Tíminn - 29.01.1972, Síða 3
LAUGARDAGUR 29. ianúar 1972
TÍMINN
3
Sérstök línusvæði á vetrarvertíð
LINUSVÆÐI - VERTIÐ 1972
Frá og meö 1. febrúar n.k. eru
sildveiöar sunnanlands og vestan
algjörlega bannaöar, nema meö
reknetum, til 1. september 1973.
Bannsvæöiö takmarkast á svæöi
frá Eystra-Horni suöur um og
vestur fyrir aö Rit. Þetta er i
fyrsta skipti, sem algjört bann er
sett viö sildveiöum i nót á suöur
og vesturlandssild, en margir
aöilar munu hafa óskaö eftir þvi
núna siöustu ár, aö slikt bann
veröi sett á, vegna ótta um
algjöra útrýmingu siidarinnar.
Már Eisson, fiskimálastjóri,
sagði i viðtali við blaðið, að óskir
um algjört bann við nótaveiði,
hefðu verið að koma frá ýmsum
aðilum nokkuö lengi, og á fundi I
stjórn Fiskifélags islands fyrir
stuttu voru svo til allir sammála
um að mæla með sliku banni.
Sendi stjórn Fiskifélagsins frá sér
ályktun um þetta efni til
sjávarútvegsráðuneytisins, sem
siöan gaf út þar að lútandi reglu-
gerð i dag, föstudag.
Már sagðist vilja taka þaö
fram, að ef um mikinn beituskort
yrði t.d. að ræða, þá yrðu geröar
ráðstafanir til að bæta úr þvi.
Meö þessari reglugerð eru sett
takmörk fyrir þvi að islenzkir
sildveiðibátar geti stundaö sild-
veiðar með nót á komandi hausti
hér við land, og þvi má búast við,
að mikill fjöldi islenzkra sild-
veiðibáta stundi sildveiðar i
Norðursjó, þegar að þvi kemur.
í reglugerðinni segir, að sild-
veiðar með reknetum á bann-
svæðinu, séu aðeins heimilar, ef
möskvastærð netanna sé minnst
63 mm , og að lágmarksstærð
sildar, sem leyfilegt er aö veiða i
reknet og i önnur veiðafæri eftir 1.
september 1973, verði sem fyrr 25
cm.
24 skip með 6555 lestir
Bræla tefur sífellt veiði
ÞÖ - Reykjavik.
Frá þvi kl. 9 á fimmtudags-
morgun til kl. 9 i gærmorgun
fengu 24 loðnuskip samtals 6555
lestir á svæðinu út af Alviöru-
hömrum. Aðfararnótt fimmtu-
dags var leiðindaveður á
miðunum, en er fór að morgna
byrjuðu bátarnir að kasta á
sæmilegar torfur út af Alviðru-
hömrum, og köstuðu bátarnir
fram eftir deginum, en þá fór
Enn málar
ísleifur
EB - Reykjavik.
Þann 15. næsta mánaöar
veröur tsleifur Konráösson 84
ára, en þaö skiptir ekki svo miklu
máli, því aö eins og starfsbróöir
hans Picasso, lætur isleifur ellina
engan bilbug á sér finna og heldur
áfram aö skapa listaverk fullum
fetum.
Hluta árangurs af þessu starfi ts-
leifs gefst almenningi nú kostur
á að sjá i Bogasal Þjóðminja
safnsíns, en þar heldur tsleifur nú
sýningu á 30 málverkum sinum,
sem öll eru til sölu. Er verð mál-
verkanna frá kr. 15 þúsund til 45
'þúsund. Sýningin verður opin til
6. febrúar n.k.
aftur að bræla, og að sögn Jakobs
Jakobssonar fiskifræðings varð
loðnan aldrei virkilega þétt áöur
en byrjaði að bræla aftur, en á
stóru svæði mátti finna loðnu-
torfur og dreif frá Alviöru-
hömrum austur i Meðallandsb/ 1
morgun fór veðrið aftur að skána
en er siðast fréttist, voru
bátarnir ekki byrjaðir aö kasta,
vegna þess hve þungur sjór var.
