Tíminn - 10.03.1972, Blaðsíða 10
10
TÍMINN
Föstudagur 10. marz 1972.
ÞM RÆDIR VIÐ PÁL VALDIMARSSON Á KORPÚLFSSTÖÐUM
MAÐUR—EKKI MEISTARI
ÞwnrnwwwwnwniTWBriinwwrrwnfflnminnniwnniniinmininiiiMiWiiiWiiiiiiiiTTr^r’i^wBsgMraæiKiiBæBiBa^^
Eitt vetrarkvöld, þegar máninn
glóöi yfir Mosfellssveit, lagöi ég
leiö mina upp aö Korpúlfsstööum,
til þess helzt aö koma þar i f jósiö
og standa enn einu sinni nærri
uppsprettu þeirrar lindar, sem ég
ungur haföi svo margan sopa
þegiö af. É minnist þess, aö á
málum þegar búib var að mjólka
kýrnar var það eitt fyrsta verkiö
hennar móður minnar eftir aö
hún haföi siaö mjólkina, aö taka
frá i merkurmál handa hverju
okkar krakkanna af spenvolgri
nýmjólk og skyldum við drekka
hana strax.
Þetta kvöld var mér oröiö þaö
ljóst, að ég var öfuguggi á mal-
biki höfuöborgarinnar og stritaöi
vonlaust i þeim lifsstraumi, sem
þar haföi fundiö sér far-veg. Þaö
var þvi naumast furöa, þótt flest
min fyrirtekt á þeim slóðum
reyndist fremur óhagstæö, og ég
þess vegna leitaöi tómstundaaf-
þreyingar út fyrir borgarmörk
in. Og þaö var einmitt þetta
kvöld, sem ég fyrst hitti Pál
Valdimarsson, hressilegan mann,
sem lá ekki lágt rómur og var fús
aö eiga við mig orðaskipti. Hann
var þarna mikils ráðandi,aö mér
virtist,og fylgdi mér um fjósiö,
talaöi ósköp vinsamlega um
kýrnar en lét þó sérstaklega i ljósi
aödáun sina á bolunum, enda
sumir þeirra engir hokurgripir.
Siöan þetta var er IiUiö hátt á
annan áratug. Ég hef öðru hverju
rekízt á Pál eöa haft af honum
spurnir, og nú á stjörnubjörtu
miðsvetrarkvöldi er ég gestur á
notalegu heimili hans uppi I
Blesugróf og heyri hann bregða
upp svipleiftrum iiöinna daga.
Ég heiti Páll Aöalbjörn og er
Valdimarsson, fæddur aö Einars-
stöðum i Reykjahverfi i Suöur-
Þingeyjarsýslu 26. september
1898.
Frumkvöölar að þvi Voru for-
eldrar minir, hjónin Valdimar
Guömundsson og Sigriöur Páls-
dóttir, vinnuhjú hjá Benedikt
Gislasyni og Guörúnu
Árnadóttur.
Ég var vist ekki nema tveggja
ára þegar foreldrar minir fluttu
húshjón aö Holtakoti i Reykja-
hverfi. Þaðan fluttust þau svo
vorið 1902 og þá vinnuhjú aö
Bakka á Tjörnesi. Þar fékk ég
fyrst i mig þrótt, þvi að viö krakk-
arnir gengum i lýsistunnurnar og
höfðum þar að auki þvi nær alltaf
nýmeti að borða.
Þar sem foreldrar minir voru
alla tið vistfólk hjá öðrum get ég
ekki státað af stórbóndakyni, en
eg ætla að ég sé náfrændi Einars
Olgeirssonar og það tel ég mér
hagstæða ættleiðingu, þvi að þó
ekki sé ég mælskur jafnt'sem
hann, get ég töluvert kjaftað.
Vorið 1904 er faðir minn oröinn
vinnumaður i Sköröum I Reykja-
hverfi og ég kominn þangað með
honum. Móðir min er farin inn á
Húsavik þar sem hún er eitt ár, en
fer svo aö Sandi i Aðaldal.
Ekki slitu foreldrar minir sam-
vistum vegna ósamkomulags né
neinna annarlegra orsaka, heldur
vegna þess, aö kringumstæður
þeirra buöu ekki uppá möguleika
til sjálfstæörar heimilisstofn-
unar og viö þau skilyröi er ekki
óliklegt aö rómantiskasti bjarm-
inn fari af samlifinu.
