Tíminn - 10.03.1972, Side 7
Föstudagur 10. marz 1972.
TÍMINN
7
Fimmtán mínútur í
þurrkara
Dinky litli, kötturinn hennar
Mary Welch i Eastleigh i
Englandi, komst i hann krappan
hú um daginn. Hann lenti fyrir
einhver mistök i þurrkaranum
með þvotti frúarinnar, og i
fimmtán minútur snarsnerist
hann innan i þurrkaranum
innan um þvottinn. Hann kom
þó út heill á húfi, en dýra-
læknirinn, sem skoðaði hann á
V
Japönsk tizka
Stúlkan i svarta pilsinu og
munztruðu blússunni hér á
miðri myndinni er Hanae Mori,
einn þekktasti tizkuteiknari
Japans. Hún er hér á heimili
japanska sendiherrans i
London, og stendur sendiherra-
frúin við hlið hennar. (Einnig
svartklædd). Hjá sendiherra-
hjónunum hélt Hanae Mori
smátizkusýningu á klæðnaði,
sem hún hafði teiknað og látið
gera. Vissulega eru kjólar
sýningarstúlknanna nokkuð
óvenjulegir, þótt þeir séu ef til
vill ekki með neitt sérstökum
japönskum blæ.
eftir og sagði, að hann hefði
sennilega farið eina 800 hringi i
þurrkaranum, sagði ennfremur,
að hann hlyti að hafa misst ein
átta af sinum niu lifum.
Golda Meir lætur ekki
snúa sér
Ef Anwar Sadat, Leonid
Brezhnev og Richard Nixon
eiga erfitt með að hafa áhrif á
hana Goldu Meir, hvað haldið
þið þá að tizkuhúsin i Paris
megisegja? Um þau sagði þessi
gamla skörungskona i útvarps-
viðtali i Tel Aviv: Ég er þvi alls
ósammála, að einhverjir menn i
Paris hafi leyfi til þess að segja
einn góðan veðurdag, að nú
skuli allar konur stytta kjólana
sina, svo að þeir nái tæpast
niður á hné. Þetta segja þeir
hvort eð er einungis vegna þess,
að þeir verða að afla peninga á
einhvern hátt. Ég á einfalt
heimili og geng i gömlum
fötum. Annað finnst mér kjána-
legt. En snúum okkur svo að
Mirage þotunum á nýjan leik,
bætti hún svo við!
Giftu sig i Ijónabúri
Þau Oscar Salvioli og Norma
Zorzano i Cornadero á Italiu
fóru fram á það, að þau yrðu
gefin saman i heilagt hjónaband
i ljónabúri. Kaþólski presturinn
i bænum sagði, að annað hvort
yrðu þau gift i venjulegri
kaþólskri kirkju, eða alls ekki.
Unga parið gekk að þessu, að
hálfu leyti þó. Fyrst létu þau
prestinn gifta sig i kirkjunni, en
siðan héldu þau til ljónabúrsins,
og þar voru þau gefin saman af
borgarstjóranum.
1
Bezti matur í heimi
Læknafélagið i Bretlandi
segir i bæklingi, sem nýlega er
kominn út, að ekki sé til heil-
næmari matur en brezki rétt-
urinn Fish and chips — steiktur
fiskur og franskar kartöflur. 1
fiskinum er svo mikið af eggja-
hvítuefnum, segja læknarnir, og
i kartöflunum er eins mikið af
kolhýdrötum og þörf krefur.
Eignast hann systur
Stjörnubörn eldast og stækka y
eins og önnur börn, Hérna sjáið
þið litinn hnokka, sem mikið
hefur verið skrifað um áður,
þótt hann sé ungur, en hann
stækkar nú óðum og eldist.
Hann er kallaður Cri-Cri
og er orðinn tæplega eins árs.
Foreldrar hans eru Mirja og
Gunter Sachs. Hér heldur
móðirin stolt á syni sinum. Þau
Sachs-hjónin og litli Cri-Cri hafa
verið að njóta vetrarins i St.
Morits og lagt þar mikið kapp
á útilif og iþróttir. Einhverjir
hafa sagt, að Cri-Cri eignist,
áður en langt liður, systur eða
bróður, en móðir hans hefur
neitað, að svo sé. Hins vegar
sagði hún aðspurð, að vonandi
yrði það systir, þegar þar að
kæmi.
*
Franskar konur langt
að baki körlum.
