Tíminn - 27.04.1972, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 26. april 1972
TÍMINN
5
m
NH
Giftist barón.
Það er ekki á hverjum degi, sem
islenzkar ungmeyjar giftast
barónum. Það gerðist þó ný-
lega, þegar Hijdur Lárusdóttir
giftist Peter von Schilling
baron frá Arósum. Hjóna-
vigslan fór fram i Helligands-
kirkju I Kaupmannahöfn, og
þar var brilðurin klædd
islenzkum skautbúning, og
vakti mjög mikla athygli.
Dönsk vikublöð birtu myndir af
bráðhjónunum, og hér sjáið þið
þau. Hildur er sögð stunda nám
við verzlunarskóla i Kaup-
mannahöfn, en maðurinn
hennar er við verkfræðinám.
Þau hyggjast setjast að i Kaup-
mannahöfn. Hildur er dóttir
Lárusar LUðvigssonar en afi
brúðgumans, var siðasti ræðis-
maður rússneska keisarans i
Kaupmannahöfn
Fjaliið skreið hálfan
annan kilómetra.
Eitthvert furðulegasta land-
skrið,sem sögur fara af átti áér
stað i Daghestan, einu af
sóvézku sjálfstjórnarlýð-
veldunum I Kákasus, á sl. ári,
er heilt fjall færðist 1 1/2 kiló-
metra á einni viku. Þegar þessr
ferð fjallsins var lokið hafði það
stiflað fjallaá og nýtt stööuvatn
myndazt, en yfirborð fjallsins
tók engum breytingum á ferða-
laginu — tré stóðu eftir sem
áður og jafnvel hirðingjakofi,
óskemmdur.
Jaröfræðingar telja aö stór-
felldar rigningar hafi valdið
þessu ferðalagi fjallsins, vatn-
sæðar neöanjarðar hafi bólgnað
svo að þær urðu að lokum eins
og „smurningur” milli jarðlaga
i undirstöðu fjallsins
íbúðir handa
milljónum.
—A timabili fimm ára
áætlunarinnar i Sovétrikjunum
1971-1975 á að reisa Ibúöarhús-
næði samtals að grunnfleti 580
millj. fermetra (nettó), en það
er 12 af hundraði meira en
byggt var á timabili slðustu
fimm ára áætlunarinnar.
Þessar byggingaframkvæmdir
jafngilda sex nýjum borgum á
stærð við Moskvu!
A siðustu 10 árum hefur
framkvæmdahraöinn I
sovézkum Ibúðabyggingaiönaði
tvöfaldazt. Hinar stóru verk-
smiðjur, sem framleiða
einingarhluta húsa, ljúka nú við
smiði 9000 nýrra ibúða á degi
hverjum, og gæði framleið-
slunnar batna dag frá degi.
Sovézkir byggingasérfræð-
ingar hafa hannaö liðlega 6000
nýjar gerðir ibúðahúsa af
ýmsum stæröum. Meö þvi aö
beita nýjustu byggingaað-
ferðum hefur tekizt að bæta
mjög verulega hljóð- og hita-
einangrun I þessum verk-
smiðjuframleiddu húsum.
Vill ekki fara heim
Hver hefði á móti þvi, að láta
þessa stúlku gefa sér skipanir
og hver mundi ekki hlýða henni
umyrðalaust? Hún er þó ekki
hermaður, þrátt fyrir borðana á
handleggnum, þa áetti hún bara
á peysuna sina til skemmtunar.
Stúlkan heitir Nalini og er frá
Guyana. Hún kom til London til
þess að keppa þar um titilinn
Ungfrú Heimur, en komst ekki
nema ifjórðasæti. Henni likar
hins vegar svo vel við Lundúna-
borg, að hún vill ekki fara heim
aftur, og ætlar sér að freista
gæfunnar I London. Nalini er
tvitug, og nú er hun byrjuð að
vinna sem ljósmyndafyrirsæta
og er talin mjög efnileg.
Fjórða konan
Amin, forseti Uganda, kvæntist
nú nýlega fjórðu konu sinni, en
samkvæmt lögum múhameðs
trúarmanna geta menn átt
margar konur. Nýjasta kona
Amins heitir Madina
Majjemba. Fimmta konan
hefur verið nefnd I sambandi
við Amin, og með henni átti
hann tvibura I fyrra. Hún heitir
Sauda,en ekkerthefur afhenni
spurzt siðan uppreisnin var
gerö fyrir 15mánuðum, þegar
Amin komst til valda I Uganda.
Tölvuþjónusta við
sjúkraflutninga
Moskvu — A vegum sovézka
heilbrigðismálaráöuneytisins
hefur verið komið upp sjál-
fvirku kerfi tölvumiðstööva i
sambandi við neyðarhjálp
lækna og sjúkraliöa, lyfjadreif-
ingu um landið, sjúkraflutninga
og slysahjálp. Upplýsingar eru
sendar frá sjúkrabilum til
tölvumiðstoðvarinnar i borginni
um hin einstöku slysatilfelli og á
svipstundu segir tölvan til um
það, hvað nauðsynlegt er að
flytja á slysstað eða dvalár-
stað sjúkliiigsins, hverskonar
sérfræöingur eigi að fara með
sjúkrabilnum á vettvang, til
hvaða sjúkrahúss eða slysa-
varðstofu heppilegast sé og
fljótlegast að fara o.s. frv. Fer
þetta allt eftir aðstæðum hverju
sinni og mati tölvunnar.
Fær tilboð frá
Las Vegas.
Norska poppsöngkonan Wnche
Myhre, sem gift er dönskum
manni, hefur notið mikilla vin-
sælda á Norðurlöndunum, og nú
hafa dyr heimsins opnazt fyrir
henni, þvi hún hefur fengið at-
vinnutilboð frá Las Vegas. Til-
boðið barst henni eftir að hún
hafði slegið I gegn i Þýzkalandi.
Wenche reiknar meo ao ta eKKi
minna en 300 þúsund króna kaup
á viku, ef hún tekur tilboðinu frá
Las Vegas, og þar við bætist, að
hún telur, að frá Las Vegas liggi
leiðir til enn meiri frægðar. Þau
ræða þetta þvi töluvert þessa
stundina, tannlæknishjónin i
Osló, en Wenche er gift tann-
lækni, og þau búa um þessar
mundir i Osló.
— Hvað á ég að segja það oft?
Alltaf frá vinstri.
Presturinn komst að raun um, að
einn drengurinn i hópi spurn-
ingabarna hans sat og fyllti út
getrauna* seðil i stað þess að
fylgjast meö i Bibliunni. Prestur
þreif af honum seðilinn og sagði
reiðilega: Ekki nóg með, að þú
eyðir bæði þinum tima og
minum og peningum i svo synd-
samlegan hlut sem f járhættuspil,
heldur hefurðu ofan á allt saman
sett jafntefli hjá Liverpool og
Huddersfield.
DENNI
DÆMALAUSI
' — Já, ég get séð kúluna. Viltu
vita eitíhvað fleira.