A tiunda ári fór ég frá Skörðum
að Svartárkoti i Báröardal, til
Þóröar Flóventssonar og
Jakobinu Jóhannsdóttur. Þessi
vistaskipti min báru skjótt að og
meödálitiö sérstæöum hætti.
Þórður kom i byrjun april að
Sköröum og meö honum Egill
Þorláksson kennari. Þórður var
veikur i maga og haföi nú fengið
kast svo illt, aö hann gat ekki
haldiö áfram ferö sinni, en settist
upp i Sköröum og var þar eihn eða
tvo daga.
Ég var aö sniglast þarna i
kringum hann, þvi aöauðvitaövar
nýr gestur alltaf áhugavert fyrir-
bæri. Einu sinni vikur Þórður'sér
aö mér og segir: „Heyrðu,
drengur minn. Viltu ekki koma
heim með mér?”
Jú, mér var alveg sama um
það. Eitthvaö var frekar um þetta
talað og þær uröu niðurstöðurnar,
aö strax þann sama dag var gerð-
ur minn heimanbúnaöur og ég fór
með Þóröi aö Svartárkoti, og var
þar siöan i átta ár.
1 Svartárkoti var gott að vera.
Þar var ekki verið aö ala mann á
gamalli og útvatnaöri fæöu. Nýr
silungur var mestallt sumarið og
kjötið.sem lagt var til heimilisins
á haustin var ekki af neinum hor-
bjálfum. Hins vegar býst ég við,
að nútima unglingum þætti árla
risið og til litilla aufúsu verka að
ganga, væri hann rifinn upp
hvern morgun klukkan sex, til
þess að smala 60—70 kviaám.
Það var oft kátt á heimilinu i
Svartárkoti og ekkert
einungrunarsnið á fólkinu, þótt
tveggja stunda leið væri til næsta
bæjar, í Viðiker. Börnin fóru aö
heiman til skólanáms yfir vet-
urinn og hafa þvi vafaiaust borið
meö sér goluþyt menningarinnar
heim i fásinniö.
Einu sinni i mánuði var ég lát-
inn fara póstferð úr að Lindar-
brekku og jafnframt átti ég að
sækja nýjustu bækurnar i lestrar-
félagið. Fólkið vildi fylgjast með
timanum. Sá siður hélzt lengi að
lesa uppháttá vökunni fyrir fólkið
og einnig kveða rimur. Þórður
var mikill kvæðamaður og man
ég þar bezt eftir rimunum af Þor-
steini uxafót.
Ef ég hefði ungur mátt kjósa
mér stað, þar sem ég gæti unað
ævinni, hefði staður sá án alls efa
veriö Svartárkot. Er þá aðeins
talað um þau skilyrði, sem nát-
túran sjálf býður til samskipta.
Arið 1916 fór ég frá Svartárkoti
að Baldursheimi f Mývatnssveit,
til þeirra hjóna Þorólfs og Sól-
veigar. Það var rausnarheimili.
Sólveig var úrvalskona og
myndarhúsmóðir, sem vildi
velliðan allra, sem hún haföi yfir
að ségja.
Þarna var ég i þrjú ár en fer
eftir það til Helga hreppsstjóra á
Grænavatni og var hjá honum i
eitt ár en fór þá til Guðna Ás-
mundssonar.'Þeir, hann og Helgi,
bjuggu i sama bænum.
Tengdasonur Guðna var Páll
Jónsson frá Helluvaði, kvæntur
Hólmfriði dóttur hans. Þau hjón
fóru aö búa á parti af Græna-
vatni. Ég réðist til þeirra vinnu-
maður og var þar i ellefu ár.
Ég vil meina, að þessi ár hafi
veriö mér gildismeiri fyrir lifið en
þótt ég hefði farið á búnaðarskóla
og nasaö þar i einhvern bóklær-
dóm. Páll var sérstakur búhyggju
og fjárræktarmaður, sem kunni
verkshátt allan og hvað eina það,
er að búsumsvifum laut.
Aö lokinni veru minni á Græna
vatni fékk Páll mér þennan grip,
og nú dregur Páll Valdimarsson
upp silfurbúna svipu, vandaða og
vel gerða. A hana er letrað fanga-
mark hans og auk þess: frá Bf. ís.
1934 — Þessi verðlaun fékk hann
fyrir langa og dygga þjónustu.
