Tíminn - 29.01.1972, Side 9
LAUGARDAGUR 29. janúar 1972
TÍMINN
*9
Þau þurfa líka hvíld
að loknum starfsdegi
Það var glatt á hjalla hjá
bömunum í Tjarnarborg í
glampandi sólskini og snjó á
mánudaglnn var. Tjarnarborg
er meðal elztu leikskóla borg-
arinnar. Þar eru nú 70 börn á
morgnana og 70 börn eftir há-
degið, en fóstrur og starfsstúlk-
ur eru átta með íorstöðukon-
unni. Konurnar, sem gæta.
barnanna sögðu, að þau kæmu
vel klædd að heiman og vel
undir það búin að leika sér úti
í frosti og snjó.
Klukkan var farin að halla í
þrjú þegar við áttum leið hjá
Tjarnarborg, og síðdegisbömin
voru að tínast inn rjóð og heit
eftir að hafa leikið sér frá há-
degi í góða veðrlnu. Við fylgd-
umst með einni deildinni af
fjórum, en börnin úr henni
sögðust flest vera 5 ára, og hjá
þeim gætti nokkurs stolts þeg-
ar þau skýrðu frá því, að þau
væm elzti hópurinn í leikskól-
anum. Leið þeirra lá upp stiga,
sem er utanvert á gafli þessa
gamla húss, sem sannarlega er
nýtt tll hins ýtrasta og vlrðist
allt titra og hrærast með þeim
bylgjum af lífi og fjöri, sem 70
þriggja til sex ára gömul börn
gefa frá sér. Flmm ára bömin
bröltu upp stigann og sögðu
okkur frá viðburðum dagsins.
Þegar inn var komið var farið
úr útifötunum og síðan þvoðu
sér allir um hendur, því að
brátt var kominn kaffitími.
Eftir nokkurn galsa vora bömin
komin í fallega röð, en síðan
gengu þau inn í stofuna sína.
Meðan börnin hvíldust fyrir
máltíðina, virtum við fyrir okk
ur leikföng, sem þarna eru,
myndir á veggjum af mat, sem
er hollur fyrir börn, skemmti-
legar myndir af krökkum, og
margt fleira. Svo fóra bömin
að borða bitann sinn, og þegar
við kvöddum var síðasti hluti
dagsins að hefjast, en þá kenna
fóstrurnar börnunum söngva
og leiki, leiðbeina þeim við að
teikna og föndra.
DAGHEIMILIN NÚ OPIN
LENGUR
Um 1600 börn eru nú daglega
á leikskólum og dagheimilum í
Reykjavík ýmist hálfan eða all
an daginn, og er þó fjarri því
að eftirspurn sé annað. Um 500
böm era á 11 dagheimilum í
borginni, en um 1100 börn dvelj
ast allt að fjórum tímum á dag
í jafnmörgum leikskólum. Nýr
leikskóli, Arnarborg, hefur tek-
ið til starfa í Breiðholtshverfi,
og dagheimili tekur þar til
starfa í vor. Þá er verið að
byggja tvo aðra leikskóla í
Reykjavík, sem eiga að verða
tilbúnir á þessu ári, annar er
við Leirulæk en hinn í Foss-
vogi.
Nú um áramótin var starfs-
tími dagheimllanna lengdur, en
þjónusta þeirra kom áður ekki
að fullum notum fyrir fólk, í
mörgum starfsgreinum. Dag-
heimilin eru nú opln frá því
7.30 á morgnana til 6.30 síð-
degis, en á laugardögum 7.30—
um 12.15. Þó er foreldrum bent
á að hámark sé, að börnln
dveljist níu klukkustundir á
dagheimilunum, eftir þann
tíma þarfnist þau hvíldar og
næðis heima hjá sér, engu síður
en fullorðnir að loknum vinnu-
degi.
Leikskólarnir eru hins vegar
starfræktir fimm daga vikunn-
ar frá því tæplega átta til rúm
lega fimm, en hlé gert í hádeg-
Inu og þá er líka skipt um
barnahópa. Þeir foreldrar leik-
skólabarna, sem þurfa að hafa
vist fyrir börn sín á laugar-
dagsmorgnum, geta þó farið
með þau á næsta dagheimili.
