Tíminn - 09.04.1972, Síða 19
Sunnudagur 9. april 1972.
TÍMINN
19.
Skálholt
Framhald
af bls. 15
frumvarpsins fyrir þetta. Mark-
mið þeirra er bundið félagsmála-
skóla launþegasamtakanna
einum, og er eðlilegt, að þeir miði
frumvarpið við það. Hitt munu
allir geta orðið sammála um, að
verkalýðshreyfingin getur ekki
gert kröfu til þess, að rikisvaldið
sýni henni viðurkenningu og
trúnað” umfram önnur frjáls
félagasamtök þessa lands. Slikt
verður hvorki til eflingar
óhindruðum skoðanaskíptum eða
öðrum þáttum lýðræðis. Þann
stuðning rikissjóðs, sem frum-
varpið gerirráð fyrir, er þvi ekki
ástæða til að tryggja félagsmála-
skóla launþegasamtakanna
einum. — öll þau félagssamtök,
sem safnað geta ákveðnum hópi
nemenda um skólastarf, eiga rétt
á samastuðningi, að fullnægðum
örfáum grundvallarskilyrðum.
Frumvarpi til laga um félags-
málaskóla launaþegasam-
takanna þarf þvi að fylgja
frumvarp til laga um lýðskóla á
íslandi. Og það frumvarp ber að
afgreiða bæði fljótt og vel.
Útgörðum 25.marz
Framhald
af bls. 3.
klagar annan, og ' lögreglan er
móguð yfir að þurfa að vera hér
til að lita eftir Mafiumönnunum,
sem fá ekki að vinna, eins og
venjulegir fangar.
Ég hitti Gaetano Accardi og bar
honum kveðju La Barbera. Hann
þakkaði, og ég bað hann að segja
mér, hvers vegna hann væri i út-
legð á Filicudi.
— Arið 1968 fékk ég skipun um
að yfirgefa Palermo, þvi að stéfn
an væri að aðskilja okkur. Ég fór
til Turin, þar sem ég stofnaði litið
verkfræðifyrirtæki. En þegar
Mafiustimpill er einu sinni
kominn næst hann ekki af. Dag
nokkrun var ég svo handtekinn og
fluttur til Messina og þaðan
hingað. Þetta er heimskulegt.
Stefnan er að skilja okkur að, og
nú búum við hér i sama húsi.
Accardi var grunaður um að
hafa starfað með ýmsum þekkt-
um glæpamönnum, meðal þeirra
La Barbera, að eiturlyfjasmygli
og sölu. En þar sem mér hafði
verið sagt, að hóparnir á Filicudi
og Linosa væru fjandsamlegir
hvor öðrum, velti ég nú fyrir mér,
hvernig samband þeirra Accardis
og La Barbera raunverulega
væri. Hann virtist lesa hugsanir
minar, og spurði hvernig mér
hefði geðjazt að La Barbera. Ég
svaraði því til, að mér fyndist
hann mjög gáfaður maður og
vitur. Siðar var mér sagt, að
Accardi væri þessu ekki sam-
mála, og þá minntist ég þess, að
Lucky Luciano hafði jafnan sagt,
að La Barbera væri allt of hégóm-
legur til að geta orðið einn „hinna
stóru” innan Mafiunnar.
Ég fór aftur til Linosa og átti
frekari viðræður við La Barbera
og félaga hans. En þær viðræður
báru engan árangur. Þegar ég fór
að spyrja um Mafiuna, sneru þeir
út úr, og málið lenti i hring, án
þess að ég yrði nokkurs visari.
En ég hef alltaf verið, og er enn,
viss um, að til er eitthvað, sem
heitir Mafiuskóli, þar sem ungir
glæpamenn eru aldir upp. Allir
þessir menn eru eins. Meira að
segja hreyfingar þeirra. Þeir eru
allir afar kurteisir og tala gott
mál. Þeir klæða sig smekklega og
eru smámunasamir. Gáfna
visitala þeirra er há, hærri en
okkar flestra og þeirra manna,
sem berjast gegn þeim.
Það er staðreynd, að ef ekki
verður flett ofan af æðstu mönn-
um Mafiunnar, og yfirvöld verða
áfram treg til að ganga að em
bættismönnum, sem vitað er, að
hafa samband við Mafiuna, er
baráttan gegn henni vonlaus. Það
verður aðeins endurtekning á
baráttu fasista við Mafiuna, og
siðan heldur allt áfram eins og
áður: Fasistarnir lokuðu nokkra
smákarla inni en þeir stóru gengu
lausir. (Þýtt og endursagtSB)
JÓN ODDSSON/ hdl.
málflutningsskrifstofa
Laugaveg 3. Simi 13020
Mafía
1. íslenzka
myntsýningin
Fyrsta islenzka myntsýning,
sem haldin hefur verið hér á
landi, verður opnuð i Bogasal
Þjóðminjasafnsins i dag og mun
hún standa yfir til sunnudags-
kvölds 16. april.
Myntsafnarafélag íslands
gengst fyrir sýningu þessari:
verður þar til sýnis mynt, islenzk
og erlend, vörupeningar, einka-
mynt, minnispeningar islenzkir
og erlendir, seðlar og ýmislegt
fleira varðandi mynt og mynt-
fræði.
Flest af þvi, sem sýnt verður,
er i eigu félaga i Myntsafnara-
félaginu.
Gefin verður út all myndarleg
sýningarskrá með greinum eftir
m.a. forseta Islands dr. Kristján
Eldjárna, nnes Nordal seðla
bankastjóra, Þór Magnússon
þjóðminjavörð og fleiri. Þá er
sagt frá aðdraganda að stofnun
Myntsafnarafélagsins, en það var
stofnað 19. janúar 1969.
An efa verður fróðlegt að skoða
sýningu þessa, bæði fyrir áhuga-
menn um myntsöfnun og aðra,
þvi þarna munu verða til sýnis
ýmsir fáséðir hlutir, sem allur al-
menningur mun sjaldan, eða
jafnvel aldrei, hafa séð fyrr.
Sýningin verður opin daglega
frá kl. 2-10 e.h.
Helgi Jónsson formaður Myntsafnarafélagsins skoðar i einn sýningar
skápinn (Tímamynd Hóbert)
um
OIÍUSI6TI
BÍLABÚÐ öiÁRMÚLA
OMEGA
Nivada
JJIpina.
PIERPOnT
Magnús E. Baldvinsson
Laugavegi 12 — Sími 22804
AUGLÝSING
frá Llfeyrissjóði verkalýðs-
félaganna i Vesturlandskjördæmi.
Stjórn Lifeyrissjóðs verkalýðsfélaganna i
Vesturlandskjördæmi hefur samþykkt að
á þessu vori verði sjóðfélögum gefinn
kostur á fasteignaveðsláni Um-
sóknarfrestur er til 15. mai.
Umsókareyðublöð fást á skrifstofu sjóðs-
ins Suðurgötu 36, Akranesi, simi 1927.
Skrifstofan er opin kl. 14-16 mánudag til
föstudags, einnig munu Trúnaðarmenn
þeirra Verkalýðsfélaga er aðild eiga að
sjóðnum veita upplýsingar og umsóknar-
eyðublöð.
Umsóknir sendist að Suðurg. 36, Akranesi.
C/O. Skúli Þórðarson Akran.
Stjórn Lifeyrissjóðs verkalýðsfélaganna i
Vesturlandskjördæmi.
Hvér er sínnar
gæfu smíður
Úrvats verkfærí
FÁSTIKAUPFELAGINU