Ég vann fyrir mina húsbændur
án nokkurs undirlægjuháttar,
sem fullkomlega sjálfstæð og
hugsandi persóna. Seinna var ég
aftur þrjú ár i Svartárkoti og svo
eitt ár á Stóruvöllum i Bárðardal
hjá Páli H. Jónssyni og Sigriöi
Jónsdóttur konu hans. Þar var
hugsaö um mig og vakað yfir vel-
ferð minni eins og væri ég einn
fjölskyldumeðlimurinn.
Það var siður i Mývatnssveit að
reka hesta á Austurfjöll á haust-
in. Það er austur fyrir Nýjahraun,
langleið að Jökulsá. Til hross-
anna var venjulega gengið
þrisvar á vetri, þó oftar, ef
veðrátta og hagar þóttu gefa til-
efni til. Þessar hrossagötur voru
stundum aðeins lystitúrar en gátu
einnig orðið eitt það erfiðasta sem
unnið var við. Oftast tóku þær sex
daga en lengst, það ég man eftir,
tiu daga. Þá vorum við þrjá daga
að koma hrossunum af fjöllunum
niður i Mývatnssveit.
Við vorum venjulega sex sam-
an, sem fórum úr Mývatnssveit
og svipað margir af Hólsfjöllum.
Þeir höfðu lika hross á göngu.
Oftast gistum við á Grimsstöð-
um eða i Hólsseli. Við fórum á
ferju yfir ána ef hún var ekki á
haldi. Ég man eftir þvi, að einu
sinni, þegar við fórum út frá
Grimsstöðum var 28 stiga frost og
suðvestan goluþytur. Um nóttina
áður hafði frostið orðið 36 stig.
Það var skolli napurt. Okkur
fannst hlýtt um kvöldið, þá var
það komið niður i 18 stig.
Við Jökulsá er sæluhús. Þar
hafa margir orðiö varir við ein-
hvern slæöing. Ég hef einu sinni
gist þar i hestagöngum. Einn fé-
lagi okkar, sem var veill i hné,
treysti sér ekki austur i Hólssel og
varð þvi ekki undan vikizt að hafa
náttstað i sæluhúsinu. Enginn var
fús til að vera þar hjá honum, en
ég kvaðst ekki láta hann einan
eftir og varð þvi niðurstaöan sú,
að við tveir dvöldumst þar. Hinir
fóru austur. Hestarnir voru settir
inn i kjallarann og gefið hey á
stallinn, en viö bjuggum um
okkur i innra herbergi af tveimur,
sem voru á hæðinni. Þar var rúm-
bálkur til að liggja á og „kamina”
til að hita upp herbergið. Við
gátum þvi látið fara vel um
okkur. Uppi á lofti var svo geymt
hey og eitthvaö fleira.
Þegar við erum fyrir nokkru
háttaðir, heyrum viö gengið um
fyrir utan húsið. Svo er komið inn
og gengið upp á loftið og eitthvað
farið aö sýsla þar. Ekki löngu
seinna er barið bylmingshögg
neðan undir rúmbálkinn sem við
lágum á. Við létum sem ekkert
væri og sofnuðum fljótlega.
Um klukkan fjögur vaknaði fé-
lagi minn við högg mikið neðan
undir bálkinn. Ég vaknaði skö-
mmu seinna og um stund var
mikill ófriður að þessu raski. Það
leið svo hjá og eftir það bar ekki á
neinu, enda sá sem þarna var á
ferð búinn að vekja á sér athygli
svo að um tilveru hans var naum-
ast villzt.
trr Þingeyjarsýslu fór ég 42 ára
gamall og þá að Saltvik á Kjalar-
nesi, fjármaður til Stefáns
Thorarensen lyfsala. Þegar ég fór
aö norðan átti ég mörgum vinum
á bak að sjá en aðeins einn þeirra
verður nefndur hér.
Þessi vinur minn var jarpur
hestur, sem ég kallaði Smyril.
Hann var keyptur frá Hörgsholti i
Hrunamannahreppi vorið 1932, þá
fimm vetra gamall, litiö taminn
og kostaði 160 krónur i peningum.
