Tíminn - 27.04.1972, Side 3
Fimmtudagur 27. april 1972
TÍMINN
3
F.v. Bragi Ragnarsson framkvæmdastjóri, Jón Guö bjartsson stjórnarformaöur og Margeir Sigurjónsson
stjórnarmaöur fyrir utan hús Kristjáns ó. Skagfjörö I örfirisey. (Tfmamynd G.E.)'
FYRIRTÆKID KRISTJÁN Ó.
SKAGFJÖRD SEXTÍU ÁRA
Klp-Reykjavik
t dag á ein elzta og þekktasta
heildverzlun á islandi Kristján ó.
Skagfjörö, sextiu ára afmæli.
Verzlunarleyfiö var gefiö út á
Patreksfirði þann 27.april 1972 og
fyrirtækinu gefiö leyfi til aö
verzla með hvað sem var nema
áfenga drykki og viö þaö stendur
enn i dag.
Fyrirtækiö gat sér góðan orðstir
og aflaði traustra sambanda
undir stjórn Kristjáns, en hann
var maður vinsæll og vel látinn af
öllum.
Þegar Kristján lézt árið 1951
var stofnað hlutafélag undir
sama nafni, og voru hluthafar
þau Emilla Skagfjörð, ekkja
Kristjáns, Haraldur Agústsson og
Margeir Sigurjónsson. Fljótlega
réðu þau Jón Guðbjartsson sem
framkvæmdastjóra fjfrir-
tækisins, og undir hans stjórn
hefur fyrirtækið -vaxið svo úr
grasi, að það er nú orðið eitt það
stærsta sinnar tegundar i landinu.
Má þar nefna sem dæmi, að árið
1952, var hlutafjárupphæöin 90
þúsund krónur og starfsmenn 3,
en er nú 6 millj. kr. og starfsmenn
56. Jón er nú stjórnarformaður
félagsins, en núverandi fram-
kvæmdastjóri er Bragi Ragnars-
son.
Fyrirtækið Kristján Ó Skagfjörð
hefur löngum haft góða starfs-
menn I sinni þjónustu, en þar er
sá háttur hafður á, að þeir sem
unnið hafa i 5 ár hjá þvi, fá gefins
hlutabréf i fyrirtækinu og er nú
um helmingur starfsmanna hlut-
hafar i þvi.
Kristján 0. Skagfjörð hefur
lengst af verzlað með nýlendu-
vörur og veiðarfæri, en nú siðari
ár, hefur það fært út kviarnar og
má nefna sem dæmi um nýja
vöruflokka, fiskvinnsluvélar,
bátavélar, tæki og búnað til
skipasmiða, byggingavörur, raf-
eindatæki, svo sem radara og fl.
Fyrirtækið hefur einnig reynt að
hlúa að íslenzkum iðnaði með þvi
að selja Isl. framleiðslu frekar en
innflutta, þar sem um sam-
keppnishæfa vöru er að ræða.
Dótturfyrirtæki Kristjáns
Ó.Skagfjörð eru nú oröin 3 talsins.
Steinavör, Reykver I Hafnarfirði
og Hafver i örfirisey, þar sem
margskonar fiskverkum fer fram
á vegum þess. I örfirisey, hefur
fyrirtækið byggt myndarlegt hús,
þar sem i framtiðinni verða skrif-
stofur og vörulager, enda hefur
það þegar sprengt utan af sér
gamla húsið að Tryggvagötu 4.
Starfsmenn fyrirtækisins hafa
unnið við byggingu nýja hússins i
örfisey i fritimum og hafa þeir
fengiö greitt fyrir það i hluta-
bréfum. Hafa þeingert allt nema
hörðustu fagvinnu.og er það
mikið verk og vel unniö, eins og
flest það, sem komið hefur frá
þessu fyrirtæki i þau 60 ár, sem
það hefur séð landsmönnum fyrir
nauðsynjavörum.
Dr. Róbert A. Ottósson stjórnar Filharmonluhljómsveitinni á æfingu i gær. (Tlmamynd G.E.)