Gjald fyrir börn á dagheim-
ilum og leikskólum hefur verið
óbreytt síðan 1970; 2.200 kr.
fyrir eldri bömin á dagheimil-
um, en 2.400 kr. fyrir þau yngri,
en gjaldið í leikskólunum er
1.200 kr. Stjórn Barnavinafé-
lagsins Sumargjafar, sem rek-
1800
börn
að leik
ur dagheimilin og leikskólana
í Reykjavík, hefur sótt um að
hækka gjöldin verulega, en
rekstrarkostnaður heimilanna
hefur hækkað mjög á þessu
tímabili, t .d. var hann 37,15%
hærri árið 1971 heldur en ár-
ið 1970.
ANNA EKKI EINU SINNI
FORGANGSHÓPUNUM
Svo sem áður var sagt koma
færri bömum sínum á dagheim
ili og leikskóla en vilja, og á
það elnkum við um dagheim-
ilin. Þau geta ekki einu sinni
veitt viðtöku öllum börnum ein
stæðra mæðra, sem óska að
koma börnum sínum í dagvist-
un. Þó hafa börn einstæðra
mæðra forgangsrétt umfram
önnur á dagheimilunum. Næst
börnum einstæðra mæðra
ganga börn ekkla og einstæðra
feðra, sem hafa ónóga heim-
ilishjálp, börn, sem búa við
erfiðar heimilisástæður, veik-
indl o. s. frv., síðan koma böm
námsmanna og loks börn, sem
er uppeldisnauðsyn að dvöl á
dagheimili, að dómi sérfróðra
manna.
Unnið er nú á vegum Reykja-
víkurborgar að könnun á þörf
fyrir dagheimili hér. Ekki er
að efa að hún er mikil, því mik-
ill fjöldi fólks hefur böm sín í
gæzlu hjá ýmsum einkaaðilum,
og flestir telja æskilegra, að
þau njóti umönnunar sérmennt
aðs starfsfólks þann tíma, sem
foreldrarnir eru í vinnu.
Fyrir ári gerðu nokkrar ung-
ar konur könnun á dagheim-
ilaþörfinni í Kópavogi. Komust
þær að þeirri niðurstöðu, að ef
stefna ætti að því að fullnægja
þörf á dagvistun fyrir börn á
aldrinum fram til sex ára
nokkru fyrir aldamótin 2000,
þá yrði að byggja eitt dagheim
ili á ári í Kópavogi fram til
þess tíma. Þetta töldu ungu
konurnar engan veginn ofætl-
un, þar sem aukin þátttaka
kvenna í atvinnulífinu skapaði
auknar tekjur bæjar- og ríkis-
sjóðs.
í Kópavogi voru í fyrra 2000
börn á aldrinum 0—6 ára. Um
250 af þessum börnum voru í
gæzlu hér og þar hjá einkaað-
ilum, en mæðurnar unnu úti
annað hvort hálfan eða allan
daginn. Þannig vantaði 250
pláss á dagheimilum fyrir
börn kvenna, sem þegar unnu
úti, eða a. m. k. 5 dagheimili,
en æskileg stærð dagheimila
þykir að þau rúmi um 40 börn.
Könnunin sýndi ennfremur, að
mæður um 600 barna á þessum
aldri í Kópavogi hafa hug á
að vinna úti, geti þær komið
börnum sínum í gæzlu. En það
merkir að 12—15 dagheimili
vantar til viðbótar.
Nú eru starfrækt eitt dag-
heimili og einn leikskóli í
Kópavogi. Á dagheimilinu eru
40 börn á aldrinum 2—6 ára og
að auki 20 börn á leikskóla-
deild. Á leikskólanum eru 80
börn í hálfsdagsvistun. Engin
heimili eru í Kópavogi fyrir
böm innan tveggja ára.
20 DAGHEIMILI VANTAR NÚ
ÞEGAR t KÓPAVOGI,
145 (?) HÉR
Búast má við, að þörfin á
nýjum dagheimilum og leik-
skólum sé hlutfallslega svipuð
í Reykjavík og Kópavogl, þ. e.
a. s. að um 145 heimili vanti
nú þegar.
Já, dagheimili og leikskólar
eru mjög í svlðsljósinu um
þessar mundir. Næsta þriðju-
dag, 1. febrúar, verður rætt um
uppeldlsgildl dagheimila í nýj-
um útvarpsþætti, „Ég er for-
vitin — rauð“, kl. 2.30 e. h.
Þar verður einnig gerður sam-
anburður á uppeldi barna, sem
eingöngu eru heima hjá sér, og
þeirra, sem einnig dveljast á
dagvistunarstofnunum. Eflaust
verður forvitnilegt fyrlr áhuga-
fólk um þessi mál að hlýða á
þáttinn. S.J.
Myndirnar
tók
Gunnar,
Ijósmyndari
Tímans,
>■
i
Tjarnarborg.