Smyrill var vikingshestur að dug-
naði, brokkgengur með mjúku
tölti. Hann hafði harðan vilja og
gat haft til að beita skapi sinu
þannig, að hann var fárra með-
færi. Enginn var ofsæll af þvi að
sýna honum hörku með taum-
haldinu.-Þá fannst honum sér
misboðiö og fór með sem honum
fundust efni standa til, þvi að
hesturinn var vitskepna. Mér var
hann ætið þjáll, enda beitti hvor-
ugur ofriki.
Frá Saltvik fór ég að Korpúlfs-
stöðum. Þar var þá ung stúlka um
það bil tuttugu árum yngri en ég.
Mér leizt vel á konuna en hugði
þó^að mitt tækifæri til kvonbæna
væri hjá garði gengiö og mundi
henni finnast ég gamall orðinn.
Hún var ,nú ekki alveg á þvi, að
aldur minn þyrfti að vera þar til
fyrirstöðu. Kvað hún mér fremur
til gildis að vera roskinn og ráð-
inn, mundi mér þvi minna hætt
við fávislegum vixlsporum. Ekki
réðust þó okkar mál til fulls þessu
sinni. Ég fór að Lágafelli um
vorið, en þá flutti húsbóndi minn
Thor Jensen þangað, og þar var
ég til ársins 1946.
Þann 30. mai það vor kvæntist
ég svo stúlkunni sem ég fyrr gat
um, Astu Mariusdóttir: Hún var
fædd úti i Vestmannaeyjum en
átti ættir að rekja upp til landsins.
Afasystir hennar var sú merka
kona, Guðbjörg Þorleifsdóttir i
Múlakoti i Fljótshlið. Já, þetta fór
nú svona. Skammdegisdraumar
Astu þann vetur höfðu orðið mér
hagstæðir.
Fyrst stofnuðum við heimili á
Sæbóli á Seltjarnarnesi og vorum
þar til ársins 1951. Ég stundaði
þau störf, sem voru hendi næst
var t.d. þrjá vetur, eftir þvi sem
kirkjubækur segja, skráður ráðs-
maður á búinu i Melshúsum hjá
Thor Jensen.
Þann 2. júni vorið 1951 fór ég
svo að Korpúlfsstöðum og þá ráð-
inn þangað fjósamaður — ekki
meistari, bara maður. Þar vann
ég i fjósinu i fimm ár en varð þá
að hætta þeirri vinnu sökum
krankleika. Þrjú siðustu árin þar
var ég svo maður „sitt á hvað”.
Ef sá gamli fór i bæinn og ég
spurði hann hvernig verkum
skyldi haga var hann vanur að
segja: „Þú finnur þér eitthvað
til”. Ég held aö enginn maöur
mér óvandabundinn hafi reynzt
mér betur en ráðsmaðurinn á
korpú1fsstöðum , Stefán
Pálmason, sérstaklega það ár
sem ég mátti heita þvi nær ó-
vinnufær sjúklingur.
Haustið Í959 fór ég — fjandans
verr — til Reykjavikur og hef
verið hér innlyksa síðan. Fyrst
var ég settur til aðstoðar höfuð-
borgarbúum við hreiniætisaö-
geröir og nú vinn ég á „Þrif-
naöarskansinum” öðru nafni
Sorpeyðingarstöðinni.
Lifið er mér eftir öllum vonum-
miðað við það hvernig heimurinn
er orðinn. Ég ætlaði aldrei aö
verða borgarbúi, að svo fór leiddi
af bölvaðri mæðiveikinni. Hún lék
margan grátt.
Hérna i Blesugrófinni býr ósköp
venjulegt fólk, hávaöa- og sun-
durgeröarlaust, en stendur full-
komlega fyrir sinu. Fæstir munu
hér hafa reist sér hurðarás um
öxl vegna munaðargirni i húsa-
kosti eða þvi sem kallað er
hýbýlaprýði. En sumir, sem hér
búa, eru vist þegar fram liður
ofurseldir hraðbrautinni eða ein-
hverjum öðrum tæplega mann-
legum pappirsgjörningum, sem
kallaðir eru skipulag.
Ég hef aldrei verið' neinn
drykkjumaður, en gott hefur mér
þótt aö fá dálitið bragð á góðri
stund ekki sizt á hestbaki og brá
honum Smyrli minum ekki við
það.
