Tíminn - 07.04.1972, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Föstudagur 7. april 1972.
Skíðatíminn legndur
i viðtali við Eystein Jón-
sson, sem birtist hér i blaðinu i
gær, ræðir hann um hinn nýja
veg til Bláfjalla, þar sem
Reykvikingar nutu veðurblið-
unnar á skfðum þúsundum
saman um páskana. Eysteinn
sagði, að með tilkomu vegar-
ins suður i Bláfjallaendann
hefði orðið hrein bylting, hvað
snertir útivist íbúa Reykja-
víkur og nágrennis. Er það
vafalaust ekki ofsagt og munu
þær þúsundir manna sem voru
i Bláfjöllum um hænadatía og
paska boriö vitni um það.
Á undanförnum árum hefur
snjóleysi við gömlu skiða-
slóðir Reykvikinga mjög
hamiaðþvi, að menligætunotið
þeirrar hollu og skemmtilegu
iþróttar scm skiöaiþróttin cr.
Ilöfuðatriðið i sambandi við
þá „byltingu”, sem orðið
hefur með opnun vegarins
suður til Bláfjalla, cr það, að i
Bláfjöllum er oftast nær
skiðasnjór allan vcturinn allt
fram i mai og júní. Eystcinn
Jónsson sagði, að „við, sem
höfum fylg/.t með þessu svæði
i nokkra áratugi, vitum að þar
cr engum öðrum stað likt um
snjósæld".
Skiðaráð íteykjavíkur sam-
þykkti fyrir nokkru að gera
þetta svæði I Bláfjöllum að
skiðamiðstöð fyrir Rcykvlk-
inga og nágranna. En
Eysteinn lagði á það áher/lu
aö gömlu sklðastaöirnir væru
jafn mikilsverðir fyrir þvi.
Hér væri oröinn svo mikill
mannfjöldi, að það þyrfti fleiri
en einn sklöastað fyrir þétt-
býlið hér Suövcstanlands.
Hins vegar taldi liann vafa-
laust, að I Bláfjöllum yrði aðal
skiöamiðstööin.
Byggjum upp
Nú þarf að vinda bráðan bug
að þvi að byggja upp i Blá-
fjöllum sem fullkomnasta
aðstöðu til skiöaiökana og
koma upp þeim mannvirkjum,
sem fjölsóttir skiðastaðir
krefjast. Þar þurfa sem flcstir
að leggja hönd á plóginn i og
hindast samtökum uni að
lirinda málinu sem fyrst i
framkvæm d.
Eins og fyrr sagði geta
menn bundið vonir við skiða-
iðkaniri Bláfjöllum allt fram i
júnimánuð. En veitinga-
rekstur og aðra almenna
aðstöðu fyrir ferðafólk, sem
komiðyrði upp fyrst og fremst
vegna skiöafólksins mætti
nýta að verulegu leyti allt
árið. Bláfjöllin liafa þann kost
að dómi Eysteins Jónssonar,
sem er allra manna kunnug-
astur gönguieiöum i nágrenni
Revkjavikur, að þar er ekki
siður ánægjulegt að vera á
sumrin, Með tilkomu vegarins
til Bláfjalla opnast miklir
möguleikar til að hafa þessar
slóðir fyrir göngusvæði á
sumrin. Er vafalaust að þeir,
sem ferðalög skipuleggja og
einstaklingar, munu uotfæra
sér þá nýju möguleika, sem
BI áfja 11 aveguriun hefur
skapaö. Það er aðeins 24 km
akstur til Bláfjalla og svæðið
býður upp a mikla fjölbreytni.
En þessi vegur til Bláfjalla
hefur ekki fengi/t baráttu-
laust. Þeir, sem nutu
útivistarinnar i Bláfjöllum um
páskana hljóta að vera þeim
mönnum scm fyrir þessum
vegi börðust þakklálir.
