Tíminn - 24.03.1972, Qupperneq 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
r
S6VDIBIL ASTOÐIN Hf
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
Aðalfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins
A skrifstofu Framsóknarflokksins var f gær unniö af kappi við undirbúning miðstjórnarfundarins.
F.v. Guðmundur Tryggvason,ólöf Zóphoniasdóttir, Þráinn Vaidimarsson og Stefán Guömundsson.
(Timamynd Gunnar)
SB—Reykjavik.
Aðalfundur miðstjórnar
Framsóknarflokksins hefst i
dag í ráðstefnusal Hótel
Loftleiöa. Standa fundahöld i
þrjá daga og lýkur þvi á
sunnudag. Timinn hafði i gær
tal af Þráni Valdimarssyni,
framkvæmdastjóra Fram-
sóknarflokksins, en á skrif-
stofunni hjá honum hefur
verið mikið að gcra undan-
farið við undirbuning fundar-
ins.
— Fundurinn verður settur
kl.2 og hefst með yfirlitsræðu
formanns, Olafs Jóhan-
nessonar. Þá flytja skýrslur
sinar ritari flokksins, Stein-
grimur Hermannsson, Tómas
Arnason gjaldkeri og Kristján
Benediktsson, framkvæmda-
stjóri Timans. Eysteinn
Jónsson flytur og skýrslur um
viðræður við aðra flokka um
myndun sameiginlegs stjórn-
málaflokks. Um kvöldið verða
almennar umræður, og geta
þær staðið eitthvað fram á
nóttina.
Um dagskrá laugardagsins
sagði Þráinn, að nefndastörf
hæfust kl. 9.30 árdegis á sama
stað, en kl. 2 flytur Jón
Sigurðsson hagrannsóknar-
stjóri fræðsluerindi um ástand
og horfur i efnahagsmálum.
Eftir kaffihlé kl. 4 verða mál
afgreidd og engin fundahöld
verða um kvöldið.
Sunnudagurinn hefst kl. 10
með afgreiðslu mála, en kl. 2
hefjast kosningar. Þá flytur
varaformaður, Einar
Ágústsson, ávarp, og fundi
verður slitið.
Um fjölda fundarmanna
sagði Þráinn, að i miðstjórn-
inni væru eitthvað á annað
hundrað manns.
VEGAGERÐIN HEFST EFTIR PASKA
ÞÓ — Skaftafelli
Sigurður Jóhannsson vega-
málastjóri sagði fréttamanni
Timans á Skaftafelli i dag, að ák-
veðið væri að byrja á vegarlagn-
ingunni yfir Skeiðarársand eftir
páska. Yrði sennilega byrjað á
tveim stöðum i einu, frá Kirkju-
bæjarklaustri að vestan, og siðan
i öræfunum við Virkisá, og haldið
vestur yfir Svinafellsá með
brúargerð, en þessi byrjunar-
vegur að austan verður aðallega
gerður fyrir flutninga á grjóti og
öðru, sem þarf að flytja vestur,
Vegamálastjóri sagði enn-
fremur, að unnið yrði allt árið um
kring að vegarlagningunni, og
ekki sizt yfir vetrartimann. Væri
ekki siður hægt að vinna að þessu
verki yfir vetrartimann, þar sem
allar ár væru þá litlar, og gott að
flytja öll tæki fram og til baka.
Hannibal Valdimarsson sam-
göngumálaráðherra sagði frétta-
manni Timans, að sér þætti áin
ekki eins mikil og hann hefði búizt
við, en þetta hlaup gæti enn vaxið,
og hefði hann áhuga á koma aftur
austur. Hannibal sagðist vera
sannfærður um það, að þessi
vegur hefði geysimikla þýðingu
fyrir þjóðina. Og til að geta státað
af fullkomnum hringvegi, þá
verðum við einnig að ljúka þeim
vegarkafla, sem eftir er að
sprengja saman við Isafjarðar-
djúp, sagði ráðherrann, en það
eru um 30 km.
