Tíminn - 27.04.1972, Qupperneq 6
£ TÍMINN Fimmtudagur 27. april 1972
Frá umræðum á Alþingi um verðlagshækkanirnar:
MEGINÞUNGI HÆKKANANNA STAFAR
AF ÁKVÖRÐUNUM, SEM GERÐAR VORU
í TÍÐ FYRRVERANDI RÍKISSTJÓRNAR
- sagði Lúðvík Jósepsson viðskiptamálaráðherra
EB—Heykjavik.
A fundi I Sameinuðu þingi i
fyrradag urðu talsverðar umræð-
ur i fyrirspurnatima um verð-
lagshækkanir þær, sem stjórn-
viild hafa heimilað sfðustu mán-
uði. Bar Gylfi Þ. Gislason (A)
fram fyrirspurn um það efni til
viðskiptamálaráðherra.
t þcssum umræðum sagði Lúð-
vfk Jósepsson viðskiptamálaráð-
herra, að þær verðlagshækkanir,
sem rfkisstjórnin hefði heimilað
eftir áramót, væru vissulega
meiri en æskilegt hefði verið, en
varla væri hægt að sjá, að mögu-
legt hefði verið að komast hjá
þeim eins og i pottinn hefðí verið
búið. Ráöherrann sagði ennfrem-
ur, að Ijóst væri, að meginþunginn
af þeim verðlagshækkunum, sem
nú hefðu verið að koma fram,
stafaði frá ákvörðunum, sem
gerðar hefðu verið i tfð fyrrver-
andi rikisstjórnar, eöa sem bein-
linis ættu rætur að rekja til þess,
sem gerzt hafði í rekstrar- ' og
verölagsmálum áður en núver-
andi rikisstjórn hefði tekið við
völdum.
Magnús Jónsson (S) sagði m.a.
i umræðunum, að sjálfsagt hefði
veriö nauösynlegt og cðlilegt, að
leyfa umræddar verðlagshækk-
anir — og Gylfi Þ. Gislason sagði,
að öllum hefði veriö Ijóst, að um
gffurlega mikinn vanda f verð-
lagsmálum þjóðarinnar hefði
verið að ræöa, sem hlaut að fylgja
I kjölfar langrar verðstöðvunar.
Sagði viðskiptaráöherra, að út af
fyrir sig væri mjög athyglisvert,
að Gylfi Þ. Gislason, fyrrverandi
viðskiptaráðherra, viðurkenndi
þá staðreynd, að hér hefði verið
um mikinn vanda að ræða, sem
fyrrverandi rikisstjórn heföi skil-
ið eftir sig. — En mér þykir mjög
hafa boriö á þvi i málflutningi
þeirra, sem tala fyrir fyrrverandi
rikisstjórn, að þeir vilja kenna
núverandi rikisstjórn um þann
vanda, sem við var að glfma I
þessum efnum, sagði Lúðvik
Jósepsson viðskiptaráðherra m.a
i tilefni viðurkenningar Gylfa Þ.
Gislasonar.
1 upphafi svarræðu sinnar við
fyrirspurn Gylfa Þ. Gislasonar
sagði Lúðvfk Jósepsson viðskipa-
ráðherra, að fyrirspurnin væri
mjög yfirgripsmikil, og hann
hefði þvi valið þann kost aö láta
dreifa meðal þingmanna skrif-
legu svari við fyrirspurninni. —
En ég tel rétt, sagði ráðherrann,
— að láta hér fylgja með þessum
svörum nokkrar almennar skýr-
ingar frá minni hálfu. Verðlags-
hækkanir þær, sem stjórnvöld
hafa heimilaö siöustu mánuði, má
greina i fjóra aðalflokka, eftir þvi
hvaða áátæður eru fyrir þessum
hækkunum.
Verölagshækkanir, sem
stafa frá ákvörðunum
í tið fyrrverandi
stjórnar.
í 1. flokki eru þær verðhækkan-
ir, sem stafa frá ákvörðunum,
sem teknar voru i tið fyrrverandi
rikisstjórnar eða frá kostnaðar-
hækkunum, sem urðu á verð-
stöðvunartimanum. Dæmi um
slikar verðhækkanir, sem nú
koma fram i verðlagi, eru m.a.
