Tíminn - 18.01.1972, Síða 1
r ~~
'H~h
'"I""' Á' ~ FRYSTIKISTUR
SENDIBILASTOÐIN Hf
* jD!/to£i«AyéfaÆ- h~£
íje RAFTÆKJADEILD, HAFNARSTRETI 23, SlMI TB333
13. ffal.
— Þriðjudagurinn 18. janúar 1972 —
56. árg.
AIIT VARfl HVÍTT í RFYKIAVÍK Snemma * gærmorgun byrjaði að snjóa í Reykjavík og víðar á
HLLI VftlYt/ n T 11 I I l\L 1 l\J/\YII\ iandinu, en jörð var orðin alauð fyrir löngu, og ekkert snjóað að
ráði síðan á aðfangadag. Hraust börn voru ekki lengi að koma sér út í snjóinn, og taka til óspilltra málanna, og
hér á myndinni sjáum við nokkra hrausta stráka, sem voru að leik á Miklatúni, þegar Gunnar,‘ljósmyndari
'Rmans var þar á ferð í gær.
Tveir sóknar-
nefndarmenn
úr Nessókn
segja af sár
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Noldcrir flokkadrættir hafa vcr-
ið innan Nessóknar í Reykjavík
undanfarið. Á framhaldsaðalfundi
safnaðarins, sem haldinn var sL
föstudag, sagði formaður sóknar-
nefndar, Ingólfur MölleE, skip-
stjóri, af sér og sömuleiðis annar
sóknarnefndarmaður, Garðar Páls-
son, stýrimaður. Guðmundur Jóns
son, sömgvari, var felldur úr safn-
aðarnefnd. I»eir, sem sögðu af sér,
gerðu það í mótmælaskyni vegna
kjörs Þórðar Ágústs Þórðarsonar,
trésmiðs, og Balduts Jónssonar,
íþróttavallastjóra.
Á fundinum, seon á fjórða
hundrað safnaðarmenn sátu, kom
fram uppástunga frá safnaðamefnd
um að sama nefnd sæti áfranh
óbreytt, þar sem sasnkormdag
hefði verið gott og samvinna að
nrilefnum safnaðarins verið með
ágætum.
En auk fyrrgreindra manna voru
í í stjórninni frú Halldóra Eyj-
ólfsdóttir og Sigurbjöm Guð-
mundsson, verkfræðingur. Áttu
þau Guðmundur og Halldóra að
ganga úr stjóiminnL
Framhald á bls. 14.
Andvirði 6 skuttogara
þarf til að endurnýja
Sambandsfrystihúsin
EB-Reykjavík, fhnmtudag.
Á vegum S j ávarafurðadeildar
og Teiknistofu Sambandsins hef-
ur nú verið unnið að athuigunuim
á ástandi frystihúsa á vegum Sam
bandsins. Eru rannsóknirnar eink
um gerðar með hliðsjón af nýj-
um kröfum um hreinlæti og holl-
ustuhætti, sem búizt er við að
verði í lögum um þetta efni, og
reiknað er með að Bandaríkja-
þing samþykki innan tíðar. Gert
er ráð fyrir, að íslenzku frysti-
búsin verði að geta uppfyllt þcss-
ar kröfur ekki síðar en 1974, og
hafa nú verið gerðar ítarlegar
skýrslur fyrir öll frystihús á veg-
um Sambandsins og áætlaður
kostnaður við nauðsynlegar breyt
ingar og endurbætur á þeim.
Sambvæmt nýútkomnum Sam-
handsfréttum er meðalkostnaður
við breytingarnar, sem eingöngu
miðast við hinar bandarísku kröf-
ur, um 11—12 milljónir kr. á
hvert frystihús. Ef hins vegar er
reiknað með æskilegum endurbót
um, nýþyggingum, þar sem slíkt
er talið nauðsynlegt, og nýjum
og endurbættum vélakosti, er
heildarkostnaðurinn við þau 30
frystihús, sem Sambantfið annast
sölu fyrir, talinn nema 650—700
millj. kr.