Hans G. Andersen, sendiherra, í Hafsbotnsnefnd S. Þ.:
Sigurður vegamálastjóri og Hannibal samgönguráðherra horfa yfir
Skeiðará, frá Skaftafelli. (Tímamynd ÞÓ)
Strandríki hafi rétt til að
hagnýta og efla fiskimið sín
í annarri undirnefnd á fundi
hafsbotnsnefndar S.Þ, sem nú
stendur yfir i New York, hélt
Hans G. Andersen ambassador
ræðu, og túlkaði þar sjónarmið
Islands.
Hér á eftir fer kafli úr ræðu am-
bassadorsins:
— Ráðstafanir til að vernda
fiskstofnana i þvi að tryggja
hámarksveiði á varanlegum
grundvelli, eru öllum til hags, og
nauðsynlegar verndarráðstafanir
— af hálfu strandrikisins og með
samkomulagi hlutaðeigandi rikja
— verða að haldast i hendur og
mynda raunhæft allsherjarkerfi.
Verndarráðstafanir af hálfu
strandrikisns hafá hér höfuð —
þýðingu þar sem hrygningar-
stöðvar og uppeldissvæði eru að
mestu leyti á grunnslóðum.
Strandrikið hefur einnig mestra
hagsmuna að gæta varðandi
verndun fiskistofnanna, og t.d.
við Island gilda miklu strangari
verndarreglur unnan fiskveiði-
takmarkanna en svæðareglur
þær, sem gilda utan þeirra. Hins
vegar er einnig nauðsynlegt, að
til komi frekari ráðstafanir með
samkomulagi þjóða til að koma i
veg fyrir ofveiði tiltekinna stofna
i heild á hinum viðátturniklu
svæðum utan lögsögu einstakra
rikja.
Hitt grundvallartriðið er
hagnýting fiskistofnanna eða
skipting þeirra, eins og sumir
vilja orða það.
Lausnin á þvi máli er fólgin i
þvi að viðurkenna, að fiskimið
strandrikisins séu hluti af auð-
lindum þess innan sanngjarnrar
fjarlægðar frá ströndum miðað
við aðstæður á staðnum, sem
máli skipta.
Framhald á bls. 19
Áin tók kipp eftir
að ráðamenn fóru
Þó— Skaftafelli.
Það var eins og við manninn
mælt, að strax og hópurinn frá
Vcgagerðinni og Seðlabankanum
var farinn frá Skaftafelli i dag,
eftir stutta viödvöl, tók Skeiðará
kipp, og i kvöld var vatnsmagnið
Þarna kemur áin af miklum krafti undan Skeiðarárjökli, og er mikill atgangur Iheinni. (Timamynd ÞÓ)
komið i 5500 teningsmetra á
sekúndu og straumhraðinn 7 m á
sek. Ilafði þvi vaxið mikið í ánni
frá liádcgi, þcgar hópurinn var á
varnargörðunum og virti ána
fyrir sér þaðan.
I dag fór áin að grafa sig af
miklum krafti meðfram Skafta-
fellsbrekkum, og leggst hún nú i
kvöld með miklum krafti og
þunga að varnargörðunum. Er
straumþunginn þar mjög mikill,
og um klukkan þrjú náði áin að
grafa litillega úr syðsta straum-
brjótnum á vestari varnar-
garðinum. Hrundi smávegis úr
garðinum, en ekki er hægt að
segja, að þetta séu miklar
skemmdir. Ef áin heldur áfram
að aukast i kvöld og nótt, verður
fróðlegt að fylgjast með viðureign
árinnar og varnargarðanna, en
þetta er nokkurskonar prófraun
fyrir þá. Fyrirhugað er að var-
nargarðarnir, sem eiga að koma i
framhaldi af þessum, verði sam-
skonar. Yzt á þessum varnar-
görðum eru hafðar svokallaðar
grjótpylsur, en þær eru þannig
gerðar, að grjót er sett i vírnet,
sem siðan eru „saumuð” saman.
Þeir Sigurjón Rist og Helgi
Hallgrimsson fóru vestur að
Gigjukvisl i morgun, og að sögn
Sigurjóns er vatnsmagnið þar
ekki minna en eitt þúsund
teningsmetrar á sekúndu, og
hefur þvi vatnsmagn hennar
aukizt mikið frá þvi fyrir tveim
dögum, er hún var mæld.
Ragnar i Skaftafelli telur
liklegt, að Skeiðará geti náð
hámarki um helgina, ef hún
heldur áfram að aukast,