Fréttablaðið - 24.02.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 23
Sjónvarp 28
ÞRIÐJUDAGUR
SPOEX Félagsmálaráðherra opnar í dag
nýja heimasíðu SPOEX, samtaka psoriasis-
og exemsjúklinga. Heimasíðan verður
opnuð við athöfn sem hefst klukkan 14 í
húsakynnum samtakanna að Bolholti 6 og
eru allir velkomnir. Jafnframt munu for-
maður SPOEX og markaðsstjóri Novartis á
Íslandi undirrita samning um fjárframlög
Novartis til SPOEX næstu fjögur árin.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
KALT Í DAG Það verður bjart um landið
sunnanvert en él norðan til. Það blæs
nokkuð allra austast en annars verður
frekar hægur vindur. Sjá nánar á bls. 6.
24. febrúar 2004 – 54. tölublað – 4. árgangur
● kann ekkert nema að leika
Charlize Theron:
▲
SÍÐA 26
Rakar saman
verðlaunum
● gerir við allt nema beinbrot
Halldór Gunnarsson:
▲
SÍÐA 16
Þúsundþjalasmiður
● baunirnar á túkall
Pétur Guðmundsson:
▲
SÍÐA 30
Saltkjöt með
gamla laginu
● góð ráð ● lífsval
Iðunn Steinsdóttir:
▲
SÍÐUR 18-19
Ekki nísk -
bara sparsöm
ÁVÍSUN Á ÁTÖK Umhverfisráðherra
mælti í gær fyrir frumvarpi um verndun
Mývatns og Laxár. Formaður VG gagnrýnir
ákvæði frumvarpsins um hækkun Lax-
árstíflu og segir það skýlaust brot á samn-
ingum. Sjá síðu 2
AUKIÐ SAMSTARF Fulltrúar sex evr-
ópskra lággjaldaflugfélaga sem fljúga til
Stanstead flugvallar vilja auka samstarf í
markaðsmálum og þétta net lággjaldaflug-
félaga í Evrópu. Sjá síðu 4
ÞÉTT BYGGÐ VIÐ SJÁVARSÍÐUNA
Borgaryfirvöld hyggjast skapa möguleika á
allt að 78 þúsund fermetra uppbyggingu í
miðborg Reykjavíkur í tengslum við fyrir-
hugaða byggingu tónlistarhúss. Sjá síðu 6
SUMARHÚS EÐA SORP-
BRENNSLA? Deilt er um kaup á jörð-
inni Otradal í Vesturbyggð. Bæjarstjóri hafn-
ar kaupum en forseti bæjarstjórnar vill
kaupa á réttu verði. Bæjarfulltrúi minni-
hluta sér enga þörf fyrir jörðina. Sjá síðu 8
RANNSÓKN Lögreglan hefur lagt
hald á tvo bíla, fólksbíl og jeppa,
sem taldir eru tengjast mönnun-
um sem sitja í gæsluvarðhaldi
vegna líkfundarins í Neskaup-
stað fyrir tæpum hálfum mán-
uði. Grunur er um að Jucevicius
hafi verið í öðrum eða báðum
bílunum.
Að sögn Arnars Jenssonar,
aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá
ríkislögreglustjóra, hefur lög-
regla tekið bílana til sinna um-
ráða til frekari rannsóknar. Arn-
ar segir að hald hafi einnig ver-
ið lagt á ýmis gögn í húsleit sem
framkvæmd var á höfuðborgar-
svæðinu og í Neskaupstað. Bæði
var leitað á heimilum sakborn-
inga og ýmsum stöðum þeim
tengdum. Þrír lögreglumenn frá
tæknideild lögreglunnar í
Reykjavík fóru til Neskaupstað-
ar til að aðstoða lögregluna þar
við húsleit. Ýmis sýni voru tekin
sem verða skoðuð til saman-
burðar við önnur sýni sem til
eru en að sögn Arnars mun sú
vinna að minnsta kosti taka
nokkra daga.
Arnar segir að einnig sé unnið
að annars konar upplýsingaöflun
og yfirheyrslum. Þá er alþjóða-
deild ríkislögreglustjóra, í sam-
starfi við lögregluna í Litháen að
skoða aðdraganda þess að Viadas
Jucevicius kom til Íslands. Reynt
er að kortleggja ferðir hans frá því
að hann kom til landsins og þar til
hann fannst látinn.
Arnar segir ekkert gúmmíhylkj-
anna, sem Jucevicius hafði innvort-
is, hafa verið tómt en ekki hefur
verið útlokað að fíkniefni hafi getað
lekið úr einhverju hylkjanna. ■
fjármál o.fl.
MÚRNUM MÓTMÆLT Þúsundir Palestínumanna efndu til mótmæla í borgum og bæjum á Vesturbakkanum og Gazasvæðinu í gær.