þessar: Hækkun á hitaveitugjöld-
um, rafmagnsverði, strætis-
vagnagjöldum, sementsverði,
gjöldum simans, afnotagjöldum
Lúövik Jósepsson — mestmegnis
afleiðingar frá valdatið „við-
reisnar”
útvarps og sjónvarps, bifreiða-
tryggingum, dagblöðum, oliu-
flutningum innanlands, steypu-
stöðvartöxtum og á verði ýmiss
konar iðnaðarvöru. Þeir, sem sótt
hafa um verðhækkanir vegna
þessara þjónustugreina, hafa
fyrst og fremst rökstutt hækkun-
arbeiðnir sinar með þvi, að þeir
hafi ekki fengið nauðsynlegar
verðhækkanir samþykktar á
verðstöðvunartimanurn, og þvi
margir rekið meö halla. Þannig
telja t.d. forsvarsmenn Sements-
verksmiðjunnar, að hækka hefði
þurft verð á sementi um 16,7%
vegna synjunar um hækkun á s.l.
ári og tapreksturs fyrirtækisins.
Rikisstj. heimilaði þó aðeins 10%
verðhækkun á sementi.
Fjármálastjóri útvarpsins taldi
einnig, að hækka þyrfti afnota-
gjöld þess um 32,2% til þess aö ná
fullum rekstursjöfnuði, eins og nú
er komi, en rikisstj. féllst aðeins
á 10% hækkun afnotagjalda. A
svipaðan hátt var rökstuðningur
borgaryfirvalda i Reykjavik fyrir
hækkunarbeiðnum á hitaveitu-
gjöldum og strætisvagnagjöldum.
Eigendur steypustöðva i Reykja-
vik töldu sig þurfa að fá 34-39.5%
verðhækkun, m.a. vegna tap-
reksturs á s.l. ári. Rikisstj.
heimilaði þeim 10% verðhækkun.
Landsvirkj taldi óhjákvæmilegt
að hækka verð á raforku i heild-
sölu um 20%, til þess að fyrirtæk-
ið gæti staðið við samninga við
erlenda aðila um rekstursaf-
komu. Af þeim ástæðum var sið-
an heimiluð 10% verðhækkun á
almennri raforkusölu rafveitna.
Mörg iðnfyrirtæki hafa talið
nauðsynlegt að fá að hækka út-
söluverð á sinni framleiðslu,
vegna þess að á tima verðstöðv-
unarinnar hafi framleiðslu-
kostnaður þeirra farið vaxandi,
m.a. vegna hækkunar á erlendu
efni, eða rekstrarvörum. Verö-
hækkanir af þessu tagi, sem rekja
verður til þess, sem gerzt hafði i
verðlagsmálum fyrir tið núv.
rikisstj., eru tvimælalaust fyrir-
ferðamestar og hafa haft mest
áhrif til hækkunar á visitölu.
Aðrar ástæður
1 2. flokki verðhækkana eru
svo þær verðlagsbreytingar, sem
beinlinis stafa af erlendum verð-
lagshækkunum. Þannig hefur
verðlag á sykri hækkað mjög
Gylfi Þ. Gislason — öllum ljóst,aö
um gifurlegan vanda var að ræða
mikið á heimsmarkaði. Afleiðing-
ar þess eru m.a. þær, að ýmsar
vörur, sem hér eru framleiddar
úr sykri, hafa hækkað i verði. Má
þar til nefna gosdrykki, sælgæti
og ýmsar brauðtegundir. Þá er
einnig vitað, að gjaldeyrir flestra
viðskiptalanda okkar i Evrópu
hefur hækkað siöustu mánuði, en
það hefur skiljanlega leitt til
hækkunar á verði innfluttra vara.
