Tíminn - 18.01.1972, Síða 2
2
TIMINN -------—— ÞBIÐJUDAGUR 18. janúar ÍOTI
Vestmannaeyingur
fékk milEjón og meira
Mánudaginn 17. janúar var dreg
iS í 1. flokki Happdrættis Háskóla
íslands. Dregnir voru 2.700 vinn-
ingar að fjárhæð 19.640.00 krónur.
Hæsti vinningurinn, fjórir
milljón króna vinningar, komu á
aúmer 11088. Þrír miðar af þessu
númeri voru seldir í Vestmanna-
eyjum, en sá fjórði hjá Valdimar
Long í Hafnarfirði. Einn eigandi
miðanna í Vestmannaeyjum, átti
röð af miðum, og fær því báða
aukavinningana, auk milljón kr.
vinningsins.
200.000 króna vinningurinn kom
á fjóra miða númer 24812, sem
voru allir seldir í umboði Arn-
dísar Þorvaldsdóttur, Vesturg. 10.
10.000 krónur:
415 1788 2339 4663 4931
4962 6353 6840 8506 11087 11089
11742 12956 13994 14259 14965
15799 16939 17448 17907 18099
18764 19937 20934 23601 24441
25687 27915 28835 30053 35537
36250 36957 38148 38472 39082
42925 43836 44130 44700 45083
45318 45384 46552 46591 48420
48476 51144 55435 57183 '57725
58280 59803.
(Birt án ábyrgðar).
Tveir stórir bátar
seldir frá Dalvík
HD—Dalvík, SB—Rvík, föstudag.
Tveir af stærri bátum Dalvík-
inga, Baldur og Bjarmi hafa nú
verið seldir til Suðurlands. Smærri
Fundur Bijá
sveitarfélögum
Fundur fulltrúaráðs Sambands
íslenzkra sveitarfélaga verður sett
ur í borgarstjórnarsalnum að
Skúlatúni 2 í Reykjavík kl. 10 f.h.
í dag, þriðjudaginn 18. janúar.
Formaður sambandsins Páll Lín
dal, setur fundinn. Hannibal Valdi
marsson, félagsmálaráðherra og
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri,
flytja ávörp.
Aðalumræðuefni fundarins verð-
ur frumvarp til laga um tekju-
stofna sveitarfélaga.
Hjálmar Vilhjálmsson, ráðu-
neytisstjóri, mun gera grein fyrir
efni fruimvarpsins og svara fyrir-
spurnum.
f fulltrúaráði sambandsins eiga
sæti 30 fulltrúar sveitarfélaga
víðsvegar nð af landinu.
Gert er ráð fyrir ,að fundinum
ljúki síðdegis á miðvikudag.
Stóratáin
Friðlýsingarmál eru á döfinni í
Þjóðviljanum síðastliðinn sunnudag
með þeim hætti, að undirritaðan fer
að gruna að hann þurfi að fara að
óska friðlýsingar sjálfum sér til
handa, enda er nú dróttað að honum
ýmsum vanmetum, svo sem eins og
andstöðu við útfærslu landhelginnar
og vetnissprengju. Var þó aðeins
verið að furðast yfir afstöðu rithöf-
unda til máls er varðar höfin, á sama
tíma og brýnt og fastari efni biðu
afstöðulaus, Þá eru höfð orð um að
tiltekinn ,,aðairithöfundur" Tímans
hafi ekki gengið með spiald. Un>
mótmælin segir:
„Þarna voru útvegsmenn, sjómenn,
verkamenn, iistmálarar, leikarar, iðn-
aðarmenn, opinberir starfsmenn,
tollheimtumenn og bersyndugir, bítl-
ar, póstm. og rithöfundar og allir að
mótmæla svínariinu. Þó ekki einn
aðalrlthöfundur Tímans, sá sem
Morgunblaðið endurprentar af mest-
um ákafa þessa dagana, af því að
hann er alveg bit á kollega sína, sem
lýstu nýlega stuðningi við fram-
komna hugmynd á Alþingi um stuðn-
bátum hefur hins ve'gar fjölgað
á Dalvík og í athugun eru kaup
á 16 lesta báti og smíði á 50 lesta
stálbáti. Lítið hefur verið róið
frá áramótum og afli tregur.
Aðalsteinn Loftsson, útgerðar-
maður var eigandi Baldurs, en
útgerðarfélagið Röðull átti Bjarma,
sem var afhentur nýjum gigendum
fyrir skömmu.
Fjórir smærri bátar 8—28 lesta
komu til Dalvíkur á sl. ári og
af þeim þrír nýsmíðaðir. Fyrir-
huguð eru kaup á 16 lesita báti
og í undirbúningi er smíði á 50
lesta stálbáti, auk þess sem búið
er að semja um kaup á skuttog-
ara.
Lítið hefur verið róið fná ára-
mótum, smærri bátar hafa verið
á línuveiðum, en afli hefur verið
tregur og því lítil vinna í frysti-
húsinu síðan fyrir jól.
Togbáturinn Björgvin og Björg-
úlfur fara væntanlega strax eftir
helgina á togveiðar.
Nokkuð mikið er byggt á Dal-
vík og hefur verið sótt um lóðir
á þessu ári fyrir 6—10 einbýlis-
hús, sem væntanlega verður hafin
bygging á í vor.
ing viS framkomna tilögu Ceylon-
stjórnar á þingi S.Þ. um friðiýsingu
Indlandshafs, og að undirbúin verði
hliðstæð tiílaga um friðlýsingu til-
tekins svæðls á Norður-Atlantshafi.
