Tíminn - 18.02.1972, Side 20
„Ferðalag aldarinnar” hófst í gær
NTB—Washington
Nixon lagði af stað í
Kínaför sína í gær og er
ferðinni fyrst heitið til
Hawai. Á laugardaginn fer
svo Nixon til Kyrra-
hafseyjunnar Guam, en á
mánudaginn verður komið
til Peking um Shanghai.
Stór hluti heimsins mun
næstu dagana fylgjast með
þessari heimssögulegu ferð
í sjónvarpi.
Aður en Nixon lagði af stað i
gær, hélt hann stutta ræöu á gras-
flötinni sunnan við hvita húsiö og
hlýddu þúsundir manna á, þrátt
fyrir kulda.
Korsetinn lagði enn einu sinni á-
herzlu á, að fólk mætti ekki búast
við of miklum árangri af ferðinni,
þar sem vikulangar samræður
myndu ekki geta þurrkað úr
ósamkomulag siðustu 20 ára.
Annars sagði Nixon m.a.:
—Okkur mun framvegis greina á
um ýmislegt, en við verðum að
ákveða hvernig við getum verið
ósammála, án þess að berjast i
styrjöld. Ef samkomulag næst
Námamenn I verkfalli og stuðningsmenn þeirra safnast saman á Tower Iiill, áður en þeir gengu til þinghússins, til að leggja áherzlu á
kröfur sínar. (UPI mynd)
Fólk verður umburðarlyndara
í rafmagnsleysinu í London
Sovézki stórmeistarinn L. Stein:
L. Stein
Rússar tilbúnir að koma með skemmtiferða-
skip á einvígi Fischers og Spasskys
ÞÓ-Beykjavik.
Sovéski stórmeistarinn Leonid
Stein er mjög frjálslegur maður i
allri framkomu, og eftir að hann
hafði unnið skák sina viö Harvey
Georgsson i fyrrakvöld brá hann
sér fram i fremri salinn og talaði
við áhorfendur. Að sjálfsögðu
barst einvigi þeirra Spasskys og
Fischers fljótlega i tal. Það mátti
heyra á Stein aö Rússar væru
mjög áfjáðir i að halda einvigið
hér á landi, enda sagðist Stein
geta borið vitni um að allur að-
búnaður hér væri til fyrirmyndar.
Þegar farið var að tala um
skort á hótelherbergjum i Reyk-
javik, sagði Stein, að hann hefði
vitneskju um það, að Rússar
væru tilbúnir að leggja skemmti-
ferðaskipi hér i höfninni þann
tima sem skákmótið stæði yfir.
„Það vantaði aðeins beiðni um
það frá Skáksambandi íslands,”-
sagði hann.
Ekki vildi Stein trúa þvi, að
annar hvor keppendanna yrði
kominn með algjöra yfirburði
eftir fyrri umferðina i Belgrad,
sagöist hann þekkja þá Fischer
og Spassky það vel og minnti á
að yfirleitt hefði Fischer fariö
halloka fyrir Spassky.
A morgun laugardag teflir
Stein fjöltefli i Glæsibæ við 30
manns. Þátttakendur hafi með
sér tðfl. Þátttökugjald er kr. 300.
- segir Kjartan P. Kjartansson framkvæmdastjóri í símtali
SB-Reykjavík
Margir hafa eflaust velt fyrir sér, hvernig hið daglega llf á Bretlandi
sé þessa dagana f kiUda og rafmagnsleysi, vegna verkfalls kolanámu-
manna.
Blaðið haföi i gær samband við Kjartan Kjartansson, framkvæmda-
stjóra skrifstofu SÍS I London og spurði hann hvernig ástandiö væri á
vinnustöðum og heimilum I borginni.
— Auðvitað eru viss óþægindi
þessu samfara, sagöi Kjartan,
—en alls ekki svo, að lifið sé ó-
bærilegt. Rafmagn er tekið af i
þrjár stundir i senn, þannig að vel
má ná þvi að elda matinn inn á
milli og aö minnsta kosti kunnum
við íslendingar að klæöa af okkur
kuldann. Óheimilt er aö hita upp
skrifstofur og verzlanir og liggja
við þvi viöurlög. Hér á skrifstof-
unni klæöum viö okkur bara vel
og sitjum með penna I höndunum,
þvi skrifstofuvélar ganga að
sjálfsögðu ekki. Þetta er vel bæri-
legt og við höfum séö þaö verra.
Lyftur eru allar stöðvaðar, lika
þegar rafmagnið er á, þvi alltaf
er hætta á að einhver lokist inni
þegar straumurinn kemur svona
og fer. Ég held, að umferö i borg-
inni og i flestum byggingum sé
með eðlilegum hætti, en margt
gengur hægar. Fólk er umburða-
lyndara þegar vandi steðjar að
öllum og það er allt ekki óþolandi
ástand hér.
