla, en hér hefur þetta oft
ast verið svona, stúlkurnar úr
Breiðafjarðarsveitunum koma hing
að ekki síður en aðrar. Þáð er
eflaust vegna þess að foreldrarn
ir halda upp á skólann, og mæð-
urnar kalla þetta „skólann sinn“,
og þangað langar stúlkurnar ekki
síður en mæðurnar langar til þess
hefðu lagt sérstaklega stund á
matreiðslu gengið íyrir sem að-
stoðarstúlkur í eldhúsum á sjúkra-
húsum, eða sem ráðskonur hjá
stofnunum, og fengju um leið
hærra kaup, en stúlkur sem réðu
sig, og hefðu enga fræðslu feng-
ið á þessu sviði. Mér finnst líka
sjálfsagt, að taka pilta inn í skól-
ana, og það myndi ég gera, ef
piltur sækti um, en þeir gera það
líklega ekki á meðan skólinn veit-
ir engin sérstök réttindi.
Nokkrar breytingar hafa orðið
á nemendatölunni á ísafirði. í
vetur eru þar 25 stúlkur, en hæfi7
legt er, að þar séu 32 í einu. Þó
voru þar 40 nemendur fyrir 3 ár-
um. í vetur hefur verið efnt til
sauma- og vefnaðarnámskeiða fyr-
ir almenning, og einnig hefur ver-
ið hægt að koma í skólann á mat-
reiðslunámskeið, en ekki verið
jafn mikill áhugi á því eins og
hinu tvennu, að sögn skólastýrunn-
ar Þorbjargar Bjarnadóttur, sem
er nú við skólann sitt 23. ár.
Við spurðum Þorbjörgu hvað
hún teldi meginástæðuna fyrir
þeim breytingum, sem orðið hafa
á nemendafjölda nokkurra hús-
mæðraskólanna. Hún sagðist
halda, að nú ættu stúlkur fleiri
kosta völ, en áður, svo breyttist
ne-mendafjöldinn einn vetur, nem-
endu-m fækkaði, en síðan fjölgaði
aftur, þótt engar skýringar væri
hægt að gefa á því.
Kennslan í húsmæðraskólanum
á ísafirði stendur í 8 mánuði.
Mesti kostnaður á síðasta ári var
35 þúsund krónur. Fjórir kennar-
ar starfa við skólann, en auk þess
eru aukakennarar í söng og íþrótt-
um oftast nær. Þorbjörg sagði, að
breytingar hlytu að eiga sér stað
í húsmæðraskólurri sem og annars-
staðar. En þær kæmu mest af
vinsældir í nágrannsveitum Blöndu
óss, og í nágrannaþorpunum. Nám
skeiðin eru bæði dag- og kvöldnám
skeið.
Aðalbjörg taldi nauðsynlegt, að
einhverjar breytingar yrðu gerð-
ar á húsmæðraskólunum. Til dæm-
is gæti verið athugandi, að stytta
kennslutímann, þannig að hann
skiptist í tvennt yfir veturinn fyr-
ir þær stúlkur, sem ekki hafa að-
stæður til þess að vera í heima-
vistarskóla heilan vetur. Einnig
sagðist Aðalbjörg óska þess, að
nemendurnir fengju einhver starfs
réttindi að náminu loknu, en ekki
mætti breyta of miklu í einu, því
betra væri að fara hægt í allar
breytingar og þreifa sig áfram.
Aukin matreiðslukennsla gæti
einnig verið hagkvæm fyrir sum-
ar stúlknanna, og þá minni kennsla
í öðru, og ætti slíkt að geta kom-
ið að góðum notum til dæmis varð
andi hótelrekstur hér á landi á
sumrin.
í Húsmæðraskóla kirkjunnar að
Löngumýri í Skagafirði eru 15
nemendur í vetur, en rúm er þar
fyrir 20. Hólmfríður Pétursdóttir
skólastýra sagði, að skólinn hefði
ekki verið fullsetinn undanfarin 4
ár, en í vetur væru þó fleiri nem-
endur en í fyrravetur. Ekki verð-
ur séð fyrr en í vor, hvað skóla-
vist að Löngumýri kostar í vetur,
en í fyrra var kostnaðurinn um
30 þús. kr. hvern nemanda.
Varðandi ne-fndarskipunina
sagði Hólmfríður, að sér fyndist
tími til kominn að endurskoða
húsmæðrafræðsluna og þótt fyrr
hefði verið. Raunar kvaðst hún
álita, að þessa kcnnslu ætti að
taka meira inn í hið almenna skóla
kerfi og kenna báðum kynjum
jafnt.
Ilúsmæðraskóli Akureyrar hef-
vel giftar konur, sem ættu hægt
með að komast að heiman, en
myndu hins vegar ekki fara í
burtu í heimvistarskóla, og gæf-
ist þeim kostur á að fara í hús-
mæðraskóla, en stunda heimili sín
eftir sem áður, og væri það mjög
nauðsynlegt, og einnig vinsælt.
í húsmæðraskólanum að Lauga-
landi í Eyjafirði eru 37 stúlkur
í vetur. Þar er fullskipað með
38 nemendum, en í neyð mætti
koma þar fyrir 40 stúlkum sam-
tímis, en þá er orðið helzt til
þröngf. Síðast liðin tvö til þrjú
ár hefur skólinn ekki verið full
skipaður, en nemendur þó aldrei
færri en 32, að sögn Guðríðar Ei-
ríksdóttur,
Guðríður sagði, að húsnæðis-
vandræði væru nokkur við skól-
ann, og rætt hefði verið um
stækkun, en ekki verið tekin nein
ákvörðun þar að lútandi enn sem
komið væri. Meðalkostnaður hjá
hverri sútlku er um 34 þúsund
krónur, á 9 mánaða námstíma.
Upphæðin er þó nokkuð breytileg
eftir því, hve mikið stúlkumar
vinna í höndunum, því skólinn
leggur mest af efninu til. Fjórir
fastráðnir kennarar eru við skól-
ann, og auk þess hafa verið 1 til
tv-eir stundakennarar við skól-
skólann að jafnaði.
Á Laugum í Þingeyjarsýslu eru
nemendur í vetur aðeins 7 tals-
ins. Jónína Bjarnadóttir skóla-
stýra sagði, að nemendum hefði
fækkað mjög undanfarin ár. Hún
sagði að þetta væri þriðji vetur
sinn við skólann. Fyrsta árið
hefðu nemendur verið 30, annan
veturinn voru þeir 17 og í vetur
sem sagt aðeins 7 talsins. Væri
skólinn fullskipaður gætu verið
í honum milli 30 og 35 nemendur.
Framhald á bls. 22