Kl. 9 i gærmorgun höfðu eftir-
taldir bátar tilkynnt afla sinn:
Þorsteinn með 250 tonn, Grind-
vikingur 210, Hilmir 350, Asgeir
280, Náttfari 240, örfirisey 320,
Gisli Arni 350, Jón Garðar 330,
Vörður 220, Asberg 320, Isleifur
180, Þórður Jónasson 240, Jón
Kjartansson 400, Ölafur Sigurðs-
son 240, Fifill 300, Loftur Bald-
vinsson 420, ísleifur 4. 195, Seley
220, Óskar Halldórsson 280,
Akurey 220, Öskar Magnússon
200, Súlan 260, Birtingur 260 og
Börkur 200.
Kosið í Dagsbrún
Stjórnarkjör fer fram i
Verkamannafélaginu Dagsbrún
nú um helgina. Kosið er um tvo
lista, A og B. Kosiö veröur i
Lindarbæ niðri, og hefst kosning
kl. 10 f.h. I dag og stendur yfir til
klukkan sex eftir hádegi. A
sunnudag hefst kosning klukkan
tiu fyrir hádegið, og kosningu
lýkur kl. 10 um kvöldið.
Kosningaskrifstofa A listans er á
Freyjugötu 27, simar: 2 56 23, -
2 56 26, - 2 56 29. A kjörskrá
munu vera um 3.150 þegar
kosning hefst. Kosningarétt hafa
aðeins aðalfélagar, sem hafa
greitt árgjald fyrir árið 1971.
Þeir, sem skulda, geta greitt
árgjaldið meðan á kosningu
stendur, og öölatt viö það at-
kvæðisrétt.
Verð á loðnu
ÞÓ - Reykjavik.
Verðlagsráð sjávarútvegsins
ákvaö á fundi sfnum á fimmtudag
eftirfarandi lágmarksverð á
loðnu frá byrjun loðnuvertiöar til
15. mai 1972;
Fersk loðna til frystingar og i
beitu: hvert kiló kr. 4.00. 1 frétt
verðlagsráðsins segir, að ó-
heimilt sé að dæla loðnunni úr
skipi. Þá er vinnslumagn aðeins
talið innvegin loðna að frá-
dregnu þvi magni, er vinnslu-
stöðvarnar skila i verksmiðju.
Verðið er miöað við loönuna
komna á flutningstæki við hlið
veiðiskips.
NU VITA VERZLUNARMENN
L0KS HVAÐ ÞEIR FÁ í KAUP
OÓ-Reykjavik.
Kveöinn var upp i gær gerðar-
dómur i máli verzlunarmanna og
vinnuveitenda þeirra. Kaup- og
kjaradeilu verziunarmanna
lyktaði 4. des. s.l. með samkomu-
lagi, en samið var um að nokkur
atriði, sem ekki náðist endanlegt
samkomulag um þá,
skyldu sæta úrskurði gerðar-
dóms. Meginatriðin sem gerðar-
dómur fjallaði um var breyting á
launastiga og lokunartimi, og
lengt orlof verzlunarmanna. Þá
átti gerðardómurinn að skera úr
um kröfu vinnuveitenda þess
efnis, að ákvæði um lokunartima
sölubúða yrði fellt út úr samningi
og að skera úr ágreiningi deilu-
aðila um deilitölu,
Niðurstaða dómsins var sú, að
krafan um lengt orlof og sérstakt
álag var ekki tekin til greina,og
ekki heldur krafan um að fella
lokunartima sölubúöa út úr
samningi.
Deilitala var ákveðin 160 fyrir
skrifstofufólk og 170 fyrir af-
greiðslufólk.
Á meðfylgjandi töflu sést hver
grunnlaun verzlunarfólks eru frá
1. des. s.l. En við þessar upp-
hæðir bætist 8.37% visitala. 1. júni
nk. hækka launin um 4% og 1.
marz 1973hækka þau um 6%, eins
og samningar verkalýðs-
félaganna gera ráð fyrir.
Gerðardóminn skipuðu þrir
fulltrúar tilnefndir af borgar-
dómara og tveir fulltrúar til-
nefndir af hálfu hvors deiluaðila.