Samgönguráðherra Hannihal
Valdimarsson og fjármálar-
áðherra Halldór E. Sigurðsson
eiga einnig þakkir skilið fvrir
skilning á málinu.
—TK
£
Biðsalur
dauðans
■
if isif, iffl! m nf,, i m r
111
Hér kemur bréf frá Halli
Jónassyni, og fjallar hann þar um
mál, sem áður hefur verið rætt
hér i þáttunum, meöal annars I
bréfi frá óskari Sigtryggssyni á
Reykjarhóli i S-Þing. Bréf Halls
fer hér á eftir:
„Elliheimili eru stundum
kölluð biðsalur dauðans. Orsökin
er liklega sú, að þeim sem verða
að leita skjóls hjá þessum hælum,
finnst að eðlilegum lifsháttum
slnum sé lokið og aðeins fram-
undan ömurleg innilokun. Mér
hefur skilizt, að það sem helzt
angrar þá vistmenn, sem ein-
hverja starfsorku hafa og löngun
til athafna, sé skortur á verk-
efnum við þeirra hæfí og vinnuað-
staða. Ekki heyrist annað en,að
ibúðarhúsnæði, fæði og öll
aðhlynning sé i bezta lagi að þvi
leyti, sem á valdi slíkra stofnana
er. Raunin er lfka sú, að elli-
heimilin eru jafnan yfirfull og
biðlistinn langur. Það er ekki
vansalaust í okkar marglofaða
hagsældarþjóðfélagi, að aldrað
fólk og aðrir öryrkjar skuli ekki
eiga kost á hentugum vist-
heimilum. Nýlega hefur þó verið
bætt úr brýnustu þörfinni í mesta
þéttbýli landsins með byggingu
Öryrkjaheimilis við Hátún og
nýbyggingum á Reykjalundi.
Utan höfuðborgarsvæðisins er
ástandið í þessum efnum alger-
lega óviðunandi.
Tilefni þessara hugleiðinga er,
að nokkru leyti, greinarkorn i
„Timanum” 14.febr. s.l. eftir
Óskar bónda á Reykjarhóli i
Reykjahverfi, sem hann nefnir
„Þjónustan við aldraða.” Óskar
ræðir þar um fyrirhugaða
byggingu elliheimilis i Reykja-
hverfi fyrir aldraða sveitarmenn
Hann kvartar undan áhugaleysi
heimamanna við málefnið og
skorar á þingeyska átthagafélaga
i Reykjavik að veita þvi brautar-
gengi. Hann segir svo: „Það væri
vissulega ánægjuefni, ef þing-
eyskir átthagafélagar i Reykja-
vik sýndu nú þessu máli virkan
áhuga fyrstir manna.”.
Greinarhöfundur getur þess
ekki hvers vegna nágrannar hans
eru svo undarlega áhugalausir
um framgang þessa nauðsynja-
máls. Þeir hafa þó jafnan þótt vel
liðtækir i félagsmálum sinum.
Við lestur nefndrar greinar
kemur lika i ljós, að málefninú
var ekki gert nógu hátt undir
höfði með þvi að einskorða
væntanlegt vistheimili við
„aldrað sveitafólk.”
Þegar horft er til framtiðar-
innar, verður hagkvæmast að
miða stofnunina við héraðið allt
og þá kaupstaðinn lika Kemur þa
aö sjálísögðu ekki til geina annar
heppilegri staður en Húsavik. Þar
er aðstaða bezt að reisa myndar-
legt öryrkjaheimili fyrir héraðið,
með vinnuskála fyrir það vistfólk,
sem fært er um að stunda léttan
iðnað og alls konar föndur. Lengi
er hægt að finna slik verkefni, ef
aðstaða og vilji er fyrir hendi. Þó
varðar mest um staðarvalið, að á
Húsavik er auðveldast að veita
vistfólkinu alla þá læknishjálp og
hjúkrun, sem bráðnauðsynleg er
2 mjólkurflutningabílar
Tilboð óskast i 2 yfirbyggða mjólkurflutn-
ingabila: Volvo árg. 1955, 7 tonna og Volvo
7 tonna með drifi á öllum hjólum árg. 1958.