í viðtali Sambandsfrétta við
f ramkvæmdast j óra S j ávarafurða-
deildar, Guðjón B. Ólafsson, kem
ur fram að hann telur greinilegt,
að fjármagns til þessara fram-
kvæmda verði að afla á næstu
2—3 árum, til þess að hægt sé að
mæta þeim kröfum, sem gerðar
verði á hinum þýðingarmikla
bandaríska fiskimarkaði, og ekki
síður til að hægt sé að vinna úr
því væntanlega aukna aflamagni,
sem kæmi til með að berast á
land úr hir.um nýju togurum, sem
eru í smíðum. f því sambandi
væri vert að hafa í huga, að til
þess að koma þessum 30 frysti-
húsum í það ástand að þau væru
samkeppni.shæf framleiðslutæki,
þjTfti aðeins fjármagn sem sam-
svaraði verðmæti 6 skuttogara.
Samkeppni um þjóðhátiðar-
merki framlengd til 20. marz
EJ-Reykjavlk, mánudag.
Nú um helgina ábváðu dóm-
nefnd og Þjóðhátíðarnefnd
1974, að framlengja skilafrest
í samkeppni um gerð merkis
fyrir Þjóðhátíð 1974, og þrjár
myndskreytingar til nota á
veggskildi, til 20. marz næstk.,
þar sem samkeppni sú, sem
háð var með skilafresti til 1.
nóvember s.l. bar ekki nægan
árangur að mati dómnefndar,
sem taWi ekkert hinna inn-
sendu verka verðlaunahæft.
Frá þessu var skýrt á blaða-
mannafundi, sem Þjóðhátíðar-
nefnd 1974 hélt í dag, en þar
skýrði formaður nefndarinnar,
Matthías Johannessen, og fram
kvæmdastjóri hennar, Indriði
G. Þorsteinsson, frá nauðsyn
þess að fá þjóðhátíðarmerki
hátíðahaldanna 1974.
'' sagði, að Þjóðhátíðar-
nefndin hefði orðið fyrir von-
brigðum með niðurstöður sam-
keppninnar. Hafi að athugun-
um loknum verið ákveðið, að
framlengja samkeppnina á
almennum vettvangi og gera
þannig enn tilraun til að fá
merki með þoim hætli, í stað
þess að leita til einstakra Iista
manna. Sagðist hann vonast til
þess, að þátttaka yrði mikil,
og að íslenzkir myndlistar-
menn hjálpuðu nú íslenzku
þjóðinni til að eignast Þjóð-
hátíðarmerki með því að taka
þátt í samkeppninni.
Ef ekki fengist viðunandi
merki nú, þá yrði auðvitað að
leita annarra ráða.
Indriði sagði, að Þjóðhátíð-
arnefndin treysti því, að fólk,
sem kann að búa yfir hug-
myndum um þjóðhátíðarmerki
og myndskreytingar á vegg-
skildina noti þennan nýja
frest, sem framlengingin veit-
ir, til að scnda tillögur sínar
í samkeppnina, einnig þeir,
sem þegar hafa tekið þátt í
keppninni. Sagði han.., að fólk
ætti ekki að vera hrætt við
að senda inn hugmyndir sínar
þótt þær væru ekki ítarlega út-
færðar; það væri hugmyndin
sem skipti höfuðmáli.
Á fundinum kom fram, að
þar sem samkeppnin hefur ver
ið framlengd. fellur fyrirhuguð
sýning á þeim tillögum, sem
borizt höfðu fyrir 1. nóvember,
niður, og verður ekki af siíkri
sýningu fyrr en niðurstaða er
fengin.
Þeir, sem þegar hafa sent
inn tillögur eru ekki bundrtir
af þeim, og geta því sent mn
nýjar tillögur að merki og
myndskreytingum. Þeir geta
einnig látið fyrri tillögur sín-
ar liggja, og verða þær þá
lagðar fram að nýju í keppn-
ina. Vilji einhver fá þær end-
ursendar þurfa þeir að snúa
sér til trúnaðarmanns dóm-
nefndar, Indriða G. Þorsteins-
sonar, og mun hann annast um
endursendingu samkv. fram-
vísun kjörorðs. Mun hann að
sjálfsögðu fara með slíkt sem
algjört einkamál.
Verðlaun eru óbreytt: sjötíu
og fimm þúsund krónur fyrir
hátíðarmerkið, og sextíu þús-
und fyrir myndskreytingar.
Vísast í því efni til fyrri aug-
lýsingar um samkeppnina, en
ákvæði hennar standa óbreytt,
að öðru leyti en því er snertir
skilafrest. Tillögum skal skila
í póst eða til skrifstofu Al-
þingis fyrir klukkan 17, mánu
Framhald á bls. 3