Tíminn - 21.04.1972, Síða 11
Laugardagur 22. april 1972.
TÍMINN
11
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
Geir kjörinn í þriðja sinn
Urslit kunngerð í
skoðanakönnun um
„Handknattleiks-
mann ársins” í gær
Alf.—Reykjavik.
— i gær voru kunngerð úrslit i
skoðanakönnun Tlmans um
„Handknattleiksmann ársins”,
og hlaut Geir Hallsteinsson, FH,
það sæmdarheiti i þriðja sinn á
fjórum árum. Hafði Geir tals-
verða yfirburði, hlaut 402 atk-
væði, en annar I röðinni varð Axel
Axelson, Fram, með 138 atkvæði
og I þriðja sæti varð Gisii Blöndal,
Val, með 97 atkvæði.
Crslitin voru kunngerð i hófi,
sem efnt var til á Hótel Esju.
Afhenti Indriði G. Þorsteinsson,
ritstjóri, Geir Hallsteinssyni
styttu þá, sem keppt var um.
Meðal gesta voru Rúnar Bjarna-
son, varaformaður HSt, Jón Er-
lendsson, formaður landsliðs-
nefndar, og Einar Hjartarson,
formaður Handknattleiksdóm-
arafélagsins. Einnig var mættur
Hallsteinn Hinriksson, faðir
Geirs, hinn kunni handknattleiks-
forustumaður, svo og þeir hand-
knattleiksmenn, sem urðu i efstu
sætunum, en samtals bárust 1113
atkvæði, og skiptust þau á milli 26
handknattleiksmanna. Röð 10
efstu varð þessi:
Geir Hallsteinsson, „Handknattieiksmaður ársins” fyrir miðju. Hægra megin eru Framararnir
vinstra megin Guðjón Magnússon, Viking og Hjalti Einarsson, FH
Björgvin Björgvinsson
1. Geir Hallsteinsson, FH 402
2. Axel Axelsson, Fram 138
3. Gisli Blöndal, Val 97
4. Guðjón Magnússon, Vfk. 75
5. Hjalti Einarsson, FH 60
6. Sigurbergur Sigst.s. Fram 58
7. Ölafur H. Jónsson, Val 50
8. Björgvin Björgv.s. Fram 49
9. Birgir Finnbogas. FH 47
10. Gunnsteinn Skúlas. Val 38
Aðrir handknattleiksmenn
hlutu færri atkvæði. Eins og fyrr
segir, er þetta i fjórða sinn, sem
Timinn efnir til skoðanakönnunar
um „Handknattleiksmann árs-
ins”. Tvö fyrstu árin hlaut Geir
Hallsteinsson kosningu, en þriðja
árið varð Ólafur H. Jónsson, Val,
fyrir valinu. 1 ár endurheimti
Geir svo sæmdarheitiö.
1 ávörpum, sem flutt voru i hóf-
inu i gær, kom m.a. fram i ræðu
varaformanns HSl, Rúnars
og Axel Axelsson, en
(Timamynd GE).
Bjarnasonar, að mikil áherzla
verði lögö á allan undirbúning is-
lenzka landsliðsins fyrir ólym-
piuleikana IMunchen, en æfingar
Islenzka landsliðsins munu hefj-
ast á mánudaginn.
1 blaöinu á morgun veröa birtar
fleiri myndir frá hófinu I gær.
57. Víðavangshlaup IR:
Nú varð Ágúst
sigurvegari!
OE—Reykjavik.
57. Viðavangshlaup 1R fór fram
með miklum glæsibrag á sumar-
daginn fyrsta. Þátttaka var meiri
en nokkru sinni áður, keppni
skemmtilegri en síðustu ár, veður
einstaklega gott og áhorfendur
með meiri móti. Er hægt að fara
fram á öllu meira?
Þeir hjá Golfklúbb Ness notuðu
góða veðrið á sumardaginn fyrsta
til að halda keppni, sem þá var
auðvitað fyrsta golfkeppni
sumarsins hjá klúbbnum.
