Tíminn - 27.04.1972, Qupperneq 9
Fimmtudagur 27. april 1972
TÍMINN
9
næði. Og þá má ekki gleyma þvi, að
við hér úti á landsbyggðinni þurf-
um að borga tvöfalt flutningsgjald
miðað við Faxaflóasvæðið og
meira en það. Þetta er hlutur, sem
þarf að laga hið bráðasta, enda
engin hemja að einn landshlutinn
skuli þurfa að borga lægri
flutningsgjöld en annar. Þá vantar
okkur alltaf fleiri menn til vinnu.
Um þessar mundir vinna 25 menn
hjá Vélsmiðjunni, en þeir þyrftu að
vera 40-50 miðað við verkefnin.
— Er búið að semja um smíði á
fleiri bátum?
— Já, við erum byrjaðir á öðrum
báti eins og þessum, sem nú er
langt kominn, og búið er að semja
um smiði á þeim þriðja, þannig að
við þurfum ekki að tala um verk-
efnaskort.
— Nú sjáið þið eingöngu um stál-
smíðina. Hverjir hafa annazt
tréverk fyrir ykkur?
— Skipasmiðastöð Austfjarða
hefur alla tið gert það. Góð
samvinna hefur ávallt verið milli
þessara fyrirtækja og annast
skipasmiðastöðin allar trevið-
gerðir fyrir okkur, ásamt þvi að
ganga frá tréverki i nýsmiði.
Álíka afli og allt fyrsta árið
Fiskvinnslan h.f. heitir annað
fiskiðjuverið á Seyðisfirði. Fyrir-
tækið var stofnað árið 1969 og frá
upphafi hefur Þorbergur Þórðar-
son verið framkvæmdastjóri þess.
Sagði Þorbergur, að i fyrstu hefði
verið erfitt að reka frystihúsið, en
það hefði smálagazt og um þessar
mundir væri óhætt að segja, að
reksturinn gengi vel. Það sem af er
þessu ári er kominn meiri afli á
land á Seyðisfirði en allt fyrsta
árið, sem frystihúsið var starfrækt.
— Hvað var erfiðast i byrjun?
— Þegar við byrjuðum voru allir
óvanir og tækjaútbúnaður litill.
Þetta hefur allt lagazt mjög, og
þjálfunin á fólkinu gekk mjög vel.
Vélakostur allur hefur batnað
mjög, og erum við nú að taka i not-
kun nýja og fullkomna vélasam-
stæðu frá Baader verksmiðjunum
þýzku. Nýtingin á aflanum hefur
batnað mjög mikið og hefur það
ekki svo litið að segja fyrir fyrir-
tæki sem þetta.
.
■
.
-'w ■•<.
Seyðisfjörður. Timamynd KJ
tók svo við með Gullver'65 og var
með hann þangað til togarinn kom
nú i febrúar.
Jón sagði okkur, að þann tima,
sem hann hefði verið skipstjóri frá
Seyðisfirði, hefði hann verið með
þrennskonar veiðarfæri. Meðan
sildin var sem gjöfulust, var verið
með nót allt árið, en eftir að sildin
hvarf var verið á trolli yfir sumar-
timann, og á elzta Gullver var
einnig verið á netum frá Vest-
manneyjum.
— Hvaða veiðiskapur finnst þér
skemmtilegastur?
— Mér finnst alltaf skemmti-
legast á nótinni, en það er gaman
að öllum veiðiskap, er vel gengur.
— Var ekki orðið erfitt að stunda
sildveiðina eins og t.d. árið 1968?
— Það er ekki hægt að neita þvi,
enda var maður ekkert heima á
þessu ári. Við fórum norður undir
Svalbarða strax um sumarið og
vorum þar i 6 vikur. Heima vorum
við svo i 3 daga, en þá var farið til
sildveiða i Norðursjó og verið þar
til 15. desember.
— Telur þú einhverja framtið i
sildveiðinni i Noröursjó?
— Ég tel tvimælalaust vera
framtið i þeim veiðum, það er að
segja ef skynsamlega verður á
hlutunum haldið, og ekki gengið of
mikið á stofninn. Það yrði baga-
legt, ef þær veiðar legðust niður.
Þennan dag, sem við vorum á
Seyðisfirði, var Gullver að landa úr
sinum fyrsta túr, siðan skipið var
keypt til Seyðisfjarðar. En Gullver
var smiðaður i Fredrikshavn i
Danmörku og gerður þaðan út,
áður en hann var keyptur til
Seyðisfjarðar af Brimberg h.f.
Aflinn i þessari fyrstu veiðiferð var
mjög góður, þvi að eftir 8 daga
úthald var hann orðinn 120 tonn.
Við spurðum Jón, hvort það væru
ekki mikil viðbrigði að skipta frá
siðutrolli og yfir i skuttog, og um
leið að fá stærra skip.
Jón sagði, að viðbrigðin væru
auðvitað mikil að mörgu leyti.
Stærra skip gæfi aukið pláss, og
með skuttoginu gengi allt fljótara
fyrir sig, og að auki væri hægt að
vera að i verri veðrum. En ekki
sagðist Jón geta ennþá sagt svo
mikið um skuttogið, þar sem hann
væri aðeins búinn að fara eina
veiðiferð á Gullver.
.................... :
M
Gamla fólkið flakar af krafti f frystihúsinu
— Hvernig hefur fiskurinn verið
i vetur?
— Hann hefur verið góður. Af
heildaraflanum hafa um 400 tonn
farið i salt, en hitt hefur allt farið i
flökun. En það er ekki þar með sagt,
að ekki sé hægt að fá betri fisk, og
til þess að fá enn betra hráefni, þá
höfum við i hyggju að breyta mót-
tökunni i vor, og um leið verða
settir kassar um borð i bátana, en
það verður örugglega þannig i
framtiðinni, að allur fiskur verður
settur i kassa,er hann kemur um
borð. En ekki er nóg, að bátarnir
komi með góðan fisk að landi.
Meðferðin i landi þarf lika að batna
og i þvi skyni ætlum við að koma
upp kældri móttöku hjá okkur.
— Hvað vinnur margt fólk við
fiskinn i landi á Seyðisfirði?
— Hjá okkur i Fiskvinnslunni
vinna um 60 manns og hjá Norður-
sild vinna um 35 manns. Allt þetta
fólk er heimafólk.
Gaman að öllum veiðiskap
ef vel gengur
Skipstjóri á hinum nýja
skuttogara þeirra Seyðfirðinga er
Jón Pálsson, en Jón, sem er fæddur
Vestmannaeyingur, hefur verið
skipstjóri á Seyðisfirði frá þvi á
árinu 1959, og byrjaði þá með bát,
sem bar sama nafn og nýi
skuttogarinn ber. Jón var skip-
stjóri á elzta Gullver frá '59 til '64,
Arið'64 var hann með Gullberg en
■
■
Frystihús Fiskvinnslunnar á Seyðisfiröi