Tíminn - 07.04.1972, Side 16
16 TÍMINN Föstudagur 7. april 1972.
Ráðstefna um
björgunarmál
OÓ—Reykjavik.
Skipulag og stjórnun á
björgunaraögerðum og samvinna
björgunarsamtaka við opinbera
aöila verður umræðuefni ráð
stefnu, sem Landssamband
hjálparsveita skáta, sem haldin
verður á morgun og laugardag.
Þeir sem að ráðstefnunni standa,
segjast vona, að upp verði tekið
nánara samstarf viðkomandi
aðila um skipulagningu
björgunarmála.
Ráðstefnuna sækja fulltrúar
opinberra aðila, sem um
björgunarmál fjalla, og fulltrúar
björgunarsamtaka.
Nálgast 11 ára
gamalt íslandsmet!
ÖE—Reykjavik.
Fyrsta frjálsiþróttamót ársins
utanhúss var háð viö Mánagarð i
Nesjum á vegum Mána og Sindra,
sem eru innan ÚSÚ i A—Skafa-
fellssýslu. Mótið fór fram 19.marz
og tókst hið bezta.Langbezt; afrek
mótsins var kúluvarp Guðrúnar
Ingólfsdóttur, Mána, sem varpaði
10,96 m, en það er héraösmet og
aðeins 8 sm lakara en íslandsmet
Oddrúnar Guðmundsdóttur,
UMSS, en það var sett 1961 og
11 ára gamalt. Sigrún M.
Benediktsdóttir, M, sigraði i 60 m
hlaupi á 8,8 sek. og i langstökki,
stökk 4,38 m.
Jón M. Einarsson, M, sigraði i
þremur greinum, hljóp 60 m á 8,8
sek., stökk 4,41 m i langstökki og
varpaði kúlu 8,48 m. Hulda
Laxdal Hauksdóttir, S, sigraði i
kúluvarpi telpna, kastaði 7,80 m.
Þá varpaði Sigurður Guðnason, S,
kúlu pilta 9,22 m. Meðvindur var
of mikill i 60 m hlaupinu.
Óbreytt
landslið
Alf — Reykjavik. — 1 dag,
föstudag, er bandariska lands-
liðiö i handknattleik væntanlegt
til landsins, en um helgina fara
fram tveir landsleikir milli
Islands og Bandarikjanna.
HSt hefur nú tilkynnt, að engar
breytingar verða á isl. liðinu frá
Spánarförinni, nema hvað Axel
Axelsson og Jón Hjaltalin eru for-
fallaðir, Axel meiddur á fæti og
Jón er við nám erlendis. Forsala
aðgöngumiða er i Laugardalshöll
i dag frá kl. 18-20.
Þess má geta, að ýmsir aðilar
hafa sýnt þakklætishug sinn til
islenzka landsliðsins i verki með
þvi að færa HSl peningagjafir,
sem verja á til undirbúnings fyrir
Olympiuleikana. Sæmdarkonan
Helga Marteinsdóttir (Röðli)
færði 10 þúsund króna gjöf, og
skipsverjar á b/v Kaldbak, EA 1
hafa sent HSl 22.500 krónur.
Stefán og kona hans, Kristin, með börn sin, sem þátt tóku f
páskagöngunni og voru yngstu þátttakendurnir. Eins og kunnugt er, er
Stefán fyrrum tslandsmeistari á skfðum.
Lokastaðan
og þeir
markhæstu
Hér kemur lokastaðan keppnismóti H.K.R.R.: i Hrað-
Valur 6 6 0 0 53:37 12
Fram 6 4 0 2 46:39 8
Haukar 5 3 0 2 35:31 6
Þróttur 5 3 0 2 32:32 6
Grótta 4 2 0 2 29:26 4
FH 3 1 0 2 27:20 2
1R 3 1 0 2 20:18 2
Ármann 3 1 0 2 21:26 2
Vikingur 3 1 0 2 22:27 2
KR 2 0 0 2 13:16 0
Fylkir 2 0 0 2 8:18 0
Breiðablik 2 0 0 2 8:24 0
Markhæstu menn;
Jón Karlsson Val 22
Hermann Gunnarsson Val 12
Björgvin Björgvinsson Fram 11
Bergur Guðnason Val 10
Þórarinn Ragnarsson FH 9
Helgi Þorvaldsson Þrótti 9
Svavar Geirsson Haukum 9
Sigurður Pétursson Gróttu 9
Ingólfur Óskarsson Fram 8
Einar Magnússon Viking 7
ÞRJU NY
ÍSL.MET
ÓE — Reykjavik.
Þrjú met voru sett á innan-
félagsmótum IR fyrir páska.
Lilja Guömundsdóttir hljóp 600
m. á 1:52,4 min. og bætti eigið
met. Þá setti Ásta Breiðfjörö
telpnamet á sömu vegalengd,
hljóp á 1:57,8 min., sem er betra
en gamla tsl. met Lilju.
Elias Sveinsson setti Unglinga-
met i langstökki án atrennu,
stökk 3.28 m.
Valur sigraði í hraðkeppni
Yngsti
fjögurra ára
Páskaganga Skiðafélags Reykja-
vikur var haldin við Skiðaskálann
i Hveradölum á skirdag kl. 2 e.h.
Um 30 manns mættu til leiks, og
var mótið opið fyrir almenning.
Veðrið var gott, létt frost og sól-
skin. Brautin var lögð á svæðið
fyrir framan Skiðaskálann. Ræs-
markið var við lyftuskúrinn.