Þeir mótmæltu byggingu Ísraela á múrnum umdeilda á sama tíma og Alþjóðadómstóllinn í Haag hóf umfjöllun sína um lögmæti múrs-
ins. Stuðningsmenn og andstæðingar hans fóru í kröfugöngur um þetta leyti, hvort tveggja í Haag og víða í Miðausturlöndum. Sjá síðu 2
ALÞINGI Atli Gíslason, Vinstri
grænum, krafðist þess á Alþingi í
gær að Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra gerði skýra grein
fyrir afstöðu stjórnvalda til
hækkunar lægstu launa, því rík-
isstjórnin ætti beina aðild að
kjaraviðræðunum sem stærsti
atvinnurekandi landsins. Hann
spurði hvaða fyrirheit væru gef-
in þeim sem hefðu lægstu launin
og sagði verkalýðshreyfinguna
vilja skýr svör um það hvað ríkis-
stjórnin hyggðist fyrir í skatta-
málum.
„Ríkisstjórnin hefur komið að
kjarasamningum með óbeinum
hætti og hefur gert samnings-
aðilum erfitt fyrir um að ná
landi í viðræðum sínum. Ýmsar
álögur hafa hækkað og oddvitar
ríkisstjórnarinnar hafa ítrekað
tengt loforð sín um skattalækk-
anir við væntanlega kjarasamn-
inga,“ sagði Atli.
Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra sagði ríkisstjórnina
stuðla að friði á vinnumarkaði og
mikilvægt væri að ná kjara-
samningum sem tryggðu stöðug-
leika í þjóðfélaginu.
„Það er eðlilegt að línur í
kjarasamningum skýrist á hinum
almenna vinnumarkaði og það er
viðfangsefni aðila vinnumarkað-
arins að takast á um hækkun
launa. Ég vænti þess að hægt sé
að semja um tölur í þessu sam-
bandi sem eru viðsættanlegar.
Samskipti ríkisstjórnarinnar og
vinnumarkaðarins vegna kjara-
samninganna eru í eðlilegum far-
vegi,“ sagði Halldór og bætti því
við að ekki væri tímabært að
greina frá því hvenær ríkið kæmi
inn í samningagerðina.
Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra sagði stjórnvöld reyna að
greiða fyrir kjarasamningum,
þeir væru skammt á veg komnir,
en vonandi tækist að ljúka gerð
þeirra innan skamms tíma.
„Það er stefna ríkisstjórnar-
innar að gengið verði í það að lög-
festa skattalækkanir sem talað
hefur verið um, að loknum þess-
um kjarasamningum. Ef samn-
ingar takast á næstu dögum eða
vikum þá er komið að ríkisstjórn-
inni að skila sínu í þeim efnum.
Um þau mál verður ekki samið
við samningaborðið í kjarasamn-
ingum,“ sagði Geir.
Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingarinnar, sagði
erfiða kjarasamninga framundan.
„Núverandi ríkisstjórn verð-
skuldar ekki traust launamanna.
Hún hefur þegar svikið mörg lof-
orð og hefur ráðist á garðinn þar
sem hann er lægstur.“
bryndis@frettabladid.is
Rannsóknin á láti Vaidas Jucevicius:
Húsrannsóknir og hald lagt á bíla
39%52%
Skattalækkanir í
kjölfar samninga
Fjármálaráðherra segir stjórnvöld reyna að greiða fyrir kjarasamningum og skattalækkanir
verði lögfestar þegar þeir verði í höfn. Utanríkisráðherra segir samskiptin góð við aðila
vinnumarkaðarins og kjaraviðræður í góðum farvegi.
Óöld á Haítí:
Bandaríkin
senda herlið
HAÍTÍ, AP Fimmtíu bandarískir land-
gönguliðar hafa verið sendir til Haí-
tí til þess að vernda Bandaríkja-
menn þar í landi, bandaríska sendi-
ráðið og starfsmenn þess. Talið er að
þrjátíu þúsund erlendir ríkisborgar-
ar séu á Haítí; um tuttugu þúsund
Bandaríkjamenn, tvö þúsund Frakk-
ar og eitt þúsund Kanadamenn.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa
lýst Aristide forseta Haítí ábyrgan
fyrir óöldinni þar og segjast ekki
munu koma honum til bjargar líkt
og þau gerðu árið 1994 þegar tutt-
ugu þúsund bandarískir hermenn
voru sendir til eyjunnar og komu
herforingjastjórninni frá völdum. ■
Trausti Jónsson:
Óvísindaleg
hamfaraspá
LOFTLAGSBREYTINGAR Trausti Jóns-
son veðurfræðingur hefur kynnt
sér skýrslu sem bandaríska varnar-
málaráðuneytið lét gera um lofts-
lagsbreytingar. Í skýrslunni er var-
að við miklum hörmungum sökum
breytinganna og því til að mynda
haldið fram að loftslag á Bret-
landseyjum árið 2020 verði áþekkt
því sem nú er í Síberíu og að ýmsar
borgir Evrópu sökkvi í sjó á næstu
áratugum.
Trausti segir skýrsluna vera
unna á mjög óvísindalegan hátt,
rannsóknarniðurstöður og ummæli
virtra vísindamanna séu slitin úr
samhengi. Trausti segir að öllu
rannsóknarefni skýrslunnar sé stillt
upp á eins vondan hátt og mögulegt
sé í því skyni að draga eins hrika-
legar ályktanir og hugsast megi. ■
M
YN
D
/A
P