Fulltrúar beggja deiluaöila gerðu
athugasemdir viö nokkur atriöi i
úrskurðinum við undirskrift.
Grunnlaun frá 1. des. 1971 Laun eftir:
Lokkur Byr>i unarlaun 1 ár 3 ár 5 ár 8 ár 12 ár
kr. kr. kr. kr. kr. kr.
1. 16.240
2. 16.500 17.080 17.660 18.240 18.810 19.390
3. 17.200 17.810 18.410 19.010 19.610 20.210
4. 18.100 18.740 19.370 20.010 20.640 21.270
5. 19.200 19.880 20.550 21.220 21.890 22.560
6. 20.500 21.220 21.940 22.660 23.370 24.090
7. 22.200 22.980 23.760 24.540 25.310 26.090
8. 24.300 25.160 26.010 26.860 27.710 28.560
9 . 27.200 28.160 29.110 30.060 31.010 31.960
Hús brann til kaldra kola
BS-Hvammstanga.
Ibúðarhúsiö að
Utibleiksstöðum i Miðfiröi brann
til kaldra kola i morgun, og inni
brunnu svo til allir innan-
stokksmunir.
Það var um kl. 6.30 i morgun,
að samband var haft við sim-
stöðvarstjórann á Hvammstanga
og hann beöinn aö ræsa út slökkvi
lið, þar sem kviknað væri i
ibúöarhúsinu aö Utibleiksstööum.
Slökkvilið kom mjög fljótt á
staðinn, en húsið var þá allt
alelda, og gátu slökkviliðsmenn
ekkert gert annað en aö slökkva I
eldinum. Heimilisfólkið, sem eru
hjón með 6 börn, höfðu getað
bjargað smávegis af innanstokks
munum,en allt annað brann.
Um kl. 7.30 var húsið fallið til
grunna, en það var nýlegt timb
urhús á steinsteyptum grunni.
Pressuball
Þeir hjá blaöamannafélaginu
hafa ákveðið að halda pressuball i
ár og bjóða Bernadettu L'e»’lin til
hófsins. Pressuböllinhafaætið þðtl
hinn mesti viðburður I skemmz.
tanalifinu, og þangað hefur verið
boðið frægu fólki, eins og Heath,
forsætisráðherra Breta, og Jens
Ottó forsætisráðherra Dana.
Báðir þessir menn gegndu að visu
ekki svona háum embættum,
þegar þeir voru gestir Blaða-
mannafélagsins, en upphefð
þeirra fylgdi I kjölfarið. Með
þessu er ekki veriö að spá þvi, að
þegar Bernadette Devlin hefur
drukkið istaöskálina með
islenzkum blaöamönnum, verði
hún umsvifalaust gerð aö for-
sætisráðherra Noröur - Irlands.
Umbrotin á Norður - trlandi
hafa skapað þjóðhetjur. Enga
siika hetju ber þó hærra en
Bernadettu Devlin. Hún minnir
um margt á söguna af Jóhönnu
frá örk, sem snerist af slikum
krafti gegn fjendum lands sins, að
konungur hennar sá ekki annað
ráð vænna, samkvæmt siðvenj
unni, en snúast gegn henni og
sanniá hana villutrú. Sem betur
fer lifir Devlin ekki slíka tima
hindurvitna og fáfræði, en
baráttan hefur ekki breytzt.
Bretar voru búnir aö hengja og
skjóta slatta af Irskum frelsis-
hetjum áður en tókst að stofna
irska lýöveldið. Skiki af landinu
varö þá útundan, og nú er komiö
aö skuldadögunum. trsk frelsis-
barátta er aftur I algleymingi.
Þar stendur Bernadette Devlin I
fararbroddi. Hún er orðin eins
konar tákn þessarar baráttu.
Andstaða mótmælenda hrin ekki
á henni, og hana bita ekki vopn.
Hún hefur janfvel haft tima til að
eignast erfingja mitt i darraðar-
dansinum. Það er ánægjulegt að
þessi unga kona skuli hafa þegið
boð blaðamanna um að sitja
pressuballið, og nú geta islenzku
rauðsokkurnar iitið upp. Sjáift
fagnaðarerindið holdi klætt mun
stiga niður tii þeirra.
Svarthöföi.