Athuganir i Frakklandi sýna, að
konur þar i landi standa langt að
baki körlum i þjóðfélaginu. 20%
franskra lögfræðinga eru konur,
12% franskra lækna eru konur,
4% franskra vérkfræðinga og
7% háttsettra opinberra emb-
ættismanna. Konur sem starfa I
viðskiptaheiminum, og gegna
ábyrgðarstöðum, hafa almennt
7% lægra kaup en karlar, sem
gegna samsvarandi störfum.
frönsk sjúkrahús, og hefur
þeim fjölgað um 20% á siðustu
þremur árum. Arið 1969 ræddu
þessir sérfræöingar 722.000
sinnum við sjúklinga.
ÞT
Fá greíðslur vegna
Dracula
Dómari nokkur i Los Angeles,
Bernhard Jefferson, hefur á
kveðið upp dóm þar að lútandi,
að greiða beri ættingjum Bela
Lugosi fjárupphæðir sem
Universal Pictures hefur hingað
til innheimt fyrir alls konar
hluti, sem gerðir hafa verið til
þess að minna á hina frægu
kvik’'yndapersónu Dracula.
Lugt kom fyrstur fram með
Draci .u i kvikmynd, sem gerð
var árið 1931, en allt frá þeim
tima hefur ýmislegt verið fram-
leitt i liki Dracula. Þar má
nefna dúkkur, flugdreka,
grimubúninga og fleira og
frleira. Frá þvi Lugosi lézt árið
1956hefur kvikmyndafyrirtækið
Universal Pictures innheimt
eins konar höfundarlaun af
þessum hlutum, en héðan i frá
mun allt slikt renna beint til
ekkju og sonar Lugosis.
Geðveiki fer vaxandi
Tala þeirra, sem þurftu á
sjúkrahúsvist að halda i Frakk-
landi vegna geðveilu f jórfaldað-
ist á timabilinu frá 1950 til 1970.
Á Parisarsvæðinu eru 24% allra
sjúkrarúma upptekin af geð-
sjúklingum. Þessar tölur sýna
ljóslega, hversu mikil aukning
hefur verið á þessu sviði, og um
leið má geta þess, að berklar og
aðrir sjúkdómar eru á miklu
undanhaldi. Sjúkrarúmafjöldi
vegna berkla lækkaði úr 27% i
5% á þessu 20 ára timabili. Nú
sem stendur starfa 950 tauga-
sérfræðingar og geðlæknar við
Prczymotsczitsczin! hrópaði
hann.
Ritsjórinn klóraði sér i skall-
anum, en sagði svo:
— Þetta hefur brenglazt við
hristinginn. Reyndu að komast
það þvi, hvað staðurinn hét fyrir
jarðskjálftann.
Frúrnar voru að ræða um
veizluna, sem þær voru i fyrir
nokkrum dögum. Talið barst að
ungfrú Sexhólm, sem venjulega
var mjög áberandi klædd.
— Almáttugur, kjóllinn hennar.
Ef hann hefði verið pinulitið
flegnari, hefði hún bara verið
ferfætt!!
Ungi maðurinn var i
læknisskoðun, þvi hann ætlaði að
ganga i herinn.
— Nokkrir likamsgallar? spurði
læknirinn.
— Já, ég er nærsýnn.
— Geturðu sannað það?
— Já, sér læknirinn naglann
þarna uppi i loftinu?
— Já, svaraði læknirin»
— Ekki ég.
Eitt af þvi erfiðasta við að vera
nýgifturá þessum siðustu timum,
er að finna barnfóstru, meðan
farið er i brúðkaupsferð.
Blaðamaðurinn kom á spretti
inn til ritstjórans með blað úr
fjarritarnum.
— Það varð mikill jarðskjálfti i
Póllandi i héraði, sem heitir
—Elskan min, passaðu að sand-
urinn sé hreinn!
Hann mælti fyrir minni kvenna
og þegar staðið var upp frá
borðum, spurði hann gestgjaf-
ann:
— Sástu framan i konuna þina,
þegar ég sagði, að hún væri eins
ungleg og dóttir þin?
— Nei, ég sá framan i dóttur
mina.
Forstjórinn hafði boðið starfs
fólki sinu i afmælisveizlu fyrir
tækisins. Þegar ræðu hans var
lokið, sagði hann um leið og hann
lyfti glasi: — Lengi lifi starfs-
fólkið.
— Á hverju? heyrðist þá frá
enda borðsins.
Svo er það sagan um dönsku
stúlkuna, sem var á ferðalagi i
Sahara, hitti þar eyðimerkur-
fursta, féll fyrir honum og giftist
honum. En hjónabandið rann
fljótlega út i sandinn....
nÆMAIAIJSI
það væri dásamlegt, ef það væri