Göngur voru hjá okkur Mývetn-
ingum hátiðisdagar. Maður
hlakkaði til þeirra og misjafnt
veöur hafði þar sjaldan neina úr-
slitaþýðingu. Ég hef orðið svo for-
framaður að leita bæöi Grafar-
lönd ogHerðubreiðarlindir.Ég var
fremur ratvis og minnist þess
ekki að hafa nokkru sinni villzt
um hársbreidd. 1 réttum voru
Mývetningar hófsamir gleðimenn
eins og þeirra er háttur.
Ég hef svo sem ekki slitið til
fulls tengslin við sveitina. Þegar
okkur gefst tóm til, förum við á
flakk og þá vísar nefið oftast i
norður.
Við Asta eigum saman einn son,
Ingvar Má, sem nú er fullveöja
maður, þótt ennþá hafi heims-
lystin ekki flæmt hann frá okkur,
foreldrum sinum.
Já, bændabýlin taka breyt-
ingum frá ári til árs hvað snertir
byggingu húsa og ræktun jarðar.
En svipmót umhverfisins er það
sama og fyrr, þegar ég gekk
ungur til gegninga hjá Páli nafna
minum á Grænavatni, sem varð
mérsá lifsskóli, sem ég hef lengst
að búið.
Þ.M.
1 Reykjahlfðarrétt. Páll Valdfmarsson og Halldór Arnason bóndi f Garði hressa ögn upp á „sálarskarnið”
Föstudagur 10. marz 1972.
nw
TÍMINN
11
Páll Valdimarsson og Smyrill
Lækjarbrekka f Blesugróf
tJr Músagildrunni: f.v. Sigurður Grétar Guðmundsson, Auður Jónsdóttir, Björn Magnússon, Arnhildur
Jónsdóttir, Leifur Hauksson.
Leikfélag Kópavogs:
MÚSAGILDRAN
eftir Agöthu Christie
Þýðing: Halldór Stefónsson
Leikstjórn: Kristjón Jónsson
Leiktjöld: Magnús Pólsson
mátti hefla af þá agnúa, sem enn
óprýöa leik hans.
Fleiri leikendur leika ekki.
Hvaö Björn Magnússon gerir á
leiksviðinu, veit ég ekki, en eitt er
víst, að hann leikur ekki. Mér er
spurn, hvernig nokkrum heilvita
leikstjóra dettur i hug að skipa
vitahæfileikalausan mann i aðal-
hlutverk Músagildrunnar. Slikt
val ber ekkiglöggskyggniné næmu
listmati fagurt vitni. Beri stjórn
leikfélagsins ábyrgð á þessari
hlutverkaskipan, hefði leikstjór-
inn aldrei átt aö samþykkja hana.
Annar galli á leikstjórn Kristjáns
Jónssonar er sá, að leikendur
hlusta ekki nógu gaumgæfilega
hver á annan og verður þvi þögull
leikur þeirra hvorki nógu virkur
né lifandi. Að öðru leyti virðist
Kristján hafa unniö gott verk.
Mörg eru leikhús á höfuðborg
arsvæðinu tröllriðin af afmælum
á þessu leikári. Fari svo, að
Músagildran verði sýnd næstu tiu
árin i Lundúnum, vona ég, að
stjórn Leikfélags Kópavogs hafi
manndóm i sér að verða ekki við
tilmælum umboðsfyrirtækis
Agötu Christies að taka Músa-
gildru hennar enn einu sinni til
endursýningar, hversu kröftug-
lega sem að þeim verður lagt.
Ilalldór Þorsteinsson
Rvk. 7.inarz.
Auður Jónsdóttir og Magnús
Bæringur Kristinsson.
Leikfélag, sem velur verk á
borð við Músagildru Agöthu
Christies til sýningar, spennir
menningarbogann ekki ýkjahátt.
Sé hliðsjón höfö af þvi stórflóði
sakamálaverka, sem streymir
endalaust til okkar eftir, öörum
greiðari farvegum, og nær þvi
vitanlega til langtum meiri
fjölda heldur en sjónleikir, sem
leiknir eru á þrengri vettvangi
fyrir færri áhorfendur, er ekki ör-
grannt, að mönnum þykji, að hér
sé verið að bera i bakkafullan
lækinn. En jafnvel þó að það heföi
verið stjórn félagsins kappsmál
að sviðsetja sakamálaleik þessu
sinni, þá átti hún á betra völ og
má hér nefna leikskáld eins og
Svisslendinginn, Friedrich
Diirrenmatt, sem ljær þessu við-
fangsefni nyja vidd og aukna
dýpt. Séu hans verk og Agöthu
Christies borin saman,sést undir
eins, hversu rýr að listgildi og
æðri fegurð sögur og leikrit þeirr-
ar siðarnefnda i rauninni eru. Þaö
er ef til vill fulldjúpt tekið i árinni
að segja, að annað þeirra ástundi
list, en hitt listiðn — og þó. Meö
lagni má það til sans vegar færa.
