Tíminn - 17.02.1972, Qupperneq 11

Tíminn - 17.02.1972, Qupperneq 11
Fimmtudagur 17. febrúar 1972 TÍMINN Sá sem fær flest atkvæði i atkvæðagreiðslunni um „Handknattleiks- mann ársins 1972-fær eina af þessum veglegu styttum til eignar. HANDKNATTLEIKSMAÐUR ÁRSINS Ég kýs....................... sem handknattleiksmann ársins Nafn.., Heimili Simi .. Nú veljum við.......... Handknattleiksmann ársins 1972! Klp-Reykjavik. i dag hefst atkvæöagreiðsla Tímans um „Handknattleiks- mann ársins 1972 Eins og flestum handknattleiksunnendum, svo og öðrum, er fylgjast með fþróttum er kunnugt fer isiandsmótinu i 1. og 2. deild karia senn að Ijúka. Strax að þvi loknu hefst hér mikið handknattieiksmót með þátttöku þriggja erlendra liða, og siðan heldur landsliðið til Spánar, þar srm það rnun taka þátt I undan- keppni O iymp í u 1 eikanna. Það er þvi ekki seinna vænna, að fara af stað með atkvæða- greiðsluna, enda hafa margir haft samband við okkur að undan- förnu, og spurt hvort hún fari ekki að hefjast. Þetta er i fjórða sinn, sem Timinn stendur fyrir atkvæða- greiðslu meðal almennings, um hverjum beri að hljóta sæmdar- heitið „Handknattleiksmaður ársins” I fyrsta skipti sem atkvæða- greiðslan fór fram árið 1969, var það Geir Hallsteinsson, FH sem var valinn. Arið eftir hlaut hann einnig hnossið, en I fyrra varð það Ólafur H. Jónsson, Val, sem var kjörinn „Handknattleiksmaður ársins”. Að sjálfsögðu eru skiptar skoðanir um ágæti fyrirkomulags þessarar atkvæðagreiðslu. En hugmynd okkar, þegar henni var hleypt af stokkunum, var að gefa hinum almenna áhorfenda tæki- færi til að láta álit sitt i ljós. Þannig hefur það verið i þau sjö skipti, sem kosiö hefur verið, annað hvort um handknattleiks- eða knattspynumann ársins. Þátttaka hefur aukizt með hverju ári. Hefur engin önnur atkvæða- greiðsla hjá neinu blaði verið jafn almenn og þessi, en flest blöðin hafa einhverntima haft meðal lesenda sinna atkvæðagreiðslu um beztu hljóðfæraleikarana og annaö. Sama fyrirkomulag verður á þessari atkvæðagreiðslu og hinnum fyrri. Allur galdurinn er að klippa (eða rifa) atkvæða- seðilinn, sem hér er á síðunni, út og fylla hann siðan út eftir beztu getu og samvizku. Setja hann siðan i umslag og skrifa utaná það Handknattleiksmaður árs- ins, dagblaöið Tíminn, Box 370, Reykjavik, og segja siðan um- slagið i póst. Einnig má fara með bréfið á afgreiösluna i Banka- stræti 7. Auðveldara getur það ekki verið, og nú vonum við bara að sem flestir verði með. GLIMA 1 frétt frá Glimusambandi Islands segir að Landsflokka- gliman 1972 verði háð dagana 8.-9. april n.k., islandsgliman 7. mai og Sveitaglima Islands hefjist þann 20. mai. Nánar mun verða sagt frá þessum mótum siðar. Danir missa enn einn mann úr knattspy rnunni \ Danir hafa nú misst enn einn knattspyrnumann yfir i atvinnumennskuna. i þetta sinn misstu þeir íver Schriver frá Vejle, sem hefur undir- ritað samning við 1. deildar- liðið Sturm Graz i Austurríki. - segir Avery Brundage formaður Alþjóða t ólympiunefndarinnar „Mistök að Rússar skuli vera með í Olympíuleikunum” öll börn og unglingar á þessum aldri eru velkomin til að taka þátt i keppninni. Keppt verður að öllu forfallalausu i nágrenni Skiða- skálans i Hveradölum og verða mótin auglýst i blöðum og útvarpi hverju sinni. 