Tíminn - 19.01.1972, Qupperneq 1

Tíminn - 19.01.1972, Qupperneq 1
SENÐIBÍLASrÖÐM Hf 14. tbl. — Miðvikudagur 19. janúar 1972 — FRYSTIKISTUR FRYSTISKÁPAR * * RAFTŒKJADEILD, HAFNARSTRÆTI 23, SlMI 1839S * * * * * * * * * * * * * * * 56. árg. Sumarbústaða ævintýrið endaði hjá sýslumanni Ótal kærur á hendur Norðurbakka OÓ—Reykjavík, þriðjudag. — Allt síðan í haust hafa em- bættinu borizt ótal kærur á fyrir- tækið Norðurbakka hf. sag@i Páll Hallgrímsson, sýslumaður á Sel- fossi, Tímanum í dag. Það er fjöldi aðila sem á í málaferlum við fyr- irtækið og eru rekin alls konar mál á. hendur Norðurbakka. Eru þetta allt skuldakröfur af ýmsu tagi, en upphæðirnar eru yfirleitt frekar lágar. Ekki liggur fyrir hve miklar kröfurnar eru samtals, enda hafa kærur verið að berast fram undir þetta. Fyrirtækið Norðurbakki hf. var stofnað seinni part sumars s.l. Heimilisfang þess er á Selfossi, þótt flestir hluthafa muni vera búsettir í Reykjavík. Tilgangur fé- lagsins var að reisa sumarbústaði og selja. Var hafizt handa um byggingu sumarbústaðanna í Grímsnesi í sumar. En eitthvað hefur sú framkvæmd gengið á aft- urfótunum. Munu kröfuhafar vera seljendur landsins undir bústöðun- um, seljendur byggingarefnis, smiðir, kaupendur sumarbústað- anna og fl. o. fl. Tveir af stjórnarmönnum Norð- urbakka hf. voru nýlega lýstir gjaldþrota og nema skuldir þeirra milljónum kr. og er að minnsta kosti annar þeirra sakaður um út- gáfu innistæðulausra tékka fyrir á aðra millj. kr. Norðurbakki hf. hefur ekki ver- ið lýstur gjaldþrota hvað sem síð- ar verður. Steypustöðin OK gjaldþrota OÓ—Reykjavík, þriðjudag. Steypuhtöðin Ok hf. að Dals- hrauni í Hafnarfirði hefur verið lýst gjaldþrota. Var úrskurður þess efnis kveðinn upp af bæjar- fógeta 20. des. sl. Þeir, sem kröfur eiga í þrotabúið, eru hvattir til að lýsa kröfum sínum innan fjögurra mánaða. í Bæjarþingi Reykjavíkur voru á tímabilinu 7. nóv. til 22. des. kveðnir upp ekki færri en sex dómar á hendur Oki hf. Samtals neimur skuldarupphæðin í dómum þessum um 1,5 millj. kr. Stærstu kröfuna gerir Olíuverzlun íslands hf., rúmlega 1 millj. kr. Verður janúar met- mánuður í útfíutningi: ÞÓ—Reykjavík, þriðjudag. Allar líkur eru á, að janúar- mánuður verði metmánuður í útflutningi á þessu ári. Þegar farmannaverkfallinu lauk skömmu fyrir helgina biðu út- flutnings verðmæti upp á hundr uð milljóna. Til dæmis eru 3 skip á leiðinni fyrir SH með fullfermi af frystum fiski til Bandaríkjanna, þá er Jökulfell- ið einnig að leggja af sta® þang- að fyrir SÍS. Núna eftir helg- ina kemur hingað brasilískt skip, sem taka mun 300 tonn af saltfiski, og alls munu 3200 tonn af kísilgúr verða seld úr landinu í þessum mánuði. Fyrir utan þetta, er vitað um mikinn útflutning, sem bíður afskip- unar. Tíminn ræddi í dag við nokkra menn og spurði þá hvernig afskipanirnar hefðu gengið eftir að farmannaverk- fallinu lauk. 3200 tonn af kísilgúr Vésteinn Guðmundsson, for- stjóri Kísiliðjunnar við Mývatn sagði, að þeir hefðu verið komn ir í vandræði með geymslupláss og þurftu þeir að fá iánað til viðbótar og það stóðst á endum, að þegar allt geymslu pláss var þrotið á Ilúsavík þá losnaði um verkfallið. Strax á laugardag var svo afskipað 1500 tonnum og í þessari viku er áætlað að 1000 tonnum til viðbótar verði afskipað. Vésteinn sagði, að hann bygg- ist við að salan í þessum mán- uði næmi 3200 tonnum, en mán- aðarframleiðslan er í kringum 1800 tonn. Kaupendur kísilsins erlendis vissu um verkfallið hér í tíma, þannig að þeir gátu undirbúið sig undir það, enda