Tíminn - 18.01.1972, Blaðsíða 16
Þriðjudagur 18. janúar 1972
Forseíi íslands
og utanríkisráð-
herra við út-
förina
Ákveðið heíur verið að forseti
íslands dr. Kristján Eldjám verði
viðstaddur útför Friðriks Dana-
kr,rjmes ásamt Einari Ágústssyni
uutiiríkisráðherra.
107 erlend
veiðiskip
ÞÓ—Reykjavík, mánudag.
Núna eru 107 erlend veiðiskip
að veiðum umhverfis landið og
sem fyirr eru þau brezku flest eða
84 togarar, næst koma 17 þýzkir
togarar, þá 3 belgiskir, 2 rússnesk-
ir og einn færeyskur línuveiðari.
Langflestir brezku togaranna
eða 55 eru að veiðum djúpt úti
af Austfjörðum og halda þeir sig
mest í Seyðisfjarðar- og Noirð-
fjarðardýpi. Þýzku togaramir
halda sig hins vegar djúþt úti af
Suð-austurlandi og Reykjanesi.
Lærlingar
voru við
hárgreiðslu
ÞÓ—Reykjavík, mánudag.
Samningar náðust ekki á fund-
um hárgreiðslusveina og meist-
ara um helgina og hefur deilunni
nú verið vísað til sáttasemjara.
Það, sem mest ber á milli er til-
högun vinnuvikunnar, en um marg
ar aðrar kröfur hefur þokazt í
samkomulagsátt.
Á laugardag þurftu hárgreiðslu-
sveinar að standa verkfallsvakt og
eitthvað bar á því, að þeir þurftu
að banna nemum að vinna, en í
verkfallinu verða lærlingar að
leggja niður vinnu.
Bátar heim úr
Norðursjó
ÞÓ—Reykjavík, mánudag.
Nú munu allir Norðursjávarbát-
arnir vera á heimleið eftir tveggja
vikna veru þar án þess að fá eina
einustu síld. Vitað er að fyrstu
Norðursjávarbátarnir, koma heim
í kvöld og munu þeir væntanlega
taka loðnunót strax um borð
og nuga að henni. Það sama munu
aðrir bátar, gera, sem verið hafa
við veiðar í Norðursjó.
Mikili fjöldi manna kom í danska sendiráðið í qær, til að rita nöfn sín í minningabók um Friðrik iriunda Danakonung, og á myndinni er Helgi Bergs
bankastjóri að rita nafn sitt. Á flaggstöng sendiráðsins blakti danski fáninn í hálfa stöng í snjókomtmni í gær, en snævi þakin trén mynda fallegan
ramma um fánann. (Tímamyndir Gunnar)
18 höfundar munu
skrifa íslandssðpna
- sem kemur út í fjórum bindum árið 1974
EJ—Reykjavík, mánudag.
Ritun íslandssögunnar, sem
gefa á út 1974, er nú að hefjast.
íslandssagan verður væntanlega í
fjórum bindum, og munu líklega
18 höfundar skrifa hana.
Þetta kom fram á fundi, seim
formaður og framkvæimdastjóri
Þjóðhátíðarnefndar 1974, Matthías
Jóhannessen og Indriði G. Þor-
steinsson, áttu mcð blaðamönnum
í dag.
Þeigar hefur verið veitt hálfri
milljón króna til íslandssögunnar,
sérstök ritnefnd sér um efni bók-
arinnar, val höfunda og niðurröð-
un efnis. Sagði Matthías, að sér
litist vel á undirbúning þessa
verks og ætti íslandssagan að
geta orðið góðuir minnisvarði um
þjóðhátíðina 1974.
Sýningabók um sögualdarbæinn.
Þá kom fram á fundinum, að
Hörður Ágústsson hefur lokið við
að seimja sýningabók um söguald-
arbæinn, og er handritið að fara
í prentun. Nemendur í Myndlista-
og handíðaskólanum sjá um útlit
bókarinnar, en hún verður seld
þegar bærinn verður sýndur.