1 verðlaun verða veittir 18 bik- arar sem verzlunin Sport- val,Reykjavik hefur gefið til keppninnar. Til þess að hljóta verðlaun verður að taka þátt i öllum þremur keppnunum. Að þeim loknum verður timi úr öllum þferðum lagður saman og þrir fyrstu keppendur i hverium flokki hljóta verðlaunabikara til eignar. — Það eru mistök að Rúss- arnir skuli fá að vera með i Olympiuleikunum. Þetta voru orð formanns Alþjóða- olymplunefndarinnar, Avery Brundage, á siöasta degi keppninnar i Sapporo. Þessi yfirlýsing formannsins, scm barizt hefur eins og ljón fyrir þvi að útiloka þá, sem hann telur hafa brotið áhuga- mannareglurnar, vakti gifur- lega athygli og umtal. Rússarnir sjálfir urðu æfir af vonzku, en þátttakcndur og forráðamenn frá Vestur- Evrópu, klöppuðu saman höndunum og sögðu — Loks- ins, loksins! — Þeir einu, sem ekkert sögðu, voru þeir, sem koma frá öðrum löndum Aust- ur-Evrópu — enda erfitt um vik á allan fiá'tt lyrir þá að segja nokkuð. Astæðan fyrir þessari yfir- lýsingu formannsins, kom eft- ir að sænska biaðið Dagens Nyheter, sagði frá þvi, aö rússneski Isknattleiksmaður- inn, Anatolij Firsov, sem er taiinn einn bezti isknattieiks- maður i heimi, hefði tekjur af iþrótt sinni. Sagði blaðið frá þvi að Firsov væri biaðamaður viö blaö, sem héti Socialistitskaja Industria, og skrifaði þar ein- göngu um Isknattleik. „Aðal- bomban” var þó, að hann skrifaði um leikina i isknatt- leikskeppninni i Sapporo, og sendi greinarnar jafnharðan heim. Þegar þessi frétt barst til Sapporo, fór heldur að siga I brýnnar á Frökkum og Aust- urrikismönnum, en frá þeim frá leikunum. Karl Schranz, Austurriki, sem þó fengust engar vottfestar sannanir á að hefði þegið fé fyrir að auglýsa ákveðna vörur, og Annie Famose, Frakklandi, fyrir að taka þátt I útsendingu frá Sapporo I Itadio Lusemborg, en þar er hún meöal margra starfsmanna. Þvi hefur löngum verið haldiö fram, að Rússarnir og flestar aðrar Austur-Evrópu- þjóðir tefli fram á öllum Olympiuleikum atvinnumönn- um og konum I allar greinar. Þetta fólk sé skráð I vinnu hjá hinum og þessum rikisfyrir- tækjum, en það sjáist þar sjaldan eöa aldrei, enda æfi það 6 til 8 tima á dag. Þetta hefur Alþjóða olympiunefndin aldrei hlustað á, enda Austur-Evrópa lokuð fyrir vottfestar upplýsingar af þessu tagi. Nefndin hefur heldur snúið sér að keppend- um frá Vestur-Evrópu, sem hún hefur greiðan aðgang að. Og hefur látið finna fyrir sér á þeim slóðum, eins og t.d. nú I Sapporo. Þegar Brundage, var spurð- ur um hvaö honum þætti um þetta með Firsov, svaraöi hann og var þungur I skapi, — Það eru mistök að Rússarnir skuli fá aö vera með I Olympiuleiknum. Við höfum hugsað okkur að breyta regl- unum þannig að aðeins áhuga- menn verði með I Olympiu- leikum framtiðarinnar. Þær reglur verða Rússarnir, svo og aðrar þjóðir að gangast undir. Framhald á bls. 14. Það er von Skiðafélagsins, að mótin vekji áhuga unglinganna og verði til að auka áhuga á skiðaiþróttinni hjá almenningi. Fyrsta mótið fer fram við Skiðaskálann i Hveradölum, sunnudaginn 20.febrúar n.k. ef Skiöafélag Reykjavikur gengst fyrir unglingamótum I svigi i vetur. Til keppninnar hefur verzlunin Sport- val á Laugavegi 116 gefið 18 verðlaunabikara. A myndinni er stjórn Skiðafélags Reykjavikur ásamt gefandanum og öllum bikurunum. Talið frá vinstri: Haraldur Pálsson, Leifur Muller, Jón Aðalsteinn Jónas- son, eigandi Sportvals og Ellen Sighvatsson. (Timamynd Gunnar) Skíðakeppni fyrir unglinga 10-14 ára Skiðafélag Reykjavikur mun i vetur standa fyrir þremur ung- lingamótum i svigi. Keppt veröur i þremur aldursflokkum bæði I drengja og stúlknaflokkum aldurs flokkar eru: 13 og 14 ára stúlkur og drengir 11 og 12.......... 10 ára og yngri. veður og færð leyfir og verða keppendur skráðir kl. 12 við Skiðaskálann en keppnin hefst kl. 14. Ef veður verður tvisýnt verða upplýsingar gefnar i Skiðaskálanum i Hveradölum.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.