Leiknar voru 18 holur eftir vetr-
arreglum — þó var púttaö út á öll-
um holum þrátt fyrir að enn væru
flatirnar ekki komnar I gagnið.
Úrslit keppninnar urðu þessi:
Jóhann Reynisson,
Valur Jóhannsson,
Óli B. Jónsson,
Kjartan L. Pálsson,
Ólafur Loftsson,
Kjartan L. Pálss.,
42:47-24 = 65
45:47-24 = 68
37:45-12 = 70
45:40-13 = 70
43:40-13 = 70
45:41-16 = 70
(Fyrir þá, sem ekki eru inn I
golfi, tákna fyrstu tvær tölurnar
hvað keppandinn fór hringina á —
9 holur hver hringur — siðan
kemur forgjöf viðkomandi og loks
nettó árangur)
Okkur er kunnugt um a.m.k.
þrjú mót, sem fara fram i dag —
þ.e.a.s. hjá Keili i Hafnarfirði,
Golfklúbb Suðurnesja og hjá
Golfklúbb Ness. Hefjast öll mótin
á venjulegum tima eftir hádegi i
dag.
Mót eru enn ekki hafin hjá Golf-
klúbb Reykjavikur i Grafarholti,
en sjálfsagt er ekki langt að biöa
þess, enda völlurinn i mjög góðu
ástandi miðað við þetta leyti árs.
Svipaða sögu er að segja af öör-
um völlum, en þeir taka venju-
lega flestirfyrr við sér en Grafar-
holtsvöllurinn.
Alls voru 78 skráðir til keppni,
en 64 lögðu af stað og luku
hlaupinu. Þetta var fjölbreyti-
legur hópur, allt frá börnum
innan við fermingu til þrælfull-
orðinna manna. Stúlkur voru
einnig meðal keppenda og stóðu
sig með ágætum, sérstaklega
Ragnhildur Pálsdóttir, UMSK
sem var i 44. sæti af 64 kep-
pendum. Annars ættu
1R—ingar að stefna að þvi að hafa
fleiri flokka i hlaupinu, sérstakan
kennaflokk og jafnvel flokk
öldunga. Slikt væri skemmti-
legra, og myndi vafalaust auka
þátttöku I hlaupinu.
Aðalbaráttan I þessu hlaupi var
milli Jóns H. Sigurðssonar, HSK
sem sigraði i Víðavangshlaupi
Meistaramótsins, og Agústs
Asgeirssonar, 1R, sem varð
annar I þvi hlaupi. Baráttan var
hörð, og það var ekki fyrr en á
lokasprettinum, að Agúst var
hinn sterki i þessu hlaupi.
Vafalaust eiga þeir Jón og Ágúst
eftir að þreyta skemmtilega
keppni á hlaupabrautinni I
sumar, 1 næstu sætum voru
Einar Óskarsson, UMSK, korn-
ungur og efnilegur hlaupari úr
Kópavogi, og Sigfús Jónsson ÍR
sem var fjóröi.
Þrumuskot Axels á
síðustu sekúndum
og Víkingur sigraði í fyrsta leiknum
Ágúst
— úrslit birt síðar
Þá er knattspyrnan loks hafin
af fullum krafti I höfuðborginni.
Það voru Vikingur og Armann,
sem hófu vertiðina með fyrsta
leik Reykjavlkurmótsins á
fimmtudaginn. Heldur var þaö
útþynnt skemmtun, sem 'liðin
buöu upp á — liöin geta miklu bet-
ur — en náðu sér aldrei á strik I
leiknum, sem Vfkingur sigraöi
3:0.
Eina tækifærið, sem skapaðist i
fyrri hálfleik, átti Armann — Jón
Knattspyrna
Rvikurmótinu I knattspyrnu
veröur haldið áfram i dag á Mela-
vellinum kl. 14. Þá leika KR og
Þróttur, en leik Fram og Vals,
sem fyrirhugaö var aö færi fram
á sunnudag, hefur verið frestað.