Hitt er svo annaö mál, hélt
Kjartan P. Kjartansson.
Kjartan áfram, að neyðarástand
er i landinu og iðnaðurinn allur I
klakaböndum. Við blýantnagarar
á skrifstofum höfum minnsta
hugmynd um allt. Við vönumst
að eitthvað fari aö hreyfast,
þegarskýrsla rannsóknarnefndar
um ástandið veröur lögð fram á
næstunni. Þá fer allt i gang i
næstu viku, svo fremi, að skýrsl
an verði þess eðlis, að náma
verkamennirnir fái einhverjar
kjarbætur.
tslendingum hér liöur öllum vel
og hafa ekki yfir neinu að kvarta,
biða bara eftir að allt fari að snú-
ast á ný.
1 blööunum má sjá, að sumt
miður gott fólk notar myrkrið til
að skýla gerðum sinum, en það er
þó ekkert óskaplegt. Það er engin
ástæöa til að gera mikið úr þessu
með vandræði mannfólksins, allir
eru svo umburðalyndir, sagði
Kjartan Kjartansson að lokum.
um það, er ekki hægt að segja
annað, en stórt skref hafi verið
stigið i þá átt að tryggja frið i
heiminum.
t fylgdarliöi Nixons eru 13
manns, meðal þeirra Rogers,
utanrikisráöherra og Kissinger,
ráðgjafi. Það var Kissinger, sem
fyrstur fór til Peking og kom
þaðan með heimboðiö til Nixon;
Siðan fór hann aftur til Kina til að
undirbúa komu forsetans.
Alls munu um 300 Bandarikja-
menn fara til Kina i sambandi við
för forsetans, þar af um 80 frétta-
menn, en flugvélar þeirra fóru
skömmu á undan þotu forsetans.
Nixon og Chou En—Lai hafa
þegar orðið ásáttir um, aö skýra
ekki ítarlega frá viðræðum
sinum, og að ekkert muni „leka
út” um þær.
Nixon og margir i fylgdarliði
hans, hafa siðustu dagana aflað
sér mikillar vitneskju um Kina,
með lestri skjala og bóka og við-
tölum viö Kinasérfræöinga.
Þessi sögulega ferö tekur enda
28. febrúar, þegar lagt verður af
stað til Alaska. Lent veröur siðan
i Washington nákvæmlega viku
áöur en fyrstu forkosningarnar
fyrir forsetakjörið fara fram.
11«
Föstudagur
18. febrúar 1972
J
Dagur útlend-
inganna
Utlendingarnir í fimm
efstu sætunum
Þó-Reykjavik.
Á Reykjavikurmótinu i fyrra-
kvöld tefldu þeir Friðrik og
Anderson saman. Skák þeirra
varð fjörleg framan af og hafði
Friðrik frumkvæðið lengi vel, en
er skákin fór i bið var staðan
mjög jöfn.
Erlendu meistararnir áttu ekki
i neinum vandræðum með landa
vora, t.d. hafði Stein unnið skák
sina við Harvey eftir tæpa tvo
tima, enda léku báðir mjög hratt,
skákin var um 30 leikir. Georghiu
vann Jón Kristinsson, Hort vann
Freystein, Tukmakov vann
Gunnar. Aðrar skákir fóru i bið og
eru þær flestar jafnteflislegar.
í gærkvöldi átti að tefla 10. um-
ferð. Staðan fyrir 10. umferð er
þessi: Georghiu er efstur með 7
vinninga, Hort er annar með 6 1/2
vinning, Stein og Tukmakov hafa
6 vinninga. Timman er með 5
vinninga og 2 BIÐSK$AKIR OG $1
6-7 sæti eru Friörik og Andersson
með 5 vinninga og biðskák.
A meðan 9. umferð stóð yfir i
fyrrakvöld hittum við Hólmstein
Steingrimsson, formann Tafl-
félags Reykjavikur, aðeins að
máli og spurðum hann hvernig
aösóknin hefði verið.
— Hólmsteinn sagöi, aö aðsóknin
væri heldur meiri en á siðasta al-
þjóðamóti, en hún væri lang mest
á sunnudögum, fimmtudögum og
laugardögum, þannig að á þessu
sést að sjónvarpiö hefur mikil í-
hrif á aðsóknina, sagði Hólm-
steinn.
Hólmsteinn sagði, að þær
skákir sem hefðu komið sér mest
á óvart i mótinu væru skákir
þeirra Friðriks og Horts, og
Indersons og Steins. Þá hefðu þeir
Guðmundur og Jón Kristinsson
ekki staðið sig eins vel og búizt
var við i fyrstu, og eins mætti
kannski segja að Friðrik hefði
ekki telft af mikilli hörku.