Tíminn - 27.04.1972, Side 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
SCNDIBIL ASTODIN Hf
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
SJ-Reykjavik
tJtför Jóhannesar Kjarvals iistmálara fór
fram i gærmorgun frá Dómkirkjunni i sólskini
og golu. Hópur fólks hafði safnazt saman fyrir
kirkjudyrum þar sem Lúðrasveit Reykjavikur
lék ættjarðarlög áður en sjálf athöfnin i kirkj-
unni hófst með orgelleik Ragnars Björnssonar
dómorganista og söng Fóstbræðra. Margt
manna var i kirkjunni.
Sr. Bragi Friðriksson flútti
kveðjumál og fórust honum
m.a. orö á þessa leiö:„En
anda, sem unnast,
fær aldregi, eilifö aö skiliö”,
sagöi annaö skáld islenzkt,
sem einnig unni yfir djúpin,
sem skilja lönd vor tvö. Tóve
dó 3. marz 1958. Yfir rilmi
hennar hékk fögur mynd i blá-
um og rauöum litum, en stór
gulur bátur meö litla, gula
mannveru viö stýri siglir inn i
myndina. Reginssund heitir
þessi mynd. Þaö var erfitt
gaman fyrir þennan stóra,
stælta og skapúfna mann aö
gefa Islandi likama sinn og
sál. ,,En andi hans er geymd-
ur okkur, þar til köllun lista-
mannsins er fullnægt”, reit
kona hans einnig.
„Æska min er öll i mynd-
um” sagöi Kjarval. Gat hann
ekki lika sagt: Ast min er öll I
myndum. Viö trúum þvi, aö
inn i myndina hafi stóri, guli
báturinn nú siglt heilu og
höldnu og andar, sem unnust
hafi aö lokum fundizt á friöar-
ströndu handan Reginssunda.
Þaö var sonurinn, Sveinn,
sem bar þessa mynd sem
kveöju og þökk frá fööur aö
dánarbeöi móöur. Þaö varö og
hlutverk þeirra systkina
beggja aö brúa biliö, sem varö
milli foreldra þeirra.”
Eftir aö Þorvaldur Stein-
grimsson haföi leikiö einleik á
fiölu flutti sr. Jón Auöuns
Dómkirkjuprestur útfarar-
ræöuna og sagöi m.a.:
„Hin ólikustu tilvik virtust
finna sina strengi i sálu þessa
furöulega manns, ýmist til
gleöi eða hryggðar. Ég man
einn morgun snemma sumars.
Þá var hann hryggur og sá
ekki sumarljósiö. Hér i
nágrenni var verið að brenna
sinu. Kjarval sagöi: Hugsaöu
þér, að þessi skuli vera kveöja
íslands til farfuglanna, sem
hingað eru komnir um óraveg
og liggja nú á hreiörunum
sjálfum i eldi og svælu. Lóurn-
ar kveina, og nú er draumur
vetrarrjúpunnar dáinn! Hann
heyrði I eigin hjarta sársauka-
kvein þessara vængjuöu vina
sinna, og þjáning hans var
mikil. Þá átti Kjarval ekkert
gamanyröi til aö gleöja aöra
meö, aöeins sorg, sem brann i
augum hans og rómi. Hann
málaði ekkert þann dag.”
Og ennfremur:
„Jóhannes Kjarval er á
gangi út Snæfellsnes. Hann
ætlar að mála i Einarslóni.
Morgunn var fagur, himininn
blár, hrauniö angaöi, mosinn
var silfraöur og huldumeyjar
liðu mjúklega og létt milli
hraundranganna. Málarinn er
einn á veginum, aleinn og þó
er hann i góöum félagsskap.
Litil hagamús hefir elt hann
langa leiö og tinir upp brauö-
agnir, sem I götuna falla.
Hann sezt og talar viö hana og
heyrir hana tala, og sálu-
félagiö viö litla förunautinn á
veginum fyllir málarann
geilsandi gleöi og förunautur-
inn ljósbrúni skilur mannamál
af tungu Kjarvals. Það er eins
og lifiö allt streymi i gegn um
þennan stóra mann. 1 leiöslu
lifir hann alheimskennd
mýstikarans. Uppnuminn
kemur Kjarval I Einarslón og
málar allan þann dag.”
Meðan Sorgarmars Hándels
var leikinn báru kistu Kjar-
vals úr kirkju þeir Ólafur Jó-
Frh. á bls. 15
Kista Júhannesar Kjarval Donn ur uomKirnjunm í gær. iumamyna uunnar)
Skáld íslenzkra lita
kvatt með viðhöfn
Endanleg vígsla
Búrfellsvirkjunar
fer fram 20. maí
Sjötta og síðasta túrbínan verður prófuð
innan skamms. Hámarksorkuframleiðsla
verður 240 megavött.