Landsliðiö fer til Vestmanna-
eyja i dag og leikur kl. 15 gegn
heimamönnum.
Litlu bikarkeppninni verður
haldiö áfram kl. 15. A Akranesi
leika heimamenn gegn Keflavik
og I Kópavogi leika Breiðablik og
Hafnarfjörður.
Körfuknattleikur
A laugardaginn leika Vest-
mannaeyjar og Njarðvik i 2. deild
I körfuknattleik. Leikurinn hefst
kl. 18.15 I fþróttahúsinu á Sel-
tjarnarnesi. Strax á eftir leika i 1.
deild 1S og UMFS og Armann og
Þór.
A sunnudag kl. 17 fer fram
úrslitaleikur I 2. deild, en strax á
eftir leika KR og Þór. HSK og
UMFS og loks 1R og 1S.
Knattþrautir í Kópavogi
Knattspyrnudeild Breiðabliks
boöar til forkeppni I knatt-
þrautum sunnudaginn 23. aprfl á
vellinum við Vallargerði. Fimmti
flokkur komi kl. 13.30, 4.flokkur
komi kl. 15.Stjórnin.
Hermannsson skaut rétt yfir slá á
15. min.
1 siðari hálfleik mættu Vikingar
ákveönir til leiks, og sóttu stift —■
á 19. mfn. á Guðgeir Leifsson skot
I stöng, fimm mln. siðar tekur
hann frispark fyrir utan vita-
teigshorn, og á eitthvern óskiljan-
legan hátt þýtur knötturinn á
milli lappa varnarmanna Ar--
manns — til Hafliða Péturssonar,
sem er I opnu færi við markteigs-
horn: hann var ekki lengi aö átta
sig, og spyrnti knettinum I mark
(1:0).
A 30. min. bætir Þórhallur
Jónsson, öðru marki við fyrir
Vlking, og á siðustu sek. leiksins
innsiglar gamla kempan 1 Axel
Axelsson (áður Þrótti) sigur Vik-
ings — meö einu af sinum gömlu,
góðu skotum, og þvilikt þrumu-
skot — hann tók viö knettinum við
markteig og var ekki lengi að átta
sig á hlutunum — skot hans lenti
uppi við slá, óverjandi! Jafnvel
Gordon Banks heföi ekki átt
möguleika á að verja.
Góður dómari leiksins var Guð-
mundur Haraldsson. SOS.
Drengjahlaup
Metþátttaka er í Drengjahlaupi
Ármanns, sem háð verður á
morgun. Eru keppendur 70 tals-
ins. Hlaupið hefst i Hljómskála-
garðinum kl. 14.
Knattspyrnumenn KR keppa
við beztu lið Danmerkur!
Hið unga 1. deildarlið KR i
knattspyrnu mun leggja land
undir fót 17. júni n.k. og bregða
sér til Danmerkur, þar sem liðið
mun dveljast i tfu daga I æfingab-
úðum.
Einnig leika KR—ingar þrjá
leiki i ferðinni, og það eru ekki lið
af verri endanum, sem þeir
mæta. Liðin eru Vejle og Frem,
sem eru tvö af beztu 1. deildar-
liðum Dana, en ekki er búið að
ákveða, hvaða lið mætir
KR—ingum i þriðja leiknum.
1 æfingabúöunum mun liðið æfa
undir handleiðslu danska lands-
liðsþjálfarans f knattspyrnu.
Munu hann og Orn Steinsen,
þjálfari KR, leiðbeina hinum
ungu KR—ingum og undirbúa
þá undir baráttuna i sumar —
eftir beztu getu.
Þá má segja, að meö þessari
ferö stígi KR—ingar spor 1 rétta
átt til að binda liðið saman og
styrkja félagsanda leikmannanna
fyrir hins ströngu keppni, sem
búast má viö að verði 11. deildinni
i sumar.
SOS