Tíminn - 19.01.1972, Page 7
ÍIÐVIKUDAGUR 19. janúar 1972
TIMINN
■
WHt
Margrét drottning veifar hanzkakiæddri hond til mannfjöidans viS Amalienborg á laugardaginn.
Milljónir manna geta fylgzt
SB; NTB, þriðjudag.
Útför Friðriks Danakouungs fer
fram frá Roskilde-dómkirkju á
mánudaginn ,að viðstöddum flest-
um þjóðhöfðingjum Evrópu og
hundruðum fréttamanna víðs veg-
ar að. Margar milljónir manna
geta fylgzt með, útförinni um leið
og hún fer fram, í sjónvarpi.
Þao var hugmynd Ingiríðar
drottningar ,að komið yrði upp
biðstöð fyrir fréttamenn á Royal
Hótel og upplýsingamiðstöð í
Amalienborg, þaðan sem allar
upplýsingar um undirbúning út-
fararinnar eru jafnóðum sendar
fjölmiðlum.
200—300 erlendir fréttamenn
eru væntanlegir til að fylgjast
mcð útföjrinni sjálfri og er talið
að helmingur þeirra sé frá liinum
Norðurlöndunum.
Friðrik IX verður jarðsettur í
norðvesturhorni kirkjunnar, þar
sem fyrir hvila forfeður hans. En
nokkur vandi er nú fyrir hönd-
um, því ákaflega þröngt er orðið
þarna og í fyrstunni verður kist-
an látin standa á miðju gólfi,
sveipuð danska fánanum. Þannig
stóð kista föður hans í mörg ár
og var allan tímann þakin blóm-
um. En hvar kistan verður endan
lega sett, er vandamál. Ekki er
mögulegt að bvggja fleiri kapell-
ur við kirkjuna og af mörgum
ástæðum þykir það ekki æskilegt.
Húsnæðisskipti
Að nokkrum tíma liðnum munu
drottningarnar Margrét og Ingi-
ríður skipta um bústað, því bú-
staður Margrétar Kristjáns IX-
höll, sem var nægilega stór fyrir
krónprinsessu og fjölskyldu, er
ekki nógu stór fyrir drottningu,
sem hefur mörgum opinberum
skyldum að gegna. Fredensborgar
höll og Grásteinshöll verða nú
undir yfirráðum Margrétar drottn
ingar. Aðeins Marlesisborgarhöll
og veiðihúsið í Trent voru eign-
ir Friðriks IX persónulega.
Benedikta leysir af
Krónprins Dana nú er hálfs
fjórða árs og heitir eins og flest-
ir vita, Friðrik, en auk þess
André, Henrik, Kristján. Bróðir
hans Jóakim prins er hálfs þriðja
árs og næstur í röðinni að erfða-
rétti .
En það verður Benedikta prin-
sessa, sem verður þjóðhöfðingi
Danmerkur, ef Margrét veikist eða
fcr í ferðalög, allt þar til Friðrik
prins nær 18 ára aldri og tekur
sæti í ríkisráðinu.
Nato býður 12 miKj.
Fastaráð Nato gekk í dag
frá tilboði til Möltu, og hljóðar
það upp á 12 milljónir punda
i greiðslu fyrir herstöðvarnar
á eynni. Mintoff vill fá 18
milljónir punda, en svars frá
honum við nýja tilboðinu er
ekki að vænta fyrr en eftir
fund þeirra Carringtons lávarð-
ar í Róm í dag.
Salt-viðræður áfram
Salt-viðræðunum í Vínarborg
verður haldið áfram, þótt sam
komulag kunni að nást í ná-
inni framtíð, var upplýst í
Vín í gær. Báðir aðilar von-
ast til að samkomulag takist
áður en Nixon fer til Moskvu.
en slikur sáttmáli yrði ekki
nægilega umfangsmikill og því
verður að halda viðræðum
áfram.
Rahman afþakkar
Mujibur Rahman, forsætis-
ráðherra Bangladesh, afþakk-
aði í gær tilboðið frá Bhutto,
forseta Pakistan, upi að Muji-
bur gæti fengið að vera for-
seti alls Pakistan. — Ég hef
engan áhuga á að stjóma í
Pakistan sagði hann — og auk
þess kom tilboðið 10 mánuð-
um of seint.