OÓ-Reykjavik.
Verið er að setja niður
sjöttu og siðustu túrbin-
una i Búrfellsvirkjun og
20. mai n.k. fer fram
vigsluhátið og virkjunin
þar með fullvigð. Verður
túrbinan tilbúin til próf-
unar 11 maí. og verður
hún þá reynd. Undan-
farna mánuði hefur ver-
ið unnið að niðursetn-
ingu þriggja véla.
Fimmta vélin fór i gang
i marzmánuði og hin
fjórða i febrúar. Þegar
þessar þrjár vélar kom-
ast allar i gagnið tvö-
faldast orkuframleiðsla
Búrfellsvirkjunar.
Afl allra -vélanna er 210 mega-
vött, en ef meö þarf er hægt að
auka þaö um 15%, þannig aö
raunverulega er orkugeta
virkjunarinnar 240 megavött. Til
samanburðar má geta, aö
samanlögö orka allra virkjana I
Soginu er 89 megavött.
Hinn 20. mai verður virkjunin
vigö, eins og áöur er sagt, en þann
dag fyrir sjö árum voru lögin um
Landsvirkjun staðfest.
öllum framkvæmdum viö
siálfa virkiunina viö Búrfell er
lokiö, en eftir er aö hreinsa og
snyrta umhverfiö. Veröur næsta
umhverfi mannvirkjanna ræktaö
upp, eins og viö aörar stöövar. En
i sumar verður lögö önnur lina frá
Búrfelli til Reykjavikur.
Viö rekstur stöövarinnar vinna
alls um 20 manns. Eru þeir flestir
meö fjölskyldur og hefur myndazt
smábyggö viö Búrfell. Þeir, sem
þar búa, tilheyra Gnúpverja-
hreppi.
FLAKIÐ AF EL GRILL0 A
B0TNI SEYÐISFJARÐAR
KVIKMYNDAÐ I SUMAR
ÞÓ-Reykjavík.
Olíuskipiö E1 Griilo hefur legiö
á botni Seyöisfjaröar siöan á
striösárunum, og er taliö aö I
tönkum skipsins sé mikiö af oliu.
Ef tæring nær til aö gera gat á
tankana er voðinn vis og olfan
myndi leggja undir sig allan
Seyöisfjörð. Aö vonum eru Seyö-
firöingar uggandi yfir þessu og nú
hafa nokkrir áhugasamir Seyö-
firöingar ráöiö sér froskmenn til
aö kafa niöur að skipinu, og er
ætlunin aö þeir hafi meö sér
neöansjávarkvikmyndavélar og
taki kvikmyndir af flaki Ei Grillo.
Meö þessum köfunum og kvik-
myndun á aö reyna aö komast aö
þvl hvort olia sé I skipinu ennþá,
en frekar eru taldar likur á þvi,
þó svo aö Oliufélagiö h/f hafi dælt ,
oliu upp úr skipinu i kringum
1950.
Seyðfirðingar þeir, sem fyrir
köfuninni standa munu greiða
kostnaöinn viö hana, þar ssem
opinberir aðilar viröast hafa lit-
inn áhuga á henni.
45850 FJÖLSKYLD-
UR Á LANDINU
OÓ-Reykjavik.
1. des. 1971 voru Islendingar
orðnir yfir 207000 talsins. Sam-
kvæmt upplýsingum úr þjóö-
skránni voru landsmenn 206818
fyrrgreindan dag, en þar var um
bráðabirgöatölu aö ræöa og voru
ekki talin meö börn, sem fæddust
i mánuðinum þar á undan, og er
samkvæmt Hagtiöindum óhætt aö
bæta aö minnsta kosti 300 til 400
manns viö uppgefna tölu. Sama
heimild segir, að tala fjölskyldu-
kjarna á landinu sé alls 45850. En
einhleypingar eru 50197. Mun þaö
nokkuö há tala miöaö viö þaö sem
almennt er talið einhleypingur,
en þarna eru talin börn yfir 16 ára
aldri, þótt þau búi hjá foreldrum
sinum. Er það vegna þess, aö
þjóöskráin er á þessu sviöi löguö
eftir þörfum skattayfirvalda.
En hvaö um þaö, fjölskyldurnar
skiptast þannig: Hjónabönd án
barna 12655, Hjónabönd meö
börnum 26700, Óvigö sambúð án
barna 609. Óvigö sambúö meö
börnum 1049. Faðir meö börn 289.
Móðir meö börn 4548, 1 siðasta liö
eru taldar um 100 eiginkonur er-
lendra manna, sem búa á Kefla-
vikurflugvelli.
Meöalstærð fjölskyldukjarna,
og er þar sami fyrirvari og áður
með börn yfir 16 ára, sem búa hjá
foreldrum sinum: er 3,42.