Tíminn - 17.02.1972, Page 16
Reykjavíku rmótið:
Georghiu
enn efstur
Harvey fékk einn og hálfar
vinning á einu kvöldi
ÞÓ-Reykjavík.
Biðskákir voru tefldar á Reyk-
javikurmótinu i fyrrakvöld.
Fimm skákir voru tefldar og lauk
fjórum þeirra, skák þeirra
Timmans og Braga fór aftur i bið.
Harvey Georgsson kom mjög á
óvart þegar biðskákirnar voru
tefldar, lauk hann tveimur
skákum og út úr þeim hlaut hann
einn og hálfan vinning, en hafði
engan áður. Harvey vann bið-
skák sina viö Guðmund Sigur-
jónsson, sem er alþjóðlegur
meistari, og svo geröi Harvey
jafntefli við Keene, sem einnig er
alþjóðlegur meistari. Timman og
Jón Kristinsson gerðu jafntefli og
jafntefli varð einnig hjá Braga og
Freysteini.
Staðan á mótinu er nú þessi að
Georghiu er efstur meö 6 vinn-
inga, Hort er annar með 5 1/2
vinning, þriðji er Timman með 5
vinninga og biðskák. t 4-7. sæti
eru Friðrik, Anderson, Stein og
Tukmakov meö 5 vinninga.
9. umferð var tefld i Glæsibæ i
gaérkvöldi, og þá áttu að tefla
saman m.a. Friðrik og Anderson,
og Guðmundur og Timman, Hort
og F'reysteinn, Georghiu og Jon
Kúó Keene og Jon T., Stein og
Harvey, Gunnar og Tukmakov,
Guðmundur og Timman, Bragi og
Magnús.
Frú Ivring
fangelsuð
NTB— New York.
Dómari i Bandarikjunum, sem
fjallað hefur um þá ósk svinss-
neskra yfirvalda, að frú Ediht
Ivring verði framseld, en hún er
svissneskur rikisborgari, ákvaö i
gær, aö frúin skyldi fangelsuð, en
ekki framseld aö svo stöddu.
Frú Irving er sem kunnugt er
eiginkona rithöfundarins Cliff-
ords Irving, sem hefur haldiö þvi
fram, að hafa skrifaö ævisögu
hins dularfulla auökýfings
Howard R. Hughes. Frúin lagði
650 þúsund dollara inn i sviss-
neskan banka á nafni H.R.
Hughes og tók þá út aftur.
Ssvissneska stjórnin hafði áöur
gefið út handtökuskipun á bæði
hjónin fyrir fjársvik.
flfli Ifnubáta í
Grindavík glæðist
ÞÓ — Reykjavik.
Aflabrögð hafa verið með ein-
dæmum treg i Grindavik þangað
til nú siðustu daga, en i fyrradag
fengu linubátarnir 10 — 12 tonn,
sem er ágætis afli. Aftur á móti er
afli mjög tregur hjá netabátum,
en menn vonast eftir að neta-
fiskur fari að gæðast, sagði
Guðsteinn Einarsson i Grindavik.
Nú er farið að verða vart við
þorsk i loönugöngunni, en lengi
vel sást enginn þorskur i loðnunni
og voru mennsvartsýnir á komu
hans. Annars var loðnan það
snemma á ferðinni i ár að það var
ekki vel að marka
Vinnuaflskortur
í Bolungavík
Krjúl — Bolungavik.
Afli linubáta hér er I vetur mun
betri en hann hefur veriö undan-
farin ár. Hafa bátarnir fengið allt
að 15 tonn i sjóferð.
Næg atvinna er hér I Bolunga-
vik, enda skortur á vinnuafli.
Fólkið hér vinnur nú aldrei
og skemur en 10 klukkustundir á
dag og hefur þurft að fá vinnuafl
úr miðskólanum við löndun og
útskipun.