•Holo-t
Brezka stjórnin
hugsar
Brezka stjórnin veltir því nú
mikið fyrir sér, að viðurkenna
Bangladesh og sagði sir Alec,
utanríkisráðherra í gær. að
yfirlýsing um málið mundi birt
í náinni framtíð. Á meðan hef
ur stjórnin ákveðið að senda
1 miilj. punda til viðbótar til
hjálpar í Bangladesh. Áður
hafa verið sendar tvær millj.
punda.
Stúdentaóeirðir
í Madrid
Ríðandi lögregla var í fyrri-
nótt í öllum herklæðum við
háskólana þrjá í Madrid til að
koma í veg fyrir að óeirðirnar,
sem brutust út þar í fyrradag,
blossuðu upp á ný. 100 stúdent
ar voru handteknir og eru
þetta taldar mestu óeirðir sem
orðið hafa í Madriú i einu
ári. í gær urðu síðan átök milli
lögreglu og stúdenta og voru
margir stúdentar handteknir.
Rússar í landhelgi
USA
Tveir sovézkir togarar voru
teknir að ólöglegum veiðum i
bandariskri landhelgi í gær.
Rússarnir reyndu að stinga af,
en strandgæzlan náði þeim ^it
ir tveggja tíma eltingarleik.
Tók hún annan togarann í tog,
en skipstjóra hins í varðhald
í strandgæzlubát.
Sadat yngir ráSherra
Sadat Egyptalandsforseti tók
í gær 32 meðlimi stjórnar
Egyptalands í eið. Hann skip-
aði nýja stjórn, af þvi að hann
óskaði þess, að yngri ráðherr-
ar gætu hjálpað honum að
undirbúa „hið óhjákvæmilega
stríð“ við ísraeL
Grikkir kaupa
frönsk vopn
Yfirmaður gríska flughers-
ins kom á mánudaginn til Par-
ísar í því skyni að semja uim
kaup á fi’önskum. vopnurn, að
boði frönsku stjómarinnar.
Frakkar hafa undanfarið boðið
fjöldamörgum löndum að koma
og líta á vopnin og bafa marg-
ir þegið boðið. Gert er ráð fyr-
ir að vopnasala Frakká aukist
mikið á árinu.'
Uppreisn æru
Stjórn Bangladesh hefur til-
kynnt., að allar þær 200 þús-
und konur, sem V-Pakistansk-
ir hermenn nauðguðu í bardög-
ununi i landinu í fyrra, skuli
nú vera þjóðarhetjur. Stjóm-
in ákvað þetta vegna þess að
alheknsráð kirkjunnar liafði
miklar áhyggjur af þessum kon
um. Múhameðstrúairmerm vest-
ur þar eru ekkert góðir við
svívirtar konur.
Auglýsið í Tímanum
BÍLASKOÐUN & STILLIN6
Skúlagötu 32
LJÓSASTILLINGAR
HJÚLÁSTILLINGAR MÚTORSTILLINGAR
LátiS stilla í tíma.£ 4
Fljót og örugg þjónusta. I
13-100
VERZLUNARFOLK
VERZLUNARFÓLK
Að gefnu tilefni vill Verzlunarmannafélag Reykjavíkur vekja
athygli afgreiðslufólks á því, að ef frí vegna vinnu á laugar-
dögum er minna en einn heill dagur, skal það frí vera samfellt
helgarfrþ þ.e. eigi skemmra en til kl. 13,00 á mánudögum.
Sérstaklega skal bent á, að skv. 7. gr. kjarasamnings V.R.- skal
dagvinnutími hefjast kl. 9 að morgni eða að einhverju leyti fyrr.
Sú eina undantekning, sem heimilar að vinna hefjist eftir kl. 9
að morgni, er bundin við kl. 13,00 á mánudögum. Óheimilt er
að láta vinnu hefjast seinna en kl. 9 að morgni aðra daga
vikunnar.
Sérstök athygli skal vakin á því, að dagvinnu lýkur eigi síðar
en kl. 18-00 á föstudögum.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.