Brautin var vel merkt með flögg-
um, og var gengið inn með daln-
um. Jónas Asgeirsson S.R. setti
mótið, og eftir keppnina var verð-
launaafhending fyrir utan Skiða-
skálann. Margt var um manninn
þar efra. úrslit urðu sem hér seg-
ír:
Eldri flokkur:
1. Páll Guðb.s. Skf. Flj.m. 22.30
2. Hilmar Kristj.s. Sigluf. 28.44
3. Stefán Björnss. (fyrrv. form.
S.R. 29.13
Yngri flokkur
1. Vilhjálmur Guðm. 30.15
2. Þóra Reynisdóttir 30.30
3. Sverrir Jensson 30.50
Yngstu þátttakendur i göngunni
voru:
Anna Stefánsdóttir 6ára Ármanni
og Stefán Stefánsson 4 ára Ár-
manni, en foreldrar þeirra eru
Kristín og Stefán Kristjánsson,
iþróttafulltrúar.
Kemur Charlton til
íslands í næsta mánuði?
Alf — Keykjavik. —
tþróttasiöan hefur fregnaö, aö
hinn heimsfrægi knattspyrnu-
maöur, Bobby Charlton, sé
væntanlegur til islands ein-
livcrn timann I næsta mánuöi
á vegum Knattspyrnu-
sambands tslands.
Ekki tókst að ná sambandi
við Albert Guðmundsson, for-
mann Knattspyrnusambands
íslands, i gær til að fá þessa
frétt staðfesta.
Ekki er vitað, hvort
Charlton kemur hingað til að
taka þátt i knattspyrnuleik, en
kona hans mun verða með
honum i förinni, ef úr verður.
Bobby Charlton er meðal
þekktustu knattspyrnumanna
heims. Hann hefur um langt
árabil venð skærasta stjarna
Manchester Utd. og enska
landliðsins og átti drjúgan'
þátt i sigri enska landliðsins i
heimsmeistarakeppninni 1966.
Bobby Charlton á marga að-
dáendur á tslandi og yrði auð-
fúsugestur hér.
Valsliðiö varö Ilraðkeppnis-
meistari H.K.R.R. I I handknatt-
leik s.I. miövikudagskvöld — liöiö
var eina liöiö sem tapaöi ekki leik
I keppninni, sem var mcð úr-
sláttarfyrirkomulagi, þannig aö
lið það sem tapaði tveim leikjum
féll úr keppninni. Var þetta
siöasta leikkvöldiö I keppninni —
sem hófst 12 marz s.l.
Úrslit leikjanna s.l. miðvikud.
voru þessi:
Haukar—Fram 9:7 (6:2)
Þróttur—Grótta 8:4 (4:1)
Valur—Haukar 8:6 (3:4)
Fram—Þróttur 9:3 (3:1)
Valur—Fram 7:6 (4:4)
Það var litil ógnun hjá Fram
liðinu I leiknum gegn Haukum.
Til dæmis um það, gerði Björgvin
þrjú fyrstu mörk Fram — þar af
tvö úr vitaköstum. Þegar 3 min.
voru til leiksloka, var staðan 8:3
fyrir Hauka — þá fóru Framarar
að leika maður á mann og náðu að
komast i 8:6, voru með knöttinn —
Ingólfur skaut i slá, Haukar náðu
knettinum og skoruðu 9:6, en
Sigurður skoraði siðasta mark
leiksins — fyrir Fram 9:7.
Þróttarar unnu Gróttu létt i leik
liðanna — maðurinn hjá Gróttu
sem ógnaði Þróttarliðinu, var
Sigurður Pétursson (3 mörk).
Valsmenn áttu i erfiðleikum
með Hauka liðið. Þegar staðan
var 6:5 l'yrir Val, átti Stefán
Jónsson, Haukum, skot I stöng úr
vitakasti. Stuttu seinna lét Stefán
sem var búinn að skora 4 mörk —
Jón Breiðfjörð verja skot frá sér,
eftir hraðupphlaup. Ef Stefán
hefði skorað úr þessum tæki-
færum, er ekki hægt að segja
hvernig leikurinn hefði fariö (það
er einkennilegt með þetta — ef og
ef).
Fram átti aldrei i erfiðleikum
meö Þrótt i leik liðanna — það
eru þrir leikmenn i liði Fram,
sem eiga skilið hrós fyrir frábært
samspil — þessir leikmenn eru
hinir frábæru linuspilarar liðsins
Björgvin, Sigurbergur og
Sigurður Einarsson, en þeir léku
vörn Þróttar oft grátt — skoruðu
samtals 7 mörk i leiknum.
Úrslitaleikurinn:
Leikur Vals og Fram var mjög
jafn framan af — Framarar
leiddu fyrri hálfleikinn, en Vals-
mönnum tókst að jafna úr vita-
kasti 4:4 fyrir leikhlé.
Fyrstu min. i siðari hálfleik
tókst Valsliðinu að skora þrjú
mörk og komst yfir 7:4, og er
hægt að segja að þeir hafi þá gert
út um leikinn. Fram tókst að
minnka muninn i 7:6 — voru með
knöttinn, en misstu hann til Vals-
manna, þegar nokkrar sek. voru
eftir.
Að lokum má geta þess, að
Valsliðið notaði ekki landsliðs-
mennina sina sex i mótinu —
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
Bobby Charlton sést hér á miöri myndinni, en til hægri er Allan Ball.
sýnir það hvað breiddin er mikil
hjá Val — þvi félagið sýndi i
mótinu að það á marga góða
handknattleiksmenn.
SOS.