Burmah
Frá mótmælagöngunni I Enniskillen á Norður-trlandi. Myndin var tekin, þegar göngumenn voru aö hópast
saman rétt áður en gangan hófst. (UPI)
Flutningaverkamenn í Bretlandi:
r
s Hvetja til refsiaðgerða
jvegna landhelgisútfærslu
SB—Reykjavik
Forystumenn Sambands
flutningaverkamanna i Hull
hafa sagt, að ef islenzka
stjórnin héldi fyrirætlunum
sinum i landhelgismálinu til
streitu, muni félagsmenn
setja algjört löndunarbann á
öll islenzk skip i brezkum
höfnum.
Samband flutningaverka-
manna er stærsta verkalýðs-
félag á Bretlandseyjum og sér
það um uppskipun á fiski i
flestum aðaihöfnum og einnig
um dreifingu hans.
Sambandið leggur nú hart
að berzku stjórninni að gripa
til refsiaðgerða, þegar Islend-
ingar færa út landhelgina i 50
milur. Formaður Sambands
flutninga verkamannanna i
Hull og nágrenni sagði, að
þaðan hefði sambandið sent
tvær sendinefndir til þingsins i
London, til að skýra þing-
mönnum frá áhyggjum sinum
út af fyrirætlunum Islendinga.
Sagði hann, aö ef landhelgin
yrði stækkuð, væri grundvell-
inum kippt undan brezka tog-
araflotanum, sem sé að mestu
leyti háður veiðum á tslands-
miðum.
Félagsmenn samtakanna,
sem er stærsta verkalýðsfélag
á Bretlandseyjum með yfir
milljon félaga — sjá um af-
fermingu fiskiskipa og dreif-
ingu aflans i nær öllum helztu
útgerðarborgum Bretlands.
Þá sagði formaðurinn, að
fulltrúar sambandsins væru
hvenær sem er reiðubúnir til
að ræða við tslendinga um
verndun fiskistofna, möskva-
stærð og þess háttar ráðstaf-
anir, en ef islenzka stjórnin
héldi fyrirætlunum sinum til
streitu, myndu félagsmenn
setja algjört afgreiðslubann á
öll islenzk skip i brezkum
höfnum. Hann bætti þvi við, að
sambandið hefði einnig farið
þess á leit við stjórnina, að
sett yrði bann við öllum inn-
flutningi á islenzkum vörum,
ef af útfærslunni yrði, og þeir
hefðu farið fram á, að brezki
flotinn gerði auknar ráðstaf-
anir til verndar brezkum tog-
urum á Islandsmiðum.
Að lokum sagði formaður-
inn, að ef samningar tækjust
milli Islands og Bretlands um
útfærslu landhelginnar, horfði
málið öðruvisi við og þá yrði
ákvörðunin um löndunarbann-
ið tekin til endurskoðunar.
Bernadetta ekki i fangelsi í bráð
NTB-Bclfast.
llafðar voru nokkrar áhyggjur
af þvl á islandi fyrir helgina, að
Bernadetta Devlin yrði að hætta
við lslandsfcrð sina i næsta
mánuöi, þar sem hún á yfir höfði
sér fangelsisdóm — cn nú er hins
vegar ljóst, að Bernadetta verður
frjáls til að koma hingaö á
Pressuballiö 17. marz.
Fimm norður—irskir þingmenn
með Bernadettu I fararbroddi,
komu i gær fyrir réttinn i Newry,
ákærð fyrir aö hafa tekið þátt i
henni ólöglegu mótmælagöngu
þar fyrir hálfri annarri viku.
Mikill mannfjöldi var saman
kominn við dómshúsið og fagnaöi
fólkið ákaft hetjunum.
Dómarinn ákvað að fresta
málinu um einn mánuð og leyfði
sakborningunum að fara leiðar
sinnar. Bernadetta talaði til
fólksins,er hún yfirgaf húsið.
Nixon til
Kína á
morgun
NTB—Reuter—Washington
Nixon Bandarikjaforseti mun
ganga um borð i sina blá-hvitu
Boeing-707 flugvél á morgun, og
verða það fyrstu skrefin hjá hon-
um á hinni 16 þús. km leið til
Peking — ferð, sem á ekki sinn
lika á seinni timum.