Enn er óákveðið, hvort eða
hvar sögualdarbærinn verður
byggður, en það er mál sem al-
þingi ákveður. Er sennilegt, að
alþingi taki ákvörðun um málið nú
í vetur.
' Þeir staðir, sem nefndir hafa
verið sem hugsanlegir bygginga-
staðir, eru Þjórsárdalur. Borg á
Mýrum og Reykjavík, en það er
alþingis að taka áikvörðun um
byggingarstaðinn.
100 þúsund á Þingvöllum?
Þjóðhátíðarnefndin stefnir að
því, að hátíðin hefjist í ársbyrj-
un 1974 og standi út allt árið.
Verður gefin út dagskrá um hina
mamgvíslegustu atburði ársins, sem
á einhvern hátt tengjast þjóðhá
tíðarhöldunuim. Settar hafa verið
á fót nefndir í hinum ýmsu hér-
uðum og landshlutum, og imunu
þær sjálfsagt sjá um þjóðhátíða-
hald hver um sig. Hins vegar verð-
ar svo sameiginleg þjóðhátíð á
Þingvöllum, sennilega um m'ánaða-
mótin júlí/ágúst, og mun standa
í 2—3 daga. Er búizt við, að
þangað komi allt að 100 þúsund
manns.
Þegar hefur fengizt leyfi til að
halda þessa aðalhátíð á Þingvöll-
um, og eru framundan viðræður
við viðkomandi aðila um aðstæð-
uir og fyrirkomulag hátíðahald-
anna þar.
Framhald á Ws. 14.
Míkið að gera
eftir verkfallið
ÞÓ—Reykjavík, mánudag.
Þessa dagana er mikið að gera
hjá strandferðaskipunum. Guðjón
Teitsson, forstjóri Skiptúgerðar-
innar sagði í viðtalj við blaðið í
dag, að Hekla hefði farið strax
á föstudagskvöld til Vestfjarða og
væri hún nú að koma úr þeirri
ferð. Síðari hluta vikunnar mun
skipið fara vestur um land í
hringferð.
Annað kvötd mun Esja fara
austur um land í hrjngferð og í
Vestmannaeyjum mun hún taka
talsvert magn af beitusíld, sem
fara á til Norður- og Vesturlands.
Þá er áætlað að Herjólfur fari
Framhald á bls. 14.
Búiit irið fyrstu bátunum
á loðnumiðin fljótlegu
ÞÓ—Reykjavík, mánudag.
„Loðnan er að byrja að koma
inn á Lónsbugtina og þangað er
líka kominn mikið af fugli, sem
er góðs viti,“ sagði Jakob Jakobs-
son, fiskifræðingur um borð i
Árna Friðrikssyni er blaðið ræddi
við hann í dag.
Jakob sagði. að loðnan væri aíls
staðar að síga suður með Ausifjörð
um, og úr þessu mætti fara að
búast við fvrstu bátunum á mið-
in t.d. cru allir íslenzku síldveiöi-
bátarnir, sem hafa veriö við veið-
ar í Norðursjó á heimleið. Ekki
er gott að segja til um hvernig
loönan mun haga sér að þessu
únni, þar sem hitinn í sjónum
er óvanalega mikill út af SA landi
um þessar mundir. Loðnugangan,
sem er komin lengst suður, er nú
komin í 5 gráðu heitan sjó og
út af Hornafirði er sjórinn í kring
um 7 gráðu heitur.
Jakob taldi engan vafa á því,
nð loðnuveiðin gæti hafizt nú al-
vog á næstunni, on reynsla und-
anfarinna ára hefur sýnt að frá
Hvalbak og inn á Lónsbugt, þar
sem loðnan hefur oft veiðzt fyrst,
er hún um 10 daga. Þær prufur,
sem þeir á Árna hafa tekið, hafa
sýnt að hér er um kynþroska loðnu
að ræða, en vegna veðurs hafa
þeir ekki getað tekið prufur sunn
ar en við Papey, en þar er talsvert
loðnumagn á leiðinni.
Síðast liðinn föstudag fór Ámi
Friðriksson inn á Stöðvarfjörð
með tvö. tonn af loðnu sem fór
í bcitu.
I
i
i
4
\
|
!
I
)
)