Tíminn - 18.01.1972, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 18. janúar 1971
^fTTTTnfíBi TIMINN
13
KR klippti klærnar af Val!
Þeir Ottesen-frændurnir, Björn og Heukur skoruðu 10 af 18 mörkum KR
t leiknum gegn Val. Þar af skoraði Björn t.h. 8 mörk í 9 tilraunum.
Þá geta Valsmenn hætt a'ð hugsa
um sigur í 1. deildarkeppninni í
handknattleik karla. Eftir að ná
aðei.ns jafntefli gegn KR á sunnu-
dagskvöldið, fauk möguleiki
þeirra, sem þó var nú heldur lít-'
ill, til að sigra í deildinni í ár.
Að vísu er fræðilcgur möguleiki,
fyrir hendi, en til þess þurfa úr-
slitin í leikjunum sem cftir eru
að vera all undarleg. Sumir voru
samt byrjaðir á að reikna þann
Biöguleika út, strax á sunnudags-
kvöldið, en það var erfitt dæmi
og flókið.
Það var allit útlit fyrir að Valur
hefði sigurinn í höfn, þegar
nokkrar tnín. voru eftir af leikn-
um. Þá leiddu þeir með 3ja marka
mun 18:15. En á þessum síðustu
mínútum, skoruðu KR-ingar 3
mörk og náðu þar með að jafna.
KR-ingar skiptu um markvörð
á þessum mínútum. Þeir tóku Em-
il Karlsson úr markinu og settu
inn ungan markvörð, ívar Giss-
urarson. Eftir að Haukur Otte-
sen hafði minnkað muninn í 16:18,
varði ívar skot frá Jóni Karls-
syni, skot, sem að vísu var skot-
ið úr vonlitlu færi. Þarr með óðu
KR-ingar upp og Ævar Sigurðs-
son skoraði af línu, 17:18. Vals-
menn misstu boltann í næsta upp-
hlaupi, og KR-ingar fengu þar
með tækifæri til að jafna, og það
gerðu þeir. Björn Ottesen, skor-
aði með einu af sínu smuguskot-
um, og var það hans 8. mark
í leiknurm.
Valsimenn ætluðu að ná báðum
stigunum með að skora í næsta
upphlaupi, enda voru ekki eftir
nema um 20 sekúndur. Þeim
tókst það ekki, skot Jóns Karls-
sonar, lenti í öruggum höndum
ívars, og þar með fékk KR annað
sti'gið og klærnar voru klipptar
af Valsmönnum.
KR tók forustu í leiknum 2:0,
en Valsmenn komust yfir 3:2. KR-
ingar náðu aftur forustu — mest
7:4, en í hálfleik var staðan orð-
in 7:6. Síðasta mark Valsmanna
var umdeilt. Töldu mangir að
knötturinn hefði ekki verið kom-
inn í netið þegar leikurinn var
flautaður af, en Hermann Gunn-
arsson skaut þá frá miðjum vall-
arhelming KR.
í síðari hálfleik skiptust liðin
á að jafna og hafa yfir, og var
leikurinn því all spennandi og
skemmtilegur.
Þegar leið á hálfleikinn náðu
Valsmcnn 2ja marka forustu 14:12
og síðan aftur 16:14 og loks 3ja
marka forustu 18:15, en KR-ingar
jöfnuðu eins og fyrr scgir.
Að undanskildum leiknum við
Hauka, var þetta bezti leikur KR
í mótinu. Þeir hafa æft vel síð-
an þeir töpuðu 15:10 fyrir Val í
desember, og árangurinn af þeim
æfingum komu nú í ljós. Björn
Ottesen, var maður dagsins hjá
KR.
Hann skoraði 8 mörk í 9 tilraun-
um. Einnig átti Emil Karlsson,
góðan leik í markinu, sérstaklega
framan af, og Ævar Sigurðsson
átti einnig skínandi leik. Annars
léku flestir KR-ingarnir vel — a.
m.k. miðað við marga fynri leiki.
Hjá Val er nú ljótt um að lit-
ast. Með alla sína landsliðsmenn,
mátti liðið þakka fyrir jafntefl-
ið gegn KR. Hin fræga „muln-
ingsvél“ frá síðasta vetri, er nú
orðin eins og garnall teppabank-
ari miðað við í fyrra. Það var að-
eins að brá fyrir góðum leik hjá
liðinu á kafla í síðari hálfleik.
Þá var leikið kerfisbundið og
upp á mark, en þar fyrir utan vár
liðið ekki svipur hjá sjón, miðað
Framhald á bls. 14.
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN
rikisins — ámmrn
2Ja, 3ja OG 4ra HERBERGJA ÍBÚÐIR TIL SÖLU
94 SÖLUÍBÚÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR
Auglýstar eru til sölu 94 íbúðir, sem verið er að byggja á vegum Framkvæmda-
nefndar byggingaáætlunar í fjölbýlishúsum við Torfufell 21 — 23 og 25 — 35 og
Unufell 48—50 í Reykjávík. Ent íbúðir, þessar tveggja herbergja, þriggja her-
bergja og Hjögurra herbergja. Þær verða seldar fullgerðar (sjá nánar í skýring-
um með umsóknunum) og afhentar þannig á tímabilinu júlí—nóvember 1972
Kost á kaupum á íbúðum þessum eiga þeir, sem eru fullgildir félagsmenn í
verkalýðsfélögum (innan A.S.Í.) svo og kvæntir/giftir iðnnemar.
Brúttóflatarmál 4ra herbergja íbúðanna (með hlut í stigahúsi og einkageymsl-
um) er 101,5 fermetrar og áætlað verð þeirra er kr. 1.700.000,00. Brúttóflatar-
mál 3ja herbergja íbúðanna með hlut í stigahúsi og einkageymslu) er 80,7 fer-
metrar og áætlað verð þeirra er kr. 1.400.000,00. Brúttóflatarmál 2ja herbergja
íbúðanna (með hlut i stigahúsi og einkageymslu) er 58,8 fermetrar og áætlað
verð þeirra er kr. 1.070.000,00.
4ra herbergja íbúðirnar eru 14 talsins, 3ja herbergja íbúðirnar eru 48 talsins og
2ja herbergja íbúðirnar eu 32 talsins. ,
Greiðsluskilmálar eru í aðalatriðum þeir, að kaupandi skal, innan 3ja vikna frá
því að honum er gefinn kostur á íbúðarkaupum, greiða 5% af áætluðu íbúðar-
verði. Er íbúðin verður afhent honum skal öðru sinni greiða 5% af áætluðu
íbúðarverði. Þriðju 5%-greiðsluna skal kaupandi inna af hendi einu' ári á eftir
að hann hefur tekið við íbúðinni .og fjórðu 5%-greiðsluna skal hann greiða tveim
árum eftir að hann hefur tekið við íbúðinni. Hverri íbúð fylgir íbúðarlán stofn-
unarinnar til 33ja ára, er svarar til 80% af kostnaðarverði.
Nánari upplýsingar um allt, er lýtur verði, frágangi og söluskilmálum, er að
finna í skýringum þeim, sem afhentar eru með umsóknareyðublöðunum. Um-
sóknir um íbúðarkaup eru afhentar í Húsnæðismálastofnuninni.
Umsóknir verða að berast fyxir kl. 17 hinn 15. febrúar næstkomandi.
Reykjavik, 15. janúar 1972.