Aðalástæðan fyrir heimsókn
Nixons til Peking er að reyna að
binda endi á hinn mikla fjandskap
og þá einangrun, sem hefur verið
á milli Bandarikjanna og Kina
siðan kommúnistar tóku við völd-
um i Kina árið 1949. Þessi ferð
Nixons verður vafalaust merki-
legasta opinbera heimsóknin á
þessu ári og er kannski merkileg-
ust fyrir Nixon sjálfan, sem var
þekktur fyrir ósveigjanlega af-
stööu til Mao og Chou-en-lai á
fyrri árum. Þessi vikuheimsókn
Nixons til Kina er vafalaust há-
tindurinn á þriggja ára forsetatið
hans.
Þegar heimsókn Nixons til Kiná
var kunngjörö almenningi i fyrra,
lagði fólk við hlustirnar. Tilkynn-
ingin um heimsóknina varð til
þess, að koma af stað flóöi af alls-
konar ágizkunum. Nixon var aft-
ur á móti fljótur aö segja, að hann
myndi ekki ræða þau mál við leið-
toga Kina, sem eru hvað við-
kvæmust i sambandi landanna.
Hinn fyrirhugaði stórfundur I
Peking milli Nixons og Mao-tse-
tung, formanns kinverska
kommúnistaflokksins, er árangur
leynilegra viöræðna og margra
yfirlýsinga, sem orðið hafa til
þess að bæta sambúö landanna.
Nixon mun, aö öllum likindum,
fá hlýjar viðtökur við komuna til
Peking. Sjálfur gerir Nixon sér
þaö ljóst, að eftir er að leysa
mörg erfið vandamál, áður en
sambúð rikjanna getur talizt eöli-
leg. Oft hefur forsetinn verið að-
varaður um að gera sér ekki of
háar hugmyndir um árangur af
heimsókninni.
Nixon og frú munu dvelja tvær
nætur á Hawaii og eina á Guam
eyju. Nixon tapar einum degi á
leiðinni til Peking, er hann fer yf-
ir dagslinuna, og kemur hann til
Peking kl. 02.30 á mánudagsnótt.
Stór hluti timans mun fara i fundi
með Chou-en-lai og Mao. Helztu
málaflokkar, sem þeir munu
ræða, eru sambúöin milli Kina og
Bandarikjanna, skyldur Banda-
rikjanna gagnvart Formósu,
hræðslu Kinverja við Japan sem
hernaðarveldi og vaxandi áhrif
þess á Asiu og striöið i Viet-Nam.
Frá Peking fer Nixon til
Hangshow, þar sem hann mun
fara i skoðunarferðir og ræða við
kinverska ráöamenn. 27. febrúar
fer forsetinn til Shanghai, og þar
verður dagskráin lik þvi, sem hún
verður i Hanghow. Daginn eftir
verður haldið heim á leið.
ENN BEÐID EFTIR SVARI
FRÁ SPASSKY 0G FISCHER
ATHUGAÐ UM KAUP A HOTELSKIPI TIL ISLANDS
ÞÖ-Reykjavik.
,,Ég hef ekkert heyrt frá þeim
Fischer og Spassky ennþá, en við
biðum eftir svari frá þeim, ef
þeirra svör verða jákvæð þá
munum við hefja samninga viö
Belgrad,” , sagði Guömundur G.
Þórarinsson i viðtali við
Timann. —
Guðmundur sagði, að nú ynnu
aðilar að þvi, aö kaupa hingað
hótelskip og hefði það verið á döf-
inni i tvö ár. Ef af þeim kaupum
verður fjölgar hótelrúmum i
Reykjavik um allt að þvi
helming. Hugmynd þessara aöila
er að leggja skipinu hér og koma
hitaveitu um borð. Um þessar
mundir er hægt aö fá skemmti-
feröaskip fyrir frekar lágar upp-
hæðir, þar sem að sú kynslóö,
sem ferðast með farþegaskipum
er að liða undir lok. Nýja kyn-
slóðin ferðast með flugvélum, þar
sem tíminn skiptir miklu máli.
— Guðmundur sagði, að
samningar við Belgrad yrðu
vafalaust mjög flóknir, þar sem
semja þyrfti um sjónvarpstekjur,
auglýsingar og tekjur af móts
skrá... — Ef góðir samningar
nást ekki, verðum við að bakka
með mótið, sagði Guðmundur.