DR. RÓBERT STJÓRNAR
SINFÓNÍUNNI í KVÖLD
SJ-Reykjavik.
Dr. Róbert Abraham Ottósson
stjórnar tónleikum Söngsveitar-
innar Filharmóniu og Sinfóniu-
hljómsveitarinnar i Háskólabiói i
kvöld, fimmtudag. Rétt er að geta
þess i þvi tilefni, að Dr. Róbert
Abraham verður sextugur um
þessar mundir, nánar tiltekið 17.
mai, en hann hefur stjórnað Söng-
sveitinni Filharmóniu á öllum
tónleikum, sem hún hefur tekið
þátt i, ef frá er tekin þátttaka
hennar i setningu Listahátiðar
1970, og enginn hljómsveitarstjóri
hefur stjórnað tónleikum Sin-
fóniuhljómsveitarinnar oftar en
hann.
A efnisskrá tónleikanna annað
kvöld er forleikurinn að Meistar-
söngvurunum eftir Wagner, Sin-
fónia nr. 5 eftir Beethoven og Te
Deum eftir Dvorak, sem ekki hef-
ur verið flutt fyrr hér á landi.
Dovrak samdi Te Deum fyrir ein-
söngvara, kór og hljómsveit i til-
efni Kólumbusarhátiðar til minn-
ingar um 400 ára afmælis komu
hans til Ameriku. Einsöngvarar
eru Svala Nielsen og Guðmundur
Jónsson.
Söngsveitin Filharmónia var
stofnuð 1959 og hefur haldið tón-
leika flest ár siðan og yfirleitt
flutt a.m.k. eitt meiri háttar kór-
verk i hvert sinn. Dr. Róbert er
fæddur i Berlin 1912,
: Hann kom hingað 1935 undan
þvingun nazismans og dvaldist
fyrstá Akureyri. Hann hefur unn-
ið mikið og gott starf i þágu tón-
listar i landinu. Hann er Islenzkur
rikisborgari og hefur bundið
mikla tryggð við sitt siðara föður-
land, menningu þess og það sem
islenzkt er. Dr. Róbert er Söng-
málastjóri þjóðkirkjunnar. Árið
1959 hlaut hann doktorsnafnbót
Háskóla íslands fyrir rit sitt um
Þorlákstiðir. Hann starfar sem
kennari við Háskólann.
FLUGFELAGSÞOTURNAR
FARA ALLT AÐ 21 FERÐ
í VIKU MILLI LANDA í
SUMAR
Sumaráætlun millilandaflugs
Fugfélags tslands h.f. gekk I
gildi 1. april sl. Þessi sumar-
áætlun er sú viðamesta i sögu
félagsins hingaö til og verða þotur
félagsins tvær, Gullfaxi og Sól-
faxi, fullnýttar yfir annantimann.
Auk eigin áætlunarflugs mun
félagiö samkvæmt sérstökum
samningi við S.A.S. annast
áætlunarflug þess milli Kaup-
mannahafnar, Keflavikur og
Grænlands. Þegar áætlunin hefur
að fullu gengið I gildi munu Bo-
eing 727 þotur félagsins fara
tuttugú og eina ferð milli landa I
viku hverri. Auk þotuflugsins eru
ráögerðar þrjár ferðir á viku
milli íslands og Færeyja, og
verða þær farnar með F-27
Friendship skrúfuþotum.
Til Kaupmannahafnar verður
þotuflug alla daga og tvær feröir
á miðvikudögum og sunnudögum.
Auk þess fljúga þotur félagsins
áætlunarflug fyrir S.A.S. frá
Keflavik til Kaupmannahafnar á
mánudögum og föstudögum. Til
Lundúna eru beinar feröir á
þriöjudögum, fimmtudögum,
laugardögum og sunnudögum.
Auk þess flýgur brezka flug-
félagið B.E.A. þessa leið á sunnu-
dögum og miðvikudögum. Til
Glasgow verða fimm ferðir i viku,
á mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum, og næturferðir, að-
Þota Fl
flug til
Klp-Reykjavik.