reiknuðu þeir með að það tæki nokkrar vikur. Þess vegna taldi Vésteinn að þetta verkfall hefði ekki skaðað verksmiðjuna út á við og reyndar væri það svo, að þeir hefðu aldrei undan við að framleiða kísilgúr. Vantar skip til Evrópu Guðjón B. Ólafsson hjá sjáv- arafunðadeild SÍS sagði, að afskipanir hjá þeim gengu eðli- lega til Bandaríkjanna, en aftur á móti vantaði skip til að taka fisk, sem fara á til Evrópu. Verksmiðju SÍS í Bandaríkj- unum var farið að vanta vissar tegundir af fiski og voru það helzt þorskflök, sem vantaði, aftur á móti var verksmiðjan sæmilega birg af blokkum. Jökulfell er nú að leggja af stað til Bandaríkjanna með fisk- farm og eftir 2—3 vikur ætti Framhald á bls. 14. Loðnan veiðanleg Komin í torfur upp við landið en bræla hamlar veiðum Reykjavík OÓ—Reykjavík, þriðjudag. ** Öll umferð um Reykjavíkur- ■ flugvöll stöðvaðist í gænmorgun ■ vegna snjókomu og var völlurinn _ ekki opnaður aftur fyirr en eftir hádegi í dag. Lá því allt innan- 1 Iandsfflug niðri í gær og morgun. ■ Einnig varð röskun á utanlands- ■ flugi Flugfélags íslands. Voru B báðar þotur félagsins á Reykja- _ víkurflugvelli þegar hann lokað- - ist, en Sólfaxi átti að fara til ■ Bretlands í gær, en komst ekki _ fyrr en síðari hluta dags i dag, þegar búið var að ryðja snjó af 1 brautunum. ■ Þegar flug átti að hefjast að ■ morgni mánudags byrjaði að snjóa B í Reykjavík og nágrenni. Kyngdi _ snjónum niður og brátt varð að loka flugvellinum. Gerðar voru ■ nokkrar tilraunir til að ryðja flug ■ brautirnar, en hvergi nærri hafð- ■ ist undan og var gefizt upp á oujui uumu^ai a nugvuuiuiuu eftir að vélarnar komust á loft ! gærdag. (Tímamynd G.E.) Þoturnar snjóaði ÞÓ—Reykjavík, þriðjudag. Nú er orðið dálítið líflegt í kringum okkur og í nótt og rétt eftir hádegi í dag fundum við torfur, sem vel mátti kasta á“, sagði Jakob Jakobsson, leið angursstjóri á Árna Friðriks- syni, er við ræddum við hann í dag. Jakob sagði, að í nótt hefðu þeir leitað í Lónsbugt vestan- verðri og þá hefðu þeir fundið stóra ræmu, sem hefði verið frá kjöl og niður á 5—7 faðma dýpi. Þeir á Árna settu trollið út og virtist vera mikið í þess- ari ræmu, en vegna sjógangs tóku þeir ekki nema lý2 t. inn á dekkið. Eftir að birti í morg- un dreifðist þessi ræma í sund- ur og leitaði þá Árni suður með landinu, og um tvö leytið í dag fundust nokkrar sæmilegar torf ur réttvísandi 3 sjómílur suður af Stokksnesi. Fer loðnan grunnt með landinu, en þar er köld læna, sem loðnan heldur sig í. Þessi læna er 3—4 stiga heit, en er utar dregur er sjór- inn 7 stiga heitur. Loðnan virðist hafa gengið töluvert í vestur síðan í gær, en því miður hefði ekki verið hægt að veiða hana, sagði Ja- kob, þar, sem haugasjór hefur verið á miðunum og engir bát- ar komnir, en vitað er að ein- hverjir bátar eru rétt ókomn- ir eins og t.d. Austfjarðabát- arnir. Loðnumagnið, sem fund izt hefur, er ekki gífurlegt, en að sögn Jakobs er það þó nokk- uð megn, sem nú gengur með fram ströndinni í vesturátt. mokstrinum. í morgun snjóaði talsvert, en um hádegisbil stytti upp og hafizt var handa um að ryðja brautirn- ar. Snjókoman náði ekki nema um suðvestanvert landið og voru allir flugvellir úti á landi opnir enda auð jörð víðast hvar. í dag voru famar þrjár flug- ferðir til Akureyrar og einnig var flogi® til Isafjarðar. Húsa- víkur, Vestmannaeyja, og Horna- fjarðar. Tvær ferðir voru farnar til Egilsstaða. Eini flugvöllurinn utan Reykjavíkur sem lokaðist var á Patreksfirði.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.