Agatha Christie hugsar og
starfar i anda krossgátuhöfunda.
Henni er það leikurinn léttur að
búa til flóknustu gestaraunir og
leikfléttur og leysa þær siðan á
mjög snjallan hátt og óvæntan. Af
ráðnum hug hagar hún orðum og
atburðum á þann veg, að athygli
og grunur lesenda eða áhorfenda
beinist fremur aö saklausum en
sekum. Af þessu sést greinilega,
að sögur hennar eru samdar eftir
ákveðinni forskrift og óum-
breytanlegri, en þótt við séum
kunnug vinnubrögðum hennar og
atburðaskipan út i æsar, tekst
henni þrátt fyrir það að villa
okkur svo sýn og afvegaleiða
hverju sinni , að við erum alltaf
jafnforviða, þegar henni þóknast
að afhjúpa sökudólg eða illvirkja
rétt fyrir sögulok.
Þótt bókmenntalegt gildi eða
aðrir listrænir verðleikar saka-
málasagna Agöthu Christies hafi
hér verið stórlega vefengdir, er
hins vegar skylt og sjálfsagt að
viðureknna, að þessi furðulega
kona á — á sinu sérsviði— hugvit-
semi og skopvisi, útsjónarsemi og
mannekkingu, og það á allháu
stigi.
Arnhildi Jónsdóttur, i hlutverki
gistihússtýrunnar frá Mollies
Ralstone, eru mjög mislagðar
hendur. Á köflum er túlkun
hennar sannferöug, ýkjulaus og
eðlileg, eins og t.d. þegar hún
hrópar upp yfir sig af skelfingu,
er hún uppgötvar óvænt morð i
húsi sinu. Þegar til stærri átaka
kemur nær leiksIokum,hefur hún
hins vegar ekki nægilegt hóf né
hemil á geðshræringum sinum.
Persónusköpun Sigurðar Grét-
ars Guðmundssonar er sóma
samleg aö flestu leyti. Hann
gerir hvorki að ofleika né hrifa
leikendur. Frammistaða hans er
þvi á mörkum meöalmennsku og
allgóöra tilþrifa.
Enda þótt Leifur Hauksson sé enn
ungur að árum og hafi þvi ekki
ýkjalanga starfsreynslu að baki,
þá er honum samt sem áður
hvorki ótamt né stirt að túlka meö
góðum leikbrigðum hugsanir og
tilfinningar lifsflðttamannsins
litla, Kristófers Wrens. Hann
skortir vitanlega ennþá nokkra
skólun og þjálfun, en hitt fer ekki
á milli mála, að i þessum unga
manni býr góður efniviður og at-
hyglisverður.
Að öðrum leikendum ólöstuðum
hugsa ég þó, að Auður Jónsdóttir
seilist lengst i list sinni. Henni
skeikar yfirleitt ekki. Hún skilur
hlutverk sitt réttum skilningi. Að
framsögn hennar og svipfari er
fátt aö finna. Æskilegt væri, að
hún fengi að glima viö átakaverð-
ara verkefni á þekktara vettvangi
i framtiðinni.
Með þvi að forðast bægslagang
og viðvaningslegar tiktúrur ratar
Arni Kárason á rétta túlkunarleið
i hlutverki Metcalfs majórs. Hér
hefur að visu ekki verið unninn
neinn annálsverður leiksigur, en
Arni verðskuldar hinsvegar lof
fyrir hófstillingu sina og látleysi.
Hugrún Gunnarsdóttir er sæmi-
lega liðtæk leikkona,þótt ofmælt
sé, að persónusköpun hennar sé
blæbrigðarik og hnitmiðuð.
Hugrún býður af sér góðan þokka.
Ég kann hins vegar ekki við
raddblæ hennar, sem virðist
skorta hlýju og mýkt.
Enda þótt Magnús Bæringur
Kristinsson fari ekki á hreinum
kostum, þá tekst honum samt að
bregða upp harla góðri skopmynd
af Paravicini. Með litilli fyrirhöfn