Tilboðum sé skilað til Jónasar Hallgrims-
sonar, Bilaverkstæði Dalvikur, sem veitir
allar nánari upplýsingar.
OMEGA
Nivada
(filBW.
Jtlpina.
PIERPOm
Magnús E. Baldvinsson
Laugavegi 12 - Sími 22804
á slikum hælum. Einnig þarf að
gera ráð fyrir þjálfunarstöð fyrir
vistfólkið, en um hana væri hag-
kvæmast að hafa samstarf við
sjúkrahúsið á staðnum. Náið
samstarf með sjúkrahúsinu og
„vistheimilinu” yrði báðum
stofnunum i hag.
Elliheimilin voru mjög þarfar
stofnanir og eru enn, meðan
þessum málum hefur ekki verið
komið i betra horf. Aðalbaráttu-
maður þeira frá fyrstu tið, Gisli
Sigurbjörnsson, á skilið þjóðarlof
fyrir brautryðjandastarf sitt. Hitt
er svo annað mál, að breyttir
timar og betri þjóðarhagur gera
nú meiri kröfur til vistheimila
fyrir aldraða. öryrkjaheimilin
hljóta i framtiðinni að taka við
hlutverki þeirra. Þar ráða engin
aldursmörk, en allir vistmenn fá
aðbúnað við sitt hæfi og aðstöðu til
heilsubótarvinnu, hver eftir sinni
getu og löngun.
Auðvitað kostar slik stofnun
mikla fjármuni en i það má ekki
horfa.
I lögum um endurhæfingu, er
öðluðust gildi l.júli 1971, er gert
ráð fyrir mikilli opinberri aðstoð
við stofnun öryrkjaheimila. Þar
segir svo i 9.gr. laganna: „Til
þess að koma á fót vinnustöðvum
fyrir öryrkja, er heimilt að veita
styrki og lán sem hér segir: a.
Styrk úr erfðafjársjóði, sem
nemur alit af 40% af stof-
nkostnaði. b. Lán úr atvinnu-
leysistryggingarsjóði til 20 ára
með 5% ársvöxtum, sem nemur
allt að 40% stofnkostnaðar.”
öllum réttindum fylgja
skyldur. Svo er einnig um þessa
opinberu fyrirgreiðslu, og er
þeirra getið i lögunum. Með ofan-
greindu framlagi að vegarnesti,
ætti héraðinu að vera kleift að
reisa myndarlegt vistheimili
fyrir skjólstæðinga sina, ef áhugi
er einlægur fyrir málefninu. Enn
hafa þessi nýju lög að litlu leyti
komið til framkvæmda. Þeir sem
nú sækja um styrki og lán i þeirra
nafni ættu að fá góð málalok,
meðan litið hefur reynt á gjaldþol
þeirra sjóða, sem leita verður til.
Ef áróðurinn um „jafnvægi
landsins” er alvörumál, þá er
sannarlega kominn timi til að
sýna það i verki.
Óskar Sigtryggsson hefur góðu
heilli hreyft þessu máli, og þótt ég
sé honum ekki sammála um
staðarval og fyrirkomulag vist-
heimilisins, þá er það nú svo, að
flestar nýjungar orka jafnan tvi-
mælis. Þeirri staðreynd verður þó
aldrei haggað, að það „varðar
mest til allra orða, undirstaðan
rétt sé fundin.”
28.3. 1972
Hallur Jónsson."
THE HEALTH
CULTIVATION
HEILSURÆKTIN
hefur flutt starfsertii
sína i
GLÆSIBÆ
Nýtt
námskeið
er að
hef jast
%v
Hver er smnar
gtefu smtöur
Úrvals verkfæri
FÁST í KAUPFÉLAGINU