1 3. flokki eru þær verðhækkan-
ir, sem stafa af nýgerðum kaup-
gjaldssamningum. Vegna laga-
ákvæða um, að bændur skuli hafa
sambærileg laun við verkamenn
og iðnaðarmenn, hækkaði verð á
landbúnaðarafurðum um 12-14%,
og afleiðing þess varð sú, að ýms-
ar unnar kjöt- og mjólkurvörur
hlutu einnig að hækka i verði. Þá
hækkaði neyzlufiskur innanlands
um leið og fiskverð var hækkað til
sjómanna. Og um leið og kaup
iðnaðarmanna hækkaði, hlaut út-
seld vinna þeirra að hækka, þó að
dregið væri úr þeirri álagningu,
sem meistarar og fyrirtæki höfðu
áður haft á útseldri vinnu.
I 4. flokki eru svo þær verð-
hækkanir, sem stafa af sérstök-
um ráðstöfunum rikisstj. til
tekjuöflunar fyrir rikissjóð og
vegasjóð. Þar er um að ræða
verðhækkanir á áfengi og tóbaki
og á bifreiðum vegna nýs inn-
flutningsgjalds. Þær verðlags-
hækkanir, sem rikisstj. hefur
heimilað siðan um áramót, eru
vissulega meiri en æskilegt hefði
verið, en varla hægt að sjá, að
mögulegt hefði verið að komast
hjá þeim eins og i pottinn var bú-
ið.
Um geymdan vanda
að ræða
1 tið fyrrv. rikisstj. var samið
um miklar launahækkanir opin-
berra starfsmanna, þ.e.a.s.
starfsmanna i þjónustu rikisins,
rikisfyrirtækja og starfsmanna
bæjarfélaga. Þessir samningar
voru gerðir i des. 1970, eða nokkru
eftir að verðstöðvunín hófst. Þær
launahækkanir hlutu að koma
fram i opinberum rekstri. En
vegna verðstöðvunarinnar komu
afleiðingar þeirra hækkana ekki
fram i verðlagi, og var þvi þar um
geymdan vanda að ræða. Ljóst er
af þvi, sem hér hefur verið sagt,
að meginþunginn af þeim verð-
hækkunum, sem nú hafa verið að
Magnús Jónsson — sjálfsagt verið
nauðsynlegar og eðlilegar verð-
lagshækkanir
koma fram, stafar frá ákvörðun-
um, sem gerðar voru i tið fyrrv.
rikisstj., eða sem eiga beinlinis
rætur að rekja til þess, sem gerzt
hafði i rekstrar- og verðlagsmál-
um áður en núv. rikisstj. tók við
völdum. En rétt er svo að hafa i
huga, að enn hafa ekki verið af-
greiddar beiðnir um hækkun á
álagningu verzlunarfyrirtækja en
sú beiðni er að verulegu leyti rök-
studd með kaupgjaldssamning-
unum, sem áttu sér stað um sið-
ustu áramót og heldúr hefur ekkí
verið tekin aístaoa til beiðni frá
skipafélögum um hækkun á frögt-
um, en beiðni þessara aðila er að
verulegu leyti rökstudd með
launahækkunum, sem einnig urðu
um siðustu áramót.
Afleiðingar i verðlagsmálum af
þeim kaupgjaldssamningum,
sem þá voru gerðir, eiga þvi að
nokkru eftir að koma fram.
Getur hækkað um 5,8
vísitölustig
Eins og fram kemur i hinu
skriflega svari, sem alþingis-
menn hafa fengið, þá er þar gerð
nokkur grein fyrir áhrifum verð-
lagsbreytinganna á visitölu, en þó
hefur ekki þótt fært að gefa hér
ýtarlega upptalningu á áhrifum
vegna þeirra verðbreytinga, sem
ýmist eru nú að eiga sér stað eða
hafa átt sér stað siðustu daga a-
þeim ástæðum, að þar leikur
nokkur vafi á um ýmis atriði. En
þó er það álit Hagstofunnar,
að gera megi ráð fyrir þyi, að
kaupgjaldsvisitalan geti hækk-
að um það bil 5.8 visitölustig,
þegar kaupgjaldsvisitalan kemur
næst til framkvæmda, og yrði þá
kaupgreiðsluvisitalan i kringum
115 stig. En á þessu geta að sjálf-
sögðu enn orðið breytingar.