Sumaráætlun Flugfélagsins
hefur nú tekið gildi og eru miklar
annir framundan hjá félaginu.
Báðar þoturnar veröa fullnýttar I
sumar. önnur þeirra verður eitt-
hvað I lciguflugi og fer hún t.d. i
dag I eitt slikt flug og verður I þvi
eina 8 daga.
Hún fer utan fullsetin far-
þegum, sem fara til Skotlands til
að leika golf, og fer hún með
hópinn til Edinborgar. Þaðan fer
faranótt þriðjudag og aðfaranótt
sunnudags. Til Osló veröa þrjár
ferðir i viku. A þriðjudögum,
fimmtudögum og sunnudögum.
Til Frankfurt am Main verða
tvær ferðir I viku á þriöjudögum
og laugardögum. Til Færeyja
verður flogið á þriöjudögum,
fimmtudögum og sunnudögum.
Millilandaflug Flugfélagsins er
flogið til og frá Keflavikurflug-
velli, nema flugferðir til Færeyja,
sem veröa frá Reykjavlk.
Sumaráætlun Flugfélags
Islands er komin út á Islenzku og
ensku og eru i þeirri útgáfu auk
sjálfrar áætlunarinnar, ýmsar
upplýsingar. Meðal annars um
ýmsa afslætti með flugvélum
félagsins, upplýsingar um skrif-
stofur þess og umboösmenn hér-
lendis og erlendis o.fl. o.fl.
Drengurinn enn
meðvitundarlaus
ÞÓ-Reykjavik.
Litli drengurinn, sem fékk
reykeitrun I brunanum á Hellis-
sandi i byrjun siðustu vdku, og
hefur siöan legiö meðvitundar-
laus á Landspitalanum, er enn
meðvitundarlaus. Læknar á
Landspitalanum sögöu i gær, aö
liðan hans væri alveg óbreytt.
í leigu-
Afríku
vélin til Stansted I Englandi og
tekur farþega til Accra i Ghana.
Þaðan fer hún svo til Lille i
Frakklandi og flýgur með fólk
þaöan til Cagliari á Sardiniu.
Verið getur að vélin fari i milli-
tiðinni i leiguflug frá Antwerpen
fyrir sama flugfélag og keypti
Cloudmastervél Flugfélagsins á
dögunum. En heim kemur vélin
úr þessu mikla flugi n.k. fimmtu-
dagskvöld, með golfáhuga-
mannahópinn frá Edinborg.
HALLD0R GERÐUR AÐ
HEIÐURSBORGARA A
LAUGARDAGINN
Hreppsnefnd Mosfellshrepps
samþykkti einróma að heiöra
Halldór Laxness i tilefni af sjö-
tugsafmæli hans og gera hann að
heiöursborgara Mosfellshrepps.
Verður honum afhent heiðurs-
borgarabréf I kaffisamsæti, sem
hreppsnefndin býður til á laugar-
Jakob
Thorarensen
látinn
SB-Reykjavik.
Jakob Thorarensen skáld, lézt I
gærmorgun, tæplega 86 ára að
aldri. Hann stundaði nám I Iön- ~
skólanum I Reykjavik og siðar
trésmiðanám. 1 allmörg ár stund-
aði hann húsasmiöi.
Fyrsta bók hans, Snæljós kom
út árið 1914, en alls urðu þær átján
að tölu, ljóð og smásögur. Jakob
Thorarensen átti um skeið sæti I
stjórn Félags Islenzkra rit-
höfunda. Hann hlaut Riddara-
kross Fálkaorðunnar 1956.
daginn, 29. april. Hefst samsætið
kl. 15.30.
Til samsætisins býöur hrepps-
nefndin öllum sveitungum Hall-
dórs, sem áhuga hafa á að heiðra
henn með nærveru sinni. Er sér-
staklega vonast eftir þeim vinum
hans og kunningjum sem fluttir
eru burt úr sveitinni.