Segir rithöfundur Tímans svo: „En
hvað þeir (rithöfundar) ætla að gera
með friðlýst höf, á meðan þau eru
ekki orðin að bleki, velt ekki nokkur
maður." Vlð óritlærðir freistumst tii
að álykta að svona háleitum spek-
ingum komi heldur ekki 50 mílna
landhelgi neitt við, fyrr en hafið yfir
landgrunninu er orðið að bleki, —
og landið ekkert við, fyrr en það er
orðið að pappírsörkum, — og komi
yfirieitt ekki nokkur skapaður hlut-
ur við, fyrr en hann er orðinn að
tæki til að koma andagift sinni á
framfæri — hvort sem það er börn,
kariar, kvenfóik, Tíminn, bill, hús,
skip eða vetnissprengja."
Hér hefur verið stigið ofan á ein-
hvern.
En mér er spurn. Hvern gat grun-
að að stóratáin á heilum stjórnmála-
samtökum fyrirfyndist í Indlands-
hafi?
Sva rthöfðl.
SJ—Reykjavík, mánudag.
Valur Gíslason leikari átti sjötugsafmæli á laugardaginn. Um kvöldið lék hann hlutverk bóndans í Nýársnótt-
Innl, og í leikslok fluttl Guðlaugur Rósinkranz ræðu og þakkaði honum vel unnin störf. Hvert sæti var sklpað í
húsinu og var Val ákaft fagnað. Þjóðleikhússtjóri skýrði frá því, að Valur hyggðist ekki draga sig f hlé frá
störfum að fullu þótt sjötugur væri orðinn, og gætu leikhúsgestir enn hlakkað til að sjá hann í nýjum hlut-
verkum á sviði Þjóðleikhússins. Myndin var tekin þegar Valur var hyiltur á sviðinu. (Tímamynd G.E.)
Nýr fræðslumyndaflokkur í Sjónvarpinu:
Heimur hafsins
Næsta miðvikudag 19. janúar
hefur sjónvarpið sýningu á nýj-
um fræðslumyndaflokki, sem
nefnist: Heimur hafsins. Þetta
er í fyrsta skipti, sem íslenzka
sjónvarpið fær ítalskan mynda-
flokk til sýningar, en auk ítal-
anna eiga Frakkar og Þjóðverj-
ar nokkurn hlut að máli. Mynd-
irnar eru 13 að tölu og verða
sýndar á miðvikudögum.
Hver þáttur er sjálfstæður
og fjallar um aímarkað svið.
Af efnisþáttum má nefna haf-
ið sem matarforðabúr, helztu
fiskimið heirns (þar á meðal
fslandsmið í 6. þætti), nýjungar
í fiskiveiðitækni, dýrgripi hafs
ins, svo sem perlur og kóralla,
fornminjar á hafsbotni, lands-
lag neðansjávar, köfun og neð-
ansjávarrannsóknir, mannskæð-
ar sjóskepnur og margt fleira,
enda er seilzt til fanga víða
um lönd og höf.
ítajinn., Bruno Kailati gerði
myndimar, en hann er einn
af frumherjum í gerð neðan-
sjávarkvikmynda. Myndirnar
eru teknar í litum eins og
flestar náttúru- og dýralífs-
myndir nú orðið, en af skilj-
anlegum ástæðum njóta litimir
sín ekki þar sem hér er ekki
litasjónvarp ennþá. Myndatak-
an sjálf tók 2% ár og fjórir
myndklipparar störfuðu síðan
að verkinu í 15 mánuði sam-
fleytt.
Það er von sjónvarpsins, að
fræðslumyndaflokkur af þessu
tagi verði vel þeginn með þjóð,
sem er háðari heimi hafsins en
flestar aðrar þjóðir.
Tilrauna
eldhús
EB—Reykjavík, föstudag.
Samkvæmt nýútkomnum Saf-
bandsfréttum, hefur verið ákveð-
ið að söluaðilar landbúnaðarins
sameinist um stofnun og rekstur
tilraunaeldhúss og afurðakynning-
ardeildar, þar sem m.a. verði gefn-
ar út mataruppskriftir, haldnar
vöru- og afurðakynningar og nýir
réttir kynntir. Segir í Sambands-
fréttum, að á vegum ýmissa þess-
ara aðila hafi á undanförnum ár-
um verið unnið nokkuð starf í
þessa átt, en með tilkomu þessar-
ar starfsemi sé ætlunin að efla
og samræma starfsemi söluaðil-
anna á þessu sviði.
Ennfremur segir, að í sambandi
við þessar fyrirætlanir sé hús-
mæðrakennari á förum til náms
hjá Jordbrukets Provkök í Sví-
þjóð á vegum Búvörudeildar SÍS.
Skrifstofustúlka
tii New York
Starf skrifstofustúlku við fastanefnd íslands í New
York verður laust 1 febrúar n.k.
Umsækjandi þarf að hafa gott vald á ensku og
einu skandinavísku tungumáli, góða vélritunar-
kunnáttu og nokkra bókhaldsþekkingu.
Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf,
sendist utanríkisráðuneytinu, helzt ásamt með-
mælum, fyrir 24. janúar n.k.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 14. jan. 1972.
Tilkynning
Athygli innflytjenda skal hér með vakin á því,
að samkvæmt auglýsingu viðskiptaráðuneytisins,
dags. 27. des. 1971, sem birtist í .2. tbl. Lögbirt-
ingablaðsins 1972, fer 1. úthlutun gjaldeyris- og/
eða innflutningsleyfa árið 1972 fyrir þeim inn-
flutningskvótum, sem taldir eru í auglýsingunni,
fram í febrúar 1972. Umsóknir um þá úthlutun
skulu hafa borizt Landsbanka íslands og Útvegs- :
banka íslands fyrir 1. febrúar n.k.
Landsbanki íslands Útvegsbanki íslands f