„Listinn er ófagur^
sagði Gylfi
Gylfi Þ. Gislason sagði, að listi
sá, er viðskiptaráðherra hefði
lagtfyrir þingmenn, væri ófagur.
Þá sagði hann, að öllum hefði
verið ljóst, að um mikinn vanda
hefði verið að ræða i verðlags-
málum þjóðarinnar — og sagði,
að i ljós hefði komið, að núver-
andi rikisstjórn hefði ekki reynzt
þeim vanda vaxin að leysa málin.
Siðan kvaðst Gylfi ekki ætla að
ræða þessi mál að sinni,. það
myndi hann gera á eðlilegri
grundvelli.
„Eimskipafélagið hækkaði
um allt að fjórðungi"
sagði Jón Ármann
Jón Armann Héðinsson (A)
kvaðst hafa lista undir höndum,
þar sem kæmi fram, að Eim-
skipafélagið hefði hækkað um allt
Jóhann Ilafstein — Gunnar J.
Friðriksson geri grein fyrir máli
sinu
að fjórðungi gjöld fyrir útflutning
á vörum frá landinu. Spurði hann
siðan viðskiptaráðherra að þvi
hvort félaginu hefði verið heimil-
uð þessi hækkun.
Lúðvik Jósepsson viðskiptaráð-
herra kvaðst játa, að honum væri
ekki kunnugt um neina slika
heimild, og væri sjálfsagt að huga
að þvi, hvernig þessu væri háttað.
— En hitt veit ég, sagði ráðherr-
ann, — að Eimskipafélagið hefur
þegar gert samninga til lengri
tima við aðila, sem hafa með
höndum mikinn hluta af okkar út-
flutningi, eins og t.d. Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna o.fl. um flutn-
ing á frosnum fiski og þéim samn-
ingum sem eru til miklu lengri
tima, hefur að visu veriö breytt,
en það hefur aðeins orðið um
mjög litla hækkun að ræða, ég
held innan við 4% frá þvi, sem áð-
ur hafði verið. En þetta atriði
mun út af fyrir sig verða tekið til
athugunar.
Fyrrverandi fjármálaráð-
herra
telur verðlagshækkanirnar
eðlilegar
Magnús Jónsson (S) taldi, að
sjálfsagt hefði verið nauðsynlegt
og eðlilegt að leyfa umræddar
verðlagshækkanir. Þá beindi
Magnús þeirri fyrirspurn til við-
skiptamálaráðherra, hvort rikis-
stjórnin myndi gera ráðstafanir
til þess að hækka kaupgreiðslu-
visitöluna, ef kauplagsnefnd teldi
sér ekki fært að lita framhjá þeim
breytingum, sem yrðu, eða gera
breytingar á grundvelli kaup-
gjaldsvisitölunnar með tilliti til
þess, að nú væru nefskattar felld-
ir niður.
Lúðvik Jósepsson viðskiptaráð-
herra sagði m.a. vegna fyrir-
spurnarinnar: — Ég tel, að það sé
enginn vafi á þvi, að kaupgjalds-
nefnd muni f jalla um þetta mál og
að það sé aðeins i fullu samræmi
við hennar vinnubrögð. Ég vil t.d.
nefna eitt dæmi. Eins og kunnugt
er, varð sú breyting á s.l. hausti,
að iðgjöldum til bifreiðartrygg-
inga var breytt i grundvallarat-
riðum frá þvi, sem áður var. Tek-
in var upp svonefnd sjálfsábyrgð i
stað beins iðgjalds, að nokkru
leyti. Kaupgjaldsnefnd ákvað að
meta þetta, þó að það væri ekki i
visitölugrundvellinum. Og hún
mat þetta sem tiltekna iðgjalda-
hækkun og hækkaði visitöluna um
rúmlega 0,2 stig af þessum ástæð-
um. Ég efast ekkert um það, að
kaupgjaldsnefnd hlýtur að fjalla
um þetta mál, og ég held, að
rikisstjórnin hafi ekki i huga að
bla-da sér i það á neinn hátt.
Framhald á bls. 15